des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb.
María Níelsdóttir, innborinn Kópavogsbúi, var 500.000. gesturinn í Sundlaug Kópavogs. Hún kom í laugina rétt um hádegið og afhentu Gunnsteinn Sigurðsson, bæjarstjóri í Kópavogi, og Jakob Þorsteinsson, forstöðumaður sundlaugarinnar, henni blómvönd, árskort í líkamsrækt og sund og gjafapakka. Aldrei hafa eins margir gestir sótt laugina á einu ári.
Forseti bæjarstjórnar, Ármann Kr. Ólafsson, afhenti útskriftarnemum í Menntaskólanum í Kópavogi viðurkenningar fyrir afbragðs árangur úr Viðurkenningarsjóði MK sem bæjarstjórn Kópavogs stofnaði árið 1993. Fjórir nemar hlutu viðurkenningu að þessu sinni, nýstúdentarnir Bryndís Freyja Petersen, sem var dúx skólans, og Ragnhildur Björk Theodórsdóttir og nýsveinar í framreiðslu, Silja Brá Guðlaugsdóttir, og matreiðslu, Bjarni Siguróli Jakobsson.
Í tillögu að fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir árið 2010, sem lögð var fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn Kópavogs í dag, er gert ráð fyrir 25 milljóna króna rekstrarafgangi.
„Knattspyrnudeild Breiðabliks bætti fallegri skrautfjöður í hatt sinn á liðinni leiktíð þegar lið Fram var lagt að velli í æsispennandi úrslitaviðureign á Laugardalsvelli í bikarkeppninni í knattspyrnu,“ segir Gunnsteinn Sigurðsson bæjarstjóri meðal annars í ávarpi í nýútkomnu ársriti Breiðabliks sem er að finna á heimasíðu félagsins. „Þetta er í fyrsta sinn sem Breiðablik vinnur bikarinn í karlaflokki og fylgir með því eftir fjölda glæstra sigra í kvennaboltanum.“
Þorbjörn Jensson, forstöðumaður Fjölsmiðjunnar við Kópavogsbraut, hlýtur Barnamenningarverðlaun Velferðarsjóðs barna árið 2009 fyrir ómetanlegt starf sitt í þágu ungmenna. Verðlaunaféð, 3,5 milljónir króna, verður nýtt til að efla uppbyggingu Fjölsmiðjunnar, meðal annars nýja tónlistardeild. Alls var úthlutað ríflega 26 milljónum króna úr Velferðarsjóði barna í dag en heildarúthlutunin úr sjóðnum í ár nemur alls um 160 milljónum króna.
Jólahátíð í Kópavogi verður á Hálsatorgi laugardaginn 28. nóvember og í nærliggjandi menningarstofnunum. Kópavogsbúum og öðrum gestum er meðal annars boðið að taka þátt í laufabrauðsbakstri, hlusta á jólasöngva, fræðast um jólaköttinn og tendra á jólaljósunum á vinarbæjarjólatré Kópavogsbúa. Undanfarin ár hefur myndast sannkölluð fjölskyldustemning þennan dag enda höfðar dagskráin til allra aldurshópa.
Lista- og menningarráð Kópavogs efnir til árlegrar ljóðasamkeppni undir heitinu „Ljóðstafur Jóns úr Vör“. Skilafrestur ljóða er til 11. desember næstkomandi.Veitt verða vegleg verðlaun og mun verðlaunaskáldið fá til varðveislu í eitt ár göngustaf Jóns úr Vör sem á verður festur skjöldur með nafni skáldsins.
Stíllinn, hönnunarkeppni unglinga á landsvísu, verður haldin í Vetrargarðinum í Smáralind laugardaginn 21. nóvember frá kl. 13:00 – 18:00.
Íbúum í Kópavogi er boðið að koma að stefnumótun um þróun byggðar og samfélags í tengslum við endurskoðun aðalskipulags Kópavogs og Staðardagskrár 21 fyrir Kópavog. Skipulags- og umhverfissvið efnir til þriggja opinna funda þar sem óskað verður eftir hugmyndum og tillögum frá íbúum bæjarins um Kópavog framtíðarinnar undir yfirskriftinni: „Í þannig bæ vil ég búa.“
Bæjarstjórn Kópavogs býður til kynningar á hugmyndum um nýstárlega nýtingu Þríhnúkagígs í þágu ferðamennsku og fræðslu um náttúru Íslands. Kynningin fer fram í Salnum í Kópavogi miðvikudaginn 18. nóvember kl. 17:00. Að fundinum standa bæjarstjórn Kópavogs, VSÓ Ráðgjöf og Náttúrufræðistofa Kópavogs. Fundurinn er opinn og allir eru velkomnir.
Forvarnanefnd Kópavogs býður til ráðstefnu um forvarnir í Salnum 16. nóvember næstkomandi kl. 15–17:30 í tilefni af nýrri forvarnastefnu Kópavogs. Yfirskrift ráðstefnunnar er: „Er allt í lagi hjá okkur?" Á ráðstefnunni verður stefnan kynnt. Fulltrúar frá stofnunum, deildum og félagasamtökum í Kópavogi, sem þátt tóku í mótun hennar, flytja erindi ásamt gestafyrirlesurum.
Forvarnaráðstefna 2009 - dagskrá
Gunnsteinn Sigurðsson, bæjarstjóri í Kópavogi, og Ómar Stefánsson, formaður bæjarráðs, afhentu Mæðrastyrksnefnd Kópavogs styrk á dögunum sem var ákveðinn í bæjarstjórn í tilefni af 1000. fundi hennar í september. Styrkurinn nemur 1000 krónum á hvern fund sem haldinn hefur verið frá upphafi og er alls ein milljón króna.
Norræna bókasafnavikan verður 9. — 15. nóvember í Bókasafni Kópavogs. Þemað verður stríð og friður á Norðurlöndum. Upphafsatriðið er mánudaginn 9. nóvember kl. 18:00 í fundarsalnum Kórnum á Bókasafni Kópavogs. Þá verða lesin ljóðin Skandinavisk förstås eftir Benny Andersen Gamli Stál eftir Runeberg í þýðingu Matthíasar Jochumssonar.
Brúðuleiksýning fyrir 2ja til 6 ára börn verður á Bókasafni Kópavogs 7. nóvember. Sýningin heitir Sólarsaga og er í flutningi Helgu Arnalds. Sýnt verður kl. 13:00 í Lindasafni, Núpalind 7, og kl. 15:00 í aðalsafni í Hamraborg 6a. Sýningin tekur 40 mínútur. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Aðgangur er ókeypis.
Írsk menningarhátíð í Kópavogi stendur sem hæst en henni lýkur á sunnudag. Dagskránni hefur verið mjög vel tekið, ekki síður meðal grunnskólanemenda en annarra hátíðargesta, en Kópavogsbær hefur ávallt reynt að leiða saman yngstu kynslóðina og þá framúrskarandi listamenn sem heiðra hina erlendu menningardaga á hverju ári með nærveru sinni og þátttöku.
Vegna mikillar eftirspurnar hefur verið ákveðið að írski RAGÚS dans- og tónlistarhópurinn haldi aukasýningu á írskri menningarhátíð í Kópavogi. Hópurinn er þekktur fyrir að framkalla ekta írska stemningu sem verður ógleymanleg öllum áhorfendum enda varð fljótt uppselt á allar áformaðar sýningar. Aukasýningin verður á sunnudag 11. október kl. 14. Miðasala fer fram í Salnum.
Handknattleiksfélag Kópavogs HK hefur fyrst íslenskra íþróttafélaga sett sér heildstæðar siðareglur. Hlutverk þeirra er að veita þeim sem koma að íþróttum almennar leiðbeiningar og vera þeim hvatning. Reglunum er beint til forráðamanna iðkenda, yngri og eldri iðkenda og þjálfara auk stjórnar- og starfsmanna.
Fjölmennt var við setningu á sýningunni „Heilbrigð æska - pönkið og Kópavogurinn 1978 – 1983“ í Tónlistarsafni Íslands um helgina. Ómar Stefánsson, formaður bæjarráðs, opnaði sýninguna formlega og nefndi Kópavog vöggu pönksins á Íslandi, Sigurrós Þorgrímsdóttir, formaður lista- og menningarráðs, ávarpaði gestina og dr. Gunni fór nokkrum orðum um pönkið í bænum.
Evrópska samgönguvikan var sett í gær. Kópavogur er meðal 2000 borga og bæja sem tekur þátt í henni en markmiðið er að huga að því sem betur má fara í umhverfismálum. Toyota á Íslandi afhenti Gunnsteini Sigurðssyni bæjarstjóra og Ómari Stefánssyni, formanni bæjarráðs, Toyota Prius tvinnbíla til reynslu en þeir eru sagðir eyða helmingi minna eldsneyti en sambærilegar bílar með því að þeir nýta rafmagn sem þeir framleiða sjálfir við akstur.
Gunnsteinn Sigurðsson, bæjarstjóri í Kópavogi, tók á móti skáksveit Salaskóla í Leifsstöð síðdegis í dag, þegar hún kom heim frá Svíþjóð eftir að hafa unnið sigur á Norðurlandamóti grunnskóla í skák. Gunnsteinn afhenti fyrir hönd bæjarstjórnar Kópavogs hverjum hinna ungu skáksnillinga í sveitinni iPod Nano 8GB frá Apple á Íslandi að gjöf.