Fréttasafn

Fyrirsagnalisti

Handbók félagsmiðstöðva ÍTK komin út - 30.1.2009

Í handbók félagsmiðstöðva Íþrótta- og tómstundaráðs Kópavogs er gerð grein fyrir starfi félagsmiðstöðvanna og fjallað um markmiðin með unglingastarfinu. Þá er þar einnig að finna upplýsingar um stjórnendur og starfsfólk.

Sigurvegarar í Söngkeppni ÍTK fara í Höllina - 30.1.2009

Sigurvegararnir, Harpa Ósk og Glódís Perla.Harpa Ósk Björnsdóttir og Glódís Perla Viggósdóttir úr félagsmiðstöðinni Igló, Snælandsskóla, unnu 1. sætið í Söngkeppni ÍTK á miðvikudagskvöldið, 28. janúar síðastliðinn. Þrjú efstu sætin unnu til þátttöku í söngkeppni Samfés á Samféshátíðinni í Laugardalshöll helgina 20.–21. febrúar næstkomandi.

Skíðaganga á golfvellinum - 29.1.2009

Áhugamenn um skíðagöngu eru boðnir velkomnir á golfvöll GKG. Skíðagöngubraut hefur verið troðin um golfvöllinn Garðabæjarmegin á landi golfklúbbsins. Hægt er að leggja bílum við golfskálann eða æfingasvæðið og skemmta sér með skíðagöngu á meðan snjórinn dugar.

Jafnréttisnefnd gefur bækur - 28.1.2009

Una María Óskarsdóttir, formaður jafnréttisnefndar, afhenti skólastjórum leikskóla og grunnskóla Kópavogs bækur um jafnrétti í skólastarfi, hér er hún með leikskólastjórum.Jafnréttisnefnd Kópavogsbæjar ákvað í tilefni af þátttöku bæjarins í verkefninu „Jafnrétti í skólum” að gefa skólastjórum leik- og grunnskóla bæjarins bækur um jafnrétti í skólastarfi. Formaður jafnréttisnefndar, Una María Óskarsdóttir, afhenti bækurnar, á fundum skólastjóra bæjarins nýlega.

Kópavogsbúar 30 þúsund - 26.1.2009

30.000. Kópavogsbúinn er sonur Brynju Gísladóttur og Jóhannesar Kr. KristjánssonarÍbúar í Kópavogi urðu 30 þúsund 10. janúar síðastliðinn þegar Jóhannesi Kr. Kristjánssyni og Brynju Gísladóttur fæddist sonur.

Tónlistarsafn Íslands sett á fót í Kópavogi - 23.1.2009

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri undirrituðu samninginn um stofnsetningu Tónlistarsafns Íslands og bæjarfulltrúarnir Sigurrós Þorgrímsdóttir og Ólafur Þór Gunnarsson skrifuðu undir sem vottar.Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra fyrir hönd menntamálaráðuneytisins og Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri fyrir hönd Kópavogsbæjar undirrituðu í dag samning um stofnun og rekstur Tónlistarsafns Íslands í Kópavogi. „Söguleg stund,“ sagði Jónas Ingimundarson, píanóleikari og tónlistarráðunautur Kópavogs.

Anton Helgi fékk Ljóðstafinn 2009 - 21.1.2009

F.v. Sigurrós Þorgrímsdóttir, Þórarinn Eldjárn, Sigþrúður Gunnarsdóttir, Gunnar I. Birgisson, Anton Helgi Jónsson, Einar Tómasson, Ingibjörg Haraldsdóttir og Agnes Gunnarsdóttir.Anton Helgi Jónsson rithöfundur hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör fyrir ljóð sitt „Einsöngur án undirleiks“ í árlegri ljóðasamkeppni lista- og menningarráðs Kópavogs. Anton Helgi er sjöundi handhafi verðlaunanna frá stofnun samkeppninnar árið 2002.

Þjónustusamningur um Aðalþing - 21.1.2009

Ómar Stefánsson, formaður bæjarráðs, og Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri skrifuðu undir þjónustusamninginn um rekstur leikskólans Aðalþings fyrir hönd Kópavogsbæjar og Guðrún Alda Harðardóttir og Sigurður Þór Salvarsson fyrir hönd Sigöldu ehf. Kópavogsbær hefur gert þjónustusamning við Sigöldu ehf. um rekstur leikskóla við Aðalþing í Kópavogi. Aðalþing verður um 120 barna leikskóli sem gert er ráð fyrir að taki til starfa í febrúar eða mars næstkomandi.

Ljóðstafur Jóns úr Vör á miðvikudag - 19.1.2009

Auglýsing um afhendingu verðlauna í ljóðasamkeppninni Ljóðstafur Jóns úr Vör miðvikudaginn 21. janúar 2009.Verðlaun í ljóðasamkeppninni Ljóðstafur Jóns úr Vör verða veitt í áttunda sinn miðvikudaginn 21. janúar kl. 20 í Salnum. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.

Umsóknir í TÍBRÁ - 19.1.2009

Salurinn, Tónlistarhúsi Kópavogs, auglýsir eftir umsóknum um þátttöku í TÍBRÁR tónleikaröðinni starfsárið 2009 til 2010.Auglýst hefur verið eftir umsóknum um þátttöku í tónleikaröðinni TÍBRÁ í Salnum starfsárið 2009–2010.

Samið við dansfélagið Hvönn um aðstöðu í Kórnum - 16.1.2009

Ómar Stefánsson, formaður bæjarráðs, Hafsteinn Örn Guðmundsson, formaður Hvannar, Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri og Hildur Ýr Arnarsdóttir, danskennari og skólastóri.Kópavogsbær hefur gert samning við dansfélagið Hvönn um afnot af æfingahúsnæði í fjölnotahúsinu Kórnum.

Samið við GKG um aðstöðu í Kórnum - 16.1.2009

Ómar Stefánsson, formaður bæjarráðs, Guðmundur Oddsson, formaður GKG, Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri og Ólafur E. Ólafsson, framkvæmdastjóri GKGKópavogsbær hefur gert samning við Golfklúbb Kópavogs- og Garðabæjar (GKG) um afnot af æfingahúsnæði í fjölnotahúsinu Kórnum.

Hugarheill gegn þunglyndi og óyndi - 16.1.2009

Forvarnanefnd Kópavogs hefur samið við dr. Eirík Örn Arnarson sálfræðing um verkefnið Hugarheill, Hugur og heilsa, fyrir grunnskóla Kópavogs en það er forvörn gegn þunglyndi. Markmiðið er að verkefnið skili góðum árangri sem forvörn gegn þunglyndi eða óyndi í grunnskólum Kópavogs og að verkefnið verði að árlegu verkefni fyrir 9. bekkinga.

Útsvar í kvöld - 16.1.2009

Í kvöld kl. 20.15 eigast við lið Kópavogs og Skagafjarðar í Útsvari, spurningaleik Sjónvarpsins.

Ljóðasamvinna kynslóðanna - 15.1.2009

Átta ára nemendur í Kópavogsskóla og eldri borgarar í félagsmiðstöðinni Gjábakka í Kópavogi sameina krafta sína og gefa út ljóðabók.

Sorphirðudagar í Kópavogi 2009 - 15.1.2009

Dagatal með sorphirðudögum í Kópavogi hefur verið birt á heimasíðu bæjarins. Litapunktar á dagatali sem fylgir korti af bænum sýna á hvaða dögum tæmt verður. Enn fremur eru endurvinnslustöðvar Sorpu og grenndargámar merktir inn á kortið.

Athugasemdir eða ábendingar skulu berast Áhaldahúsi Kópavogs í síma 5701660.

Sorphirðudagatal Kópavogs

Jafnréttisþing 16. janúar - 12.1.2009

Auglýsing fyrir jafnréttisþing 16. janúar 2009.Í samræmi við nýsamþykkt lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla boða félags- og tryggingamálaráðuneytið og Jafnréttisráð til jafnréttisþings 16. janúar næstkomandi að Hótel Nordica klukkan 9 til 17.

Gítarsnillingur hlaut tónlistarstyrk Rótarý - 10.1.2009

Ögmundur Þór Jóhannesson gítarsnillingur.Ögmundur Þór Jóhannesson gítarleikari hlaut í föstudagskvöldið 9. janúar 500 þúsund króna styrk úr Tónlistarsjóði Rótarý en úr honum er úthlutað á árlegum stórtónleikum Rótarýumdæmisins á Íslandi í Salnum.

Stórtónleikar Rótarý í Salnum - 7.1.2009

Þóra Einarsdóttir sópransöngkona og Jónas Ingimundarson píanóleikari á æfingu fyrir tónleika Rótarý í Salnum.Nánast er uppselt á árlega stórtónleika Rótarý í Salnum, Tónlistarhúsi Kópavogs, föstudagskvöldið næstkomandi, 9. janúar, kl. 20. Í þetta sinn verða haldnir tvennir tónleikar og eru enn til miðar á þá seinni, laugardaginn 10. janúar kl. 16. Öllum er heimill aðgangur og er miðaverð 3500 kr.

Jólatré og flugeldarusl hirt - 6.1.2009

Starfsmenn áhaldahúss Kópavogsbæjar fara þessa dagana um bæinn og hirða jólatré og rusl eftir flugelda sem íbúar hafa komið fyrir utan við lóðamörk. Hreinsunarátakið stendur til 16. janúar. Eftir það þurfa íbúar sjálfir að koma trjánum í Sorpu eða annan endurvinnslustað.

Þrettán bæjarstarfsmenn fengu gullúr - 5.1.2009

F.v. Dagbjört Árnadóttir, Ástfríður Árnadóttir, Dagný Karlsdóttir, Ásdís Ólafsdóttir, Erla Vigdís Kristinsdóttir, Þóra Gunnarsdóttir, Gerður Guðmundsdóttir, Hulda Brynjúlfsdóttir, Hólmfríður K. Sigmarsdóttir, Unnur Kristinsdóttir, Linda Björk Ólafsdóttir og Gunnar I. Birgisson. Guðrún Sæmundsdóttir og Ragnhildur Ellertsdóttir voru ekki viðstaddar.Þrettán starfsmenn hafa á þessu ári náð 25 ára starfsaldri hjá Kópavogsbæ. Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri afhenti þeim viðurkenningu af þessu tilefni rétt fyrir áramót.

Gunnleifur og Linda Björk íþróttamenn ársins - 5.1.2009

F.v. Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri, íþróttakarl og -kona Kópavogs 2008, þau Gunnleifur V. Gunnleifsson og Linda Björk Lárusdóttir, Ómar Stefánsson, formaður bæjarráðs, og Ásthildur Helgadóttir, formaður ÍTK.Gunnleifur V. Gunnleifsson, knattspyrnumaður úr HK, og Linda Björk Lárusdóttir, frjálsíþróttakona úr Breiðabliki, hafa verið kjörin íþróttakarl og íþróttakona Kópavogs fyrir árið 2008. Flokkur ársins var kjörinn P-1 meistaraflokkshópur Gerplu í hópfimleikum. Kjörinu var lýst á íþróttahátíð Kópavogs í Salnum í kvöld.

Salurinn lundur við lífsins læk - 3.1.2009

Skólakór Kársness syngur undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur á 10 ára afmælistónleikum Salarins.„Salurinn í Tónlistarhúsi Kópavogs er einn af vaxtarbroddum tónlistarlífsins í landinu,“ sagði Sigurrós Þorgrímsdóttir, formaður lista- og menningarráðs Kópavogs, í ávarpi sínu í tilefni af 10 ára afmæli Salarins, tónlistarhúss Kópavogs, í gær.

Námskeiðið ?Barnið komið heim? slær í gegn - 2.1.2009

Hluti þátttakenda á námskeiðinu Barnið komið heim lætur fara vel um sig í sal Kvenfélags Kópavogs.Foreldranámskeið, sem ÓB-ráðgjöf heldur á vegum Félagsþjónustu Kópavogs, hafa notið mikilla og verðskuldaðra vinsælda. Nýtt námskeið hefst 19. janúar næstkomandi.

Almenn ánægja með daggæslu í Kópavogi - 2.1.2009

97% svarenda í könnun um daggæslu í Kópavogi eru mjög eða frekar ánægð með daggæslu sinna barna.Almenn ánægja ríkir með daggæslu í Kópavogi samkvæmt niðurstöðum árlegrar könnunar sem daggæsludeild Félagsþjónustu Kópavogs lætur framkvæma.