Fréttasafn

Fyrirsagnalisti

Öskudagur - 26.2.2009

Iðunn, Saga Sól og Guðný Margrét heimsóttu bæjarskrifstofur Kópavogs á öskudaginn.Kópavogsbær fékk fjölda barna í heimsókn á öskudag sem sungu og þágu góðgæti. Þar á meðal voru Saga Sól og Guðný Margrét í gervi húss og Iðunn í búningi listmálara.

Þjónusta við atvinnulausa - 20.2.2009

Bæjarráð Kópavogs hefur samþykkt að Kópavogsbær greiði fyrir sex mánaða bókasafnskort og sömuleiðis þriggja mánaða kort til að stunda líkamsrækt, hvort heldur er í sundlaugum bæjarins eða líkamsræktarmiðstöðvum, fyrir Kópavogsbúa sem eru á atvinnuleysisbótum og ekki njóta samsvarandi styrkja frá stéttarfélagi.

Húmor og fyndni í Bókasafni Kópavogs - 18.2.2009

Bjarni HarðarsonBjarni Harðarson, fyrrverandi alþingismaður, er væntanlegur í Bókasafn Kópavogs fimmtudagskvöldið 19. febrúar til að tala um íslenska fyndni. Heimsókn hans er liður í röð erinda um húmor og fyndni sem haldin eru í bókasafninu.

Fjölþætt samstarf við OR innsiglað - 16.2.2009

Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri og Hjörleifur Kvaran, forstjóri OR, undirrita samningana á bæjarskrifstofum Kópavogs.Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, og Hjörleifur B. Kvaran, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, hafa gengið frá samkomulagi um samstarf við sameiginlegar framkvæmdir, götulýsingu og rafmagnskaup fyrir stofnanir sveitarfélagsins af Orkuveitunni.

Dagatal í tilefni af afmæli Kvennasamnings - 13.2.2009

Frá afhendingu dagatalsins, f.v. Kristín Ólafsdóttir, jafnréttisfulltrúi Kópavogsbæjar, Álfheiður María Ívarsdóttir, Anna Maggý Grímsdóttir, Haukur Kristinsson, Jón Einar Christensen og Íris Arnardóttir, náms- og starfsráðgjafi, sem einnig hefur umsjón með verkefninu Jafnrétti í skólum í Hörðuvallaskóla.Jafnréttisstofa hefur gefið út dagatal í tilefni 30 ára afmælis samnings um afnám allrar mismunar gagnvart konum eða Kvennasáttmálans sem var samþykktur af allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 18.desember 1979. Myndin er frá afhendingu dagatalsins í Hörðuvallaskóla.

Frábær árangur á Íslandsmóti í skák - 12.2.2009

Íslandsmót grunnskólasveita í skák í stúlknaflokki fór fram í Salaskóla. Ljósmyndin er fengin á heimasíðu skólans.Stúlkur í grunnskólum í Kópavogi sóttu bæði gull og silfur á Íslandsmót grunnskólasveita í skák í stúlknaflokki. Salaskóli sigraði en Hjallaskóli varð í öðru sæti.

Reglur um tónlistarnám í öðru sveitarfélagi - 9.2.2009

Tónlistarskóli Kópavogs er rekinn í Tónlistarhúsi Kópavogs ásamt Salnum og tengist bæði Bókasafni Kópavogs og Náttúrufræðistofu Kópavogs. Ljósmynd: Brynhildur Gunnarsdóttir.Tómstunda- og menningarsvið Kópavogsbæjar fer með umboð sveitarfélagins vegna greiðslu kostnaðar af tónlistarkennslu í öðru sveitarfélagi. Tónlistarnemendur í Kópavogi þurfa að sækja um námsvist í öðru sveitarfélagi í samræmi við reglur sem hafa verið birtar á heimasíðu bæjarfélagsins.

Lífshlaupið hafið - 5.2.2009

Lífshlaupið, sem hófst í dag, er hvatningar- og átaksverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. Lífshlaupið höfðar til allra landsmanna og er ætlað að skapa skemmtilega stemningu og auka félagsandann á vinnustöðum.

Lokað í innheimtu og bókhaldi á morgun - 5.2.2009

Vegna uppfærslu á tölvukerfi bæjarskrifstofa Kópavogs verður lokað í innheimtu og bókhaldi bæjarins á morgun, föstudaginn 6. febrúar.

Dagur leikskólans 2009 - 3.2.2009

Leikskólabörn á Kópasteini.Dagur leikskólans 6. febrúar er nú haldinn hátíðlegur öðru sinni. Yfirskrift dagsins í leikskólum Kópavogs er að „varpa ljósi á barnið í leikskólanum“ eins og fram kemur í auglýsingu þeirra um þennan dag.

Auglýst eftir umsóknum í skákstyrktarsjóð - 3.2.2009

Fyrsta úthlutun úr Skákstyrktarsjóði Kópavogs fer fram í mars næstkomandi en umsóknarfrestur rennur út í lok febrúarmánaðar.

Góð og örugg notkun á netinu - 3.2.2009

SAFT vakningarverkefni um jákvæða og örugga notkun barna og unglinga á netinu er að hefjast í grunnskólum Kópavogs í samvinnu Heimilis og skóla og forvarnarnefndar Kópavogs. SAFT er skammstöfun fyrir samfélag, fjölskyldu og tækni.