des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.

des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb.
Sjómannadagsráð reisir 95 leiguíbúðir fyrir 60 ára og eldri í Kópavogi. Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, og Guðmundur Hallvarðsson, formaður Sjómannadagsráðs, tóku í dag, föstudaginn 27. mars, fyrstu skóflustunguna að nýjum leiguíbúðunum við Boðaþing steinsnar frá þjónstumiðstöð sem Kópavogsbær reisir fyrir aldraða í samstarfi við ríkið.
Lækkun hámarkshraða á Borgarholtsbraut úr 50 í 30 km hraða á klukkustund hefur ekki borið tilætlaðan árangur. Umferðarhegðun á Kópavogsbraut og í Dalsmára er betri en fyrir ári.
Lista- og menningarráð Kópavogs auglýsir eftir ábendingum um framúrskarandi listnema, umsóknum um starfsstyrki listamanna árið 2009 og um styrki til verkefna eða viðburða á sviði menningar og lista í bæjarfélaginu. Frestur er veittur til 10. apríl næstkomandi.
Innleiðing gæðakerfis í stjórnsýslu Kópavogsbæjar hófst í morgun með námskeiði fyrir stjórnendur á hinum margvíslegu sviðum bæjarskrifstofanna. „Tilgangurinn er að bæta enn frekar þá þjónustu og upplýsingagjöf sem bæjarbúar njóta,“ sagði Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri þegar hann fylgdi verkefninu úr hlaði með ávarpi.