Fréttasafn

Fyrirsagnalisti

Töfraflauta Mozarts í Lindakirkju - 30.4.2009

Papagena og Papageno í uppsetningu Söngskóla Sigurðar Demetz á Töfraflautunni.Óperudeild Söngskóla Sigurðar Demetz flytur Töfraflautuna eftir Mozart í Lindakirkju 8. maí næstkomandi kl. 20.00 og fær til liðs við sig frábæra söngvara, þau Sigrúnu Hjálmtýsdóttur í hlutverki næturdrottningarinnar og Bjarna Thor Kristinsson í voldugu hlutverki Sarastros.

Barnaleikritið Rúi og Stúi í Leikhúsinu - 28.4.2009

Rúi og Stúi í Leikhúsinu við Funalind.Leikfélag Kópavogs frumsýnir barnaleikritið Rúa og Stúa fimmtudaginn 30. apríl kl. 18.00 í Leikhúsinu við Funalind.

Smellið á „Lesa meira“ til að fá upplýsingar um sýningardaga.

Betri kjörsókn en 2007 - 26.4.2009

Kjörsókn í Kópavogi var alls 76,71% í alþingiskosningunum á laugardag eða 1,9% betri en árið 2007. Uppfærðar tölur um kjörsókn voru birtar á klukkustundar fresti á heimasíðu Kópavogsbæjar meðan á kjörfundi stóð.

Gleðilegt sumar - 24.4.2009

Dagskrá sumardagsins fyrsta var með hefðbundnu sniði í Kópavogi. Að lokinni skátamessu í Lindakirkju gengu skátar fyrir skrúðgöngu frá Digraneskirkju í íþróttahúsið Smárann þar sem beið bæjarbúa skemmtidagskrá.

Sumarbæklingur ÍTK 2009 - 24.4.2009

Í sumarbæklingi íþrótta- og tómstundaráðs Kópavogs fyrir árið 2009 er að finna mörg áhugaverð bæði ný og rótgróin tómstunda- og íþróttanámskeið fyrir börn og unglinga. Leikja- og reiðnámskeið ÍTK, skapandi námskeið, smíðavellir og siglingarnámskeiðið eru á sínum stað og við bætast fjögur ný námskeið, leiklistarnámskeið, leikja- og sundnámskeið, ævintýra- og útivistarnámskeið og námskeið í stuttmyndagerð.

Námskeið fyrir foreldra leikskólabarna - 22.4.2009

Haldin verða uppeldisnámskeið fyrir foreldra leikskólabarna í Kópavogi, hið fyrsta í maí. Sérstök áhersla verður á gildi þess að byrja sem allra fyrst á ævi barnsins að vinna skipulega að góðum og árangursríkum uppeldisháttum. Námskeiðin eru foreldrum að kostnaðarlausu. Fjöldi er takmarkaður við 30 manns.

Kópavogsbúar gera hreint fyrir sínum dyrum - 22.4.2009

Sem endranær verða starfsmenn Kópavogsbæjar á ferðinni í lok apríl og byrjun maí við að hreinsa garðaúrgang sem eigendur lóða og landssvæða setja utan við lóðarmörk sín.

Vinnumarkaðsúrræði í Kópavogi - 22.4.2009

Vinnumálastofnun hefur samþykkt umsóknir um 11 stöðugildi í Kópavogsbæ tengd átaksverkefnum vegna samdráttar á vinnumarkaði. Hún hefur jafnframt umsóknir um 32 stöðugildi í viðbót til úrvinnslu. Kópavogsbær mun sækja um allt að 80 stöðugildi til Vinnumálastofnunar til að bregðast við atvinnuleysi.

Stórstjörnur í Salnum - Dalton Baldwin og Julie Boulianne - 21.4.2009

Dalton Baldwin, heimskunnur píanóleikari og meðleikari fremstu söngvara heims.Hinn heimsþekkti og dáði listamaður, píanóleikarinn Dalton Baldwin, kemur fram á TÖFRA-tónleikum í TÍBRÁ í Salnum laugardaginn 25. apríl kl. 17. Með honum er ung kanadísk söngstjarna, Julie Boulianne mezzósópran, og saman flytja þau lög eftir Hahn, Ravel, Poulenc, Berlioz og Rossini auk kanadískra söngva. Tónleikarnir eru haldnir í minningu tónlistarunnandans og barnalæknisins Halldórs Hansen.

Sumardagurinn fyrsti - dagskrá - 21.4.2009

Fimmtudaginn 23. apríl verður sumardeginum fyrsta fagnað með skátamessu í Lindakirkju kl 11:00. Skrúðganga skátafélagsins Kópa heldur af stað frá Digraneskirkju kl. 13:30 í Smárann þar sem fram fer hátíðardagskrá fyrir íbúa bæjarins.

Jónas Ingimundarson í Salnum - ókeypis aðgangur - 21.4.2009

Jónas Ingimundarson við slaghörpunaÞriðjudagskvöldið 21. apríl kl. 20 býður Salurinn upp á síðustu Slaghörpuna í bili. Auður Gunnarsdóttir kemur í heimsókn, karlakórinn gamlir Fóstbræður lítur inn og síðast en ekki síst kemur leynigestur frá Grænlandi, tenór, sem tekur þátt í söngnum. Efnisskráin verður að mestu leyti íslenskt efni, sum þekktustu og vinsælustu sönglögin okkar.

Kosningasíða - 21.4.2009

Kjörstaðir í Kópavogi verða tveir í Alþingiskosningunum á laugardaginn kemur. Hver og einn getur athugað hvort hann eigi að kjósa í Smáranum eða Hörðuvallaskóla og í hvaða kjördeild á sérstakri kosningasíðu sem opnast ef smellt er á myndina hér við hliðina.

Fræðsludagur HSSK - 14.4.2009

Laugardaginn 18. apríl næstkomandi verða fræðsludagar í húsnæði Hjálparsveitar skáta í Kópavogi við Kópavogshöfn en þeir eru haldnir í tilefni af því að sveitin verður 40 ára í haust.

Umferðavöktun - 14.4.2009

Lögreglan heldur áfram umferðarvöktun sinni í Kópavogi. Í dag var fylgst með umferð um Grænatún og Digranesveg en þar hefur ástandið ekkert batnað frá því í fyrra.

Leikverk um Facebook - 6.4.2009

Unglingadeild Leikfélags Kópavogs frumsýndi laugardaginn 4. apríl nýtt spunaleikverk um heitasta netfyrirbæri síðari ára, Facebook.

Sívaxandi aðsókn að Bókasafni Kópavogs - 6.4.2009

Þróun á gestakomum og útlánum hjá Bókasafni Kópavogs gefur vísbendingar um að fólk nýti sér bókasöfn í ríkara mæli þegar efnahagsástandið versnar.

Aðsóknarmet í Náttúrufræðistofu Kópavogs - 3.4.2009

Náttúrufræðistofa Kópavogs er til húsa í Hamraborg 6a, í næsta húsi við Salinn.Á árinu 2008 heimsóttu 10.207 gestir Náttúrufræðisafn Kópavogs í Hamraborg 6a og hafa þeir ekki verið fleiri á einu ári frá upphafi.

Nýr forstöðumaður upplýsingatæknideildar - 3.4.2009

Sæmundur Valdimarsson var valinn úr hópi 44 umsækjenda í starf forstöðumanns upplýsingatæknideildar Kópavogsbæjar.

Tónleikar í Salnum: "Eins og litlar sögur og góð máltíð" - 1.4.2009

Óbótónleikar í Salnum: Kópavogsbúinn Matthías Nardeau og Anna Guðný Guðmundsdóttir - laugardaginn 4. apríl kl. 17.

?Svipstundir? - ljósmyndasýning í Molanum - 1.4.2009

Ein af ljósmyndum Guðrúnar Huldu Pálsdóttur á sýningunni í Molanum.„Svipstundir“, ljósmyndasýning Guðrúnar Huldu Pálsdóttur, stendur yfir í Gallerí Sykri í ungmennahúsinu Molanum í Kópavogi.

Þriðjungur ekur of hratt á Kársnesbraut - 1.4.2009

Liðlega þrír af hverjum tíu bílstjórum sem aka um Kársnesbraut aka of hratt og geta átt von á afskiptum lögreglu.