Fréttasafn

Fyrirsagnalisti

Jazzhátíð Kópavogs - 27.5.2009

Jazzhátíð Kópavogs verður haldin dagana 4. til 6. júní og verður þar mikið um dýrðir. Tvennir stórtónleikar verða í Salnum þar sem stjórnandi hátíðarinnar, Björn Thoroddsen, sýnir á sér tvær hliðar.

Kópavogsskóli 60 ára - 18.5.2009

Í tilefni af því að 60 ár eru liðin frá því að kennsla hófst í elsta hluta Kópavogsskóla er foreldrum nemenda og öðrum sem áhuga hafa boðið í heimsókn í skólann föstudaginn 22. maí frá kl. 08:00 til 12:30.

Kópavogsdögum lokið - 16.5.2009

Stefán Hilmarsson fékk meðal annars Eyjólf Kristjánsson til að taka þátt í tónleikunum með sér.Stefán Hilmarsson, heiðurslistamaður Kópavogsbæjar árið 2008, sló botninn í Kópavogsdaga í gærkvöld með tónleikum í Salnum. Efnisskráin spannaði að mörgu leyti feril Stefáns í rúma tvo áratugi og var honum ákaft fagnað.

Leiðsögn um sýningu Baltasars - 14.5.2009

Baltasar og Árni Bergmann verða með leiðsögn um málverkasýningu Baltasar Mýtur og táknmyndir og Sjö orð Krists á krossinum í Gerðarsafni sunnudaginn 17. maí kl. 15.00.

Sálrænn stuðningur við palestínsk börn - 14.5.2009

Örn Ragnarsson, verkefnastjóri fatasöfnunar Rauða krossins, Esther Ösp Valdimarsdóttir, Jónína Brá Árnadóttir, Aðalheiður Birgisdóttir, ritari framkvæmdastjóra RKÍ, og Eva Ösp Matthíasdóttir.Molaportið fékk frábærar viðtökur á Kópavogsdögum um liðna helgi. Rótaractfélagar söfnuðu 120 þúsund krónum til styrktar átaki Rauða kross Íslands „Sálrænn stuðningur við skólabörn í Palestínu“.

Hesthúsalóðir - 13.5.2009

Opið er fyrir umsóknir um byggingarétt á hesthúsalóð á Kjóavöllum. Hægt er að kynna sér lóðirnar á yfirlitskortum og sækja um þær rafrænt.

Kópavogur setur sér siðareglur - 13.5.2009

Kópavogsbær hefur fyrst sveitarfélaga á Íslandi sett sér siðareglur sem gilda um kjörna bæjarfulltrúa og stjórnendur hjá bæjarfélaginu. Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti siðareglurnar einróma á fundi sínum í gær.

Óskað tilnefninga vegna umhverfisviðurkenninga - 12.5.2009

Gata ársins afhjúpuð árið 2007Umhverfisráð óskar nú, eins og undanfarin ár, eftir tilnefningum bæjarbúa vegna viðurkenninga ráðsins. Umhverfisviðurkenningar verða veittar í ágúst 2009.

Heiðurslistamaður Kópavogs 2009 - 12.5.2009

Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri og Ómar Stefánsson, formaður bæjarráðs, árna Hjálmari H. Ragnarssyni heilla við kjör hans sem heiðurslistamaður Kópavogs árið 2009.Hjálmar H. Ragnarsson tónskáld var kjörinn heiðurslistamaður Kópavogsbæjar fyrir árið 2009.

Tónlistarsafn Íslands opnað almenningi - 11.5.2009

Tónlistarsafn Íslands var opnað formlega með hátíðlegri dagskrá á Kópavogsdögum um helgina. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra óskaði þjóðinni til hamingju með safn sem geymdi minjar um tónlistarlíf sem stæðist samanburð við hvaða land sem væri. Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri sagði að safnið yrði lifandi og myndi miðla af efni sínu bæði á Netinu og í útvarpi.

Baltasar í Gerðarsafni - Kópavogsdagar settir - 11.5.2009

Kópavogsdagar, menningarhátíð Kópavogsbæjar, voru settir á laugardaginn var í tengslum við opnun myndlistarsýningar Baltasars í Listasafni Kópavogs – Gerðarsafni. Á sýningunni, sem ber heitið Mýtur og táknmál, eru helgimyndir sem nú er sýndar almenningi í fyrsta sinn.

Kópavogsdagar 9. – 15. maí - 7.5.2009

Kópavogsdagar, menningarhátíð Kópavogsbæjar, hefst 9. maí og stendur óslitið til 15. maí. Dagskrárliðir Kópavogsdaga eru hátt í 200, viðburðirnir fjölbreyttir og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.

Dagskrána í heild sinni er að finna á sérstökum vef www.kopavogsdagar.is en hún byggist að hluta til á starfsemi lista- og menningarstofnana bæjarfélagsins og að hluta til á listsköpun bæjarbúa og félagasamtaka auk annarra viðburða.

Ársfundur Lífeyrissjóðs Kópavogsbæjar - 6.5.2009

Ársfundur Lífeyrissjóðs Kópavogsbæjar 2009 verður haldinn fimmtudaginn 28. maí næstkomandi í bæjarstjórnarsal Kópavogs, Fannborg 2, 1. hæð, og hefst hann kl. 17.00.

Samantekt hraðavöktunar - 5.5.2009

Umferðarmenningin virðist eilítið skárri í Kópavogi en í fyrra ef marka má vöktun lögreglunnar. Brotahlutfall á Borgarholtsbraut hefur þó aukist. Lögreglan hefur tekið saman helstu niðurstöður úr vöktun sinni með hraðamyndavél.

Frestur til athugasemda við forvarnarstefnu - 4.5.2009

Forvarnarnefnd Kópavogs lætur hér með birta drög að forvarnarstefnu bæjarfélagsins og gefur bæjarbúum kost á að koma með athugasemdir við hana eða hugmyndir til 15. maí næstkomandi.

Fjölgun starfa í Kópavogi - 4.5.2009

Bæjarráð Kópavogs hefur samþykkt að ráða allt að 750 manns í sumarstörf hjá Kópavogsbæ sem er ríflega tvöföldun frá sumrinu 2008. Í sumarstörfin er ráðið starfsfólk sem er 17 ára eða eldra.

Umsóknir um sumarstörf í vinnuskóla - 4.5.2009

Vinnuskóli Kópavogs hefur opnað fyrir umsóknir um sumarstörf. Aðeins þeir unglingar sem sækja um fyrir 24. maí geta búist við að hefja störf þann 15. júní þegar starfsemi Vinnuskólans hefst.