des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb.
Hvatningarverðlaun Heimilis og skóla í ár hlaut samstarfsverkefni Kópavogsskóla og Gjábakka sem miðar að því „að brúa bilið á milli kynslóða“. Verðlaunin afhenti Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra í Þjóðmenningarhúsinu 4. júní samtímis því sem hún afhenti foreldraverðlaun og dugnarðarforkaverðlaun samtakanna.
Endurskoðunarskrifstofan Deloitte hf. hefur skilað greinargerð um viðskipti Kópavogsbæjar við Frjálsa miðlun ehf. á árunum 2003 til 2008 samkvæmt beiðni bæjarráðs Kópavogs.ÍTK hefur fengið styrk frá Velferðarsjóði barna vegna sumarnámskeiða 2009. Styrkurinn felur í sér að öll námskeiðsgjöld lækka um helming.
Jazz- og blúshátíð Kópavogs 2009 var sett í ungmennahúsinu Molanum við Hábraut í Kópavogi kl. 14.00 í dag. Samtímis var kynnt stofnun nýs félags um jazz- og blúsflutning í Kópavogi. „Við fögnum samstarfi milli lista- og menningarráðs Kópavogsbæjar annars vegar og Björns Thoroddsen og Jazz- og blúshátíðarinnar hins vegar,“ sagði Sigurrós Þorgrímsdóttir, forseti bæjarstjórnar og formaður lista- og menningarráðs, við setninguna.
Leikskólinn Furugrund í Kópavogi hefur undanfarin ár verið mjög öflugur þátttakandi í evrópsku skólasamstarfi. Í janúar síðastliðnum varð skólinn fyrstur íslenskra skóla útnefndur til Evrópuverðlauna í eTwinning. Hlaut skólinn annað sæti fyrir verkefnið 1.2. Buckle my shoe, verkefni sem fjallar um stærðfræði með börnum á leikskólaaldri.
Árleg vorsýning íþróttafélagsins Gerplu fer fram laugardaginn 6. júní næstkomandi. Þemað er Carnival og er sýningin með eindæmum stór í ár. Í Gerplu æfa um 1.600 iðkendur þannig að það er af nógu að taka. Sýningin er í formi leiksýningar svo það má með sanni segja að hún sé frábrugðin öðrum fimleikasýningum hér á landi.
Komdu og skoðaðu sænskt efni á Bókasafni Kópavogs í tilefni af þjóðhátíðardegi Svía.
Aðstæður á fjármálamarkaði setja mark sitt á uppgjör Kópavogsbæjar vegna ársins 2008. Ársreikningurinn, sem er til fyrri umræðu í bæjarstjórn Kópavogs í dag, sýnir tæplega 1 milljarðs kr. afgang af aðalsjóði áður en horft er til fjármagnskostnaðar og gjaldfærslu lífeyrisskuldbindinga. Daglegur rekstur var í samræmi við fjárhagsáætlun, tekjur heldur meiri en gjöldin nálægt áætlun. Sé hins vegar samstæðan skoðuð, A og B hluti ársreikningsins, er niðurstaðan neikvæð sem nemur 9.620.421.000 kr.