Fréttasafn

Fyrirsagnalisti

Of hratt ekið um Grænutungu - 31.8.2009

Fjórir af hverjum tíu ökumönnum í Grænutungu í Kópavogi virðast stíga of fast á bensíngjöfina og ekki virða 30 km hámarkshraða á klukkustund.

Heimsókn frá Wuhan, vinabæ Kópavogs - 31.8.2009

Gunnsteinn Sigurðsson bæjarstjóri kynnti fyrir hinum kínversku gestum frá Wuhan sögu og uppbyggingu Kópavogs.Sendinefnd frá Wuhan-borg, sem varð vinabær Kópavogs í tengslum við kínverska menningarhátíð árið 2007, kom í heimsókn 12. ágúst sl. Gunnsteinn Sigurðsson, bæjarstjóri, tók á móti kínversku erindrekunum en heimsóknin var liður í að efla vinabæjarsambandið og samstarfið á sviði menningarmála.

Jafnréttisviðurkenning Kópavogsbæjar - 31.8.2009

Gunnsteinn Sigurðsson bæjarstjóri, Sæmundur Sæmundsson, forstjóri Teris, og Una María Óskarsdóttir, formaður jafnréttisnefndar, við afhendingu árlegrar jafnréttisviðurkenningar Kópavogsbæjar árið 2009.Upplýsingatæknifyrirtækið Teris hlaut í dag árlega jafnréttisviðurkenningu Kópavogsbæjar fyrir jafnréttisstefnu þess og eftirfylgni hennar í starfsemi sinni.

Velkomin í Salinn! - 28.8.2009

Salurinn í KópavogiEllefta starfsárið í Salnum fer nú í hönd en hann fagnaði 10 ára starfsafmæli sínu í janúar síðastliðnum. Í vetur verður boðið upp á glæsilega og fjölbreytta dagskrá sem endranær.

Dyr draumanna og möndölur í Gerðarsafni - 28.8.2009

Drottningarkeðjan - Elena MaijalaFöstudaginn 28. ágúst kl. 20:00 verða tvær sýningar opnaðar í Listasafni Kópavogs-Gerðarsafni. Dyr draumanna heitir málverkasýning finnsku listakonunnar Elena Schuvaloff-Maijala og sýningin Mandala snýst um hringinn og krystalinn.

Umhverfisviðurkenningar 2009 - 20.8.2009

Gata ársins 2009 í Kópavogi er Brekkusmári í Nónhæð. Bæjarstjórn Kópavogs og umhverfisráð afhentu umhverfisviðurkenningar og útnefndu götu ársins við hefðbundna athöfn í Salnum, tónlistarhúsi Kópavogs, fimmtudaginn 20. ágúst. Eftir athöfnina var farið í vettvangsferð í rútu á þá staði sem viðurkenningu hlutu.

Fjölgun í Kópavogi - 19.8.2009

Jóhannes Kr. Kristjánsson og Brynja Gísladóttir með son sinn, Gísla Kristján, sem var 30 þúsundasti íbúi Kópavogs.Íbúum í Kópavogi hefur fjölgað um 600 á sama tíma og íbúum á landinu öllu hefur fækkað. 120 ár eru síðan fólki fækkaði síðast hér á landi. Íbúar í Kópavogi eru nú 30.395.

Skólasetning haustið 2009 - 11.8.2009

Skólasetning verður mánudaginn 24. ágúst í öllum grunnskólum Kópavogs. Nemendur í 10. bekk Hörðuvallaskóla eiga skólasókn í Vatnsendaskóla. Nánari upplýsingar eru á heimasíðum skólanna.

Upplýsingasíða um inflúensu - 5.8.2009

Tengill á vefsvæðið www.influensa.is hefur, tímabundið, verið settur á heimasíðu Kópavogsbæjar. Vefsvæðið er ætlað til fræðslu og upplýsingagjafar fyrir almenning og fagaðila um svínaflensu meðal annars. Vefsvæðið er samvinnuverkefni sóttvarnalæknis, almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra, Matvælastofnunnar og Umhverfisstofnunnar.

Kraftlyftingamót Breiðabliks - 4.8.2009

Húsfyllir var á fyrsta Kópavogsmóti kraftlyftingadeildar Breiðabliks í bekkpressu 25. júlí síðastliðinn. Var gerður góður rómur að setningarræðu Ármanns Kr. Ólafssonar, forseta bæjarstjórnar.