Fréttasafn

Fyrirsagnalisti

Urrari í sjóbúri - 30.9.2009

Urrari er í sjóbúri á Náttúrufræðistofu Kópavogs.Urrari (Eutrigla gurnardus) er til sýnis í búri á Náttúrufræðistofu Kópavogs en hann er fallegur og sérstæður fiskur sem fólk hefur sjaldan eða aldrei séð lifandi.

Menningarstarf í Kópavogi - 28.9.2009

Lista- og menningarráð Kópavogs auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna/viðburða á sviði menningar og lista í Kópavogi.

Vitundarvakning í samgöngumálum - 23.9.2009

Bæjarstjórar Kópavogs, Garðabæjar og Hafnarfjarðar tóku þátt í hjóladegi fjölskyldunnar í Evrópskri samgönguviku 2009.Evrópskri samgönguvika 2009 lauk í gær en áherslan að þessu sinni var á loftslagsmál í borgum. Fleiri en 2000 borgir í Evrópu tóku þátt.

Kópavogur vagga pönksins - 22.9.2009

Ómar Stefánsson, formaður bæjarráðs, opnaði pönksýninguna í Tónlistarsafni Íslands.Fjölmennt var við setningu á sýningunni „Heilbrigð æska - pönkið og Kópavogurinn 1978 – 1983“ í Tónlistarsafni Íslands um helgina. Ómar Stefánsson, formaður bæjarráðs, opnaði sýninguna formlega og nefndi Kópavog vöggu pönksins á Íslandi, Sigurrós Þorgrímsdóttir, formaður lista- og menningarráðs, ávarpaði gestina og dr. Gunni fór nokkrum orðum um pönkið í bænum.

Verkefni Furugrundar tilnefnt til alþjóðlegra verðlauna - 22.9.2009

eTwinningverkefni leikskólans Furugrundar 1,2, Buckle my shoe er komið í úrslit Global Junior Challenge 2009 en sjálf úrslitin verða kynnt með viðhöfn í Róm þann 9. október næstkomandi.

„Heilbrigð æska“ – pönkið og Kópavogurinn 1978 – 1983 - 18.9.2009

Á morgun, laugardag, kl. 15.00 verður opnuð sýningin „Heilbrigð æska“, pönkið og Kópavogurinn 1978 – 1983 í Tónlistarsafni Íslands.

Samgönguvika í Kópavogi sett - 17.9.2009

Gunnsteinn Sigurðsson bæjarstjóri og Ómar Stefánsson, formaður bæjarráðs, reynsluaka tvinnbíl frá Toyota í tilefni samgönguviku.Evrópska samgönguvikan var sett í gær. Kópavogur er meðal 2000 borga og bæja sem tekur þátt í henni en markmiðið er að huga að því sem betur má fara í umhverfismálum. Toyota á Íslandi afhenti Gunnsteini Sigurðssyni bæjarstjóra og Ómari Stefánssyni, formanni bæjarráðs, Toyota Prius tvinnbíla til reynslu en þeir eru sagðir eyða helmingi minna eldsneyti en sambærilegar bílar með því að þeir nýta rafmagn sem þeir framleiða sjálfir við akstur.

Hraðaeftirlit við grunnskóla - 16.9.2009

Á tímabilinu frá kl. 13.50 til 14.40 þann 16. september var vöktuð umferð með hraðamyndavél suður Vatnsendaveg fyrir sunnan Breiðahvarf. Þarna er 50 km hámarkshraði. Vöktun þessi er liður í eftirliti með hraðakstri við grunnskóla en skammt frá þessum stað er Vatnsendaskóli. Á ofangreindu tímabili vaktaði vélin 193 ökutæki. Af þeim voru 27 ljósmyndaðir eða 14% af vöktuðum ökutækjum á það miklum hraða að lögregla hefði að öllu jöfnu haft afskipti af þeim. Meðalhraði hinna brotlegu var 63,66 km. Hraðast var ekið á 68 km hraða.

Karatedeild Breiðabliks 25 ára - 16.9.2009

Frá karatedeild Breiðabliks.Karatedeild Breiðabliks fagnar 25 ára afmæli sunnudaginn 20. september næstkomandi og heldur „heilmikinn karatedag“.

Handavinnuhópur í bókasafninu - 15.9.2009

Prjóna- og handavinnuhópur er starfandi í Bókasafni Kópavogs, Hamraborg 6a, á hverjum miðvikudegi frá kl. 16:30 og fram undir kl. 18.30, eftir því sem hentar hverjum og einum.

Norðurlandameistarar Salaskóla í skák koma heim - 14.9.2009

Gunnsteinn Sigurðsson bæjarstjóri, Hafsteinn Karlsson skólastjóri og Tómas Rasmus, kennari og fararstjóri, ásamt skáksveitinni fræknu.Gunnsteinn Sigurðsson, bæjarstjóri í Kópavogi, tók á móti skáksveit Salaskóla í Leifsstöð síðdegis í dag, þegar hún kom heim frá Svíþjóð eftir að hafa unnið sigur á Norðurlandamóti grunnskóla í skák. Gunnsteinn afhenti fyrir hönd bæjarstjórnar Kópavogs hverjum hinna ungu skáksnillinga í sveitinni iPod Nano 8GB frá Apple á Íslandi að gjöf.

Árshlutareikningur janúar – júní 2009 - 14.9.2009

Kópavogsbær sendi Kauphöll Íslands fyrir helgi, svo sem skylt er, óendurskoðað uppgjör um rekstur bæjarsjóðs fyrstu sex mánuði ársins, sem endurskoðendur bæjarins settu upp samkvæmt upplýsingum og gögnum sem þeir fengu send eða óskuðu eftir hjá bænum.

Samgönguvika í Kópavogi - 11.9.2009

Evrópska samgönguvikan hefur verið haldin vikuna 16. – 22. september síðan árið 2002. Í ár eru það yfir 2000 borgir og bæir sem taka þátt og fer þeim sífellt fjölgandi. Kópavogsbær hefur frá árinu 2007 tekið þátt í hjóladeginum sem haldinn er á laugardeginum.

1000. fundur bæjarstjórnar Kópavogs - 8.9.2009

Þúsundasti fundurinn í bæjarstjórn Kópavogs var haldinn kl. 16:00 í dag, þriðjudaginn 8. september 2009, í sal bæjarstjórnar í Fannborg 2.

Ný stjórn LSK - 4.9.2009

Ný stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogs hefur verið skipuð. Stjórnina skipa Hlynur Jónsson héraðsdómslögmaður LL.M., stjórnarformaður, óháður, Guðríður Arnardóttir og Ármann Kr. Ólafsson, fulltrúar bæjarstjórnar Kópavogs, og Guðrún Pálsdóttir og Ragnar Snorri Magnússon, fulltrúar sjóðfélaga. Nýr framkvæmdastjóri sjóðsins er Auður Finnbogadóttir, viðskiptafræðingur MBA, og hóf hún störf þann 17. ágúst síðastliðinn.

Tómstundastarfið byrjar vel - 2.9.2009

Tómstundastarf félagsmiðstöðva ÍTK er hafið og fer vel af stað. Í fyrstu viku greindu forstöðumenn félagsmiðstöðvanna meiri áhuga meðal unglinganna og voru heimsóknir fleiri en oft áður. Lofar það góðu um framhaldið.

Vetrarstarf prjóna- og handavinnuklúbbsins - 2.9.2009

Prjóna- og handavinnuklúbburinn er að hefja vetrarstarf í Bókasafni Kópavogs. Hann verður á hverjum miðvikudegi frá kl. 16:30.

Ganga um Kópavogsdal á umhverfisdegi - 1.9.2009

Umhverfisráð Kópavogs stendur fyrir göngu um Kópavogsdalinn á árlegum umhverfisdegi bæjarins, fimmtudaginn 3. september næstkomandi.