Fréttasafn

Fyrirsagnalisti

Basar Kvenfélagasambands Kópavogs - 30.10.2009

Frá basar Kvenfélagasambands Kópavogs í fyrra.Basar og kynning á starfi Kvenfélagasambands Kópavogs verður laugardaginn 7. nóvember kl. 13:00–16:00 að Digranesvegi 12. Á boðstólum verður bakstur, handunnar vörur, fatnaður, leikföng, kompudót og fleira. Allt á tombóluverði. Ágóði rennur til góðgerðarmála.

Sveitarfélögin forgangsraða þjónustu vegna inflúensu - 29.10.2009

Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu vinna nú öll eftir samræmdum viðbragðsáætlunum sem gerðar voru undir umsjón Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins til að tryggja órofna lykilþjónustu á meðan inflúensufaraldur gengur yfir.

Vímuvarnarvika gegn kannabisneyslu - 22.10.2009

Frá vímuvarnarviku á Grand hótel.Þemað á vímuvarnarviku 2009 er „kannabis – afleiðingar og leiðir í forvörnum“. Að vímuvarnarviku standa Forvarnir og fræðsla ásamt íþrótta-, æskulýðs- og félagasamtökum á Íslandi. Vikan var formlega sett á Grand hótel þriðjudaginn 20. október þar sem kynnt var staða þessa váboða frá sjónarhorni lögreglu, forvarnarfulltrúa í framhaldskóla, foreldri ungs kannabisfíkils og SÁÁ.

Viðbragðsáætlun vegna heimsfaraldurs inflúensu - 20.10.2009

Bæjarráð Kópavogs hefur samþykkt viðbragðsáætlun vegna heimsfaraldurs inflúensu og jafnframt stofnað neyðarstjórn sem tekur til starfa ef og þegar neyðarástand ríkir. Áætlunin hefur þegar tekið gildi.

Smelltu á myndina til að lesa viðbragðsáætlunina.

Heimsmeistari í Snælandsskóla - 16.10.2009

Gunnsteinn Sigurðsson bæjarstjóri ásamt Önnu Birnu Snæbjörnsdóttur og Hannesi Sveinbjörnssyni frá fræðslusviði afhentu Brodda Kristjánssyni, íþróttakennara við Snælandsskóla og margföldum Íslandsmeistara í badminton, viðurkenningu fyrir glæsilegan árangur í badmintoníþróttinni.

Íbúafundur í Smáraskóla - Hugsum áður en við hendum! - 13.10.2009

Kópavogsbær og Íslenska gámafélagið boða til íbúafundar í Smáraskóla miðvikudaginn 14. október kl. 20.00 um sorphirðu á Nónhæð. Undanfarna mánuði hefur verið í gangi tilraunaverkefni í sorpflokkun á Nónhæðinni. Á fundinum verður farið yfir árangur af verkefninu og rætt um áframhaldandi samstarf við íbúa hverfisins.

Gisting í Kópavogi kynnt á ferðamálaráðstefnu - 13.10.2009

Hótelin í Kópavogi, Hótel Smári, Gistiheimilið BB44 og Hótel Merlin tóku sameiginlega þátt í árlegri ferðamálaráðstefnu Vest Norden sem haldin var í Kaupmannahöfn í september síðastliðnum.

Írsk menningarhátíð stendur sem hæst - 8.10.2009

Írsk menningarhátíð í Kópavogi stendur sem hæst en henni lýkur á sunnudag. Dagskránni hefur verið mjög vel tekið, ekki síður meðal grunnskólanemenda en annarra hátíðargesta, en Kópavogsbær hefur ávallt reynt að leiða saman yngstu kynslóðina og þá framúrskarandi listamenn sem heiðra hina erlendu menningardaga á hverju ári með nærveru sinni og þátttöku.

Aukasýning á RAGÚS - uppselt á aðrar sýningar - 8.10.2009

RAGÚS dans- og tónlistarhópurinn írski sem kemur fram í Salnum.Vegna mikillar eftirspurnar hefur verið ákveðið að írski RAGÚS dans- og tónlistarhópurinn haldi aukasýningu á írskri menningarhátíð í Kópavogi. Hópurinn er þekktur fyrir að framkalla ekta írska stemningu sem verður ógleymanleg öllum áhorfendum enda varð fljótt uppselt á allar áformaðar sýningar. Aukasýningin verður á sunnudag 11. október kl. 14. Miðasala fer fram í Salnum.

Bikar-Blikar - 3.10.2009

Breiðablik varð í dag bikarmeistari í knattspyrnu karla þegar liðið lagði Fram 7–6 á Laugardalsvelli. Úrslitin réðust í spennandi vítaspyrnukeppni en eftir venjulegan leiktíma hafði staðan verið 1-1 og í framlengdum leik skoraði hvort líð eitt mark í viðbót.

Til hamingju, Blikar!

Velkomin á Írska menningarhátíð! - 1.10.2009

Það verður sannkölluð írsk veisla hjá okkur Kópavogsbúum í október þegar við höldum írska menningarhátíð. Hátíðin stendur yfir frá 2. til 11. október og verður ýmislegt í boði fyrir alla fjölskylduna.

HK setur sér siðareglur - 1.10.2009

F.v. Sigurjón Sigurðsson, formaður HK, Sigríður Björnsdóttir hjá Blátt áfram, Guðríður Baldursdóttir, fulltrúi Norvíkur, og Valdimar Gunnarsson, framkvæmdastjóri UMSK.Handknattleiksfélag Kópavogs HK hefur fyrst íslenskra íþróttafélaga sett sér heildstæðar siðareglur. Hlutverk þeirra er að veita þeim sem koma að íþróttum almennar leiðbeiningar og vera þeim hvatning. Reglunum er beint til forráðamanna iðkenda, yngri og eldri iðkenda og þjálfara auk stjórnar- og starfsmanna.