Fréttasafn

Fyrirsagnalisti

Fjárhagsáætlun samþykkt - 30.12.2009

Bæjarstjórn Kópavogs hefur samþykkt fjárhagsætlun fyrir bæjarsjóð árið 2010 með 44 milljóna króna rekstrarafgangi.

Gerðarlegt í Gerðarsafni - 30.12.2009

Helga Björnsson, Tískuskissur út frá ýmsum verkum Gerðar.Fjórir hönnuðir voru ráðnir til Kópavogsbæjar í tengslum við vinnumarkaðsúrræði bæjarfélagsins og Vinnumálastofnunar til að taka þátt í nýsköpunarverkefni á vegum Gerðarsafns í Kópavogi.

Afgreiðslutímar á bæjarskrifstofum um jól og áramót - 30.12.2009

Þorláksmessa: Opið frá kl. 8.00–15.00
Aðfangadagur: Lokað
28. desember: Opið kl. 10.00–16.00
29. desember: Opið kl. 10:00–16:00
30. desember: Opið kl. 8.00–15.00
Gamlársdagur: Lokað
4. janúar 2010: Opið kl. 10.00–16.00

Viðurkenningar fyrir 25 ára starf - 29.12.2009

Gunnsteinn Sigurðsson, bæjarstjóri í Kópavogi, afhenti í dag átta starfsmönnum Kópavogsbæjar og einum í fjarveru hans sérstaka viðurkenningu fyrir dygg og góð störf í þágu bæjarins í 25 ár.

Heimsóknarmet í Sundlaug Kópavogs - 28.12.2009

María Níelsdóttir var fimm hundruð þúsundasti gesturinn í Sundlaug Kópavogs og stendur hér á milli Jakobs Þorsteinsson, forstöðumanns sundlaugarinnar, og Gunnsteins Sigurðssonar bæjarstjóra.María Níelsdóttir, innborinn Kópavogsbúi, var 500.000. gesturinn í Sundlaug Kópavogs. Hún kom í laugina rétt um hádegið og afhentu Gunnsteinn Sigurðsson, bæjarstjóri í Kópavogi, og Jakob Þorsteinsson, forstöðumaður sundlaugarinnar, henni blómvönd, árskort í líkamsrækt og sund og gjafapakka. Aldrei hafa eins margir gestir sótt laugina á einu ári.

Góður námsárangur - 21.12.2009

Ármann Kr. Ólafsson, forseti bæjarstjórnar, ásamt nýstúdentum MK sem fengu viðurkenningar fyrir góðan árángur.Forseti bæjarstjórnar, Ármann Kr. Ólafsson, afhenti útskriftarnemum í Menntaskólanum í Kópavogi viðurkenningar fyrir afbragðs árangur úr Viðurkenningarsjóði MK sem bæjarstjórn Kópavogs stofnaði árið 1993. Fjórir nemar hlutu viðurkenningu að þessu sinni, nýstúdentarnir Bryndís Freyja Petersen, sem var dúx skólans, og Ragnhildur Björk Theodórsdóttir og nýsveinar í framreiðslu, Silja Brá Guðlaugsdóttir, og matreiðslu, Bjarni Siguróli Jakobsson.

Gert ráð fyrir rekstrarafgangi 2010 - 17.12.2009

Í tillögu að fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir árið 2010, sem lögð var fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn Kópavogs í dag, er gert ráð fyrir 25 milljóna króna rekstrarafgangi.

Ársrit Breiðabliks komið út - 16.12.2009

Bikarinn í höfn!„Knattspyrnudeild Breiðabliks bætti fallegri skrautfjöður í hatt sinn á liðinni leiktíð þegar lið Fram var lagt að velli í æsispennandi úrslitaviðureign á Laugardalsvelli í bikarkeppninni í knattspyrnu,“ segir Gunnsteinn Sigurðsson bæjarstjóri meðal annars í ávarpi í nýútkomnu ársriti Breiðabliks sem er að finna á heimasíðu félagsins. „Þetta er í fyrsta sinn sem Breiðablik vinnur bikarinn í karlaflokki og fylgir með því eftir fjölda glæstra sigra í kvennaboltanum.“

Jól í Salnum – fjölbreyttir tónleikar á aðventunni - 4.12.2009

Ljótu hálfvitarnir eru meðal þeirra sem koma fram í jóladagskrá Salarins í ár.Tónleikahald í Salnum verður með blómlegasta móti í desember og kennir þar ýmissa grasa. Flytjendur eru Jón Ólafsson og Stefán Hilmarsson, rússneskir kósakkar, Ljótu hálfvitarnir, Sniglabandið, Viskustykki og sultutau, Megas og Senuþjófarnir og Lárusdætur.

Barnamenningarverðlaun til Fjölsmiðjunnar - 1.12.2009

Þorbjörn Jensson, með verðlaunagripinn Samleið, og Kári Stefánsson.Þorbjörn Jensson, forstöðumaður Fjölsmiðjunnar við Kópavogsbraut, hlýtur Barnamenningarverðlaun Velferðarsjóðs barna árið 2009 fyrir ómetanlegt starf sitt í þágu ungmenna. Verðlaunaféð, 3,5 milljónir króna, verður nýtt til að efla uppbyggingu Fjölsmiðjunnar, meðal annars nýja tónlistardeild. Alls var úthlutað ríflega 26 milljónum króna úr Velferðarsjóði barna í dag en heildarúthlutunin úr sjóðnum í ár nemur alls um 160 milljónum króna.