des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb.
Tvær áramótabrennur verða í Kópavogi á gamlárskvöld. Annars vegar í Kópavogsdalnum við Smárahvammsvöll og hins vegar í Vatnsenda, fyrir ofan Gulaþing. Kveikt verður í brennunum kl. 20.30. Að venju verður flugeldasýning í Kópavogsdalnum og hefst hún kl. 21:10.
Bæjarskrifstofum Kópavogs verður lokað á gamlársdag en 3. janúar verður opið frá kl. 10:00 til 16:00. Síminn í þjónustuveri er: 570-1500. Starfsfólk Kópavogsbæjar óskar öllum gleðilegs nýs árs með þökk fyrir góð samskipti á árinu sem er að líða.
Íþróttahátíð Kópavogs verður haldin þriðjudaginn 4. janúar nk. kl. 18:00 í Salnum í Kópavogi. Á hátíðinni verður lýst kjöri á íþróttakonu og íþróttakarli Kópavogs 2010. Einnig verður íþróttafólki veittar viðurkenningar fyrir unnin afrek á árinu. Kópavogsbúar eru boðnir velkomnir.
Fram kemur í bréfi Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga (EFS) til bæjarstjórnar Kópavogs, dagsettu 17. desember 2010, að hún muni ekki að svo stöddu aðhafast frekar vegna fjármála bæjarins. Guðríður Arnardóttir, formaður bæjarráðs, fagnar niðurstöðu nefndarinnar.
Bæjarstjórn Kópavogs hefur afgreitt fjárhagsáætlun fyrir bæjarsjóð árið 2011. Breytingartillögur Gunnars I. Birgissonar bæjarfulltrúa voru felldar. Tíu af ellefu bæjarfulltrúum, sem stóðu að fjárhagsáætluninni, undirrituðu bókun í lok bæjarstjórnarfundarins þar sem segir að áætlunin hafi verið unnin af fulltrúum allra flokka og framboða í bæjarstjórn Kópavogs.
Umhverfisráðuneytið hefur staðfest reglur bæjaryfirvalda í Kópavogi um kattahald í bænum. Reglurnar taka gildi 1. janúar 2011. Þær hafa verið birtar í Stjórnartíðindum og má finna þær hér.
Alls 342 ljóð bárust í ljóðasamkeppni lista- og menningarráðs Kópavogs sem nú er haldin í tíunda sinn og ber heitið Ljóðstafur Jóns úr Vör. Öllum skáldum var boðið að senda inn frumsamin ljóð, undir dulnefni, og rann skilafrestur út 3. desember.
Guðrún Pálsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, hefur hvatt til þess að bæjaryfirvöld, íbúar og atvinnurekendur á Kársnesi taki höndum saman á næstu vikum og mánuðum og hreinsi til á atvinnusvæði Kársness sem afmarkast af Kársnesbraut, Vesturvör og Bryggjuvör.
Tillaga að fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir árið 2011 var lögð fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn í dag. Tíu af ellefu bæjarfulltrúum standa að henni og var hún unnin í nánu samráði við nefndir og ráð bæjarins.
Útgáfu plötunnar „Fúsi Halldórs – vinsælustu lögin“ var fagnað í Salnum á föstudagskvöld með sérstökum útgáfutónleikum. Þar voru perlur Sigfúsar fluttar af þeim Stefáni Hilmarssyni, Andreu Gylfadóttur og Agli Ólafssyni. Meðal frægustu laga Fúsa eru Dagný, Tondeleyó, Litla flugan og Vegir liggja til allra átta.
Jólalegt verður í umferðinni næstu vikurnar því strætisvagnar Strætó bs. skarta skrautlegum jólamyndum að utan sem innan. Leikskólabörn hvaðanæva að af höfuðborgarsvæðinu hönnuðu skreytingarnar.
Íslensk frumsýning á dansleikhúsgjörningi fjöllistahópsins Skyr Lee Bob, Square Wunder Globe fer fram í Listasafni Kópavogs, Gerðarsafni, um helgina. Verkið er samstarfsverkefni Ernu Ómarsdóttur dansara, Guðna Gunnarssonar myndlistarmanns og Lieven Dousselaere tónlistarmanns.
Útgáfutónleikar verða í Salnum 10. desember í tilefni af útgáfu plötunnar „Fúsi Halldórs – vinsælustu lögin“. Á plötunni túlka landskunnir listamenn lög Sigfúsar Halldórssonar. Á tónleikunum verða perlur Sigfúsar fluttar af Stefáni Hilmarssyni, Andreu Gylfadóttur og Agli Ólafssyni. Meðal frægustu laga Fúsa eru Dagný, Tondeleyó, Litla flugan og Vegir liggja til allra átta.
Kvennakór Kópavogs verður sérstakur gestur á tónleikum Siggu Beinteins sem fram fara í Digraneskirkju, fimmtudaginn 9. desember. Guðrún Gunnarsdóttir kemur einnig fram á tónleikunum. Hljóðfæraleikarar verða þeir Kjartan Valdemarsson á flygil og Matthías Stefánsson á gítar og fiðlu.
Kópavogsbær hélt í Salnum í gær vel heppnaðan kynningarfund fyrir starfsfólk Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Reykjanesi en sem kunnugt er verða málefni fatlaðra flutt frá ríki til sveitarfélaga nú um áramótin.
Leikskólinn Álfaheiði í Kópavogi fagnar 20 ára afmæli miðvikudaginn 1. desember. Opið hús verður fyrir foreldra og gesti frá kl. 15:00 til 16:30. Gamlir nemendur og starfsmenn eru einnig hjartanlega velkomin.
Ljósin voru tendruð á jólatrénu á Hálsatorgi í Kópavogi um helgina að viðstöddu fjölmenni. Mætingin hjá yngstu kynslóðinni var sérstaklega góð enda tóku nokkrir jólasveinar forskot á sæluna og kíktu í heimsókn.
Kópavogsbær fer í jólabúninginn á laugardaginn en þá verða ljósin tendruð á vinabæjarjólatrénu á Hálsatorgi. Athöfnin hefst kl. 16:00 og stendur yfir í klukkutíma.
Anna S. Björnsdóttir ljóðskáld hlaut á dögunum heiðursviðurkenningu Ritlistarhóps Kópavogs, Steininn 2010. Þetta er í fimmta sinn sem Steinninn er veittur því skáldi sem sinnt hefur ljóðlistinni af kostgæfni og alúð.
Keppendur úr félagsmiðstöðinni Þebu í Kópavogi hrepptu annað sætið í Stíl, hönnunar-, förðunar- og hárgreiðslukeppni unglinga, sem fram fór í Smáralindinni um helgina. Um 240 unglingar hvaðanæva af landinu tóku þátt og gáfu hugmyndafluginu lausan tauminn.
Samkomulag milli ríkis og sveitarfélaga um yfirfærslu þjónustu við fatlað fólk frá ríki til sveitarfélaga var undirritað í gær. Málaflokkurinn verður, sem kunnugt er, færður til sveitarfélaga 1. janúar næstkomandi. Frumvarp til laga um tilfærsluna á grundvelli samkomulagsins verður lagt fram á Alþingi á næstu dögum.
Fjölbreytt dagskrá verður í Molanum, ungmennahúsi Kópavogs, næstu vikurnar. Má þar nefna leiksýningu leikhóps á vegum Kópavogsdeildar Rauða Kross Íslands. Leikhópurinn ætlar að sýna Jólasögu Charles Dickens (A Christmas Carol) 27. nóvember og á eftir verður í boði Molakaffi með girnilegum kræsingum og lifandi tónlist.
Lið Kópavogs í spurningakeppninni Útsvari mætir liði Akureyrar í sjónvarpinu í kvöld. Nýir liðsmenn skipa lið Kópavogs, þau: Adolf Petersen, menntaskólakennari við MK, Bjarni Þór Sigurbjörnsson, laganemi við HÍ, og Þorbjörg Marinósdóttir, blaðamaður og rithöfundur. Kópavogsbær óskar þeim alls hins besta!
Góðar umræður urðu á íbúafundi í Kópavogi síðdegis í gær þar sem bæjarbúar voru hvattir til að koma sínum sjónarmiðum á framfæri við gerð fjárhagsáætlunar bæjarins fyrir árið 2011.
Reiknað er með því að um 240 unglingar hvaðanæva af landinu taki þátt í Stíl, hönnunar-, förðunar- og hárgreiðslukeppni unglinga, sem fram fer í Vetrargarðinum í Smáralind, laugardaginn 20. nóvember.
Skólahljómsveit Kópavogs hélt vel heppnaða hausttónleika í Háskólabíói á dögunum. Fram komu 140 nemendur sem léku við hvern sinn fingur. Þau fluttu bæði spænsk og íslensk lög. Sérstaka athygli vakti flutningur elstu barnanna á syrpu með lögum Þursaflokksins góðkunna.
Liðsmenn Kjarnans sigruðu í Getkó, spurningakeppni félagsmiðstöðva Kópavogs, á dögunum. Þrír drengir úr Kópavogsskóla skipuðu sigurliðið, þeir Hjörtur Ingi Skarphéðinsson, Jóhann Ragnarsson og Magnús Jónsson.
Nú stendur yfir í Bókasafni Kópavogs sýning á myndum af persónum Njálu eftir Þórhildi Jónsdóttur frá Lambey. Það er því við hæfi að Bjarni E. Sigurðsson haldi í dag, á degi íslenskrar tungu, erindi um Njálu í bókasafninu. Erindið nefnir hann: Gunnar Hámundarson, ástir hans og örlög. Lesturinn hefst kl. 17:15. Allir eru velkomnir.
Um fjögur hundruð unglingar sóttu tónlistarhátíðina Kóparokk í félagsmiðstöðinni Ekkó, Kársnesskóla, í byrjun nóvember. Gestir hátíðarinnar voru Kópavogsbúinn Erpur Eyvindarson, rappari með meiru, og Níels ( Nilli), meðlimur hljómsveitarinnar Fló Fló.
Lið Kópavogs í spurningakeppninni Útsvari mætir liði Akureyrar í sjónvarpinu föstudaginn 19. nóvember. Í Kópavogsliðinu eru: Adolf Petersen, menntaskólakennari við MK, Bjarni Þór Sigurbjörnsson, laganemi við HÍ, og Þorbjörg Marinósdóttir, blaðamaður og rithöfundur.
Nýtt útivistarsvæði í Asparlundi í Fossvogsdal var vígt í morgun að viðstöddum fjölmörgum leik- og grunnskólabörnum. Svæðið mun einkum nýtast Snælandsskóla en einnig leikskólunum Furugrund, Álfatúni, Grænatúni, Fögrubrekku og jafnvel Marbakka.
Fyrsta sýning vetrarins í Gallerí Sykri, í Molanum, var opnuð síðastliðinn föstudag. Sýningin ber vinnuheitið „Planið mitt í vetur er að geta falið mig í snjónum“ og er listamaðurinn Sigríður Björk Bragadóttir.
Samtök heilsuleikskóla fögnuðu fimm ára afmæli sínu í vikunni en þau voru stofnuð í Kópavogi að frumkvæði Unnar Stefánsdóttur, sem þá var leikskólastjóri á leikskólanum Urðarhóli.
Lítið útivistarsvæði í hlíð Rjúpnahæðar í Kópavogi, sem ætlað er skólabörnum, var formlega vígt í morgun að viðstöddum leikskólabörnum úr Fífusölum og Rjúpnahæð og nemendum frá Salaskóla.
Konur voru í meirihluta á fundi bæjarráðs Kópavogs í vikunni en eingöngu konur sátu fundinn fyrir hönd flokkanna fjögurra sem mynda meirihluta í bæjarstjórn.
Kvennakór Kópavogs, í samstarfi við Digraneskirkju, heldur styrktartónleika til stuðnings Mæðrastyrksnefnd í Kópavogi, sunnudaginn 7. nóvember.
Starfsmenn ungmennahúsa víða um land funduðu í Molanum, ungmennahúsi Kópavogs, í síðustu viku. Markmiðið var að hittast og leggja grunn að enn frekara samstarfi forsvarsmanna húsanna í framtíðinni.
Guðríður Arnardóttir, formaður bæjarráðs Kópavogsbæjar, var í dag samhljóða kjörin varaformaður stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga. Halldór Halldórsson er sem kunnugt er formaður sambandsins.
Nýkrýndir Evrópumeistarar í hópfimleikum úr Gerplu voru hylltir í Gerðarsafni síðdegis í gær þar sem bæjarstjórn Kópavogs hélt móttöku þeim til heiðurs. Bæjarstjórn gerði hlé á annars reglubundnum fundum sínum til að fagna með Gerplustúlkunum.
Bæjarstjóri Kópavogs, bæjarfulltrúar og helstu embættismenn bæjarins funduðu með þingmönnum Suðvesturkjördæmis í gær en nú stendur yfir kjördæmavika á Alþingi.
Lorem ipsum dolor sit amet, sed diam nonumy eirmod tempor invidunt ut labore consetetur sadipscing elitr, sed diam nonumy eirmod tempor invidunt ut labore.
Strætó bs. ætlar að fjölga strætóferðum á kvennafrídaginn 25. október næstkomandi. Ferðum verður fjölgað á þriðja tímanum, eða um það leyti þegar konur eru hvattar til að leggja niður vinnu. Ferðum verður svo aftur fjölgað að lokinni dagskrá í miðbæ Reykjavíkur. Nánari upplýsingar má finna hér.
Guðrún Pálsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, hvetur konur sem starfa hjá bænum til að taka þátt í kvennafrídeginum næstkomandi mánudag og leggja niður störf kl. 14:25.
Í vikunni vígðu leikskólabörn í Kópavogi nýtt útivistarsvæði í Vatnsendahlíð sem hlotið hefur nafnið Magnúsarlundur. Svæðið verður m.a. notað til útináms skóla og leikskóla í nágrenninu.
Stjórnlaganefnd og Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu standa fyrir borgarafundi í dag, fimmtudag, frá kl. 17:30-19:30, í Súlnasal Hótel Sögu. Fundurinn er kynningarfundur um stjórnlagaþing og þjóðfund 2010 auk þess sem kallað verður eftir sjónarmiðum fundarmanna. Fundarstjóri verður Gunnsteinn Sigurðsson, fyrrverandi bæjarstjóri Kópavogs.
Strætó bs. og VÍS munu næstu sex vikur standa fyrir svokölluðum Öryggisdögum – átaki sem miðar að því að fækka slysum í umferðinni og auka öryggi vegfarenda.
Vefjaræktað eintak af silfurreyninum í Fógetagarðinum í Reykjavík var gróðursett við Kópavogslæk neðan Fífuhvamms í gær. Garðyrkjufélag Íslands færði Kópavogsbæ þetta eintak af silfurreyninum að gjöf í tilefni af 125 ára afmæli félagsins.
Samstarfssamningur milli Kópavogsbæjar og Landbúnaðarháskóla Íslands um svokallaðan Yndisgarð í Fossvoginum var undirritaður fyrir helgi. Af því tilefni gróðursetti bæjarstjóri Kópavogs, Guðrún Pálsdóttir, skrautreyni í garðinum.
Aðsókn að Salnum, Tónlistarhúsi Kópavogs, hefur aldrei verið meiri en í ár og ef hún er borin saman við árið í fyrra er aukningin ríflega 40%. Samtals hafa um 25 þúsund gestir sótt tónleika og aðra viðburði í Salnum það sem af er þessu ári.
Íslenska lánshæfismatsfyrirtækið Reitun ehf. hefur gefið út nýtt lánshæfismat fyrir Kópavogsbæ. Í uppfærðu mati segir að þrátt fyrir að vera annað stærsta sveitarfélag landsins og eitt það öflugasta á landinu, hafi aukning skulda í kjölfar efnahagshrunsins þau áhrif að Kópavogsbær er sem fyrr með lánshæfiseinkunnina B með jákvæðum horfum.
Margir lögðu leið sína á sýninguna Trékarlar sem opnuð var í anddyri Náttúrufræðistofu Kópavogs um helgina. Trékarlar eru útskornir tréstaurar sem hafa öðlast framhaldslíf með ástríðu og útsjónarsemi Guðmundar Sigurðssonar.
Sýningin Trékarlar verður opnuð í anddyri Náttúrufræðistofu Kópavogs , næstkomandi laugardag 9. október kl. 14:00. Trékarlar eru útskornir tréstaurar sem hafa öðlast framhaldslíf með ástríðu og útsjónarsemi Guðmundar Sigurðssonar, trésmiðs og Kópavogsbúa.
Hópur góðra gesta frá Klakksvík í Færeyjum, vinabæ Kópavogs, heimsótti bæinn um helgina en þar var á ferðinni kór sem heitir 17 söngvarar. Kórinn var hér á kórferðalagi og notaði tækifærið til að heimsækja vinabæinn sinn.
Yfir tvær milljónir söfnuðust í Kópavogi í söfnun Rauða kross Íslands, Göngum til góðs, sem fram fór síðastliðinn laugardag. Alls 275 Kópavogsbúar gengu með söfnunarbauka í hús og var þeim hvarvetna vel tekið.
Kársnesskóli hefur fengið leyfi Landverndar til að flagga Grænfánanum og var hann dreginn að húni við hátíðlega athöfn í síðustu viku. Þetta þýðir að skólinn hefur náð tilsettum markmiðum með umhverfisstefnu sinni.
Gjörningur Páls Hauks Björnssonar fer fram í safnrými Gerðarsafns, listasafns Kópavogs, nú á laugardag og stendur hann yfir frá kl. 15:00 til kl. 17:00. Gjörningurinn er hluti af samsýningu níu ungra myndlistarmanna sem nú stendur yfir í Gerðarsafni.
Íþróttafélagið Stál úlfur var stofnað í byrjun árs af nokkrum þekktum litháískum íþróttamönnum sem búa hér á landi. Hefur það aðstöðu í Kórnum í Kópavogi.
Tvær nýjar námsbækur í lífsleikni og jafnréttisfræðslu eftir Írisi Arnardóttur, námsráðgjafa hjá Hörðuvallaskóla í Kópavogi, voru í sumar og haust gefnar út af Tindi, bókaútgáfu.
Breiðablik varð um helgina Íslandsmeistari í fótbolta karla í fyrsta sinn í sögu félagsins. Breiðablik gerði markalaust jafntefli gegn Stjörnunni í Garðabæ og í leikslok brutust út mikil fagnaðarlæti.
Hárgreiðslustofa og fótaaðgerðarstofa verða opnaðar í þjónustumiðstöð Kópavogs í Boðaþingi nú um helgina. Stofunum er ætlað að þjóna íbúum hjá Hrafnistu í Boðaþingi og öllum öðrum eldri borgurum í Kópavogi.
Kópavogsdeild Rauða kross Íslands fór aftur af stað með verkefnið Nýttu tímann mánudaginn 13. september. Boðið er upp á fjölbreytta dagskrá í vetur svo sem fyrirlestra, námskeið og ráðgjöf.
Réttað var í Fossvallarétt á sunnudag með um fimm til sex hundruð fjár. Fossvallarétt er sameiginleg lögrétt Reykvíkinga og Kópavogsbúa. Þorsteinn Hjaltested, fjáreigandi í landi Kópavogs, segir að réttirnar hafi gengið mjög vel í frábæru veðri.
Ómar Ragnarsson, fréttamaður og áhugamaður um bíla og umhverfismál, opnaði á föstudag sýningu á vistvænum farartækjum í Vetrargarði Smáralindar í Kópavogi.
Bæjarstjórar á höfuðborgarsvæðinu og borgarstjórinn í Reykjavík tóku þátt í hjóladegi fjölskyldunnar á laugardag.
Ómar Ragnarsson fagnaði sjötugsafmæli sínu fyrir helgi og af því tilefni var haldin afmælisskemmtun og tónleikar í Salnum í Kópavogi.
Um fjögur hundruð börn tóku þátt í árlegri menningarhátíð elstu barna leikskóla Kópavogs sem fram fór í Salnum, tónlistarhúsi Kópavogs, í morgun.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn, hefur gefið út bók um listakonuna Gerði Helgadóttur sem safnið er kennt við. Bókin ber titilinn: Gerður. Meistari glers og málma.
Sameiginlegur starfsdagur grunnskóla Kópavogs og grunnskóladeildar bæjarins fer fram 1. október næstkomandi í Hörðuvallaskóla. Dagurinn verður settur kl. 8:45 með ávarpi Helga Halldórssonar, skólastjóra Hörðuvallaskóla, og Rannveigar H. Ásgeirsdóttur, formanns skólanefndar Kópavogsbæjar.
Kópavogsbær tekur í ár, eins og undanfarin ár, þátt í Evrópsku samgönguvikunni en hún fer fram dagana 16. til 22. september. Tilgangur vikunnar er að vekja fólk til umhugsunar um umhverfi sitt og hvernig mismunandi samgöngumáti hefur áhrif á umhverfi og heilsu.
Ráðstefna um áhrif tækniþróunar á íslenskt menntalíf fer fram í Molanum, ungmennahúsi Kópavogs, á morgun laugardag 11. september.
Þrennir tónleikar til minningar um Sigfús Halldórsson tónskáld hafa verið haldnir í Salnum í Kópavogi síðustu daga. Tónleikarnir hafa verið gríðarlega vel sóttir og fengið góða dóma. Ákveðið hefur verið að bæta þeim fjórðu við þann 15.september.
Út er komin ljóðabókin Ljóð við lækinn og eru höfundar ellefu skáld sem hafa einu sinni í viku, vetrarlangt, hist í Gjábakka, félagsheimili aldraðra í Kópavogi. Bókin er gefin út til minningar um Sigfús Halldórsson, listamann og tónskáld, en hann hefði orðið 90 ára 7. september.
Alþjóðlega verkefnið Göngum í skólann var formlega sett í morgun í Fagralundi í Kópavogi af Ögmundi Jónassyni samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. Rannveig Ásgeirsdóttir, formaður skólanefndar Kópavogsbæjar, flutti ávarp við setninguna, sem og Oddný Sturludóttir, formaður menntaráðs Reykjavíkurborgar.
Árleg fjölskylduganga á umhverfisdegi Kópavogs fer fram laugardaginn 11. september. Markmiðið er að gefa Kópavogsbúum færi á að kynnast nokkrum af helstu náttúruperlum og menningarminjum bæjarins.
Íbúum Kópavogsbæjar fer fjölgandi eins og sjá má í mánaðarskýrslu Kópavogsbæjar sem gefin var út í ágúst 2010. Bæjarbúar voru 30.619 í júlílok en til samanburðar voru þeir 30.395 í árslok 2009.
Guðríður Arnardóttir, formaður bæjarráðs Kópavogs, tók í dag fyrstu skóflustunguna að nýrri reiðhöll á Kjóavöllum. Þar með hefjast undirbúningsframkvæmdir á svæðinu.
Sigfús Halldórsson, tónskáld og heiðursborgari Kópavogs, hefði orðið 90 ára þann 7. september 2010. Þess er minnst með tónleikum í Salnum 4. og 7. september.
Mikil og góð aðsókn hefur verið að sýningu Tónlistarsafns Íslands um Sigfús Halldórsson tónskáld. Sýningin var opnuð á Kópavogsdögum í maí í tilefni þess að Sigfús hefði orðið 90 ára á þessu ári.
Vetraráætlun Strætó hefur tekið gildi en það þýðir að tíðni ferða eykst á ný og verður svipuð og síðastliðinn vetur. Jafnframt breytist akstur um Grafarvog og Grafarholt nokkuð með nýrri vetraráætlun.
Skólastarf er nú hafið af fullum krafti víða um land og er Menntaskólinn í Kópavogi þar engin undantekning. Busavígsla fór fram á mánudag.
Ævar Jóhannesson frumkvöðull hlaut nýverið heiðursviðurkenningu bæjarstjórnar og umhverfisráðs Kópavogsbæjar fyrir framlag sitt til umhverfis og samfélags.
Þúsundir Kópavogsbúa tóku þátt í Hamraborgarhátíðinni sem haldin var í fyrsta sinn í Kópavogi um helgina. Hamraborginni var breytt í göngugötu og myndaðist skemmtileg markaðsstemmning í kringum sölutjöldin. Ekki spillti fyrir að veðrið var með eindæmum gott.
Umhverfisviðurkenningar umhverfisráðs Kópavogs voru afhentar í gær í Salnum, tónlistarhúsi Kópavogs. Heiðursviðurkenning bæjarstjórnar og umhverfisráðs Kópavogs var einnig veitt í fyrsta sinn. Ævar Jóhannesson hlaut hana fyrir störf sín í þágu umhverfis og samfélags. Formaður bæjarráðs, Guðríður Arnardóttir, afhenti viðurkenninguna fyrir hönd bæjarstjórnar.
Nemendur sem eru með lögheimili á höfuðborgarsvæðinu og eru í fullu námi við framhaldsskóla og háskóla á höfuðborgarsvæðinu geta keypt nemakort í strætó en þetta er annað árið í röð sem þau eru boðin í núverandi mynd. Kort sem gildir allt skólaárið kostar 15 þúsund krónur líkt og í fyrra. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Strætó.
Toyota á Íslandi verður aðalstyrktaraðili Salarins, tónlistarhúss Kópavogs, samkvæmt samstarfssamningi sem undirritaður var í Salnum í gærmorgun af þeim Guðrúnu Pálsdóttur, bæjarstjóra Kópavogs, og Úlfari Steindórssyni, forstjóra Toyota á Íslandi.
Kópavogsbær veitti í síðustu viku hinum danska Sören N. Sörensen, formanni DGI á Suðvestur-Jótlandi (Danske Gymnastik- og Idrætsforeninger) viðurkenningu fyrir áhrifaríkt og gefandi samstarf.
Grunnskólar Kópavogs verða settir í næstu viku en yfir fjögur þúsund nemendur hefja þá nám í níu almennum grunnskólum. Þar af eru um 450 nemendur að setjast í fyrsta sinn á skólabekk.
Jón B. K. Ransu verður með leiðsögn um sýningu Gerðarsafns Gerður og Gurdjieff á sunnudag og hefst leiðsögnin kl. 15.00. Fjallað verður um tengsl verka Gerðar Helgadóttur við kenningar armenska dulspekingsins G. I. Gurdjieffs.
Rúmlega sjötíu manns púluðu á sundlaugarbakka Sundlaugar Kópavogs í góða veðrinu fyrr í vikunni en þá ákvað líkamsræktarstöðin Arctic að halda hjólatíma (spinning) utandyra.
Tónlistarhátíð unga fólksins fer nú fram á menningartorfu Kópavogs en um eitt hundrað ungir tónlistarnemar hvaðanæva af landinu taka þátt. Einnig er nokkuð um erlenda þátttakendur.
Guðrún Pálsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, heimsótti vinabæinn Klaksvík í Færeyjum í síðustu viku og tók þar á móti henni bæjarstjórinn Gunvá við Keldu.
Götuleikhús Kópavogs hefur nú lokið sumarstarfi sínu en sautján listamenn á aldrinum fjórtán til sextán ára tóku þátt í starfinu í ár.
Kópavogsbær hefur ákveðið að kaupa fjórar tveggja herbergja íbúðir fyrir aldraða af Sunnuhlíð, sjálfseignarstofnun um þjónustu við aldraða í Kópavogi.
Árleg sumarhátíð Vinnuskóla Kópavogs fór fram í vikunni og tókst með eindæmum vel. Um 915 ungmenni á aldrinum 14 til 16 ára hafa starfað við hin ýmsu störf hjá vinnuskólanum í sumar og lýkur þeirri vinnu í næstu viku.
Til að auðvelda Kópavogsbúum að koma ábendingum sínum eða tillögum á framfæri við bæinn hefur verið sett upp nýtt ábendingakerfi á vefsíðu bæjarins. Sá sem sendir inn ábendingu ýtir á hnappinn á forsíðunni efst til hægri en á honum stendur: Ábendingar til Kópavogsbæjar.
Bæjarráð Kópavogs hefur samþykkt fyrir sitt leyti samning við breska útgáfu- og sýningarfyrirtækið Mercator Media um að Íslenska sjávarútvegssýningin verði haldin í Fífunni og Smáranum í Kópavogi dagana 22. til 24. september 2011.
Uppskeruhátíð Skapandi sumarstarfa fer fram á morgun og á miðvikudag. Annað kvöld flytja nokkrir ólíkir tónlistarhópar tónlistaratriði í Salnum og hefjast tónleikarnir kl. 20.00. Á miðvikudagskvöld verður opið hús í Molanum, frá kl. 20.00, þar sem verkefni sumarsins verða kynnt, svo sem fatahönnun, dans, ljósmyndun og jafningjafræðsla. Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis.
Börn og bróðurdóttir Wilhelms Ernst Beckmann, tréskurðarlistamanns og fyrsta bæjarlistamanns Kópavogs, færðu í dag Bókasafni Kópavogs að gjöf listaverk, skartgripi, málverk og bækur sem áður voru í eigu listamannsins.
Alls 11.185 gestir heimsóttu Náttúrufræðistofu Kópavogs á árinu 2009 og er það enn eitt aðsóknarmetið í sögu safnsins. Til samanburðar var fjöldinn 10.207 árið á undan. Um þriðjungur gesta voru leikskóla- og grunnskólabörn sem komu í skipulagðar heimsóknir og nutu leiðsagnar starfsmanna Náttúrufræðistofu.
Bæjarráð samþykkti í síðustu viku að veita Hrefnuveiðimönnum ehf. leyfi til að reka veitingaskip, Hrafnreyði KÓ 100, í Kópavogshöfn. Forsvarsmenn Hrefnuveiðimanna hyggjast í næsta mánuði hefja þriggja til sex tíma skemmtisiglingar frá Kópavogshöfn um Faxaflóa. Um borð verða í boði veitingar, aðallega hrefnukjöt.
Íslenski safnadagurinn verður sunnudaginn 11. júlí og af því tilefni verður leiðsögn um sumarsýningar Gerðarsafns, listasafns Kópavogs. Leiðsögnin hefst kl. 15.00 og er öllum opin.
Um fimmtíu börn á tólfta og þrettánda aldursári hafa í sumar sótt stuttmynda- og margmiðlunarnámskeið Íþrótta- og tómstundaráðs Kópavogsbæjar (ÍTK).
Listmálarinn Hafsteinn Austmann hefur fært Kópavogsbæ olíumálverk að gjöf sem þakklætisvott fyrir að halda yfirlitssýningu á verkum sínum í Gerðarsafni í vor. Guðrún Pálsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, veitti gjöfinni viðtöku í Gerðarsafni fyrir helgi.
Íslenski safnadagurinn verður haldinn sunnudaginn 11. júlí og af því tilefni fara fram umræður og fræðsla í Náttúrufræðistofu Kópavogs í tengslum við sýningu Magnúsar Árnasonar listamanns, Af lifun. Dagskráin hefst stundvíslega kl. 15.00 með fyrirlestri Dr. Hilmars J. Malmquist um kúluskít.
Ný stjórn Strætó bs. kom saman á fundi í dag og skipti með sér verkum. Formaður stjórnar verður Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, bæjarfulltrúi í Hafnarfirði. Aðrir í stjórn eru eftirtaldir: Kjartan Örn Sigurðsson frá Álftanesi, Stefán Snær Konráðsson frá Garðabæ, Hjálmar Hjálmarsson frá Kópavogi, Hafsteinn Pálsson frá Mosfellsbæ, Einar Örn Benediktsson frá Reykjavík og Sigrún Edda Jónsdóttir frá Seltjarnarnesbæ.
Tvær sumarsýningar verða í Gerðarsafni, listasafni Kópavogs, frá 3. júlí til 29. ágúst. Á neðri hæð safnsins verður sýningin Gerður og Gurdjieff en á efri hæðinni verður sýningin Lífshlaup Kjarvals og fleiri úrvalsverk í einkasafni Þorvaldar og Ingibjargar. Safnið er opið alla daga, nema mánudaga, frá kl. 11.00 til 17.00.
Sýning á verkum ungra og efnilegra málara verður opnuð í Molanum, ungmennahúsi Kópavogs, fimmtudaginn 1. júlí kl. 18.30. Listamennirnir eru Ágúst Már Guðjónsson, 19 ára og Ingimundur Vigfús Eiríksson, 18 ára. Myndlistarsýningin stendur yfir í viku. Allir eru velkomnir á opnunina en í boði verða léttar veitingar auk góðrar tónlistar.
Alls 43 ungmenni á aldrinum 16 til 25 ára starfa í Molanum, ungmennahúsi Kópavogs í sumar, við margvísleg skapandi störf. Ungmennin sækja sérstaklega um störf á sínu áhugasviði en skilyrðið er að þau séu sýnileg og hafi jákvæð áhrif á umhverfið.
Leikskólinn Álfaheiði í Kópavogi hélt sína árlegu sumarhátíð á föstudag og kom nýr bæjarstjóri, Guðrún Pálsdóttir, í heimsókn af því tilefni. Börnin sungu fyrir hana tvö lög og færðu henni gjöf sem þau höfðu búið til, fallega handunna skál úr pappamassa. Í skálina settu þau köngla og greinar.
Íslenska lánshæfismatsfyrirtækið Reitun ehf. birti í dag lánshæfismat Kópavogsbæjar. Kópavogsbær fær einkunnina B með jákvæðum horfum. Í matinu segir að Kópavogur sé eitt öflugasta sveitarfélag landsins.
Hátt í tvö þúsund ungmenni frá fjórtán ára aldri munu starfa við margvísleg störf hjá Kópavogsbæ í sumar en hópurinn er ívið stærri en í fyrra. Allir Kópavogsbúar frá fjórtán ára aldri, sem sóttu um, fengu vinnu.
Kosið var í nefndir og ráð á vegum Kópavogsbæjar á fyrsta fundi nýrrar bæjarstjórnar í vikunni. Einungis aðalmenn voru kjörnir en kosningu varamanna var frestað. Í bæjarráð voru kjörin þau Guðríður Arnardóttir, Hjálmar Hjálmarsson, Ólafur Þór Gunnarsson, Ármann Kr. Ólafsson og Gunnar I. Birgisson.
Ungir listamenn á vegum Skapandi sumarstarfa verða með stutta Fúsatónleika í hádeginu í dag, föstudag, í Tónlistarsafni Íslands. Allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Tónleikarnir hefjast kl. 12.15 og er aðgangur ókeypis. Leikin verða þekkt lög eftir listamanninn, tónskáldið, píanóleikarann og söngvarann Sigfús Halldórsson svo sem Vegir liggja til allra átta, Lítill fugl, Sumarauki og Litla flugan.
Kópavogsbúar héldu þjóðhátíðardaginn hátíðlegan í dag, 17. júní, og lék veðrið við höfuðborgarbúa. Skrúðgangan fór frá Menntaskólanum í Kópavogi að Rútstúni þar sem fjöldi manns, ungir sem aldnir, kom saman til að taka þátt í fjölbreyttri hátíðardagskrá. Guðrún Pálsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, flutti ávarp, fjallkonan Unnur Hólmfríður Brjánsdóttir fór með ljóð og nýstúdentinn Alex Ingi Espersen flutti hugleiðingar unga fólksins á þjóðhátíðardegi.
Guðrún Pálsdóttir, nýr bæjarstjóri í Kópavogi, tók við lyklum að skrifstofu bæjarstjóra í dag úr hendi Gunnsteins Sigurðssonar sem verið hefur bæjarstjóri frá 1. júlí 2009. Gunnsteinn gaf ekki kost á sér í bæjarstjórn í kosningunum í vor og hverfur því til annarra starfa. Hann hefur setið í bæjarstjórn frá árinu 1994 en þá kom hann fyrst inn sem varamaður. Hann hefur setið alls 241 bæjarstjórnarfund.
Margvísleg störf eru í boði hjá Kópavogsbæ fyrir skólafólk, átján ára og eldra, sem ekki á rétt til atvinnuleysisbóta. Til dæmis eru í boði störf á skrifstofum bæjarins við eignaskráningu, skjalavistun, flokkun og aðra gagnavinnslu. Þá eru í boði margvísleg verkamannastörf utandyra. Ráðningartími er breytilegur en gæti orðið allt að þrír mánuðir.
Akstur allra leiða Strætó bs. á þjóðhátíðardaginn 17. júní verður samkvæmt laugardagsáætlun. Á ákveðnum leiðum verður þó ekið lengur fram á kvöld auk þess sem á sömu leiðum verður akstur tíðari eftir kvöldmat en hefðbundið er samkvæmt laugardagsáætlun. Vegna lokana í miðbæ Reykjavíkur verður akstursleiðum jafnframt breytt á því svæði.
Dagskrá þjóðhátíðardagsins í Kópavogi er venju samkvæmt afar fjölbreytt. Hún hefst á tónum brassbanda frá Skólahljómsveit Kópavogs. Böndin aka um bæinn og óska Kópavogsbúum gleðilegrar hátíðar.
Um þrjú hundruð farþegar skemmtiferðaskipsins Sojourn kynntu sér víkingamenningu í Guðmundarlundi Skógræktarfélags Kópavogs í dag. Rimmugýgur, hafnfirski bardaga- og handverkshópurinn, sló upp víkingabúðum og fram stigu bardagamenn, sögumenn og járnsmiðir og ljúfir tónar bárust frá söngkonum og börnum í víkingaklæðum.
Nýr sameinaður skóli í Kópavoginum heitir Álfhólsskóli. Þetta var upplýst við hátíðlega athöfn í íþróttahúsi Digranesskóla í morgun. Um 400 tillögur að nýju nafni bárust og þar af voru tæplega 170 með því nafni sem varð fyrir valinu. Skólinn verður til við sameiningu Digranesskóla og Hjallaskóla. Skólastjórarnir verða þeir sömu, þær Sigrún Bjarnadóttir og Magnea Einarsdóttir.
Góð þátttaka var á árlegri Jazz- og blúshátíð Kópavogs sem fram fór dagana 3. til 6. júní. Bassaleikarinn, söngvarinn, tónskáldið og myndlistarmaðurinn Jóhann G. Jóhannsson spilaði þar stórt hlutverk en hann hélt blústónleika í Salnum, föstudagskvöldið 4. júní.
Guðrún Pálsdóttir, sviðsstjóri tómstunda- og menningarsviðs Kópavogsbæjar, verður bæjarstjóri Kópavogs, samkvæmt samkomulagi nýs meirihluta í bænum. Nýjan meirihluta skipa Samfylkingin, Vinstri græn, Næst besti flokkurinn og Listi Kópavogsbúa.
Tuttugu löglegir kraftlyftingaíþróttaiðkendur hafi skráð sig til keppni á Kópavogsmótið í kraftlyftingum sem fram fer á morgun, laugardag 5. júní. Fjórar konur og sextán karlar hafa skráð sig til þátttöku.
Útstrikanir og breytingar á röð frambjóðenda voru langflestar á framboðslista sjálfstæðismanna í Kópavogi í sveitarstjórnarkosningunum 29. maí. Kjörstjórn Kópavogs hefur nú tekið saman upplýsingar um breytta seðla í kosningunum.
Bæjarráð Kópavogs samþykkti nýverið að fela skipulags- og umhverfissviði bæjarins í samvinnu við Þríhnúka ehf. að hefja vinnu við friðlýsingu Þríhnúkagígs, breytingar á skipulagi svæðisins og gerð umhverfisskýrslu. Markmiðið er að gera gíginn aðgengilegan almenningi.
Dagur hinna villtu blóma verður haldinn sunnudaginn 13. júní en þann dag gefst Kópavogsbúum kostur á að fá leiðsögn um Kópavogsdalinn og fræðslu um þær plöntur sem þar vaxa. Gróa Valgerður Ingimundardóttir, líffræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands, verður leiðsögumaður.
Söngvarinn og New York búinn Miles Griffith verður heiðursgestur á árlegri Jazz- og blúshátíð Kópavogs sem fram fer dagana 3. til 6. júní. Griffith flytur m.a. þekkta ameríska standarda á djasstónleikum í Salnum í Kópavogi laugardaginn 5. júní og hefjast þeir kl. 21.00.
Framsóknarflokkurinn fær einn bæjarfulltrúa, Sjálfstæðisflokkurinn fjóra, Samfylkingin þrjá, Vinstri græn einn, Næst besti flokkurinn einn og Listi Kópavogsbúa einn, samkvæmt lokatölum úr Kópavogi.
Samkvæmt fyrstu tölum í Kópavogi er meirihlutinn í bæjarstjórn fallinn. Þegar 12.804 atkvæði hafa verið talin er Framsóknarflokkurinn með 841 atkvæði eða 7% atkvæða. Sjálfstæðisflokkurinn er með 3.617 atkvæði eða 30,2% atkvæða.
Sumaráætlun Strætó tók gildi um helgina en líkt og undanfarin ár breytist tíðni strætóferða á níu strætóleiðum í samræmi við minni eftirspurn á sumrin.Vagnar á leiðum 1, 2, 3, 4, 6, 11, 12, 14 og 15 munu aka á 30 mínútna tíðni í sumar, í stað 15 mínútna. Sú breyting verður jafnframt á leið 18 að ekið verður upp og niður Grensásveg milli Bústaðavegar og Miklubrautar í stað þess að aka allan Bústaðaveginn.
Samningur um félagsaðstöðu Siglingafélagsins Ýmis að Naustavör 20 var undirritaður í vikunni. Gunnsteinn Sigurðsson, bæjarstjóri Kópavogs, og Birgir Ari Hilmarsson, formaður Ýmis, rituðu undir samninginn. Félagar í Ými eru rúmlega 200 og segir Birgir að önnur siglingafélög horfi hýru auga til aðstöðunnar í Kópavogi.
Tveir skólar í Kópavogi fengu í maímánuði grænfánann, alþjóðlega viðurkenningu fyrir starf sitt að umhverfismennt og menntun til sjálfbærrar þróunar. Leikskólinn Arnarsmári fékk grænfánann afhentan í fyrsta sinn 18. maí og Snælandsskóli fékk viðurkenninguna afhenta 21. maí og það í fjórða sinn.
Kópavogsbær hefur gert samning við lánshæfismatsfyrirtækið Reitun ehf. um greiningu og mat á lánshæfi sveitarfélagsins gagnvart fjárfestum á skuldabréfamarkaði. Gunnsteinn Sigurðsson, bæjarstjóri Kópavogs, og Ólafur Ásgeirsson, framkvæmdastjóri Reitunar, skrifuðu undir samninginn í vikunni.
Gerða Björg Hafsteinsdóttir og Þorsteinn Ingimarsson hafa verið ráðin í störf atvinnufulltrúa hjá Kópavogsbæ. Þau eru ráðin samkvæmt samningi Kópavogsbæjar, Vinnumálastofnunar og félagsmálaráðuneytis.
Kópavogsdagar, árleg menningarhátíð Kópavogs, tókust vel og sýndu bæjarbúar þeim fjölbreyttu viðburðum sem þar voru í boði mikinn áhuga. Listamenn buðu gestum og gangandi að heimsækja vinnustofur sínar, tónleikar voru haldnir og sýningar af ýmsu tagi voru opnaðar.
Sýning Magnúsar Árnasonar listamanns, Af lifun, var opnuð í Náttúrufræðistofu Kópavogs um helgina. Sýningin er hluti af menningardagskrá Kópavogsdaga. Magnús sagði í samtali við Morgunblaðið á föstudag að sýningin væri hluti af náttúrufræðisafninu. Fólk vissi því ekki hvort það væri að horfa á listaverk eða safngrip.
Leikskólinn Kópahvoll fagnaði 40 ára afmæli sínu 11. maí. Af því tilefni var foreldrum, systkinum, ömmum og öfum boðið til veislu í skólanum. Boðið var upp á veitingar, söng og listsýningu og skrautlegur trúður kom og sýndi listir sínar.
Fjölmenni var í Smáralind í Kópavoginum dag og hlýddi á ellefu kóra flytja Fúsalög, lög eftir Sigfús Halldórsson tónskáld. Tónleikarnir voru hluti af menningarhátíð Kópavogs sem stendur nú yfir.
Ellefu kórar munu í dag, fimmtudag, sameina raddir sínar og syngja Fúsalög, lög eftir hinn ástsæla Sigfús Halldórsson tónskáld í Vetrargarðinum í Smáralind. Tónleikarnir standa yfir frá kl. 13.00 til 15.00 og eru allir hjartanlega velkomnir. Tónleikarnir eru hluti af árlegri menningarhátíð Kópavogsbæjar, Kópavogsdaga, sem nú stendur yfir.
Knattspyrnudeild Breiðabliks hlaut í dag jafnréttisviðurkenningu Kópavogsbæjar. Í umsögn jafnréttisnefndar bæjarins segir að Breiðablik hafi frá upphafi verið í fararbroddi í knattspyrnu kvenna og að það sé eina félagið sem hafi verið með á Íslandsmóti kvenna í knattspyrnu óslitið frá upphafi.
Ragnar Axelsson ljósmyndari var í kvöld útnefndur heiðurslistamaður Kópavogsbæjar fyrir árið 2010. Í umsögn lista-og menningarráðs Kópavogs segir meðal annars að Ragnar, eða Raxi eins og hann er kallaður, hafi fyrir löngu fest sig í sessi sem einn fremsti fréttaljósmyndari Íslands.
Kópavogsdagar, árleg menningarhátíð Kópavogsbæjar, hófust í dag með opnun sýningarinnar, Fúsi á ýmsa vegu, sem sett hefur verið upp í Tónlistarsafni Íslands á Kópavogsholti til heiðurs listamanninum Sigfúsi Halldórssyni. Kópavogsdagar eru í ár sérstaklega tileinkaðir Sigfúsi en hann hefði orðið 90 ára í haust. Sigfús bjó í Kópavogi í áratugi, hann er fyrsti heiðurslistamaður bæjarins og þriðji heiðursborgarinn.
Í sumar býður Íþrótta- og tómstundaráð Kópavogs úrval námskeiða fyrir börnin í bænum. Allir eiga því að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Hægt er að nálgast nánari upplýsingar á sérstakri vefsíðu sem nú hefur verið tekin í gagnið og má finna slóðina hér.
Lindaskóli sigraði Skólahreysti í ár og af því tilefni færðu bæjarstjóri Kópavogs, Gunnsteinn Sigurðsson, og Árni Þór Hilmarsson, framkvæmdastjóri fræðslusviðs Kópavogsbæjar, sigurliðinu viðurkenningarskjal frá bænum og tíu þúsund króna inneign í íþróttavöruversluninni Intersport í Kópavogi.
Þjónustumiðstöð fyrir eldri íbúa í Kópavogi var formlega tekin í notkun í Boðaþingi í dag. Þetta er þriðja félagsheimilið fyrir eldri íbúa sem tekið er í notkun í Kópavogi á sautján árum.
Ný álma í Hörðuvallaskóla í Kópavogi var formlega tekin í notkun í dag. Af því tilefni gerðu nemendur og kennarar skólans sér glaðan dag og buðu gestum að skoða nýja húsnæðið. Með nýrri álmu verður Hörðuvallaskóli fullbúinn en framkvæmdir við skólann hófust veturinn 2005.
Fjölmargir Kópavogsbúar gerðu sér glaðan dag á sumardaginn fyrsta og lögðu leið sína í Fífuna í Kópavoginum. Þar var fjölbreytt dagskrá í boði fyrir yngstu kynslóðina. Til dæmis gátu börnin farið í hoppukastala og fylgst með Sirkusi Íslands sýna listir sínar.
Fimmtudaginn 22. apríl verður sumardeginum fyrsta fagnað með skátamessu í Hjallakirkju kl. 11:00. Skrúðganga skátafélagsins Kópa heldur af stað frá Digraneskirkju kl. 13:30 í Fífuna þar sem fram fer hátíðar og skemmtidagskrá fyrir íbúa bæjarins.
Kópavogsbær tók í dag formlega við nýjum íþróttamannvirkjum í Kórnum í Vatnsendahverfi af Knattspyrnuakademíu Íslands. Þar með eignast bærinn um 6.900 fermetra íþróttaaðstöðu í Vallakór til viðbótar við þá aðstöðu sem fyrir var.
Bæjarráð Kópavogs samþykkti hefur samþykkt að ráða Örnu Schram í starf forstöðumanns almannatengsla Kópavogsbæjar.
Hin árlega upplestrarkeppni í 7. bekk var haldin í Salnum 17. mars sl. Keppendur voru 17 frá 10 grunnskólum í Kópavogi. Sigurvegari að þessu sinni var Agnes Gísladóttir, Snælandsskóla.
Kópavogur hefur nú opnað fyrir umsóknir í hin ýmsu sumarstörf innan bæjarins. Í Molanum -ungmennahúsi hefur verið sett upp sérstök aðstaða fyrir þá sem vilja sækja um sumarstörf. Þar eru tölvur og annað sem gott er að hafa við höndina þegar sótt er um starf.
Kaflaskil hafa orðið í húsnæðis- og umönnunarmálum aldraðra með nýju hjúkrunarheimili Hrafnistu við Boðaþing í Kópavogi. Rúm átta ár eru síðan nýtt og sérhannað hjúkrunarheimili tók til starfa á höfuðborgarsvæðinu. Hjúkrunarheimilið verður rekin eftir nýrri hugmyndafræði í öldrunarþjónustu sem ekki hefur verið reynd áður hér á landi.
Tekið verður við umsóknum um sumarstörf hjá Kópavogsbæ hér á heimasíðunni frá og með mánudaginn 15. mars. Störfin eru fyrir þá sem eru fæddir árið 1993 og fyrr. Umsóknarfrestur er til 5. apríl næstkomandi.
Samféshátíðin fór fram í Laugardalshöll 5.-6. mars sl. og sóttu hana um 4500 unglingar víðsvegar að af landinu ásamt starfsmönnum félagsmiðstöðva. Sigurvegarar söngkeppni Samfés 2010 komu úr félagsmiðstöðinni Igló, Kópavogi.
Lista- og menningarráð Kópavogs auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna / viðburða á sviði menningar og lista í Kópavogi.
112-dagurinn verður haldinn víða um land fimmtudaginn 11. febrúar, meðal annars í Kópavogi, en sérstök kynning verður í Smáralind á laugardaginn.
Nýtt hjúkrunarheimili Hrafnistu við Boðaþing í Kópavogi verður tekið í notkun í marsmánuði ásamt samtengdri þjónustumiðstöð.
Bæjarstjórn Kópavogs hefur samþykkt gæðakerfi fyrir stjórnsýslusvið bæjarfélagsins. Gæðastjórnunarkerfinu er ætlað að tryggja góða og skilvirka þjónustu, gagnsæja stjórnsýslu, jafnræði, aukið öryggi og bætt eftirlit með kostnaði. Í framhaldinu er gert ráð fyrir að Kópavogsbær sæki um alþjóðlega vottun (ISO 9001) á kerfinu, fyrst íslenskra sveitarfélaga.
Vegin gæðavísitala þjónustu Strætó bs. hefur aldrei verið hærri frá stofnun byggðasamlagsins en nú, að því er fram kemur í niðurstöðum þjónustumats sem fram fór fyrir áramót. Skýrist það einkum af því að ánægja farþega með hitastig og innanþrif vagna mælist meiri en áður, stundvísi og aksturlag hefur batnað og viðmót vagnstjóra mælist nú mun betra en áður.
Börn í heilsuleikskólanum Urðarhóli í Kópavogi og nemendur Kársnesskóla tóku í morgun formlega í notkun aðstöðu í skógarlundi á Kópavogstúni sem hefur hlotið nafnið Ævintýraskógur. Komið hefur verið upp eldstæði og vönduðum bekkjum skammt frá gamla Kópavogsbýlinu og skólagörðunum sem notað verður við útikennslu í skólunum.
Gerður Kristný (Guðjónsdóttir) rithöfundur hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör fyrir ljóð sitt „Strandir“ í árlegri ljóðasamkeppni lista- og menningarráðs Kópavogs. Gerður Kristný er áttundi handhafi verðlaunanna frá stofnun samkeppninnar árið 2002.
Jón Yngvi Jóhannsson bókmenntafræðingur heimsækir Bókasafn Kópavogs, Hamraborg 6a, fimmtudaginn 28. janúar kl. 17:15 í þeim tilgangi að gera úttekt á bókaútgáfunni um síðustu jól.
Gunnsteinn Sigurðsson, bæjarstjóri í Kópavogi, og Gunnar Geir Gunnarsson, framkvæmdastjóri umferðaröryggissviðs Umferðarstofu, undirrituðu í morgun samstarfssamning um öryggisáætlun fyrir Kópavogsbæ.
Álagningarseðlar vegna fasteignagjalda í Kópavogi árið 2010 hafa verið sendir út. Álagningin byggist á fasteignamati húsa og lóða, sem tekur meðal annars mið af stærð þeirra, notkun og lóðarhlutastærð. Nánari upplýsingar er að finna hér.
HK er 40 ára og í tilefni af því verður haldin fjölskylduafmælishátíð í Fagralundi laugardaginn 23.janúar og árshátíð um kvöldið í Digranesi. HK var stofnað 26. janúar 1970.
Næstkomandi fimmtudag, 21. janúar 2010, verður greint frá niðurstöðum og veitt verðlaun í ljóðasamkeppninni Ljóðstafur Jóns úr Vör sem lista- og menningarráð Kópavogs efnir til á hverju ári. Verðlaunin eru ávallt afhent á afmælisdegi Jóns úr Vör (1917–2000). Eins og fyrri ár fer verðlaunaafhendingin fram í Salnum, Tónlistarhúsi Kópavogs, og hefst kl. 20:00.
Dómnefnd ljóðasamkeppni lista- og menningarráðs Kópavogsbæjar,sem kennd er við listaskáldið Jón úr Vör, hefur lokið störfum. Að þessu sinni fór hún yfir um það bil 300 ljóð sem bárust samkeppninni. Tilkynnt verður um sigurvegarann, sem hlýtur Ljóðstaf Jóns úr Vör, í Salnum fimmtudaginn 21. janúar 2010, á afmælisdegi Jóns úr Vör.
Nýr kafli í húsnæðismálum aldraðra á höfuðborgarsvæðinu hefst um næstkomandi páska þegar fyrri áfangi nýs hjúkrunarheimilis verður tekinn í notkun við Boðaþing í Kópavogi ásamt samtengdri þjónustumiðstöð. Fulltrúar frá Kópavogsvæ og Sjómannadagsráði, eiganda Hrafnistuheimilanna, undirrituðu í dag rammasamning um rekstur á svæðinu.
Gunnsteinn Sigurðsson, bæjarstjóri í Kópavogi, og Ómar Stefánsson, formaður bæjarráðs, undirrituðu í gær fyrir hönd Kópavogsbæjar vegna Sundlaugar Kópavogs og Sundlaugarinnar í Versölum samning við Sporthúsið um kaup hennar á 800 árskortum í sund á árinu 2010. Þröstur Jón Sigurðsson skrifaði undir samninginn fyrir hönd Sporthallarinnar ehf. sem rekur Sporthúsið við Dalsmára 9–11.
Rústaflokkur Hjálparsveitar skáta Kópavogi er lagður af stað á hamfrarasvæðin á Haítí sem hluti af Íslensku alþjóðabjörgunarsveitinni. Jarðskjálfti, sem mældist 7,3 stig á Richters kvarða, reið yfir eyjuna klukkan 21:53 að íslenskum tíma í gærkvöld og olli miklu tjóni.
Vegna gríðarlegrar eftirspurnar hefur Björn Thoroddsen ásamt mörgum af helstu gítarsnillingum landsins ákveðið að endurtaka tónleikana í Salnum frá því í byrjun nóvember síðastliðnum þar sem færri komust að en vildu. Tvennir tónleikar eru í boði, 22. og 23. janúar kl. 21.
Þátttöku Kópavogs er lokið í Útsvari, spurningakeppni sjónvarpsins milli sveitarfélaga, en lið Fljótsdalshéraðs vann sigur í hörkuviðureign með 5 stiga mun í gærkvöld.
Alfreð Finnbogason, knattspyrnumaður úr Breiðabliki, og Erna Björk Sigurðardóttir, knattspyrnukona úr Breiðabliki, voru kjörin íþróttakarl og íþróttakona Kópavogs fyrir árið 2009. Gunnsteinn Sigurðsson bæjarstjóri og Ómar Stefánsson, formaður bæjarráðs, afhentu viðurkenningarnar.
Fjölmennt var og góðmennt að vanda á áramótabrennum í Kópavogi. Kestir voru hlaðnir við Smárahvammsvöll og Heimsenda. Fóru hátíðahöld hið besta fram og án vandræða.