Fréttasafn

Fyrirsagnalisti

LSS tekur við rekstri LSK - 29.1.2010

Stjórnir Lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga, LSS, og Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar, LSK, hafa staðfest samning, sem undirritaður var hinn 18. janúar síðastliðinn, um að LSS annist allan daglegan rekstur LSK frá 1. mars 2010 að telja.

Farþegar hafa aldrei verið ánægðari með Strætó - 28.1.2010

Vegin gæðavísitala þjónustu Strætó bs. hefur aldrei verið hærri frá stofnun byggðasamlagsins en nú, að því er fram kemur í niðurstöðum þjónustumats sem fram fór fyrir áramót. Skýrist það einkum af því að ánægja farþega með hitastig og innanþrif vagna mælist meiri en áður, stundvísi og aksturlag hefur batnað og viðmót vagnstjóra mælist nú mun betra en áður.

Ævintýraskógur á Kópavogstúni - 22.1.2010

Börn úr Kársnesskóla og leikskólanum Urðarhóli leituðu á vit ævintýranna í Ævintýraskóginum í morgun.Börn í heilsuleikskólanum Urðarhóli í Kópavogi og nemendur Kársnesskóla tóku í morgun formlega í notkun aðstöðu í skógarlundi á Kópavogstúni sem hefur hlotið nafnið Ævintýraskógur. Komið hefur verið upp eldstæði og vönduðum bekkjum skammt frá gamla Kópavogsbýlinu og skólagörðunum sem notað verður við útikennslu í skólunum.

Gerður Kristný handhafi Ljóðstafs Jóns úr Vör - 21.1.2010

F.v. Gunnsteinn Sigurðsson, bæjarstjóri í Kópavogi, Bjarni Gunnarsson ljóðskáld, Gerður Kristný, rithöfundur og handhafi Ljóðstafs Jóns úr Vör, Ómar Stefánsson, formaður bæjarráðs, og Sigurrós Þorgrímsdóttir, formaður lista- og menningarráðs Kópavogsbæjar.Gerður Kristný (Guðjónsdóttir) rithöfundur hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör fyrir ljóð sitt „Strandir“ í árlegri ljóðasamkeppni lista- og menningarráðs Kópavogs. Gerður Kristný er áttundi handhafi verðlaunanna frá stofnun samkeppninnar árið 2002.

Jólabókaflóðið skoðað - 21.1.2010

Jón Yngvi Jóhannsson bókmenntafræðingur heimsækir Bókasafn Kópavogs, Hamraborg 6a, fimmtudaginn 28. janúar kl. 17:15 í þeim tilgangi að gera úttekt á bókaútgáfunni um síðustu jól.

Allir velkomnir, enginn aðgangseyrir.

Aukin áhersla á öryggi í umferðinni í Kópavogi - 21.1.2010

Gunnar Geir Gunnarsson, framkvæmdastjóri umferðaröryggissviðs Umferðarstofu, og Gunnsteinn Sigurðsson, bæjarstjóri í Kópavogi. Gunnsteinn Sigurðsson, bæjarstjóri í Kópavogi, og Gunnar Geir Gunnarsson, framkvæmdastjóri umferðaröryggissviðs Umferðarstofu, undirrituðu í morgun samstarfssamning um öryggisáætlun fyrir Kópavogsbæ.

Fasteignagjöld í Kópavogi 2010 - 21.1.2010

Álagningarseðlar vegna fasteignagjalda í Kópavogi árið 2010 hafa verið sendir út. Álagningin byggist á fasteignamati húsa og lóða, sem tekur meðal annars mið af stærð þeirra, notkun og lóðarhlutastærð. Nánari upplýsingar er að finna hér.

HK 40 ára - 20.1.2010

HK er 40 ára og í tilefni af því verður haldin fjölskylduafmælishátíð í Fagralundi laugardaginn 23.janúar og árshátíð um kvöldið í Digranesi. HK var stofnað 26. janúar 1970.

Ljóðstafur Jóns úr Vör - 19.1.2010

Jón úr Vör sem ljóðasamkeppnin er kennd við.Næstkomandi fimmtudag, 21. janúar 2010, verður greint frá niðurstöðum og veitt verðlaun í ljóðasamkeppninni Ljóðstafur Jóns úr Vör sem lista- og menningarráð Kópavogs efnir til á hverju ári. Verðlaunin eru ávallt afhent á afmælisdegi Jóns úr Vör (1917–2000). Eins og fyrri ár fer verðlaunaafhendingin fram í Salnum, Tónlistarhúsi Kópavogs, og hefst kl. 20:00.

Dómnefnd hefur lokið störfum - 15.1.2010

Í dómnefndinni sitja Sigþrúður Gunnarsdóttur bókmenntafræðingur og rithöfundarnir Þórarinn Eldjárn og Ingibjörg Haraldsdóttir.Dómnefnd ljóðasamkeppni lista- og menningarráðs Kópavogsbæjar,sem kennd er við listaskáldið Jón úr Vör, hefur lokið störfum. Að þessu sinni fór hún yfir um það bil 300 ljóð sem bárust samkeppninni. Tilkynnt verður um sigurvegarann, sem hlýtur Ljóðstaf Jóns úr Vör, í Salnum fimmtudaginn 21. janúar 2010, á afmælisdegi Jóns úr Vör.

Kópavogsbær og Hrafnista undirrita rammasamning - 15.1.2010

Ármann Kr. Ólafsson, bæjarfulltrúi í Kópavogi og formaður félagsmálaráðs bæjarins, Gunnsteinn Sigurðsson bæjarstjóri, Guðmundur Hallvarðsson. formaður Sjómannadagsráðs, eiganda Hrafnistuheimilanna, Pétur Magnússon, forstjóri Hrafnistu, og Ásgeir Ingvarsson, framkvæmdastjóri Sjómannadagsráðs.Nýr kafli í húsnæðismálum aldraðra á höfuðborgarsvæðinu hefst um næstkomandi páska þegar fyrri áfangi nýs hjúkrunarheimilis verður tekinn í notkun við Boðaþing í Kópavogi ásamt samtengdri þjónustumiðstöð. Fulltrúar frá Kópavogsvæ og Sjómannadagsráði, eiganda Hrafnistuheimilanna, undirrituðu í dag rammasamning um rekstur á svæðinu.

Sporthúsið kaupir 800 árskort í sund í Kópavogi - 13.1.2010

Ljósmyndin er tekin við undirritunina á bæjarskrifstofum Kópavogs, f.v. Ómar Stefánsson, Þröstur Jón Sigurðsson og Gunnsteinn Sigurðsson.Gunnsteinn Sigurðsson, bæjarstjóri í Kópavogi, og Ómar Stefánsson, formaður bæjarráðs, undirrituðu í gær fyrir hönd Kópavogsbæjar vegna Sundlaugar Kópavogs og Sundlaugarinnar í Versölum samning við Sporthúsið um kaup hennar á 800 árskortum í sund á árinu 2010. Þröstur Jón Sigurðsson skrifaði undir samninginn fyrir hönd Sporthallarinnar ehf. sem rekur Sporthúsið við Dalsmára 9–11.

Rústaflokkur úr Kópavogi til Haítí - 13.1.2010

Rústabjörgunarflokkur Hjálparsveitar skáta í Kópavogi undirbýr sig fyrir björgunarleiðangur til Haítí í nótt. Mynd: HSSKRústaflokkur Hjálparsveitar skáta Kópavogi er lagður af stað á hamfrarasvæðin á Haítí sem hluti af Íslensku alþjóðabjörgunarsveitinni. Jarðskjálfti, sem mældist 7,3 stig á Richters kvarða, reið yfir eyjuna klukkan 21:53 að íslenskum tíma í gærkvöld og olli miklu tjóni.

Aðgerðir gegn langtímaatvinnuleysi - 11.1.2010

Atvinnu- og upplýsinganefnd Kópavogsbæjar efnir til ráðstefnu um aðgerðir á vegum Kópavogsbæjar gegn langtímaatvinnuleysi. Ráðstefnan verður haldin laugardaginn 16. janúar næstkomandi í fundarsal bæjarstjórnar Kópavogs, Fannborg 2, kl. 13.00 – 17.00.

Bjössi Thor býður aftur í gítarveislu - 11.1.2010

Vegna gríðarlegrar eftirspurnar hefur Björn Thoroddsen ásamt mörgum af helstu gítarsnillingum landsins ákveðið að endurtaka tónleikana í Salnum frá því í byrjun nóvember síðastliðnum þar sem færri komust að en vildu. Tvennir tónleikar eru í boði, 22. og 23. janúar kl. 21.

Sorphirða í Kópavogi 2010 - 11.1.2010

Dagatal með sorphirðudögum í Kópavogi hefur verið birt á heimasíðu bæjarins. Litapunktar á dagatali sem fylgir korti af bænum sýna á hvaða dögum tæmt verður. Enn fremur eru endurvinnslustöðvar Sorpu og grenndargámar merktir inn á kortið.

Athugasemdir eða ábendingar skulu berast Áhaldahúsi Kópavogs í síma 5701660.

Sorphirðudagatal 2010

Ómarsbjallan úr Kópavogi - 9.1.2010

F.v. Kristján Guy Burgess, Helga Jónsdóttir og Gísli TryggvasonÞátttöku Kópavogs er lokið í Útsvari, spurningakeppni sjónvarpsins milli sveitarfélaga, en lið Fljótsdalshéraðs vann sigur í hörkuviðureign með 5 stiga mun í gærkvöld.

Þrettándagleði - 6.1.2010

Að vanda verður HK með sína árlegu þrettándagleði í Fagralundi miðvikudaginn 6. janúar.

Kjör íþróttakarls og -konu ársins 2009 - 5.1.2010

Á ljósmyndinni, sem var tekin í Salnum í kvöld, eru f.v. Gunnsteinn Sigurðsson, Anna Herrera Þórisdóttir, sem tók við viðurkenningu Alfreðs Finnbogasonar í fjarveru hans, Erna Björk Sigurðardóttir, Ómar Stefánsson og Ragnheiður K. Guðmundsdóttir, formaður ÍTK.Alfreð Finnbogason, knattspyrnumaður úr Breiðabliki, og Erna Björk Sigurðardóttir, knattspyrnukona úr Breiðabliki, voru kjörin íþróttakarl og íþróttakona Kópavogs fyrir árið 2009. Gunnsteinn Sigurðsson bæjarstjóri og Ómar Stefánsson, formaður bæjarráðs, afhentu viðurkenningarnar.

Áramót - 4.1.2010

Áramótabrenna í Kópavogi 2009Fjölmennt var og góðmennt að vanda á áramótabrennum í Kópavogi. Kestir voru hlaðnir við Smárahvammsvöll og Heimsenda. Fóru hátíðahöld hið besta fram og án vandræða.

Bæjarstjórn Kópavogs og starfsfólk bæjarins árnar bæjarbúum og landsmönnum öllum gleðilegs og farsæls nýs árs.

Sorphirðudagatal - 4.1.2010

Sorphirðudagatal Kópavogs fyrir árið 2010 er væntanlegt innan skamms og verður birt hér á heimasíðunni. Beðist er velvirðingar á töfunum.

Kópavogsbær lætur hirða jólatré - 4.1.2010

Eins og undanfarin ár munu starfsmenn Áhaldahúss Kópavogs aðstoða Kópavogsbúa við að fjarlægja jólatré sín.

Kjör íþróttakonu og –karls Kópavogs - 4.1.2010

Íþrótta- og tómstundaráð Kópavogs efnir til íþróttahátíðar í Salnum, tónlistarhúsi Kópavogs, á morgun, þriðjudaginn 5. janúar kl. 18:00. Á hátíðinni verður lýst kjöri á íþróttakonu og íþróttakarli Kópavogs 2009. Flokkur ársins verður útnefndur og afhentir afreksstyrkir auk þess sem íþróttafólki verða veittar viðurkenningar fyrir unnin afrek.

Íþróttahátíðin er opin almenningi.