Fréttasafn

Fyrirsagnalisti

Kópavogsbær styrkir HSSK - 12.2.2010

Fulltrúar bæjaryfirvalda ásamt formanni HSSK og flestum Haítíförum sveitarinnar við afhendingu á styrknum í gær. (Ljósmynd: Geir Guðsteinsson)Bæjarráð Kópavogs samþykkti að veita Hjálparsveit skáta í Kópavogi 700 þúsund króna styrk í þakklætisskyni fyrir fórnfúst starf í þágu almennings gegnum tíðina, bæði hérlendis og erlendis, nú síðast með þátttöku í björgunarleiðangri Íslendinga til Haítí í kjölfar jarðskjálfta í janúar.

Getur þú hjálpað þegar á reynir? - 10.2.2010

112-dagurinn verður haldinn víða um land fimmtudaginn 11. febrúar, meðal annars í Kópavogi, en sérstök kynning verður í Smáralind á laugardaginn.

Hjallaskóli Íslandsmeistari stúlknasveita! - 10.2.2010

Íslandsmeistararnir ásamt þjálfara sínum og kennara.Skáksveit Hjallaskóla sigraði á Íslandsmóti grunnskólasveita - stúlknaflokki sem fram fór í Salaskóla í Kópavogi 7. febrúar 2010.

Íbúum dvalarheimila boðin aðstaða í Boðaþingi - 10.2.2010

Frá undirritun samnings um rekstur heimilisins í Boðaþingi.Nýtt hjúkrunarheimili Hrafnistu við Boðaþing í Kópavogi verður tekið í notkun í marsmánuði ásamt samtengdri þjónustumiðstöð.

Safnanótt 2010 - 5.2.2010

Söfnin í Kópavogi taka þátt í Safnanótt í fyrsta skipti nú í ár með fjölbreytta dagskrá við allra hæfi, en þema Safnanætur að þessu sinni er draumar.

Gæðakerfi í Kópavogsbæ - 5.2.2010

Bæjarstjórn Kópavogs hefur samþykkt gæðakerfi fyrir stjórnsýslusvið bæjarfélagsins. Gæðastjórnunarkerfinu er ætlað að tryggja góða og skilvirka þjónustu, gagnsæja stjórnsýslu, jafnræði, aukið öryggi og bætt eftirlit með kostnaði. Í framhaldinu er gert ráð fyrir að Kópavogsbær sæki um alþjóðlega vottun (ISO 9001) á kerfinu, fyrst íslenskra sveitarfélaga.