Fréttasafn

Fyrirsagnalisti

Jafnréttisnefnd Kópavogsbæjar óskar eftir tilnefningum vegna árlegrar jafnréttisviðurkenningar - 29.3.2010

Samkvæmt jafnréttisstefnu Kópavogsbæjar veitir jafnréttisnefnd ár hvert viðurkenningu þeirri stofnun, nefnd eða ráði bæjarins, einstaklingi, félagi, fyrirtæki eða annarri stofnun sem hefur að mati nefndarinnar staðið sig best undangengið ár við að vinna að framgangi jafnréttismála.

Stóra upplestrarkeppnin í Salnum - 23.3.2010

Hin árlega upplestrarkeppni í 7. bekk var haldin í Salnum 17. mars sl. Keppendur voru 17 frá 10 grunnskólum í Kópavogi. Sigurvegari að þessu sinni var Agnes Gísladóttir, Snælandsskóla.

Aðstoð við umsóknir um sumarstörf - 22.3.2010

Kópavogur hefur nú opnað fyrir umsóknir í hin ýmsu sumarstörf innan bæjarins. Í Molanum -ungmennahúsi hefur verið sett upp sérstök aðstaða fyrir þá sem vilja sækja um sumarstörf. Þar eru tölvur og annað sem gott er að hafa við höndina þegar sótt er um starf.

Hjúkrunarheimili Hrafnistu við Boðaþing opnað - 19.3.2010

Kaflaskil hafa orðið í húsnæðis- og umönnunarmálum aldraðra með nýju hjúkrunarheimili Hrafnistu við Boðaþing í Kópavogi. Rúm átta ár eru síðan nýtt og sérhannað hjúkrunarheimili tók til starfa á höfuðborgarsvæðinu. Hjúkrunarheimilið verður rekin eftir nýrri hugmyndafræði í öldrunarþjónustu sem ekki hefur verið reynd áður hér á landi.

Framtalsaðstoð fyrir elli- og örorkulífeyrisþega - 18.3.2010

Líkt og undanfarin ár verður framtalsaðstoð í boði fyrir elli- og örorkulífeyrisþega. Aðstoðin nær eingöngu til einföldustu framtalsgerðar og ekki er veitt aðstoð þeim sem hafa keypt eða selt húsnæði, verðbréf eða hlutabréf.
Starfsmaður skattstofunnar verður á Bæjarskrifstofum Kópavogs dagana 22. og 23. mars nk. frá kl. 10.00 til 14.00.
Hringja þarf í Þjónustuver Kópavogs í síma 570-1500 og skrá sig.

Sumarstörf hjá Kópavogsbæ - 12.3.2010

Tekið verður við umsóknum um sumarstörf hjá Kópavogsbæ hér á heimasíðunni frá og með mánudaginn 15. mars. Störfin eru fyrir þá sem eru fæddir árið 1993 og fyrr. Umsóknarfrestur er til 5. apríl næstkomandi.

Jafnréttisvika í Menntaskólanum í Kópavogi - 9.3.2010

Jafnréttisvika er haldin í Menntaskólanum í Kópavogi nú í fjórða sinn. Dagarnir eru samvinnuverkefni MK og jafnréttisnefndar Kópavogsbæjar.

Síðastliðin fjögur ár hefur MK tileinkað eina viku fræðslu um jafnréttismál og hefur það mælst vel fyrir hjá nemendum og kennurum.

Sigurvegarar Samfés 2010 komu úr Kópavogi - 9.3.2010

Samféshátíðin fór fram í Laugardalshöll 5.-6. mars sl. og sóttu hana um 4500 unglingar víðsvegar að af landinu ásamt starfsmönnum félagsmiðstöðva. Sigurvegarar söngkeppni Samfés 2010 komu úr félagsmiðstöðinni Igló, Kópavogi.

Þjóðaratkvæðagreiðsla í Kópavogi - 5.3.2010

Kjörstaðir í Kópavogi verða tveir í þjóðaratkvæðagreiðslu á laugardaginn kemur. Hver og einn getur athugað hvort hann eigi að kjósa í Smáranum eða Kórnum og í hvaða kjördeild á sérstakri kosningasíðu sem opnast ef smellt er á myndina hér við hliðina.

Framúrskarandi árangur í listnámi, auglýst eftir tilnefningum. - 2.3.2010

Lista- og menningarráð Kópavogs hefur ákveðið að veita árlega viðurkenningu til framúrskarandi námsmanns á sviði lista.

Menningarstarf, auglýst eftir umsóknum. - 2.3.2010

Lista- og menningarráð Kópavogs auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna / viðburða á sviði menningar og lista í Kópavogi.

Innritun í grunnskóla Kópavogs fyrir skólaárið 2010 – 2011 - 1.3.2010

Innritun 6 ára barna (fædd 2004) fer fram í grunnskólum Kópavogs mánudaginn 8. og þriðjudaginn 9. mars. Sjá heimasíður skólanna.