Fréttasafn

Fyrirsagnalisti

Þjónustumiðstöð í Boðaþingi tekin í notkun - 30.4.2010

Þjónustumiðstöð fyrir eldri íbúa í Kópavogi var formlega tekin í notkun í Boðaþingi í dag. Þetta er þriðja félagsheimilið fyrir eldri íbúa sem tekið er í notkun í Kópavogi á sautján árum.

Gunnsteinn Sigurðsson, bæjarstjóri Kópavogs, sagði við vígslu húsnæðisins í dag að hann vonaðist til þess að starfsemin þar yrði með tímanum fjölbreytt, blómleg og skemmtileg.

Tíu nýjar skólastofur í Hörðuvallaskóla - 30.4.2010

Gunnsteinn Sigurðsson bæjarstjóriNý álma í Hörðuvallaskóla í Kópavogi var formlega tekin í notkun í dag. Af því tilefni gerðu nemendur og kennarar skólans sér glaðan dag og buðu gestum að skoða nýja húsnæðið. Með nýrri álmu verður Hörðuvallaskóli fullbúinn en framkvæmdir við skólann hófust veturinn 2005.

Þjónusta við unga atvinnuleitendur verður efld - 26.4.2010

Atvinnumiðstöð Kópavogs, þróunarverkefni á sviði staðbundinna vinnumarkaðsúrræða í Kópavogi, tekur til starfa í byrjun næsta mánaðar. Samningur um það var undirritaður í dag af þeim Gunnsteini Sigurðssyni, bæjarstjóra Kópavogs, Árna Páli Árnasyni félagsmálaráðherra og Gissuri Péturssyni, forstjóra Vinnumálastofnunar.

Til foreldra barna á leikskólanum Arnarsmára - 26.4.2010

Vegna seinkunar flugs frá London eru margir starfsmenn leikskólans Arnarsmára frá vinnu í dag. Starfslið leikskólaskrifstofu, foreldrar og aðrar hjálpfúsar hendur hlaupa undir bagga með að halda leikskólanum opnum í dag. Það verða því mörg ný andlit sem mæta börnunum og ekki víst að öll börn finni til þess öryggis sem þau eru vön í leikskólanum sínum.

Kópavogsbúar fögnuðu sumrinu í Fífunni - 23.4.2010

Fjölmargir Kópavogsbúar gerðu sér glaðan dag á sumardaginn fyrsta og lögðu leið sína í Fífuna í Kópavoginum. Þar var fjölbreytt dagskrá í boði fyrir yngstu kynslóðina. Til dæmis gátu börnin farið í hoppukastala og fylgst með Sirkusi Íslands sýna listir sínar.

Sumardagurinn fyrsti - dagskrá - 21.4.2010

Fimmtudaginn 22. apríl verður sumardeginum fyrsta fagnað með skátamessu í Hjallakirkju kl. 11:00. Skrúðganga skátafélagsins Kópa heldur af stað frá Digraneskirkju kl. 13:30 í Fífuna þar sem fram fer hátíðar og skemmtidagskrá fyrir íbúa bæjarins.

Sameining Digranesskóla og Hjallaskóla - 20.4.2010

Á fundi bæjaráðs, þann 15. apríl, var samþykkt að ráðast í sameiningu Digranesskóla og Hjallaskóla í einn skóla sem tekur til starfa haustið 2010. Um 260 börn í 1., 2., 3. og 4. bekk verða í húsnæði Digranesskóla og um 480 börn í 5., 6., 7., 8., 9. og 10. bekk verða í húsnæði Hjallaskóla.

Kópavogur tekur við nýjum íþróttamannvirkjum í Kórnum - 16.4.2010

Kópavogsbær tók í dag formlega við nýjum íþróttamannvirkjum í Kórnum í Vatnsendahverfi af Knattspyrnuakademíu Íslands. Þar með eignast bærinn um 6.900 fermetra íþróttaaðstöðu í Vallakór til viðbótar við þá aðstöðu sem fyrir var.

Ráðning í starf forstöðumanns almannatengsla - 15.4.2010

Bæjarráð Kópavogs samþykkti hefur samþykkt að ráða Örnu Schram í starf forstöðumanns almannatengsla Kópavogsbæjar.

Arna er stjórnmálafræðingur að mennt og hefur starfað við blaðamennsku um árabil, lengst af á Morgunblaðinu sem stjórnmálafréttamaður og pistlahöfundur, en einnig á Krónikunni sem aðstoðarritstjóri og nú síðast á Viðskiptablaðinu sem fréttastjóri.