des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb.
Söngvarinn og New York búinn Miles Griffith verður heiðursgestur á árlegri Jazz- og blúshátíð Kópavogs sem fram fer dagana 3. til 6. júní. Griffith flytur m.a. þekkta ameríska standarda á djasstónleikum í Salnum í Kópavogi laugardaginn 5. júní og hefjast þeir kl. 21.00.
Samkvæmt fyrstu tölum í Kópavogi er meirihlutinn í bæjarstjórn fallinn. Þegar 12.804 atkvæði hafa verið talin er Framsóknarflokkurinn með 841 atkvæði eða 7% atkvæða. Sjálfstæðisflokkurinn er með 3.617 atkvæði eða 30,2% atkvæða.
Sumaráætlun Strætó tók gildi um helgina en líkt og undanfarin ár breytist tíðni strætóferða á níu strætóleiðum í samræmi við minni eftirspurn á sumrin.Vagnar á leiðum 1, 2, 3, 4, 6, 11, 12, 14 og 15 munu aka á 30 mínútna tíðni í sumar, í stað 15 mínútna. Sú breyting verður jafnframt á leið 18 að ekið verður upp og niður Grensásveg milli Bústaðavegar og Miklubrautar í stað þess að aka allan Bústaðaveginn.
Samningur um félagsaðstöðu Siglingafélagsins Ýmis að Naustavör 20 var undirritaður í vikunni. Gunnsteinn Sigurðsson, bæjarstjóri Kópavogs, og Birgir Ari Hilmarsson, formaður Ýmis, rituðu undir samninginn. Félagar í Ými eru rúmlega 200 og segir Birgir að önnur siglingafélög horfi hýru auga til aðstöðunnar í Kópavogi.
Tveir skólar í Kópavogi fengu í maímánuði grænfánann, alþjóðlega viðurkenningu fyrir starf sitt að umhverfismennt og menntun til sjálfbærrar þróunar. Leikskólinn Arnarsmári fékk grænfánann afhentan í fyrsta sinn 18. maí og Snælandsskóli fékk viðurkenninguna afhenta 21. maí og það í fjórða sinn.
Kópavogsdagar, árleg menningarhátíð Kópavogs, tókust vel og sýndu bæjarbúar þeim fjölbreyttu viðburðum sem þar voru í boði mikinn áhuga. Listamenn buðu gestum og gangandi að heimsækja vinnustofur sínar, tónleikar voru haldnir og sýningar af ýmsu tagi voru opnaðar.
Sýning Magnúsar Árnasonar listamanns, Af lifun, var opnuð í Náttúrufræðistofu Kópavogs um helgina. Sýningin er hluti af menningardagskrá Kópavogsdaga. Magnús sagði í samtali við Morgunblaðið á föstudag að sýningin væri hluti af náttúrufræðisafninu. Fólk vissi því ekki hvort það væri að horfa á listaverk eða safngrip.
Leikskólinn Kópahvoll fagnaði 40 ára afmæli sínu 11. maí. Af því tilefni var foreldrum, systkinum, ömmum og öfum boðið til veislu í skólanum. Boðið var upp á veitingar, söng og listsýningu og skrautlegur trúður kom og sýndi listir sínar.
Ellefu kórar munu í dag, fimmtudag, sameina raddir sínar og syngja Fúsalög, lög eftir hinn ástsæla Sigfús Halldórsson tónskáld í Vetrargarðinum í Smáralind. Tónleikarnir standa yfir frá kl. 13.00 til 15.00 og eru allir hjartanlega velkomnir. Tónleikarnir eru hluti af árlegri menningarhátíð Kópavogsbæjar, Kópavogsdaga, sem nú stendur yfir.
Knattspyrnudeild Breiðabliks hlaut í dag jafnréttisviðurkenningu Kópavogsbæjar. Í umsögn jafnréttisnefndar bæjarins segir að Breiðablik hafi frá upphafi verið í fararbroddi í knattspyrnu kvenna og að það sé eina félagið sem hafi verið með á Íslandsmóti kvenna í knattspyrnu óslitið frá upphafi.
Kópavogsdagar, árleg menningarhátíð Kópavogsbæjar, hófust í dag með opnun sýningarinnar, Fúsi á ýmsa vegu, sem sett hefur verið upp í Tónlistarsafni Íslands á Kópavogsholti til heiðurs listamanninum Sigfúsi Halldórssyni. Kópavogsdagar eru í ár sérstaklega tileinkaðir Sigfúsi en hann hefði orðið 90 ára í haust. Sigfús bjó í Kópavogi í áratugi, hann er fyrsti heiðurslistamaður bæjarins og þriðji heiðursborgarinn.
Í sumar býður Íþrótta- og tómstundaráð Kópavogs úrval námskeiða fyrir börnin í bænum. Allir eiga því að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Hægt er að nálgast nánari upplýsingar á sérstakri vefsíðu sem nú hefur verið tekin í gagnið og má finna slóðina hér.