des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb.
Sýning á verkum ungra og efnilegra málara verður opnuð í Molanum, ungmennahúsi Kópavogs, fimmtudaginn 1. júlí kl. 18.30. Listamennirnir eru Ágúst Már Guðjónsson, 19 ára og Ingimundur Vigfús Eiríksson, 18 ára. Myndlistarsýningin stendur yfir í viku. Allir eru velkomnir á opnunina en í boði verða léttar veitingar auk góðrar tónlistar.
Alls 43 ungmenni á aldrinum 16 til 25 ára starfa í Molanum, ungmennahúsi Kópavogs í sumar, við margvísleg skapandi störf. Ungmennin sækja sérstaklega um störf á sínu áhugasviði en skilyrðið er að þau séu sýnileg og hafi jákvæð áhrif á umhverfið.
Leikskólinn Álfaheiði í Kópavogi hélt sína árlegu sumarhátíð á föstudag og kom nýr bæjarstjóri, Guðrún Pálsdóttir, í heimsókn af því tilefni. Börnin sungu fyrir hana tvö lög og færðu henni gjöf sem þau höfðu búið til, fallega handunna skál úr pappamassa. Í skálina settu þau köngla og greinar.
Íslenska lánshæfismatsfyrirtækið Reitun ehf. birti í dag lánshæfismat Kópavogsbæjar. Kópavogsbær fær einkunnina B með jákvæðum horfum. Í matinu segir að Kópavogur sé eitt öflugasta sveitarfélag landsins.
Hátt í tvö þúsund ungmenni frá fjórtán ára aldri munu starfa við margvísleg störf hjá Kópavogsbæ í sumar en hópurinn er ívið stærri en í fyrra. Allir Kópavogsbúar frá fjórtán ára aldri, sem sóttu um, fengu vinnu.
Kosið var í nefndir og ráð á vegum Kópavogsbæjar á fyrsta fundi nýrrar bæjarstjórnar í vikunni. Einungis aðalmenn voru kjörnir en kosningu varamanna var frestað. Í bæjarráð voru kjörin þau Guðríður Arnardóttir, Hjálmar Hjálmarsson, Ólafur Þór Gunnarsson, Ármann Kr. Ólafsson og Gunnar I. Birgisson.
Ungir listamenn á vegum Skapandi sumarstarfa verða með stutta Fúsatónleika í hádeginu í dag, föstudag, í Tónlistarsafni Íslands. Allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Tónleikarnir hefjast kl. 12.15 og er aðgangur ókeypis. Leikin verða þekkt lög eftir listamanninn, tónskáldið, píanóleikarann og söngvarann Sigfús Halldórsson svo sem Vegir liggja til allra átta, Lítill fugl, Sumarauki og Litla flugan.
Kópavogsbúar héldu þjóðhátíðardaginn hátíðlegan í dag, 17. júní, og lék veðrið við höfuðborgarbúa. Skrúðgangan fór frá Menntaskólanum í Kópavogi að Rútstúni þar sem fjöldi manns, ungir sem aldnir, kom saman til að taka þátt í fjölbreyttri hátíðardagskrá. Guðrún Pálsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, flutti ávarp, fjallkonan Unnur Hólmfríður Brjánsdóttir fór með ljóð og nýstúdentinn Alex Ingi Espersen flutti hugleiðingar unga fólksins á þjóðhátíðardegi.
Guðrún Pálsdóttir, nýr bæjarstjóri í Kópavogi, tók við lyklum að skrifstofu bæjarstjóra í dag úr hendi Gunnsteins Sigurðssonar sem verið hefur bæjarstjóri frá 1. júlí 2009. Gunnsteinn gaf ekki kost á sér í bæjarstjórn í kosningunum í vor og hverfur því til annarra starfa. Hann hefur setið í bæjarstjórn frá árinu 1994 en þá kom hann fyrst inn sem varamaður. Hann hefur setið alls 241 bæjarstjórnarfund.
Margvísleg störf eru í boði hjá Kópavogsbæ fyrir skólafólk, átján ára og eldra, sem ekki á rétt til atvinnuleysisbóta. Til dæmis eru í boði störf á skrifstofum bæjarins við eignaskráningu, skjalavistun, flokkun og aðra gagnavinnslu. Þá eru í boði margvísleg verkamannastörf utandyra. Ráðningartími er breytilegur en gæti orðið allt að þrír mánuðir.
Akstur allra leiða Strætó bs. á þjóðhátíðardaginn 17. júní verður samkvæmt laugardagsáætlun. Á ákveðnum leiðum verður þó ekið lengur fram á kvöld auk þess sem á sömu leiðum verður akstur tíðari eftir kvöldmat en hefðbundið er samkvæmt laugardagsáætlun. Vegna lokana í miðbæ Reykjavíkur verður akstursleiðum jafnframt breytt á því svæði.
Um þrjú hundruð farþegar skemmtiferðaskipsins Sojourn kynntu sér víkingamenningu í Guðmundarlundi Skógræktarfélags Kópavogs í dag. Rimmugýgur, hafnfirski bardaga- og handverkshópurinn, sló upp víkingabúðum og fram stigu bardagamenn, sögumenn og járnsmiðir og ljúfir tónar bárust frá söngkonum og börnum í víkingaklæðum.
Nýr sameinaður skóli í Kópavoginum heitir Álfhólsskóli. Þetta var upplýst við hátíðlega athöfn í íþróttahúsi Digranesskóla í morgun. Um 400 tillögur að nýju nafni bárust og þar af voru tæplega 170 með því nafni sem varð fyrir valinu. Skólinn verður til við sameiningu Digranesskóla og Hjallaskóla. Skólastjórarnir verða þeir sömu, þær Sigrún Bjarnadóttir og Magnea Einarsdóttir.
Góð þátttaka var á árlegri Jazz- og blúshátíð Kópavogs sem fram fór dagana 3. til 6. júní. Bassaleikarinn, söngvarinn, tónskáldið og myndlistarmaðurinn Jóhann G. Jóhannsson spilaði þar stórt hlutverk en hann hélt blústónleika í Salnum, föstudagskvöldið 4. júní.
Tuttugu löglegir kraftlyftingaíþróttaiðkendur hafi skráð sig til keppni á Kópavogsmótið í kraftlyftingum sem fram fer á morgun, laugardag 5. júní. Fjórar konur og sextán karlar hafa skráð sig til þátttöku.
Útstrikanir og breytingar á röð frambjóðenda voru langflestar á framboðslista sjálfstæðismanna í Kópavogi í sveitarstjórnarkosningunum 29. maí. Kjörstjórn Kópavogs hefur nú tekið saman upplýsingar um breytta seðla í kosningunum.
Bæjarráð Kópavogs samþykkti nýverið að fela skipulags- og umhverfissviði bæjarins í samvinnu við Þríhnúka ehf. að hefja vinnu við friðlýsingu Þríhnúkagígs, breytingar á skipulagi svæðisins og gerð umhverfisskýrslu. Markmiðið er að gera gíginn aðgengilegan almenningi.
Dagur hinna villtu blóma verður haldinn sunnudaginn 13. júní en þann dag gefst Kópavogsbúum kostur á að fá leiðsögn um Kópavogsdalinn og fræðslu um þær plöntur sem þar vaxa. Gróa Valgerður Ingimundardóttir, líffræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands, verður leiðsögumaður.