Fréttasafn

Fyrirsagnalisti

Kópavogsbær fjölgar félagslegum leiguíbúðum fyrir aldraða - 23.7.2010

Kópavogsbær hefur ákveðið að kaupa fjórar tveggja herbergja íbúðir fyrir aldraða af Sunnuhlíð, sjálfseignarstofnun um þjónustu við aldraða í Kópavogi.

Kópavogsbær styrkir Skotturnar - 23.7.2010

Bæjarráð Kópavogs samþykkti í gær að veita Skottunum, nýjum regnhlífasamtökum félaga og samtaka innan kvennahreyfingarinnar, hundrað þúsund króna styrk vegna fyrirhugaðrar dagskrár í tilefni af kvennafrídeginum 24. október 2010. Þá verða liðin 35 ár frá fyrsta kvennafrídeginum.

Sumarstarfsmenn gera sér glaðan dag - 22.7.2010

Árleg sumarhátíð Vinnuskóla Kópavogs fór fram í vikunni og tókst með eindæmum vel. Um 915 ungmenni á aldrinum 14 til 16 ára hafa starfað við hin ýmsu störf hjá vinnuskólanum í sumar og lýkur þeirri vinnu í næstu viku.

Nýtt ábendingakerfi á forsíðu vefjar Kópavogs - 21.7.2010

Til að auðvelda Kópavogsbúum að koma ábendingum sínum eða tillögum á framfæri við bæinn hefur verið sett upp nýtt ábendingakerfi á vefsíðu bæjarins. Sá sem sendir inn ábendingu ýtir á hnappinn á forsíðunni efst til hægri en á honum stendur: Ábendingar til Kópavogsbæjar.

Íslenska sjávarútvegssýningin í Kópavogi 2011 - 20.7.2010

Bæjarráð Kópavogs hefur samþykkt fyrir sitt leyti samning við breska útgáfu- og sýningarfyrirtækið Mercator Media um að Íslenska sjávarútvegssýningin verði haldin í Fífunni og Smáranum í Kópavogi dagana 22. til 24. september 2011.

Uppskeruhátíð Skapandi sumarstarfa - 19.7.2010

Uppskeruhátíð Skapandi sumarstarfa fer fram á morgun og á miðvikudag. Annað kvöld flytja nokkrir ólíkir tónlistarhópar tónlistaratriði í Salnum og hefjast tónleikarnir kl. 20.00. Á miðvikudagskvöld verður opið hús í Molanum, frá kl. 20.00, þar sem verkefni sumarsins verða kynnt, svo sem fatahönnun, dans, ljósmyndun og jafningjafræðsla. Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis.

Færðu Kópavogsbúum góða gjöf - 14.7.2010

Börn og bróðurdóttir Wilhelms Ernst Beckmann, tréskurðarlistamanns og fyrsta bæjarlistamanns Kópavogs, færðu í dag Bókasafni Kópavogs að gjöf listaverk, skartgripi, málverk og bækur sem áður voru í eigu listamannsins.

Enn eitt aðsóknarmetið slegið - 13.7.2010

Alls 11.185 gestir heimsóttu Náttúrufræðistofu Kópavogs á árinu 2009 og er það enn eitt aðsóknarmetið í sögu safnsins. Til samanburðar var fjöldinn 10.207 árið á undan. Um þriðjungur gesta voru leikskóla- og grunnskólabörn sem komu í skipulagðar heimsóknir og nutu leiðsagnar starfsmanna Náttúrufræðistofu.

Fá leyfi til að reka veitingaskip - 12.7.2010

Bæjarráð samþykkti í síðustu viku að veita Hrefnuveiðimönnum ehf. leyfi til að reka veitingaskip, Hrafnreyði KÓ 100, í Kópavogshöfn. Forsvarsmenn Hrefnuveiðimanna hyggjast í næsta mánuði hefja þriggja til sex tíma skemmtisiglingar frá Kópavogshöfn um Faxaflóa. Um borð verða í boði veitingar, aðallega hrefnukjöt.

Tveir nýir aðstoðarskólastjórar - 9.7.2010

Bæjarráð samþykkti í gær tillögur skólanefndar um ráðningu tveggja nýrra aðstoðarskólastjóra í Kópavogi. Annars vegar var samþykkt að ráða Ólínu Þorleifsdóttur í starf aðstoðarskólastjóra Kópavogsskóla. Hins vegar var samþykkt að ráða Björgu Baldursdóttur í starf aðstoðarskólastjóra Smáraskóla.

Leiðsögn um sumarsýningar Gerðarsafns - 8.7.2010

Íslenski safnadagurinn verður sunnudaginn 11. júlí og af því tilefni verður leiðsögn um sumarsýningar Gerðarsafns, listasafns Kópavogs. Leiðsögnin hefst kl. 15.00 og er öllum opin.

Um fimmtíu börn í Kópavogi læra allt um stuttmyndagerð - 7.7.2010

Um fimmtíu börn á tólfta og þrettánda aldursári hafa í sumar sótt stuttmynda- og margmiðlunarnámskeið Íþrótta- og tómstundaráðs Kópavogsbæjar (ÍTK).

Hafsteinn Austmann færir Kópavogsbæ olíumálverk að gjöf - 6.7.2010

Listmálarinn Hafsteinn Austmann hefur fært Kópavogsbæ olíumálverk að gjöf sem þakklætisvott fyrir að halda yfirlitssýningu á verkum sínum í Gerðarsafni í vor. Guðrún Pálsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, veitti gjöfinni viðtöku í Gerðarsafni fyrir helgi.

Umræður og fræðsla í Náttúrufræðistofu á sunnudag - 5.7.2010

Íslenski safnadagurinn verður haldinn sunnudaginn 11. júlí og af því tilefni fara fram umræður og fræðsla í Náttúrufræðistofu Kópavogs í tengslum við sýningu Magnúsar Árnasonar listamanns, Af lifun. Dagskráin hefst stundvíslega kl. 15.00 með fyrirlestri Dr. Hilmars J. Malmquist um kúluskít.

Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir er formaður stjórnar Strætó - 5.7.2010

Ný stjórn Strætó bs. kom saman á fundi í dag og skipti með sér verkum. Formaður stjórnar verður Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, bæjarfulltrúi í Hafnarfirði. Aðrir í stjórn eru eftirtaldir: Kjartan Örn Sigurðsson frá Álftanesi, Stefán Snær Konráðsson frá Garðabæ, Hjálmar Hjálmarsson frá Kópavogi, Hafsteinn Pálsson frá Mosfellsbæ, Einar Örn Benediktsson frá Reykjavík og Sigrún Edda Jónsdóttir frá Seltjarnarnesbæ.

Sífellt fleiri leita sér fjárhagsaðstoðar - 2.7.2010

Alls fengu 495 fjölskyldur í Kópavogi fjárhagsaðstoð hjá Félagsþjónustunni á árinu 2009 samanborið við 396 fjölskyldur árið á undan. Jafngildir það 25% aukningu. Þetta kemur fram í ársskýrslu Félagsþjónustu Kópavogs fyrir árið 2009. Þar segir að eftirspurn eftir félagslegri ráðgjöf og fjárhagsaðstoð hafi aukist í kjölfar efnahagshrunsins á Íslandi í október 2008.

Verk eftir Gerði og Kjarval sýnd í Gerðarsafni í sumar - 1.7.2010

Tvær sumarsýningar verða í Gerðarsafni, listasafni Kópavogs, frá 3. júlí til 29. ágúst. Á neðri hæð safnsins verður sýningin Gerður og Gurdjieff en á efri hæðinni verður sýningin Lífshlaup Kjarvals og fleiri úrvalsverk í einkasafni Þorvaldar og Ingibjargar. Safnið er opið alla daga, nema mánudaga, frá kl. 11.00 til 17.00.