Fréttasafn

Fyrirsagnalisti

Bæjarstjórn samþykkir að stofna nýtt framkvæmdaráð - 30.9.2010

Samþykkt var á bæjarstjórnarfundi Kópavogs í vikunni að stofna nýtt framkvæmdaráð. Hlutverk þess verður að fara með mál sem falla undir framkvæmda- og tæknisvið Kópavogsbæjar, svo sem mannvirkjagerð, eignarekstur, veitustarfsemi og umferðarmál.

Gerðarsafn: Gjörningur og leiðsögn um helgina - 30.9.2010

Gjörningur Páls Hauks Björnssonar fer fram í safnrými Gerðarsafns, listasafns Kópavogs, nú á laugardag og stendur hann yfir frá kl. 15:00 til kl. 17:00. Gjörningurinn er hluti af samsýningu níu ungra myndlistarmanna sem nú stendur yfir í Gerðarsafni.

Minningarstund í safnaðarheimilinu og gönguferð um Fossvogsdalinn - 30.9.2010

Margrét Oddsdóttir hefði orðið 55 ára hinn 3. október næstkomandi og af því tilefni, og til að fagna stofnun minningarsjóðs um hana, hefur verið ákveðið að bjóða til samvista með kaffi og meðlæti í safnaðarheimili Kópavogskirkju, gegnt Gerðarsafni, nú á sunnudag.

Mótmælir fyrirhugaðri lokun - 29.9.2010

Bæjarstjórn Kópavogs mótmælir fyrirhugaðri lokun heilsugæslunnar í Hvammi og samþykkti ályktun þess efnis á fundi sínum í gær. Tilefnið er fyrirliggjandi tillaga yfirstjórnar heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins um að loka umræddri heilsugæslustöð.

Nýtt íþróttafélag hefur aðsetur í Kópavogi - 29.9.2010

Íþróttafélagið Stál úlfur var stofnað í byrjun árs af nokkrum þekktum litháískum íþróttamönnum sem búa hér á landi. Hefur það aðstöðu í Kórnum í Kópavogi.

Námsráðgjafi Hörðuvallaskóla gefur út tvær nýjar námsbækur - 29.9.2010

Tvær nýjar námsbækur í lífsleikni og jafnréttisfræðslu eftir Írisi Arnardóttur, námsráðgjafa hjá Hörðuvallaskóla í Kópavogi, voru í sumar og haust gefnar út af Tindi, bókaútgáfu.

Varað við sjósundi eða siglingum - 27.9.2010

Unnið er að viðhaldi á dælustöð fráveitukerfisins við Hafnarbraut í Kópavogi og var því slökkt á dælunum í morgun, mánudaginn 27. september. Þær verða aftur settar í gang annað kvöld, þriðjudaginn 28. september. Þetta skapar hættu á því að saurgerlamengun í sjó verði yfir viðmiðunarmörkum næstu þrjá daga, þ.e.a.s. fram á miðvikudag. Fólki er því ráðlagt að stunda ekki sjósund eða siglingar á þessum tíma í Fossvoginum.

Blikar lönduðu titlinum - 27.9.2010

Breiðablik varð um helgina Íslandsmeistari í fótbolta karla í fyrsta sinn í sögu félagsins. Breiðablik gerði markalaust jafntefli gegn Stjörnunni í Garðabæ og í leikslok brutust út mikil fagnaðarlæti.

Hárgreiðslustofa og fótaaðgerðarstofa í Boðanum - 24.9.2010

Hárgreiðslustofa og fótaaðgerðarstofa verða opnaðar í þjónustumiðstöð Kópavogs í Boðaþingi nú um helgina. Stofunum er ætlað að þjóna íbúum hjá Hrafnistu í Boðaþingi og öllum öðrum eldri borgurum í Kópavogi.

Lýsir yfir ánægju sinni með nýtt námsefni í kynjafræði - 23.9.2010

Landsfundur jafnréttisnefnda sveitarfélaga, sem haldinn var á Akureyri fyrr í mánuðinum, lýsir yfir ánægju sinni með nýtt námsefni í kynjafræði fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla og hvetur stjórnendur allra skóla í landinu til að nýta það við kennslu í skólunum.

Ýmislegt í boði fyrir atvinnuleitendur í Rauðakrosshúsinu í Kópavogi - 22.9.2010

Kópavogsdeild Rauða kross Íslands fór aftur af stað með verkefnið Nýttu tímann mánudaginn 13. september. Boðið er upp á fjölbreytta dagskrá í vetur svo sem fyrirlestra, námskeið og ráðgjöf.

Afkoman betri en áætlað var - 22.9.2010

Afgangur af rekstri Kópavogsbæjar nam 508,4 milljónum króna á fyrstu sex mánuðum ársins en áætlað var að hann næmi 21,8 milljónum króna. Þetta kemur fram í óendurskoðuðu og ókönnuðu sex mánaða uppgjöri bæjarins. Það verður notað sem grunnur að endurskoðaðri fjárhagsáætlun fyrir árið 2010.

Réttað í Fossvallarétt í blíðskaparveðri um helgina - 21.9.2010

Réttað var í Fossvallarétt á sunnudag með um fimm til sex hundruð fjár. Fossvallarétt er sameiginleg lögrétt Reykvíkinga og Kópavogsbúa. Þorsteinn Hjaltested, fjáreigandi í landi Kópavogs, segir að réttirnar hafi gengið mjög vel í frábæru veðri.

Ómar Ragnarsson opnaði sýningu um vistvæn farartæki - 20.9.2010

Ómar Ragnarsson, fréttamaður og áhugamaður um bíla og umhverfismál, opnaði á föstudag sýningu á vistvænum farartækjum í Vetrargarði Smáralindar í Kópavogi.

Góð stemmning á hjóladeginum - 20.9.2010

Bæjarstjórar á höfuðborgarsvæðinu og borgarstjórinn í Reykjavík tóku þátt í hjóladegi fjölskyldunnar á laugardag.

Ómar fagnaði sjötugsafmælinu í Salnum - 20.9.2010

Ómar Ragnarsson fagnaði sjötugsafmæli sínu fyrir helgi og af því tilefni var haldin afmælisskemmtun og tónleikar í Salnum í Kópavogi.

Um fjögur hundruð börn skemmta sér í Salnum - 17.9.2010

Um fjögur hundruð börn tóku þátt í árlegri menningarhátíð elstu barna leikskóla Kópavogs sem fram fór í Salnum, tónlistarhúsi Kópavogs, í morgun.

Hjóladagur fjölskyldunnar á laugardag - 16.9.2010

Hjóladagur fjölskyldunnar fer fram laugardaginn 18. september og hefst dagurinn á því að bæjarstjórar á höfuðborgarsvæðinu hjóla fylktu liði að Ráðhúsi Reykjavíkur.

Bók um meistara glers og málma - 16.9.2010

Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn, hefur gefið út bók um listakonuna Gerði Helgadóttur sem safnið er kennt við. Bókin ber titilinn: Gerður. Meistari glers og málma.

Sameiginlegur starfsdagur grunnskóla verður haldinn 1. október - 14.9.2010

Sameiginlegur starfsdagur grunnskóla Kópavogs og grunnskóladeildar bæjarins fer fram 1. október næstkomandi í Hörðuvallaskóla. Dagurinn verður settur kl. 8:45 með ávarpi Helga Halldórssonar, skólastjóra Hörðuvallaskóla, og Rannveigar H. Ásgeirsdóttur, formanns skólanefndar Kópavogsbæjar.

Kópavogur tekur þátt í evrópskri samgönguviku - 14.9.2010

Kópavogsbær tekur í ár, eins og undanfarin ár, þátt í Evrópsku samgönguvikunni en hún fer fram dagana 16. til 22. september. Tilgangur vikunnar er að vekja fólk til umhugsunar um umhverfi sitt og hvernig mismunandi samgöngumáti hefur áhrif á umhverfi og heilsu.

Ráðstefna í Molanum um tækniþróun og menntun - 10.9.2010

Ráðstefna um áhrif tækniþróunar á íslenskt menntalíf fer fram í Molanum, ungmennahúsi Kópavogs, á morgun laugardag 11. september.

Vel heppnaðir Fúsatónleikar í Salnum - 9.9.2010

Þrennir tónleikar til minningar um Sigfús Halldórsson tónskáld hafa verið haldnir í Salnum í Kópavogi síðustu daga. Tónleikarnir hafa verið gríðarlega vel sóttir og fengið góða dóma. Ákveðið hefur verið að bæta þeim fjórðu við þann 15.september.

Ellefu skáld í Kópavogi gefa út ljóðabók til minningar um Fúsa - 8.9.2010

Út er komin ljóðabókin Ljóð við lækinn og eru höfundar ellefu skáld sem hafa einu sinni í viku, vetrarlangt, hist í Gjábakka, félagsheimili aldraðra í Kópavogi. Bókin er gefin út til minningar um Sigfús Halldórsson, listamann og tónskáld, en hann hefði orðið 90 ára 7. september.

Nemendur hvattir til að ganga eða hjóla í skólann - 8.9.2010

Alþjóðlega verkefnið Göngum í skólann var formlega sett í morgun í Fagralundi í Kópavogi af Ögmundi Jónassyni samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. Rannveig Ásgeirsdóttir, formaður skólanefndar Kópavogsbæjar, flutti ávarp við setninguna, sem og Oddný Sturludóttir, formaður menntaráðs Reykjavíkurborgar.

Ganga, fjör og fróðleikur í vesturbæ Kópavogs á laugardag - 7.9.2010

Árleg fjölskylduganga á umhverfisdegi Kópavogs fer fram laugardaginn 11. september. Markmiðið er að gefa Kópavogsbúum færi á að kynnast nokkrum af helstu náttúruperlum og menningarminjum bæjarins.

Íbúum í Kópavogi fer fjölgandi - 7.9.2010

Íbúum Kópavogsbæjar fer fjölgandi eins og sjá má í mánaðarskýrslu Kópavogsbæjar sem gefin var út í ágúst 2010. Bæjarbúar voru 30.619 í júlílok en til samanburðar voru þeir 30.395 í árslok 2009.

Styrkir veittir til verkefna á sviði menningar og lista - 6.9.2010

Lista- og menningarráð Kópavogs auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna eða viðburða á sviði menningar og lista í Kópavogi. Einstaklingar, félagasamtök og stofnanir geta sent inn umsóknir. Styrkþegum ber að skila greinargerð um nýtingu styrks eigi síðar en 6 mánuðum eftir úthlutun.

Fyrsta skóflustungan að nýrri reiðhöll á Kjóavöllum - 3.9.2010

Guðríður Arnardóttir, formaður bæjarráðs Kópavogs, tók í dag fyrstu skóflustunguna að nýrri reiðhöll á Kjóavöllum. Þar með hefjast undirbúningsframkvæmdir á svæðinu.

Unnið að yfirfærslu málefna fatlaðra til sveitarfélaga - 3.9.2010

Vinna við undirbúning yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga hófst fyrir nokkru hjá Kópavogi. Miðað er við að málaflokkurinn færist yfir 1. janúar næstkomandi. Stofnaður var aðgerðahópur í mars til að vinna að undirbúningnum en hann skipa aðilar sviða og deilda sem aðkomu eiga að verkefninu.

Fúsi í 90 ár - afmælistónar í Salnum - 2.9.2010

Sigfús Halldórsson, tónskáld og heiðursborgari Kópavogs, hefði orðið 90 ára þann 7. september 2010. Þess er minnst með tónleikum í Salnum 4. og 7. september.

Góð aðsókn að sýningu um Sigfús Halldórsson - 2.9.2010

Mikil og góð aðsókn hefur verið að sýningu Tónlistarsafns Íslands um Sigfús Halldórsson tónskáld. Sýningin var opnuð á Kópavogsdögum í maí í tilefni þess að Sigfús hefði orðið 90 ára á þessu ári.

Vetraráætlun Strætó tekur gildi - 2.9.2010

Vetraráætlun Strætó hefur tekið gildi en það þýðir að tíðni ferða eykst á ný og verður svipuð og síðastliðinn vetur. Jafnframt breytist akstur um Grafarvog og Grafarholt nokkuð með nýrri vetraráætlun.

Ungir myndlistarmenn sýna í Gerðarsafni - 1.9.2010

Samsýning níu ungra myndlistarmanna verður opnuð í Gerðarsafni nú á laugardag kl. 17:00. Listamennirnir eru: Berglind Jóna Hlynsdóttir, Bjarki Bragason, Etienne de France, Gunndís Ýr Finnbogadóttir, Helga Björg Gylfadóttir, Logi Bjarnason, Páll Haukur Pálsson, Steinunn Gunnlaugsdóttir og Styrmir Guðmundsson. Sýningin stendur yfir til 10. október.

Um 260 nýnemar í MK - 1.9.2010

Skólastarf er nú hafið af fullum krafti víða um land og er Menntaskólinn í Kópavogi þar engin undantekning. Busavígsla fór fram á mánudag.

Vetraropnunartími sundlauga tekur gildi - 1.9.2010

Vetraropnunartími sundlauga Kópavogs tekur gildi í dag, 1. september. Sundlaug Kópavogs er opin á mánudögum, þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum frá kl. 6:30 til 21:00. Á föstudögum er hún opin frá kl. 6:30 til 20:00. Á laugardögum og sunnudögum er hún opin frá kl. 9:00 til 18:00.