Fyrirsagnalisti

Guðríður Arnardóttir, formaður bæjarráðs Kópavogsbæjar, var í dag samhljóða kjörin varaformaður stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga. Halldór Halldórsson er sem kunnugt er formaður sambandsins.
Sýningar á ljósmyndum Ragnars Axelssonar (Raxa), ljósmyndara og heiðurslistamanns Kópavogs, verða opnaðar í Gerðarsafni, Listasafni Kópavogs, á morgun laugardag, kl. 15:00.

Nýkrýndir Evrópumeistarar í hópfimleikum úr Gerplu voru hylltir í Gerðarsafni síðdegis í gær þar sem bæjarstjórn Kópavogs hélt móttöku þeim til heiðurs. Bæjarstjórn gerði hlé á annars reglubundnum fundum sínum til að fagna með Gerplustúlkunum.

Bæjarstjóri Kópavogs, bæjarfulltrúar og helstu embættismenn bæjarins funduðu með þingmönnum Suðvesturkjördæmis í gær en nú stendur yfir kjördæmavika á Alþingi.
Bót, aðgerðarhópur um bætt samfélag, stendur fyrir borgarafundi um velferðarmál í Salnum, Tónlistarhúsi Kópavogs í kvöld. Fundurinn hefst kl. 20:00 og stendur yfir til kl. 22:00. Allir eru velkomnir.
Lorem ipsum dolor sit amet, sed diam nonumy eirmod tempor invidunt ut labore consetetur sadipscing elitr, sed diam nonumy eirmod tempor invidunt ut labore.
Kópavogsbær óskar kvennaliði Gerplu í hópfimleikum hjartanlega til hamingju með glæsilegan árangur á Evrópumótinu í hópfimleikum sem fram fór í Malmö í Svíþjóð um helgina. Lið Gerplu braut blað í sögu fimleika á Íslandi og vann til gullverðlauna.

Strætó bs. ætlar að fjölga strætóferðum á kvennafrídaginn 25. október næstkomandi. Ferðum verður fjölgað á þriðja tímanum, eða um það leyti þegar konur eru hvattar til að leggja niður vinnu. Ferðum verður svo aftur fjölgað að lokinni dagskrá í miðbæ Reykjavíkur.
Nánari upplýsingar má finna hér.
Guðrún Pálsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, hvetur konur sem starfa hjá bænum til að taka þátt í kvennafrídeginum næstkomandi mánudag og leggja niður störf
kl. 14:25.

Í vikunni vígðu leikskólabörn í Kópavogi nýtt útivistarsvæði í Vatnsendahlíð sem hlotið hefur nafnið
Magnúsarlundur. Svæðið verður m.a. notað til útináms skóla og leikskóla í nágrenninu.
Stjórnlaganefnd og Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu standa fyrir borgarafundi í dag, fimmtudag, frá kl. 17:30-19:30, í Súlnasal Hótel Sögu. Fundurinn er kynningarfundur um stjórnlagaþing og þjóðfund 2010 auk þess sem kallað verður eftir sjónarmiðum fundarmanna. Fundarstjóri verður Gunnsteinn Sigurðsson, fyrrverandi bæjarstjóri Kópavogs.
Strætó bs. og VÍS munu næstu sex vikur standa fyrir svokölluðum Öryggisdögum – átaki sem miðar að því að fækka slysum í umferðinni og auka öryggi vegfarenda.

Vefjaræktað eintak af silfurreyninum í Fógetagarðinum í Reykjavík var gróðursett við Kópavogslæk neðan Fífuhvamms í gær. Garðyrkjufélag Íslands færði Kópavogsbæ þetta eintak af silfurreyninum að gjöf í tilefni af 125 ára afmæli félagsins.

Samstarfssamningur milli Kópavogsbæjar og Landbúnaðarháskóla Íslands um svokallaðan Yndisgarð í Fossvoginum var undirritaður fyrir helgi. Af því tilefni gróðursetti bæjarstjóri Kópavogs,
Guðrún Pálsdóttir, skrautreyni í garðinum.
Aðsókn að Salnum, Tónlistarhúsi Kópavogs, hefur aldrei verið meiri en í ár og ef hún er borin saman við árið í fyrra er aukningin ríflega 40%. Samtals hafa um 25 þúsund gestir sótt tónleika og aðra viðburði í Salnum það sem af er þessu ári.
Guðrún Pálsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, Guðríður Arnardóttir, formaður bæjarráðs og Vilhjálmur Lúðvíksson, formaður Garðyrkjufélags Íslands munu á mánudag gróðursetja vefjaræktað eintak af silfurreyninum í Fógetagarðinum við Aðalstræti í Reykjavík.
Íslenska lánshæfismatsfyrirtækið Reitun ehf. hefur gefið út nýtt lánshæfismat fyrir Kópavogsbæ. Í uppfærðu mati segir að þrátt fyrir að vera annað stærsta sveitarfélag landsins og eitt það öflugasta á landinu, hafi aukning skulda í kjölfar efnahagshrunsins þau áhrif að Kópavogsbær er sem fyrr með lánshæfiseinkunnina B með jákvæðum horfum.

Margir lögðu leið sína á sýninguna Trékarlar sem opnuð var í anddyri Náttúrufræðistofu Kópavogs um helgina. Trékarlar eru útskornir tréstaurar sem hafa öðlast framhaldslíf með ástríðu og útsjónarsemi
Guðmundar Sigurðssonar.
Sýningin Trékarlar verður opnuð í anddyri Náttúrufræðistofu Kópavogs , næstkomandi laugardag 9. október kl. 14:00. Trékarlar eru útskornir tréstaurar sem hafa öðlast framhaldslíf með ástríðu og útsjónarsemi Guðmundar Sigurðssonar, trésmiðs og Kópavogsbúa.

Hópur góðra gesta frá Klakksvík í Færeyjum, vinabæ Kópavogs, heimsótti bæinn um helgina en þar var á ferðinni kór sem heitir
17 söngvarar. Kórinn var hér á kórferðalagi og notaði tækifærið til að heimsækja vinabæinn sinn.

Yfir tvær milljónir söfnuðust í Kópavogi í söfnun Rauða kross Íslands, Göngum til góðs, sem fram fór síðastliðinn laugardag. Alls 275 Kópavogsbúar gengu með söfnunarbauka í hús og var þeim hvarvetna vel tekið.

Kársnesskóli hefur fengið leyfi Landverndar til að flagga Grænfánanum og var hann dreginn að húni við hátíðlega athöfn í síðustu viku. Þetta þýðir að skólinn hefur náð tilsettum markmiðum með umhverfisstefnu sinni.
Viðhaldsaðgerðum á dælustöð fráveitukerfisins við Hafnarbraut í Kópavogi lauk fyrir tilsettan tíma, síðla dags á þriðjudag. Dælurnar voru settar í gang um kvöldið. Þessum upplýsingum hefur verið komið áleiðis til heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur og heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis.