Fréttasafn

Fyrirsagnalisti

Málþing um tilfærslu þjónustu við fatlaða - 29.11.2010

Efnt verður til málþings um tilfærslu þjónustu við fatlaða frá ríki til sveitarfélaga í Haukahúsinu á Ásvöllum, Hafnarfirði, miðvikudaginn 1. desember. Það stendur frá kl. 13:00 til kl. 17:00. Málþingið er haldið á vegum félags- og tryggingamálaráðuneytisins, Stjórnarnefndar málefna fatlaðra og Svæðisskrifstofu og Svæðisráðs Reykjaness.

Leikskólinn Álfaheiði fagnar 20 ára afmæli - 29.11.2010

Leikskólinn Álfaheiði í Kópavogi fagnar 20 ára afmæli miðvikudaginn 1. desember. Opið hús verður fyrir foreldra og gesti frá kl. 15:00 til 16:30. Gamlir nemendur og starfsmenn eru einnig hjartanlega velkomin.

Aðventuhátíð á Hálsatorgi - 29.11.2010

Ljósin voru tendruð á jólatrénu á Hálsatorgi í Kópavogi um helgina að viðstöddu fjölmenni. Mætingin hjá yngstu kynslóðinni var sérstaklega góð enda tóku nokkrir jólasveinar forskot á sæluna og kíktu í heimsókn.

Ljósin tendruð á vinabæjarjólatrénu - 25.11.2010

Kópavogsbær fer í jólabúninginn á laugardaginn en þá verða ljósin tendruð á vinabæjarjólatrénu á Hálsatorgi. Athöfnin hefst kl. 16:00 og stendur yfir í klukkutíma.

Anna S. Björnsdóttir skáld hlýtur Steininn 2010 - 25.11.2010

Anna S. Björnsdóttir ljóðskáld hlaut á dögunum heiðursviðurkenningu Ritlistarhóps Kópavogs, Steininn 2010. Þetta er í fimmta sinn sem Steinninn er veittur því skáldi sem sinnt hefur ljóðlistinni af kostgæfni og alúð.

Lið Þebu og Pegasus í efstu sætum - 24.11.2010

Keppendur úr félagsmiðstöðinni Þebu í Kópavogi hrepptu annað sætið í Stíl, hönnunar-, förðunar- og hárgreiðslukeppni unglinga, sem fram fór í Smáralindinni um helgina. Um 240 unglingar hvaðanæva af landinu tóku þátt og gáfu hugmyndafluginu lausan tauminn.

Samkomulag um tilfærslu málefna fatlaðra undirritað - 24.11.2010

Samkomulag milli ríkis og sveitarfélaga um yfirfærslu þjónustu við fatlað fólk frá ríki til sveitarfélaga var undirritað í gær. Málaflokkurinn verður, sem kunnugt er, færður til sveitarfélaga 1. janúar næstkomandi. Frumvarp til laga um tilfærsluna á grundvelli samkomulagsins verður lagt fram á Alþingi á næstu dögum.

Auglýsing um kjörfund – Kjörstaðir - 22.11.2010

Kosningar til stjórnlagaþings fara fram laugardaginn 27. nóvember. Í Kópavogi verða tveir kjörstaðir í íþróttahúsinu Kórnum og í íþróttahúsinu Smáranum. Kjörfundur hefst kl. 9:00 og lýkur kl. 22:00. Hér má sjá auglýsingu um kjörfund.

Fjölbreytt dagskrá í Molanum framundan - 22.11.2010

Fjölbreytt dagskrá verður í Molanum, ungmennahúsi Kópavogs, næstu vikurnar. Má þar nefna leiksýningu leikhóps á vegum Kópavogsdeildar Rauða Kross Íslands. Leikhópurinn ætlar að sýna Jólasögu Charles Dickens (A Christmas Carol) 27. nóvember og á eftir verður í boði Molakaffi með girnilegum kræsingum og lifandi tónlist.

Útsvar í kvöld - Áfram Kópavogur! - 19.11.2010

Lið Kópavogs í spurningakeppninni Útsvari mætir liði Akureyrar í sjónvarpinu í kvöld. Nýir liðsmenn skipa lið Kópavogs, þau: Adolf Petersen, menntaskólakennari við MK, Bjarni Þór Sigurbjörnsson, laganemi við HÍ, og Þorbjörg Marinósdóttir, blaðamaður og rithöfundur. Kópavogsbær óskar þeim alls hins besta!

Góð umræða og fjölmargar tillögur að sparnaði - 18.11.2010

Góðar umræður urðu á íbúafundi í Kópavogi síðdegis í gær þar sem bæjarbúar voru hvattir til að koma sínum sjónarmiðum á framfæri við gerð fjárhagsáætlunar bæjarins fyrir árið 2011.

Um 240 unglingar taka þátt í hönnunar- og hárgreiðslukeppni - 18.11.2010

Reiknað er með því að um 240 unglingar hvaðanæva af landinu taki þátt í Stíl, hönnunar-, förðunar- og hárgreiðslukeppni unglinga, sem fram fer í Vetrargarðinum í Smáralind, laugardaginn 20. nóvember.

Skólahljómsveit Kópavogs heldur hausttónleika - 16.11.2010

Skólahljómsveit Kópavogs hélt vel heppnaða hausttónleika í Háskólabíói á dögunum. Fram komu 140 nemendur sem léku við hvern sinn fingur. Þau fluttu bæði spænsk og íslensk lög. Sérstaka athygli vakti flutningur elstu barnanna á syrpu með lögum Þursaflokksins góðkunna.

Lið Kjarnans sigraði í Getkó - 16.11.2010

Liðsmenn Kjarnans sigruðu í Getkó, spurningakeppni félagsmiðstöðva Kópavogs, á dögunum. Þrír drengir úr Kópavogsskóla skipuðu sigurliðið, þeir Hjörtur Ingi Skarphéðinsson, Jóhann Ragnarsson og Magnús Jónsson.

Sýning og fyrirlestur um Njálu - 16.11.2010

Nú stendur yfir í Bókasafni Kópavogs sýning á myndum af persónum Njálu eftir Þórhildi Jónsdóttur frá Lambey. Það er því við hæfi að Bjarni E. Sigurðsson haldi í dag, á degi íslenskrar tungu, erindi um Njálu í bókasafninu. Erindið nefnir hann: Gunnar Hámundarson, ástir hans og örlög. Lesturinn hefst kl. 17:15. Allir eru velkomnir.

Kjörskrá liggur frammi í þjónustuverinu - 15.11.2010

Kjörskrá í Kópavogi vegna kosninga til stjórnlagaþings 27. nóvember nk. liggur frammi í þjónustuveri bæjarskrifstofa Kópavogs, Fannborg 2, frá og með 17. nóvember. Ef einhverjar athugasemdir eru við kjörskrána ber að snúa sér með þær til bæjarlögmanns.

Minning Guðrúnar frá Lundi heiðruð á degi íslenskrar tungu - 15.11.2010

Á degi hinnar íslensku tungu, á morgun þriðjudaginn 16. nóvember, verður minning alþýðurithöfundarins Guðrúnar frá Lundi heiðruð í félagsheimilinu Boðanum, Boðaþingi 9, í Kópavogi. Dagskráin hefst kl. 15:000 með ávarpi Hrafns Andrésar Harðarsonar bæjarbókavarðar. Því næst les Marín Guðrún Hrafnsdóttir, langömmubarn Guðrúnar, upp úr verkum hennar.

Íbúafundur í Kópavogi: Hafðu áhrif! - 11.11.2010

Kópavogsbær efndi til íbúafundar um fjárhagsáætlun ársins 2011 í Smáraskóla í Kópavogi, miðvikudaginn 17. nóvember. Tilgangurinn var að gefa bæjarbúum kost á því að koma sjónarmiðum sínum á framfæri við gerð fjárhagsáætlunar bæjarins. Um leið voru þeir upplýstir um vinnu við gerð hennar.

Lesa má niðurstöður fundarins hér.

Fjör á tónlistarhátíðinni Kóparokk - 11.11.2010

Um fjögur hundruð unglingar sóttu tónlistarhátíðina Kóparokk í félagsmiðstöðinni Ekkó, Kársnesskóla, í byrjun nóvember. Gestir hátíðarinnar voru Kópavogsbúinn Erpur Eyvindarson, rappari með meiru, og Níels ( Nilli), meðlimur hljómsveitarinnar Fló Fló.

Lið Kópavogs í Útsvari keppir 19. nóvember - 11.11.2010

Lið Kópavogs í spurningakeppninni Útsvari mætir liði Akureyrar í sjónvarpinu föstudaginn 19. nóvember. Í Kópavogsliðinu eru: Adolf Petersen, menntaskólakennari við MK, Bjarni Þór Sigurbjörnsson, laganemi við HÍ, og Þorbjörg Marinósdóttir, blaðamaður og rithöfundur.

Nýtt útivistarsvæði fyrir börn í Asparlundi - 10.11.2010

Nýtt útivistarsvæði í Asparlundi í Fossvogsdal var vígt í morgun að viðstöddum fjölmörgum leik- og grunnskólabörnum. Svæðið mun einkum nýtast Snælandsskóla en einnig leikskólunum Furugrund, Álfatúni, Grænatúni, Fögrubrekku og jafnvel Marbakka.

Ljóðasamkeppnin „Ljóðstafur Jóns úr Vör“ haldin í tíunda sinn - 10.11.2010

Lista- og menningarráð Kópavogs efnir í tíunda sinn til árlegrar ljóðasamkeppni undir heitinu Ljóðstafur Jóns úr Vör. Öllum skáldum er velkomið að senda ljóð í keppnina en skilafrestur rennur út 3. desember. Í dómnefnd eru: Gerður Kristný, rithöfundur og skáld, Jón Yngvi Jóhannsson bókmenntafræðingur og Sigurður Pálsson, ljóðskáld og rithöfundur.

Fyrsta sýning vetrarins opnuð í Molanum - 10.11.2010

Fyrsta sýning vetrarins í Gallerí Sykri, í Molanum, var opnuð síðastliðinn föstudag. Sýningin ber vinnuheitið „Planið mitt í vetur er að geta falið mig í snjónum“ og er listamaðurinn Sigríður Björk Bragadóttir.

Fimm ára afmæli - 5.11.2010

Samtök heilsuleikskóla fögnuðu fimm ára afmæli sínu í vikunni en þau voru stofnuð í Kópavogi að frumkvæði Unnar Stefánsdóttur, sem þá var leikskólastjóri á leikskólanum Urðarhóli.

Vígja nýtt útivistarsvæði á Rjúpnahæð - 5.11.2010

Lítið útivistarsvæði í hlíð Rjúpnahæðar í Kópavogi, sem ætlað er skólabörnum, var formlega vígt í morgun að viðstöddum leikskólabörnum úr Fífusölum og Rjúpnahæð og nemendum frá Salaskóla.

Konur við stjórnvölinn - 5.11.2010

Konur voru í meirihluta á fundi bæjarráðs Kópavogs í vikunni en eingöngu konur sátu fundinn fyrir hönd flokkanna fjögurra sem mynda meirihluta í bæjarstjórn.

Kvennakór Kópavogs heldur tónleika til styrktar Mæðrastyrksnefnd - 4.11.2010

Kvennakór Kópavogs, í samstarfi við Digraneskirkju, heldur styrktartónleika til stuðnings Mæðrastyrksnefnd í Kópavogi, sunnudaginn 7. nóvember.

Starfsmenn ungmennahúsa funda í Molanum - 1.11.2010

Starfsmenn ungmennahúsa víða um land funduðu í Molanum, ungmennahúsi Kópavogs, í síðustu viku. Markmiðið var að hittast og leggja grunn að enn frekara samstarfi forsvarsmanna húsanna í framtíðinni.