Fréttasafn

Fyrirsagnalisti

Tvær áramótabrennur í Kópavogi - 30.12.2010

Tvær áramótabrennur verða í Kópavogi á gamlárskvöld. Annars vegar í Kópavogsdalnum við Smárahvammsvöll og hins vegar í Vatnsenda, fyrir ofan Gulaþing. Kveikt verður í brennunum kl. 20.30. Að venju verður flugeldasýning í Kópavogsdalnum og hefst hún kl. 21:10.

Opnunartími yfir áramót - 29.12.2010

Bæjarskrifstofum Kópavogs verður lokað á gamlársdag en 3. janúar verður opið frá kl. 10:00 til 16:00. Síminn í þjónustuveri er: 570-1500. Starfsfólk Kópavogsbæjar óskar öllum gleðilegs nýs árs með þökk fyrir góð samskipti á árinu sem er að líða.

Íþróttahátíð í Kópavogi - 28.12.2010

Íþróttahátíð Kópavogs verður haldin þriðjudaginn 4. janúar nk. kl. 18:00 í Salnum í Kópavogi. Á hátíðinni verður lýst kjöri á íþróttakonu og íþróttakarli Kópavogs 2010. Einnig verður íþróttafólki veittar viðurkenningar fyrir unnin afrek á árinu. Kópavogsbúar eru boðnir velkomnir.

EFS ætlar ekki að aðhafast neitt frekar vegna fjármála Kópavogsbæjar - 23.12.2010

Fram kemur í bréfi Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga (EFS) til bæjarstjórnar Kópavogs, dagsettu 17. desember 2010, að hún muni ekki að svo stöddu aðhafast frekar vegna fjármála bæjarins. Guðríður Arnardóttir, formaður bæjarráðs, fagnar niðurstöðu nefndarinnar.

Fjárhagsáætlun fyrir næsta ár samþykkt í bæjarstjórn - 22.12.2010

Bæjarstjórn Kópavogs hefur afgreitt fjárhagsáætlun fyrir bæjarsjóð árið 2011. Breytingartillögur Gunnars I. Birgissonar bæjarfulltrúa voru felldar. Tíu af ellefu bæjarfulltrúum, sem stóðu að fjárhagsáætluninni, undirrituðu bókun í lok bæjarstjórnarfundarins þar sem segir að áætlunin hafi verið unnin af fulltrúum allra flokka og framboða í bæjarstjórn Kópavogs.

Reglur um kattahald í Kópavogi taka gildi 1. janúar - 20.12.2010

Umhverfisráðuneytið hefur staðfest reglur bæjaryfirvalda í Kópavogi um kattahald í bænum. Reglurnar taka gildi 1. janúar 2011. Þær hafa verið birtar í Stjórnartíðindum og má finna þær hér.

342 ljóð berast í ljóðasamkeppnina Ljóðstafur Jóns úr Vör - 17.12.2010

Alls 342 ljóð bárust í ljóðasamkeppni lista- og menningarráðs Kópavogs sem nú er haldin í tíunda sinn og ber heitið Ljóðstafur Jóns úr Vör. Öllum skáldum var boðið að senda inn frumsamin ljóð, undir dulnefni, og rann skilafrestur út 3. desember.

Vilja samvinnu um tiltekt á Kársnesi - 15.12.2010

Guðrún Pálsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, hefur hvatt til þess að bæjaryfirvöld, íbúar og atvinnurekendur á Kársnesi taki höndum saman á næstu vikum og mánuðum og hreinsi til á atvinnusvæði Kársness sem afmarkast af Kársnesbraut, Vesturvör og Bryggjuvör.

Skuldir Kópavogs lækka - 14.12.2010

Tillaga að fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir árið 2011 var lögð fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn í dag. Tíu af ellefu bæjarfulltrúum standa að henni og var hún unnin í nánu samráði við nefndir og ráð bæjarins.

Vel heppnaðir útgáfutónleikar í Salnum - 13.12.2010

Útgáfu plötunnar „Fúsi Halldórs – vinsælustu lögin“ var fagnað í Salnum á föstudagskvöld með sérstökum útgáfutónleikum. Þar voru perlur Sigfúsar fluttar af þeim Stefáni Hilmarssyni, Andreu Gylfadóttur og Agli Ólafssyni. Meðal frægustu laga Fúsa eru Dagný, Tondeleyó, Litla flugan og Vegir liggja til allra átta.

Strætó fer í jólabúninginn - 10.12.2010

Jólalegt verður í umferðinni næstu vikurnar því strætisvagnar Strætó bs. skarta skrautlegum jólamyndum að utan sem innan. Leikskólabörn hvaðanæva að af höfuðborgarsvæðinu hönnuðu skreytingarnar.

Dansleikhúsgjörningur í Gerðarsafni - 9.12.2010

Íslensk frumsýning á dansleikhúsgjörningi fjöllistahópsins Skyr Lee Bob, Square Wunder Globe fer fram í Listasafni Kópavogs, Gerðarsafni, um helgina. Verkið er samstarfsverkefni Ernu Ómarsdóttur dansara, Guðna Gunnarssonar myndlistarmanns og Lieven Dousselaere tónlistarmanns.

Útgáfutónleikar í Salnum í tilefni af nýrri plötu með lögum Fúsa - 6.12.2010

Útgáfutónleikar verða í Salnum 10. desember í tilefni af útgáfu plötunnar „Fúsi Halldórs – vinsælustu lögin“. Á plötunni túlka landskunnir listamenn lög Sigfúsar Halldórssonar. Á tónleikunum verða perlur Sigfúsar fluttar af Stefáni Hilmarssyni, Andreu Gylfadóttur og Agli Ólafssyni. Meðal frægustu laga Fúsa eru Dagný, Tondeleyó, Litla flugan og Vegir liggja til allra átta.

Kvennakór Kópavogs og Sigga Beinteins í Digraneskirkju - 6.12.2010

Kvennakór Kópavogs verður sérstakur gestur á tónleikum Siggu Beinteins sem fram fara í Digraneskirkju, fimmtudaginn 9. desember. Guðrún Gunnarsdóttir kemur einnig fram á tónleikunum. Hljóðfæraleikarar verða þeir Kjartan Valdemarsson á flygil og Matthías Stefánsson á gítar og fiðlu.

Nýir starfsmenn boðnir velkomnir til starfa - 1.12.2010

Kópavogsbær hélt í Salnum í gær vel heppnaðan kynningarfund fyrir starfsfólk Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Reykjanesi en sem kunnugt er verða málefni fatlaðra flutt frá ríki til sveitarfélaga nú um áramótin.