des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb.
Snjóhreinsun í Kópavogi hefst klukkan fjögur á gamlársdag og verður unnið fram til klukkan þrjú þann dag en lengur í neyðartilvikum. Á nýársdag verður áhersla lögð á að halda aðalleiðum færum en miðað er við að hefja snjóhreinsun að fullu á ný klukkan fjögur að morgni mánudags.
Sorphirðu seinkar í Kópavogsbæ vegna ófærðar. Kópavogsbúar eru beðnir um að moka snjó frá tunnunum til að auðvelda aðkomu að þeim.
Snjóhreinsun í Kópavogi hófst klukkan fjögur í morgun og fór fram í allan dag þar sem notast var við tuttugu tæki af ýmsum stærðum og gerðum. Stefnt er að því að ryðja sem flestar götur bæjarins, gangstéttir og göngustíga. Aftur verður hafist handa eldsnemma á morgun föstudag og á gamlársdag.
Starfsmenn áhaldahúss Kópavogs munu, eins og undanfarin ár, aðstoða Kópavogsbúa við að fjarlægja jólatré sín 9. og 10. janúar. Þeir bæjarbúar sem vilja nýta sér þessa þjónustu eru vinsamlegast beðnir um að setja jólatrén út fyrir lóðamörk og ganga þannig frá þeim að þau geti ekki fokið.
Rekstrargjöld leikskóla Kópavogs hafa hækkað umtalsvert að undanförnu vegna verðlagshækkana og launahækkana og hefði þeim öllum verið beint til foreldra hefði leikskólagjaldið hækkað um 13 til 14%.
Áramótabrenna verður eins og undanfarin ár í Kópavogsdalnum við Smárahvammsvöll á gamlárskvöld. Kveikt verður í brennunni kl. 20:30 og hefst flugeldasýning kl. 21:10.
Grunnskólanemum með lögheimili á höfuðborgarsvæðinu gefst nú kostur á að kaupa nemakort Strætó bs. en hingað til hafa þau einungis verið í boði fyrir nema á framhalds- og háskólastigi. Nemakortið verður persónukort, sem nemar á aldrinum 6-18 ára fá keypt með staðfestingu á aldri samkvæmt þjóðskrá.
Bæjarskrifstofur Kópavogs verða opnar á hefðbundnum tímum um jól og áramót. Þjónustuver bæjarins opnar þó ekki fyrr en kl. 10:00 þriðjudaginn 27. desember og kl. 10:00 mánudaginn 2. janúar. Starfsfólk Kópavogsbæjar óskar öllum gleðilegrar hátíðar og farsældar á komandi ári.
Bæjarráð ákvað á fundi sínum í morgun að gefa Mæðrastyrksnefnd Kópavogs 1,5 milljónir króna en með því vill bærinn styðja við þá sem höllum fæti standa um jólin.
Seinni fundur bæjarstjórnar í desember verður haldinn fimmtudaginn 22. desember og hefst kl. 10. Fundurinn fer fram í sal bæjarstjórnar að Fannborg 2.
Átta tíma vistun í leikskólum Kópavogs hækkar um 6,9% frá og með 1. janúar 2012. Þar af hækkar sjálft leikskólagjaldið um 7,5% en matur um 5,4%. Þrátt fyrir það er bærinn að greiða meira með hverju barni á næsta ári en á árinu 2011.
Bæjarskrifstofur Kópavogs verða opnar á hefðbundnum tímum um jól og áramót. Þjónustuver bæjarins opnar þó ekki fyrr en kl. 10:00 þriðjudaginn 27. desember og kl. 10:00 mánudaginn 2. janúar. Starfsfólk Kópavogsbæjar óskar öllum gleðilegrar hátíðar og farsældar á komandi ári.
Fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir árið 2012 var samþykkt á fundi bæjarstjórnar í kvöld en að henni standa allir flokkar í bæjarstjórn nema Sjálfstæðisflokkurinn. Í áætluninni er áfram gert ráð fyrir aðhaldi í rekstri og lækkun skulda. Breytingartillögur sjálfstæðismanna voru felldar.
Kópavogsbær hefur endurnýjað samning sinn við Kópavogsdeild Rauða Kross Íslands um rekstur Dvalar, athvarfs fyrir fólk með geðraskanir. Samningurinn var undirritaður af þeim Guðrúnu Pálsdóttur bæjarstjóra og Ingibjörgu Lilju Diðriksdóttur, formanni Kópavogsdeildarinnar.
Nýjar reglur fyrir lista- og menningarsjóð Kópavogsbæjar voru staðfestar á síðasta bæjarstjórnarfundi en þær eru mun ítarlegri en þær sem fyrir voru. Hlutverk sjóðsins er að efla lista- og menningarlíf í Kópavogi. Auglýst verður eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum í byrjun næsta árs.
Hæfingarstöðin Fannborg 6 heldur jólamarkað 2. desember næstkomandi frá klukkan 13:00 til 16:00. Þar verða til sölu jólamunir sem starfsmenn á hæfingarstöðinni hafa búið til á árinu. Allir eru velkomnir.
Í tillögu að fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir árið 2012, sem lögð var fram til fyrri umræðu á bæjarstjórnarfundi síðdegis í dag, er gert ráð fyrir 105,6 milljóna króna rekstrarafgangi af samstæðu. Sjö af ellefu bæjarfulltrúum standa að fjárhagsáætluninni eða fulltrúar þeirra fjögurra framboða sem mynda meirihluta í bænum auk fulltrúa Framsóknarflokksins.
Hátíðartónleikar verða í Salnum fimmtudaginn 1. desember kl. 20:00 með verkum eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson sem er eins og kunnugt er höfundur þjóðsöngsins okkar. Verkin verða í flutningi einvalaliðs tónlistarmanna. Miðaverð er 2.500 krónur.
Ljósin voru tendruð á vinabæjarjólatré Kópavogsbúa á Hálsatorgi í gær. Á sama tíma var haldin aðventuhátíð með ýmsum uppákomum í nærliggjandi söfnum og stofnunum. Stekkjastaur fylgdist með hátíðinni ásamt börnunum í Kópavogi. Skólahljómsveit Kópavogs spilaði og Samkór Kópavogs söng nokkur jólalög.
Dagur íslenskrar tónlistar verður haldinn hátíðlegur 1. desember næstkomandi og í tilefni hans munu allar útvarpsstöðvar landsins spila þrjú íslensk lög samtímis kl. 11.15. Vonast er til að Íslendingar geti sameinast við viðtækin og sungið lög til heiðurs íslenskri tónlist. Sigtryggur Baldursson, tónlistarmaður úr Kópavogi, er einn þeirra sem stendur að viðburðinum.
Ljósin verða tendruð á vinabæjarjólatré Kópavogsbúa á Hálsatorgi, laugardaginn 26. nóvember, kl. 16:00. Jólatréð er gjöf bæjarbúa í Norrköping í Svíþjóð til Kópavogsbúa. Sendiherra Svíþjóðar, Anders Ljunggren, afhendir tréð og Hjálmar Hjálmarsson, forseti bæjarstjórnar, tekur á móti því fyrir hönd bæjarins.
Ákveðið var í haust hjá Kópavogsbæ að gera verulegt átak í því að finna rangtengingar skólplagna frá fyrirtækjum og íbúðarhúsum í bænum en borið hefur á því að slíkar lagnir hafi verið tengdar inn í regnvatnslagnir en þá rennur skólpið óhreinsað í lækina í Kópavogsdal og Fossvogsdal. Hvatt er til þess að íbúar og fyrirtæki leiti sér upplýsinga um tengingar áður en farið er í framkvæmdir.
Unglingar úr Kópavogi stóðu sig mjög vel í hönnunar-, förðunar- og hárgreiðslukeppni unglinga, Stíl, sem fram fór síðastliðna helgi. Um 220 unglingar í 55 liðum hvaðanæva af landinu tóku þátt. Keppnin er samstarfsverkefni félagsmiðstöðva á Íslandi. Lið úr Kópavogi höfnuðu í öðru og þriðja sæti.
Sögufélag Kópavogs var stofnað síðastliðinn fimmtudag í safnaðarheimili Kársnessóknar, Borgum. Um 90 manns sóttu stofnfundinn og var gerður góður rómur að framtakinu. Bæjarstjóri Kópavogs, Guðrún Pálsdóttir, flutti ávarp og færði félaginu veglega bókagjöf og árnaðaróskir.
Bæjarstjórn Kópavogs ákvað á fundi sínum í kvöld að gera Jónas Ingimundarson píanóleikara að heiðursborgara Kópavogs. Með því vill bæjarstjórn sýna honum þakklæti fyrir ómetanlegt starf í þágu tónlistar, menningar og tónlistaruppeldis.
Leikskólabörn í Kópavogi og í Garðabæ urðu margs fróðari um austurríska tónskáldið Wolfgang Amadeus Mozart í Tónlistarsafni Íslands í dag en safnið í samvinnu við Töfrahurðina stendur fyrir þessari fræðslu. Guðmundur Elías Knudsen leikari túlkaði Mozart við mikla hrifningu barnanna.
Til stendur að breyta húsnæði gömlu Zinkstöðvarinnar við Hagasmára 2 og nýta það undir bílaþvottastöð. Þetta er meðal þess sem fram kemur í dreifibréfi skipulags- og byggingardeildar Kópavogsbæjar til íbúa og fyrirtækja í grennd við óbyggða svæðið sunnan Smáralindar.
Unglingadeild Leikfélags Kópavogs frumsýnir glænýtt leikverk er nefnist Vertu úti sunnudaginn 20. nóvember kl. 20.00. Verkið er byggt á á þekktum þjóðsögum og þjóðsagnaminnum.
Að frumkvæði menningar- og þróunarráðs Kópavogsbæjar verður efnt til ljóðasamkeppni meðal grunnskólabarna í Kópavogi í tengslum við ljóðasamkeppnina: Ljóðstafur Jóns úr Vör. Undirbúningur að keppninni er þegar hafinn en úrslit verða kynnt á fæðingarafmæli Jóns úr Vör 21. janúar 2012.
Fjöldi ljóða streymir nú inn í ljóðasamkeppni menningar- og þróunarráðs Kópavogsbæjar sem ber heitið: Ljóðstafur Jóns úr Vör. Skilafrestur rennur út 3. desember. Í dómnefnd eru þau Gerður Kristný, Sigurður Pálsson og Jón Yngvi Jóhannsson.
Bæjarráð hefur samþykkt að taka upp að nýju systkinaafslátt hjá dagforeldrum til að létta greiðslubyrði foreldra vegna daggæslu. Systkinaafsláttur er þegar veittur í leikskólum Kópavogs sem og í dægradvöl í skóla.
Jafnréttis- og mannréttindaráð Kópavogsbæjar hefur falið jafnréttisráðgjafa bæjarins að leggja fram kæru á hendur skemmtistaðnum Players í Kópavogi, umboðsskrifstofunni agent.is og Ólafi Geir Jónssyni þar sem auglýsing um viðburðinn brjóti gegn 29. grein jafnréttislaga. Þá lýsti ráðið í dag vanþóknun sinni á viðburðinum „Dirty Night“ sem halda á annað kvöld.
Hæstiréttur hefur sýknað þrjá bæjarfulltrúa í meiðyrðamáli sem eigendur fyrirtækisins Frjálsrar miðlunar ehf. höfðuðu gegn þeim vegna ummæla um viðskipti félagsins við Kópavogsbæ. Í dómi Hæstaréttar segir m.a. að kjörnir bæjarfulltrúar í Kópavogi hafi sem slíkir sérstakt aðhalds- og eftirlitshlutverk. Svigrúm þeirra til að rækja það hlutverk verði ekki takmarkað nema brýnir lögvarðir hagsmunir annarra krefðust þess.
Kópavogsbær heldur úti líflegri Facebook síðu þar sem áhersla er lögð á að birta fréttir og ýmsan annan fróðleik úr bæjarfélaginu. Kópavogsbúar eru hvattir til að „læka“ síðuna og senda hana áfram til þeirra sem hafa áhuga á því að fylgjast vel með bænum.
Félagar úr Bókmenntaklúbbi Hana–nú lesa úr verkum skáldsins Jakobs Thorarensen í Bókasafni Kópavogs á degi íslenskrar tungu 16. nóvember næstkomandi. Lesturinn fer fram frá kl. 16:00 til 17:00 í Kórnum sem er á fyrstu hæð bókasafnsins. Allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir.
Aðsókn í sundlaugar Kópavogs jókst í haust samanborið við sama tímabil í fyrra en það má rekja til þess að opnunartíminn hefur verið lengdur. Þetta er meðal þess sem fram kemur í mánaðarskýrslu bæjarins fyrir október.
Þjóðarsáttmáli um baráttu gegn einelti var undirritaður af fulltrúum sveitarfélaga og ríkis í Höfða í dag. Tilefnið er að í dag er dagur gegn einelti en með honum er verið að benda á það samfélagsböl sem einelti er. Með sáttmálanum er verið að leggja áherslu á að allir eigi að geta lifað í sátt og samlyndi.
Tæplega fjögur hundruð unglingar sóttu tónlistarhátíðina Kóparokk, árlegan tónlistarviðburð unglinga í Kópavogi, síðastliðið föstudagskvöld. Hátíðin fór fram í félagsmiðstöðinni Ekkó í Kársnesskóla. Eins og við mátti búast var stemmningin mikil og góð og skemmtu ungmennin sér fram eftir kvöldi.
Strætó bs. og VÍS standa fyrir Öryggisdögum næsta mánuðinn – átaki sem miðar að því að fækka slysum í umferðinni og auka öryggi vegfarenda. Sérstaklega verður hugað að því að vagnstjórar haldi hæfilegu bili á milli bíla og fækki með því aftanákeyrslum sem eru algengasta orsök umferðaróhappa á höfuðborgarsvæðinu.
Gerðarsafn - Listasafn Kópavogs er nú komið með Twitter síðu þar sem fylgjast má með öllum þeim spennandi viðburðum og sýningum sem safnið hefur upp á að bjóða. Á laugardag verður til dæmis stefnumót við hönnuði kl. 14:00 í tengslum við sýningu Fatahönnunarfélags Íslands. Sýningin er haldin í tilefni af tíu ára afmæli félagsins.
Kvennakór Kópavogs í samstarfi við Digraneskirkju stendur fyrir góðgerðartónleikum fyrir Mæðrastyrksnefnd Kópavogs næstkomandi sunnudag frá kl. 16:00 til 18:00 í Digraneskirkju. Miðaverð er 2.500 krónur sem renna óskiptar til nefndarinnar.
Hin árlega sala á „Neyðarkalli frá björgunarsveitum“ fer fram um helgina. Hjálparsveit skáta í Kópavogi stendur vaktina víðsvegar í bænum, meðal annars við Smáralind, Smáratorg, Vínbúðina við Dalveg, Krónuna í Lindum, Byko Breidd, Bónus Smiðjuvegi, Bónus Ögurhvarfi, Kosti og Hamraborg.
Hinn heimskunni gítarleikari Manuel Barrueco verður með tónleika í Salnum miðvikudaginn 9. nóvember kl. 20:00. Á efnisskránni má finna sellósvítu eftir Bach, Five Pieces eftir Piazzolla, auk verka eftir Ponce, Albéniz og Tárrega.
Heildarfjöldi farþega Strætó bs. í októbermánuði hefur aldrei verið meiri en í nýafstaðinni talningu, en hann fór nú í fyrsta sinn yfir 900.000 farþega. Þegar bornar eru saman farþegatölur annars vegar í október á síðasta ári og hins vegar í október 2011 er aukningin rúmlega 76 þúsund farþegar, eða 9,15%.
Félagsmiðstöðvadagurinn verður haldinn í Kópavogi á morgun, miðvikudaginn 2. nóvember. Markmiðið er að kynna hið fjölbreytta starf félagsmiðstöðvanna. Opið er frá kl. 17:00 til 19:00 og frá kl. 20:00 til 22:00. Allir velkomnir.
Skólahljómsveit Kópavogs heldur árvissa hausttónleika sína í Háskólabíói þriðjudaginn 8. nóvember kl. 19:30. Tónleikarnir eru öllum opnir og kostar 1.000 krónur inn fyrir 16 ára og eldri, en frítt er fyrir börn. Hægt verður að kaupa miða í Háskólabíói frá kl. 16:00 á tónleikadag.
Starfsmenn áhaldahúss Kópavogsbæjar hafa daglega vaktað Fossvogslæk eftir að nokkurt magn af rottueitri, sem notað er í skólplagnir, fannst í og við lækinn um miðjan september. Athugun leiddi í ljós að eitrið barst í lækinn úr regnvatnskerfi Reykjavíkurborgar.
Sveinn Dúa Hjörleifsson tenór hlaut í vikunni viðurkenningu úr styrktarsjóði Önnu K. Nordal við hátíðlega athöfn í Salnum, tónlistarhúsi Kópavogs. Í kjölfarið opnaði Sveinn Dúa síðdegis-tónleikaröð Salarins með tónleikum þar sem íslensk sönglög eru á efnisskránni.
Liðsmenn félagsmiðstöðvarinnar Jemen stóðu uppi sem sigurvegarar í Getkó, árlegri spurningakeppni félagsmiðstöðva unglinga í Kópavogi. Í öðru sæti varð félagsmiðstöðin Igló og í þriðja sæti varð félagsmiðstöðin Þeba.
Sveinn Dúa Hjörleifsson tenór, Sigríður Aðalsteinsdóttir mezzósópran, Gunnar Guðbjörnsson tenór, og Viðar Gunnarsson bassi, flytja íslensk sönglög á fjórum síðdegistónleikum í Salnum í lok október og í nóvember. Slíkir síðdegistónleikar voru á dagskrá Salarins fyrir nokkrum árum og nutu mikilla vinsælda.
Punkhátíð verður haldin í Kópavogi, laugardaginn 22. október. Tilgangurinn er að minnast þess þegar fyrstu tónar punksins hljómuðu í Kópavoginum í kringum 1980. Tónleikar fara fram í Molanum og á Spot og munu stíga á svið meðlimir hljómsveita á borð við Fræbbblanna, Q4U, Snillinganna, Vonbrigða, Tappa Tíkarrass, Taugadeildar og fleiri. Hátíðin er styrkt af Kópavogsbæ.
Sýningin Eyjafjarðarfossar verður opnuð í anddyri Náttúrufræðistofu Kópavogs laugardaginn 22. október. Á sýningunni eru ljósmyndir af 42 fossum í eyfirskum vatnsföllum eftir séra Svavar Alfreð Jónsson prest við Akureyrarkirkju. Sýningin stendur yfir til 1. desember.
Gunnar Hilmarsson, fatahönnuður og eigandi Andersen & Lauth, heldur fyrirlestur um ævi og starf Indriða Guðmundssonar klæðskera í Gerðarsafni kl. 14:00 á laugardag. Þar stendur nú yfir afmælissýning Fatahönnunarfélags Íslands og er Indriða minnst með ýmsum hætti í tengslum við sýninguna. Indriði lést fyrir aldur fram árið 2006 einungis fertugur að aldri.
Þau Adolf Petersen menntaskólakennari, Anna Lilja Þórisdóttir blaðamaður og Björn Grétar Stefánsson verkfræðingur keppa fyrir hönd Kópavogsbæjar í Útsvari, spurningakeppni Sjónvarpsins, í vetur.
Sannkölluð tískusýning stendur nú yfir í Gerðarsafni, listasafni Kópavogs, en þar er hægt að sjá fatnað 38 íslenskra fatahönnuða. Fatahönnunarfélag Íslands stendur að sýningunni en það fagnar tíu ára afmæli sínu um þessar mundir. Sýningin stendur til 13. nóvember.
Opinn fundur um réttindi fatlaðs fólks verður haldinn í Boðanum, Boðaþingi 9, nú á miðvikudag frá kl. 17:00 til 18:30. Fundurinn er liður í fundaröð Öryrkjabandalags Íslands og er haldinn í samstarfi við Kópavogsbæ. Yfirskriftin er: Fatlað fólk á tímamótum. Eru mannréttindi virt?
Það var falleg stund í Tónlistarsafni Íslands síðastliðinn föstudag er hinn heimsfrægi sellóleikari Erling Blöndal Bengtsson afhenti safninu til varðveislu fyrsta sellóið sem hann eignaðist sem barn og var sérsmíðað fyrir hann.
Leikskólar Kópavogs, átján að tölu, hafa samþykkt nýja umhverfisstefnu. Með henni er m.a. stefnt að því að börn þekki og beri virðingu fyrir umhverfi sínu. Leikskólunum ber að starfa í samræmi við umhverfisstefnuna og gera hana sýnilega.
Kökur ársins voru valdar í félagsmiðstöðinni Kjarnanum í Kópavogsskóla síðastliðinn föstudag og voru 22 kökur skráðar til keppni. Að baki hverri köku voru tveir til fjórir kökumeistarar. Allir á unglingastigi Kópavogsskóla gátu tekið þátt.
Hinn heimsfrægi sellóleikari Erling Blöndal Bengtsson hefur ákveðið að afhenda Tónlistarsafni Íslands til varðveislu fyrsta sellóið sem hann eignaðist sem barn og var sérsmíðað fyrir hann.
Bæjarstjórnarfundur í Kópavogi stendur nú yfir í Hörðuvallaskóla en þar hefur bæjarbúum gefist kostur á að bera fram fyrirspurnir í fundarhléi og ræða við bæjarfulltrúa. Markmiðið er að færa bæjarstjórnarfundi nær íbúunum.
Talið er að yfir tíu þúsund manns hafi lagt leið sína á Íslensku sjávarútvegssýninguna sem haldin var í Smáranum og Fífunni í Kópavogi dagana 22. til 24. september. Þetta er í fimmta sinn sem sýningin er haldin í Kópavogi og hefur bærinn stutt hana með ýmsum hætti.
Íslenska sjávarútvegssýningin verður haldin í tíunda sinn í Smáranum og í Fífunni í Kópavogi dagana 22. til 24. september. Sýningin hóf göngu sína árið 1984 og hefur verið haldin á þriggja ára fresti síðan þá. Búist er við því að þúsundir gesta muni leggja leið sína á sýninguna.
Töfrahurðin er núna að hefja sitt þriðja starfsár. Á þessu starfsári verða þrennir tónleikar. Þeir fyrstu sunnudaginn 25. september kl. 13:00, í Salnum í Kópavogi.
Í tilefni evrópskrar samgönguviku opnar Kópavogur nýjan athugasemdavef um hjólastíga í Kópavogi. Sem liður í opinni stjórnsýslu og samvinnu við íbúa bæjarins óskar bærinn nú eftir ábendingum um net hjólastíga sem gerð hefur verið tillaga um. Athugasemdafrestur er til 16. október 2011.
Evrópska samgönguvikan hefst 16. september og tekur Kópavogsbær þátt í henni ásamt öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu. Markmiðið er að vekja fólk til umhugsunar um umhverfi sitt og hvetja það til að nota almenningssamgöngur, hjóla eða að ganga.
Bæjarstjórn Kópavogs heldur bæjarstjórnarfund í Hörðuvallaskóla þriðjudaginn 27. september en markmiðið er að færa fundina nær bæjarbúum. Íbúar eru hvattir til að mæta og spjalla við bæjarfulltrúa í fundarhléi.
Landsfundur jafnréttisnefnda sveitarfélaga sem haldinn var í Kópavogi um helgina brýnir fyrir sveitarfélögum landsins að vinna markvisst að því að útrýma kynbundnum launamun.
Þórunn Björnsdóttir, kórstjóri skólakórs Kársnesskóla, hlaut í gær jafnréttisviðurkenningu jafnréttis- og mannréttindaráðs Kópavogsbæjar. Viðurkenninguna fær hún fyrir ötult starf sitt í yfir þrjá áratugi við að kenna börnum skólans að syngja í kór og stuðla með því að jafnrétti til tónlistariðkunar.
Ritlistarhópur Kópavogs stendur fyrir minningardagskrá um dánu skáldin úr Kópavogi þriðjudaginn 13. september í Forsælunni við Salinn í Kópavogi. Dagskráin hefst kl. 20:00. Ættingjar og vinir flytja stutt erindi um átta skáld sem gengin eru yfir móðuna miklu. Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis.
Náttúrufræðitíminn hjá krökkunum í 7. bekk gleymmérei í Vatnsendaskóla í Kópavogi var heldur óvenjulegur í gær því rektor Háskóla Íslands, Kristín Ingólfsdóttir, heimsótti bekkinn og kenndi hvernig nota mætti þara í lyf og mat. Heimsóknin er liður í afmælishátíð HÍ en skólinn fagnar sem kunnugt er hundrað ára afmæli sínu um þessar mundir.
Samningur um þjónustu við fimm fullorðna fatlaða einstaklinga sem búa að Kastalagerði 7 í Kópavogi var í dag undirritaður af hálfu Kópavogsbæjar og Áss styrktarfélags. Markmiðið er að íbúar Kastalagerðis fái þá þjónustu sem mætir hvað best óskum þeirra, aðstæðum og þörfum.
Nemendur Vatnsendaskóla fá góðan gest til sín á mánudag en þá ætlar Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, að kenna sjöunda-gleymmérei allt um það hvernig nota megi þara í mat og lyf. Tilefni heimsóknarinnar er afmælishátíð HÍ en skólinn fagnar hundrað ára afmæli sínu um þessar mundir.
Leikskólabörn á leikskólanum Álfaheiði gróðursettu tvö eplatré á leikskólalóðinni í morgun. Tilefnið var að í sumar fóru fram endurbætur á lóðinni sem heppnuðust mjög vel. Börnin munu án efa hlúa vel að trjánum og fylgjast spennt með því hvort lítil epli líti dagsins ljós einn góðan veðurdag.
Einar Clausen söngvari hlaut í dag umhverfisviðurkenningu umhverfis- og samgöngunefndar Kópavogsbæjar fyrir að nota hjólreiðar sem aðalsamgöngumáta sinn síðastliðin fimmtán ár. Fjórar aðrar umhverfisviðurkenningar voru veittar þeim sem þykja hafa skarað fram úr í umhverfismálum í Kópavogi og sýnt þar með gott fordæmi.
Árlegur landsfundur jafnréttisnefnda sveitarfélaga verður haldinn í Kópavogi dagana 9. til 10. september. Guðrún Pálsdóttir bæjarstjóri setur fundinn. Á honum taka þátt fulltrúar í jafnréttisnefndum sveitarfélaga en einnig eru velkomnir fulltrúar sveitarstjórna sem ekki hafa skipað jafnréttisnefndir.
Námsmenn í framhaldsskólum eða háskólum á höfuðborgarsvæðinu með lögheimili í Kópavogi eiga eins og síðastliðin tvö ár kost á að kaupa nemakort hjá Strætó. Kortið veitir aðgang að almenningsvögnum Strætó á gjaldsvæði 1.
Skólastarfið er hafið í Kópavogi en skólasetning í níu grunnskólum bæjarins fór fram á mánudag. Um 4.280 nemendur stunda nám í skólunum í vetur. Þar af eru um 420 í 1. bekk.
Vetraráætlun Strætó 2011-2012 tekur gildi sunnudaginn 21. ágúst. Tíðni ferða eykst á flestum leiðum og verður svipuð og síðasta vetur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Strætó bs.
Hamraborgarhátíðin verður haldin í annað sinn í Kópavogi laugardaginn 3. september nk. Hamraborginni verður breytt í göngugötu þar sem Kópavogsbúar og aðrir gestir geta gert sér glaðan dag. Þar verður m.a. hægt að gera góð kaup á útimarkaði og verslanir og önnur fyrirtæki verða með tilboð á vörum sínum og þjónustu.
Komi til verkfalls félaga í Félagi leikskólakennara á mánudag hefur það áhrif á starfsemi leikskóla í Kópavogi. Þegar þetta er ritað hafa samningsaðilar, þ.e. samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga og samninganefnd Félags leikskólakennara, ekki komið sér saman um starfsemi skólanna í boðuðu verkfalli og því verður ágreiningnum vísað til félagsdóms.
Uppskeruhátíð Skapandi sumarstarfa fór fram í lok júlí og tókst ljómandi vel að sögn Sigríðar Bjarkar Ævarsdóttur, starfsmanns Molans, ungmennahúss Kópavogsbæjar. Á uppskeruhátíðinni sýndu ungmennin í Skapandi sumarstörfum afrakstur sumarsins.
Um hundrað ungir og efnilegir tónlistarmenn, innlendir sem erlendir, taka þátt í Tónlistarhátíð unga fólksins sem fram fer í fjórða sinn á menningartorfunni í Kópavogi. Hátíðin er styrkt með framlagi úr lista- og menningarsjóði bæjarins.
Sumarhátíð Vinnuskóla Kópavogs fór fram undir lok júlímánaðar en þar með lauk sumarstarfi yfir 800 unglinga á aldrinum 14 til 16 ára hjá Kópavogsbæ. Hátíðin var haldin á túninu við Vinnuskólann í Fífuhvammi og heppnaðist vel.
Guðrún Pálsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, hefur sent íbúum Þrándheims, vinabæjar Kópavogs, samúðarkveðjur vegna hryðjuverkanna í Útey og Ósló. „Hugur okkar og Íslendinga allra er hjá norsku þjóðinni vegna hinna skelfilegu atburða í Noregi," segir m.a. í kveðju bæjarstjórans.
Uppskeruhátíð Skapandi sumarstarfa hjá Molanum, ungmennahúsi Kópavogs, fer fram á morgun, fimmtudag. Götuhátíð verður á Hálsatorgi frá kl. 11:00 til 14:00 og um kvöldið verður gestum og gangandi boðið í Molann að Hábraut 2. Allir eru velkomnir.
Héraðsskjalasafn Kópavogs stendur fyrir fræðslugöngu um hernámsárin í Kópavogi á morgun, þriðjudaginn 19. júlí. Gangan hefst kl. 17:00 og eru allir velkomnir. Gangan tekur um það bil klukkutíma.
Ráðgert er að reisa 28 íbúða fjölbýlishús fyrir eldri borgara á Kópavogstúni 2 til 4 á næstu tveimur árum samkvæmt viljayfirlýsingu byggingafyrirtækisins Dverghamra og Samtaka aldraðra sem undirrituð var í gær.
Betra er að sjá lausnir en að velta sér upp úr vandamálum, segir m.a. í niðurstöðum nefndar leikskóla Kópavogs sem falið var að leita leiða til að létta starfið í leikskólum bæjarins. Nefndin var skipuð á vorönn 2008 og voru niðurstöðurnar dregnar saman í skýrslu sem kom út nýverið.
Nú stendur yfir í Gerðarsafni, Listasafni Kópavogs, sýning Finnboga Péturssonar og Árna Páls Jóhannssonar sem ber heitið: Góðir Íslendingar. Þeir hafa unnið að sýningunni mjög lengi og segja margra áratuga vinnu loks lokið. Sýningin stendur yfir til 31. júlí.
Fjölmargir krakkar úr Kópavogi taka þátt í sumarnámskeiðum á vegum frístunda- og forvarnadeildar Kópavogsbæjar. Nokkur námskeið fara fram í félagsmiðstöðvunum Ekkó, Kúlunni og Pegasus og fór einn hópurinn nýverið í vettvangsferð upp á Ríkisútvarp í Efstaleiti.
Kópavogsbær óskar eftir dagforeldrum til starfa í Kópavogi. Þeir sem gerast dagforeldrar þurfa að uppfylla ákveðin skilyrði. Nánari upplýsingar um daggæslu barna í heimahúsum má finna á vef bæjarins.
Kópavogsbær hefur nú boðið öllum þeim 1.100 ungmennum sautján ára og eldri sem sóttu um sumarvinnu hjá bænum vinnu en alls um 710 hafa þegið hana. Allir unglingar á aldrinum 14 til 16 ára sem þess óskuðu, um 850, fengu auk þess vinnu hjá Vinnuskóla Kópavogs.
Götuleikhús Kópavogs frumsýndi barnaleikritið Hamingjusami vinnumaðurinn og bleika prinsessan á Rútstúni 17. júní. Er skemmst frá því að segja að leikritið hlaut frábærar viðtökur. Það verður sýnt í leikskólum Kópavogs á næstu dögum og vikum.
Bæjarráð Kópavogs hefur ákveðið að fella niður heimgreiðslur til foreldra frá og með 1. september 2011. Það þýðir að síðustu greiðslurnar verða inntar af hendi 1. júlí vegna júlímánaðar en heimgreiðslur ná ekki til ágústmánaðar.
Kópavogsbúar héldu þjóðhátíðardaginn hátíðlegan í dag 17. júní. Á Rútstúni var margt um manninn, haldnar voru ræður, sungið og spilað og börnin skemmtu sér í ýmsum leiktækjum. Dagurinn endaði svo með útitónleikum.
Sautjándi júní verður að venju haldinn hátíðlegur í Kópavogi með fjölbreyttri dagskrá. Hún hefst kl. 10:00 með hressandi tónum brassbands Skólahljómsveitar Kópavogs en pallbílar Kópavogsbæjar aka um með hljómsveitina á milli hverfa.
Um 850 unglingar á aldrinum 14 til 16 ára hófu störf í Vinnuskóla Kópavogs í dag. Allir þeir sem sóttu um fengu vinnu. Helstu verkefni skólans eru snyrting og fegrun bæjarins en elstu unglingunum býðst einnig að vinna við aðstoðarstörf hjá ýmsum stofnunum og félögum í bænum.
Snælandsskóli hlaut nýverið hvatningarverðlaun skólanefndar Kópavogsbæjar. Hannes Baldursson tónmenntakennari tók við verðlaununum úr hendi Rannveigar Ásgeirsdóttur, formanns nefndarinnar. Verðlaunin eru veitt fyrir verkefnið Listsköpun á yngsta stigi.
Um hundrað ungmenni í Kópavogi frá átján ára aldri fá vinnu við skógræktarverkefni í bænum í sumar en það er liður í atvinnuátaki Kópavogsbæjar, Skógræktarfélags Íslands, Skógræktarfélags Kópavogs og Vinnumálastofnunar.
Gerpla fagnar fjörutíu ára afmæli sínu í ár og hélt af því tilefni glæsilega veislu um helgina. Bæjarstjóri Kópavogs, Guðrún Pálsdóttir, flutti þar ávarp og óskaði félagsmönnum til hamingju með stórafmælið.
Stofnfundur Miðbæjarsamtaka Kópavogs fer fram mánudaginn 6. júní kl. 18:30 í húsnæði Rauða krossins, Hamraborg 11.
Hin árlega Jazz- og blúshátíð er hafin í Kópavogi en Björn Thoroddsen tónlistarmaður er listrænn stjórnandi hennar. Aðal tónleikarnir verða í Salnum föstudagskvöldið 3. júní. Miða er hægt að nálgast á vef Salarins.
Opnunartími sundlauga Kópavogs verður lengdur frá og með 1. júní og verður opið mánudaga til föstudaga frá kl. 6:30 til 22:00 og um helgar frá kl. 8:00 til 20:00.
Um fjörutíu gestir sóttu alþjóðlega ráðstefnu í tónlistarfræðum sem haldin var í Tónlistarsafni Íslands dagana 18. til 21. maí sl. Bjarki Sveinbjörnsson, forstöðumaður tónlistarsafnsins, er ánægður með hve vel ráðstefnan heppnaðist. Hann segir að framhaldsráðstefna verði haldin í Köln, Þýskalandi, í haust.
Áheyrnarprufur fyrir Götuleikhús Kópavogs fara fram sunnudaginn 29. maí kl. 14:00 í Leikhúsinu, húsnæði Leikfélags Kópavogs, Funalind 2. Götuleikhúsið er fyrir þá sem útskrifast úr 10. bekk í vor.
Leikhópurinn Lotta sýnir glænýtt íslenskt leikrit um Mjallhvíti og dvergana sjö þann 31. maí á Rútstúni. Sýningin hefst kl. 18:00. Þetta er fimmta sumarið sem leikhópurinn setur upp útisýningu en síðastliðin sumur hefur hópurinn tekist á við Hans klaufa, Rauðhettu, Galdrakarlinn í Oz og Dýrin í Hálsaskógi.
Árleg vorsýning á handverki eldra fólks fór fram í Gjábakka, félagsheimili eldra fólks í Kópavogi, um miðjan mánuðinn. Um áttatíu manns sýndu verk sín á sýningunni sem var mjög vel sótt. Talið er að um 450 manns hafi komið á sýninguna. Þar var boðið upp á vöfflur og kaffi.
Fjárhagsaðstoð Kópavogsbæjar til einstaklinga og fjölskyldna jókst verulega á síðasta ári frá árinu á undan. Nam aðstoðin í fyrra tæpum 230 milljónum króna samanborið við 170 milljónir árið 2009. Alls nutu 555 fjölskyldur og einstaklingar þessarar aðstoðar á síðasta ári samanborið við 495 árið á undan. Þetta er meðal þess sem fram kemur í ársskýrslu Félagsþjónustu Kópavogs fyrir árið 2010.
Loftgæði á höfuðborgarsvæðinu hafa verið misjöfn síðan aska tók að berast frá gosinu í Grímsvötnum aðfararnótt 23. maí. Þá voru mæligildi svifryks há. Reikna má með að mæligildin komi til með að sveiflast áfram. Öskufall á höfuðborgarsvæðinu var samt ekkert í líkingu við það sem hefur verið fyrir austan fjall og á Suðurlandi. Mælingar hafa sýnt hátt svifryk í lofti á höfuðborgarsvæðinu á álagstímum í umferðinni, þegar vindur er sterkur og jörð þurr. Er þar að einhverju leyti á ferðinni gosaska sem þyrlast upp.
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fylgist grannt með þróun gossins í Grímsvötnum og hvaða áhrif mögulegt öskufall gæti haft á höfuðborgarsvæðinu. Öskuskýið fór vestur yfir landið í gær og aska barst yfir höfuðborgarsvæðið í gærkvöldi og í nótt. Veðurspá gerir hins vegar ráð fyrir norðlægum áttum 23. maí og þá dregur úr mengun.
Unglingar í félagsmiðstöðinni Þebu í Smáraskóla söfnuðu á dögunum 62.500 krónum til styrktar börnum og unglingum í Japan. Með þessu vilja unglingar í Kópavogi styðja jafnaldra sína í Japan vegna jarðskjálftanna sem þar hafa riðið yfir. Fénu var safnað með miðasölu á árshátíð Þebu og Smáraskóla.
Úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála hefur kveðið upp þann úrskurð að sú ferðaþjónusta sem Kópavogsbær veitir lögblindum einstaklingum í bænum samræmist lögum um málefni fatlaðra.
Yfir 93% foreldra telja að mjög vel eða vel hafi verið staðið að aðlögun barns í leikskóla í Kópavogi og flutningi milli deilda. Um 90% segja að mjög vel eða vel sé tekið á móti barninu þegar það kemur í leikskólann að morgni og það sama á við þegar barn er kvatt þegar það fer heim síðdegis.
Opnað hefur verið fyrir skráningu í Skólagarða Kópavogs fyrir sumarið 2011. Skráning stendur yfir til 26. maí.
Héraðsskjalasafn Kópavogs stóð fyrir málstofu um sögu Kópavogs á nýliðnum Kópavogsdögum. Var hún haldin á 56. afmælisdegi kaupstaðarréttinda Kópavogsbæjar, miðvikudaginn 11. maí. Í ár eru jafnframt liðin 63 ár síðan Kópavogur varð sjálfstætt sveitarfélag, það gerðist með stofnun Kópavogshrepps 1. janúar 1948.
Sunnudagsskóli Lindakirkju nk. sunnudag fer fram í Salalaug. Hann hefst á hefðbundnum tíma kl. 11:00. Umsjón með stundinni hefur séra Guðmundur Karl Brynjarsson. Hann nýtur aðstoðar sunnudagsskólakennara Lindakirkju. Áætlað er að stundin taki um 25 mínútur.
Það var líf og fjör á túninu við safna- og menningarhúsin í Kópavogi fyrir hádegi í dag en þangað mættu um hundrað leikskóla - og grunnskólabörn til að taka þátt í flugdrekadeginum. Dagurinn er haldinn í tilefni Kópavogsdaga, menningarhátíðar bæjarins.
Sundlaug í þjónustumiðstöð Kópavogsbæjar við Boðaþing var vígð við hátíðlega athöfn í dag. Laugin er hönnuð með þarfir eldra fólks í huga og við hana eru tveir heitir pottar. Hún verður fyrst um sinn nýtt af íbúum hjúkrunarheimilis Hrafnistu og leiguíbúða DAS. Til framtíðar er stefnt að því að hún nýtist fleirum og vonandi sem flestum Kópavogsbúum.
Kópavogsbær fagnar 56 ára afmæli sínu í dag en bærinn hlaut kaupstaðarréttindi 11. maí árið 1955. Fjölmargt er um að vera í bænum og má nefna að kl. 16:00 verður opnuð í Náttúrufræðistofu Kópavogs sýningin Holað í steininn.
Rekstrarafkoma Kópavogsbæjar á árinu 2010 var betri en ráð var gert fyrir í fjárhagsáætlun ársins. Hún var jákvæð um 1.032 milljónir króna en árið á undan var hún neikvæð upp á 4.068 milljónir króna. Rekstrarniðurstaða bæjarins varð 988 milljónum krónum betri en áætlunin.
Eins og áður hefur komið fram er fyrirhugað að Kópavogsbær, í samstarfi við Vinnumálastofnun, fari í atvinnuátak sem mun veita 38 Kópavogsbúum sumarstörf til viðbótar þeim 600 sem þegar hafa fengið vinnu hjá bænum.
Fjölmargir lögðu leið sína á Kópavogsdaga, menningarhátíð Kópavogs, sem hófust um helgina. Eldri borgarar sýndu þar meðal annars uppskeru sína eftir veturinn, svo sem málverk, vefnað og tréskurð. Dagskráin er sem fyrr afar fjölbreytt en hátíðin stendur óslitið til 14. maí.
Bæjarráð Kópavogs hefur samþykkt að styðja við verkefni félagsins Þríhnúka ehf. en markmið þess er að gera gíghvelfingu Þríhnúkagígs á Bláfjallafólkvangi aðgengilegan almenningi og reka þar ferðamannamóttöku í framtíðinni.
Kópavogsdagar, árleg menningarhátíð Kópavogsbæjar, hefjast laugardaginn 7. maí og standa óslitið til 14. maí. Þetta er í áttunda sinn sem Kópavogsdagar eru haldnir.
Menningar- og þróunarráð Kópavogs auglýsir eftir styrkjum úr lista- og menningarsjóði bæjarins. Umsóknarfrestur er til 25. maí. Markmiðið er að efla menningarlífið í bænum.
Skipulagsnefnd Kópavogs boðar til fundar um endurskoðun aðalskipulags bæjarins og Staðardagskrár 21. Fundurinn verður haldinn í Hörðuvallaskóla við Baugakór fimmtudaginn 5. maí nk. kl. 17:00 – 18:30.
Skráning á sumarnámskeið hjá Kópavogsbæ er hafin en miðað er við að fleiri en þúsund börn og unglingar verði á námskeiðum á vegum bæjarins í sumar. Námskeiðin eru mjög fjölbreytt og því ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi.
Hin árlega menningarhátíð Kópavogs, Kópavogsdagar, fer fram 7. til 14. maí. Menningarstofnanir bæjarins verða með ýmsar skemmtilegar uppákomur á dögunum en jafnframt eru þeir sem vilja leggja sitt af mörkum hvattir til að skrá viðburð sinn á kopavogsdagar.is.
Íbúagátt vegna endurskoðunar aðalskipulags Kópavogs og Staðardagskrár 21 var opnuð í dag. Þar má finna gögn sem tengjast endurskoðuninni og upplýsingar um samráðsfundi með íbúum. Kynningarfundur um endurskoðunina fer fram 5. maí nk. í Hörðuvallaskóla við Baugakór. Fundurinn hefst kl. 17:00 og stendur yfir í einn og hálfan tíma.
Börn í 1. bekk í Kársnesskóla tóku á móti reiðhjólahjálmum frá Kiwanishreyfingunni og Eimskipafélagi Íslands í vikunni. Það gerðu einnig fleiri börn á höfuðborgarsvæðinu. Bæjarstjórar voru viðstaddir athöfnina. Gjöfin er liður í því markmiði Kiwanis og Eimskips að öll börn verði örugg í umferðinni.
Verk leikskólabarnanna á deildinni Steinholti á Kópasteini hlaut önnur verðlaun í listaverkasamkeppni Græns apríls. Erla Vigdís Kristinsdóttir leikskólakennari átti hugmyndina að verkinu sem eru fuglahús úr mjólkurfernum. Fuglahúsin eru litrík og falleg. Síðast en ekki síst eru þau umhverfisvæn.
FRESTAÐ VEGNA VEÐURS FRAM Á MÁNUDAG! Skógræktarfélag Kópavogs í samvinnu við umhverfissvið Kópavogsbæjar stendur fyrir skógar- og fjölskyldugöngu fimmtudaginn 28. apríl. Gangan fer fram í tilefni verkefnisins Græns apríls sem Kópavogsbær tekur þátt í.
Í tilefni aldarafmælis listakonunnar Barböru Árnason verður yfirlitssýning með verkum hennar opnuð í Gerðarsafni, Listasafni Kópavogs, 19. apríl. Sýningin stendur yfir til 5. júní.
Frá og með deginum í dag verður hægt að sækja um störf hjá Vinnuskóla Kópavogs. Hann verður starfræktur frá 14. júní til 21. júlí. Allir unglingar sem búsettir eru í Kópavogi og ljúka 8., 9. og 10. bekk í vor fá vinnu. Umsóknarfrestur rennur út 18. maí.
Fyrirhugað er að Kópavogsbær, í samstarfi við Vinnumálastofnun, fari í atvinnuátak sem mun veita 38 Kópavogsbúum sumarstörf til viðbótar þeim 600 sem þegar hefur verið ákveðið að fái vinnu.
Jafnréttis- og mannréttindanefnd Kópavogsbæjar auglýsir eftir tilnefningum vegna árlegrar jafnréttisviðurkenningar. Viðurkenningin verður veitt í tíunda sinn. Frestur til að senda inn tilnefningar rennur út 1. júní.
B-sveit Skólahljómsveitar Kópavogs fékk á dögunum viðurkenningu fyrir framúrskarandi samleik í grunnnámi á uppskeruhátíð tónlistarskólanna, Nótunni, sem haldin var í Langholtskirkju.
Bókasafnsdagurinn fer fram á morgun, fimmtudaginn 14. apríl, en markmiðið er að beina augum fólks að mikilvægi bókasafna. Af því tilefni verða ýmsar uppákomur, leikir og fræðsla, í Bókasafni Kópavogs og í útibúi þess Lindasafni.
Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti á fundi sínum nýverið að bjóða bæjarbúum frítt í sund á sumardaginn fyrsta. Í bænum eru tvær glæsilegar sundlaugar, Sundlaug Kópavogs við Borgarholtsbraut og Sundlaugin Versölum við Versali.
Dregið var á milli tveggja umsókna um lóð í Dalaþingi 25 í Kópavogi á fundi bæjarráðs Kópavogs í morgun. Þetta er í annað sinn sem dregið er á milli umsækjenda um lóð í Kópavogi eftir hrun. Kópavogsbæ hefur frá áramótum borist 11 umsóknir um lóðir fyrir sérbýli og 8 fyrir fjölbýli. Á sama tímabili í fyrra var einungis sótt um tvær sérbýlislóðir.
Tveir kjörstaðir verða í Kópavogi vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar laugardaginn 9. apríl. Íbúar vestan Reykjanesbrautar og í Lindahverfi kjósa í íþróttahúsinu Smáranum. Íbúar austan Reykjanesbrautar að frátöldum þeim sem búa í Lindahverfi kjósa í íþróttahúsinu Kórnum. Kjörfundur hefst kl. 9:00 og lýkur kl. 22:00.
Steinasafn sem Náttúrufræðistofu Kópavogs barst fyrir rúmi ári úr dánarbúi Ólínu Sigurðardóttur og Dags Daníelssonar á Álfhólsvegi 82, hefur nú verið flokkað og skráð. Að sögn Hilmars J. Malmquist, forstöðumanns Náttúrufræðistofunnar, er um að ræða stórt og gott safn steina, með um 200 eintökum víðs vegar að af landinu.
Fyrstu þrír mánuðir ársins hafa gengið vel í akstri Strætó bs. og fækkaði óhöppum alla mánuðina frá sömu mánuðum á síðasta ári, sem þó var metár hvað varðar öryggi í akstri Strætó. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Strætó.
Um 130 sveitarstjórnarmenn og lykilembættismenn frá öllum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu funduðu í Menntaskólanum í Kópavogi um helgina til að móta sameiginlega framtíðarsýn fyrir Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH).
Kópavogsbær tekur þátt í Grænum apríl en það er verkefni sem áhugafólk um umhverfismál hefur hrint í framkvæmd. Markmið verkefnisins er m.a. að vekja athygli á umhverfismálum. Af þessu tilefni hyggst bærinn halda fjölskyldu- og skógargöngu í samstarfi við Skógræktarfélag Kópavogs í lok apríl. Gangan verður auglýst síðar.
Lokatónleikar til minningar um Sigfús Halldórsson, tónskáld og heiðursborgara Kópavogsbæjar, verða haldnir í Salnum föstudaginn 1. apríl kl. 20:00. Þar verða perlur Fúsa fluttar af þeim Stefáni Hilmarssyni, Andreu Gylfadóttur og Agli Ólafssyni.
Ása Arnfríður Kristjánsdóttir, lögfræðingur hjá Kópavogsbæ, hefur tekið við verkefnum jafnréttisráðgjafa hjá bænum. Jafnréttisráðgjafi starfar með jafnréttis- og mannréttindaráði og sér m.a. um að fylgja eftir jafnréttisstefnu bæjarins í samvinnu við ráðið og bæjaryfirvöld.
Leiðsögn verður um sýningu blaðaljósmyndara í Gerðarsafni næstu sunnudaga en á sýningunni eru 171 mynd eftir íslenska blaðaljósmyndara. Enn fremur eru á sýningunni verðlaunamyndskeið úr sjónvarpi.
Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti í gær að endurnýja ekki þjónustusamning við núverandi rekstraraðila leikskólans Kjarrsins ehf. Jafnframt var samþykkt að rekstur skólans yrði færður undir rekstur leikskólans Smárahvamms sem stendur á næstu lóð. Innra starf skólanna verður óbreytt og börn verða ekki flutt á milli húsa. Það þýðir m.ö.o. að leikskólabörn Kjarrsins verða áfram í sama húsnæði.
Leikfélag Kópavogs frumsýndi nýverið sprenghlægilegan gamanleik sem ber yfirskriftina Bót og betrun – fimm hurða farsi úr félagslega kerfinu. Bót og betrun segir frá bótasvindlaranum Eric Swan sem grípur til svika þegar hann missir vinnuna.
Fjöllistahópurinn Slagverksmiðjan kemur fram ásamt Sigtryggi Baldurssyni tónlistarmanni kl. 19:30 í Gerðarsafni, listasafni Kópavogs, í kvöld. Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis.
Í dag fór í loftið nýr og endurbættur vefur Kópavogsbæjar. Unnið hefur verið að honum í all nokkurn tíma og hafa fjölmargir starfsmenn bæjarins komið að þeirri vinnu. Markmiðið er að gera vef bæjarins meira aðlaðandi og auðveldari í notkun fyrir bæjarbúa.
Húsafriðunarnefnd hefur samþykkt að undirbúa friðun tveggja gamalla húsa á Kópavogstúni, gamla Kópavogsbæjarins og Kópavogshælisins. Skipulagsnefnd Kópavogsbæjar ákvað á síðasta ári að óska eftir því að húsin yrðu friðuð. Það kemur í hlut menntamálaráðherra að friða húsin að fenginni tillögu húsafriðunarnefndar. Vonast er til þess að af því verði fljótlega.
Hin árlega upplestrarkeppni í 7. bekk var haldin í Salnum 8. mars sl. Keppendur voru 18 frá 9 grunnskólum í Kópavogi. Sigurvegari að þessu sinni var Katrín Kristinsdóttir, Salaskóla. Í 2. sæti var Ingveldur Lúðvíksdóttir Gröndal, Snælandsskóla og í 3. sæti var Marta Andrésdóttir, Snælandsskóla.
Sýning um Sveinbjörn Sveinbjörnsson, tónskáld og höfund íslenska þjóðsöngsins, stendur yfir í Tónlistarsafni Íslands að Hábraut 2 í Kópavogi. Kveikjan að sýningunni er sú að safninu hafa borist fjöldi muna frá Eleanor Oltean, barnabarni Sveinbjörns í Kanada, sem aldrei fyrr hafa komið almenningi fyrir sjónir.
Guðríður Gísladóttir, Kópavogsbúi til margra ára, færði um daginn Náttúrufræðistofu Kópavogs að gjöf myndarlegt safn steina og kristalla sem hún og eiginmaður hennar, Haukur heitinn Einarsson, höfðu safnað víðs vegar að af landinu. Að sögn Hilmars J. Malmquist forstöðumanns Náttúrufræðistofunnar er góður fengur að gjöfinni.
Búið er að troða gönguskíðabraut á golfvelli GKG í Vetrarmýri. Það voru starfsmenn þjónustumiðstöðvar Garðabæjar og GKG ásamt Dráttarbílum sem sameinuðust í þessu verkefni. Brautin er um 2,5 km að lengd og byrjar við áhaldahúsið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá GKG. Brautin verður opin eins lengi og veður leyfir.
Tónlistarskólarnir í Kópavogi verða með atriði á fortónleikum árlegrar uppskeruhátíðar tónlistarskóla landsins. Fortónleikarnir verða haldnir í tónleikasal FÍH í Rauðagerði laugardaginn 12. mars kl. 11:00, 13:00 og 14:30. Þar verða valin atriði til að taka þátt í lokatónleikum uppskeruhátíðarinnar 26. mars. Allir eru velkomnir og aðgangur ókeypis.
Innritun 6 ára barna (fædd 2005) fer fram í grunnskólum Kópavogs mánudaginn 7. og þriðjudaginn 8. mars. Sömu daga fer fram innritun nemenda sem flytjast milli skólahverfa og þeirra sem flytja í Kópavog eða koma úr einkaskólum. Nánari upplýsingar má finna á vefjum skólanna.
Breytingar verða gerðar á akstri Strætó þann 27. febrúar. Strætó mun frá þeim tíma ljúka akstri klukkutíma fyrr öll kvöld og hefja akstur tveimur klukkustundum síðar á laugardögum. Jafnframt hætta leiðir 2 og 5 að aka á kvöldin og um helgar. Ástæður þessara almennu breytinga er samdráttur á framlögum sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu til Strætó bs. Auk ofangreindra breytinga verða einnig breytingar á leiðum 16, 18, 19, 28, 35 og 36.
Árleg sýning Blaðaljósmyndarafélags Íslands sem ber heitið Myndir ársins verður opnuð í Gerðarsafni í Kópavogi á morgun laugardag klukkan 15:00. Á sýningunni er að finna bestu blaða- og tímaritaljósmyndir og myndskeið frá árinu 2010. Þá opnar á jarðhæð safnsins sýning Þorkels Þorkelssonar ljósmyndara sem nefnist Burma: Líf í fjötrum. Sýningarnar verða opnar til 10. apríl.
Sérnefnd vegna yfirfærslu málefna fatlaðra hjá Kópavogsbæ boðar til kynningarfundar í Smáraskóla miðvikudaginn 2. mars frá kl. 17:00 til 18:30 undir yfirskriftinni Sköpum saman góða þjónustu. Fundurinn er öllum opinn en tilefni hans er yfirfærsla málaflokksins til bæjarins nú um áramótin. Markmiðið er að kynna fyrir íbúum áherslur og fyrirkomulag þjónustunnar og jafnframt að skapa vettvang fyrir umræður og skoðanaskipti.
Rótarýklúbbur Kópavogs er fimmtíu ára á þessu ári og af því tilefni hefur klúbburinn gefið út afmælisrit þar sem minnst er hálfrar aldar afmælis klúbbsins. Helgi Laxdal, forseti Rótarýklúbbsins, afhenti Guðrúnu eintak af bókinni í vikunni. Kópavogur hefur með ýmsum hætti notið góðs af starfsemi klúbbsins í gegnum tíðina.
Kópavogsbúar sem eru á atvinnuleysisskrá og með 100% bótarétt úr Atvinnuleysistryggingasjóði geta fengið ókeypis þriggja mánaða kort í sund og líkamsrækt sem og þriggja mánaða bókasafnsskírteini. Reglur þar að lútandi hafa verið staðfestar í bæjarráði.
Bæjarráð Kópavogs ákvað í síðustu viku að fela bæjarlögmanni að kanna lögmæti auglýsingar Ríkiskaupa þar sem auglýst er eftir 2000 fermetra húsnæði undir starfsemi Fjármálaeftirlitsins. Í auglýsingunni er það skilyrði sett fyrir húsnæðinu að það sé staðsett miðsvæðis í Reykjavík, nánar tiltekið í póstnúmerum 101 til 108.
Líf og fjör var í Kópavogi á safnanótt fyrir helgi en opið var hjá söfnum bæjarins til miðnættis. Fjölmargir lögðu leið sína á söfnin og tóku þátt í fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá sem þar var í boði. Safnanóttin er árviss viðburður sem haldinn er í samstarfi sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu.
Sköpunardagurinn fór fram í félagsmiðstöðinni Pegasus í Álfhólsskóla í síðustu viku en á þeim degi keppa félagsmiðstöðvar í Kópavogi í ýmsum listgreinum. Dagurinn er árviss viðburður og hefur ávallt verið vel sóttur. Keppt er í ljósmyndun, stuttmyndagerð, fatahönnun, myndlist og smásögu- og ljóðagerð.
Uppsögn Jónasar Ingimundarsonar hjá Kópavogsbæ hefur verið dregin til baka og hefur hann fallist á að starfa áfram sem tónlistarráðunautur bæjarins.
Tillaga að fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar til næstu þriggja ára var lögð fram til fyrri umræðu á fundi bæjarstjórnar í gær. Hún byggir á markmiðum fjárhagsáætlunar ársins 2011 þar sem m.a. er stefnt að því að greiða inn á skuldir bæjarsjóðs um milljarð á ári næstu árin. Gert er ráð fyrir því að seinni umræða fari fram í lok febrúar.
Skipulagsbreytingar hjá stjórnsýslu Kópavogsbæjar voru samþykktar á bæjarstjórnarfundi í gærkvöld en í nýsamþykktri fjárhagsáætlun bæjarins er gert ráð fyrir því að talsverðum sparnaði verði náð með skipulagsbreytingum og hagræðingu í stofnunum og yfirstjórn bæjarins.
Fulltrúar félagsmiðstöðvarinnar Pegasus/Álfhólsskóla þau Bergrós Halla Gunnarsdóttir og Karel Candi sigruðu í söngkeppni Íþrótta- og tómstundaráðs Kópavogs sem haldin var í Salnum í vikunni. Þau fluttu lagið Tímanna tákn.
Greint verður frá niðurstöðum í árlegri ljóðasamkeppni lista- og menningarráðs Kópavogs, föstudaginn 21. janúar kl. 20:00 í Salnum. Ljóðasamkeppnin er kennd við Jón úr Vör og fer verðlaunaafhendingin fram á fæðingarafmæli hans. Alls 342 ljóð bárust í keppnina.
Kópavogsbær tók við þjónustu við fatlað fólk af ríkinu um áramótin. Þetta er viðamikil þjónusta sem miðar að því að tryggja fötluðu fólki jafnrétti og skapa þeim skilyrði til að lifa eðlilegu lífu og taka virkan þátt í samfélaginu.
Stjórn Salarins, tónlistarhúss Kópavogs, hefur ákveðið að ráða Aino Freyju Jarvela sem forstöðumann Salarins. Hún hefur störf nú í janúar. Starfið var auglýst laust til umsóknar 3. september 2010. Hlutverk hennar hjá Salnum verður m.a. að sjá um rekstur hans og bera ábyrgð á kynningar- og markaðsmálum.
Mánudaginn 10. janúar og þriðjudaginn 11. janúar munu starfsmenn áhaldahúss Kópavogsbæjar annast hirðingu jólatrjáa í bænum. Þeir bæjarbúar sem vilja nýta sér þessa þjónustu eru vinsamlegast beðnir um að setja jólatrén út fyrir lóðamörk og ganga þannig frá þeim að þau geti ekki fokið.