Fyrirsagnalisti
Dagur leikskólans verður haldinn hátíðlegur í leikskólum Kópavogs föstudaginn 4. febrúar. Markmiðið er að beina kastljósinu að því gróskumikla og mikilvæga starfi sem fram fer innan leikskólanna. Frumkvöðlar leikskólakennara stofnuðu fyrstu samtök sín 6. febrúar árið 1950 og er dagur leikskólans tileinkaður þeim. Þar sem 6. febrúar ber hins vegar upp á sunnudegi í ár verður haldið upp á daginn nú á föstudag.
Óhöpp í umferðinni þar sem strætisvagnar Strætó bs. eiga í hlut voru færri á síðasta ári en þau hafa verið frá því farið var að vinna markvisst að því að fækka þeim. Á fimm ára tímabili frá 2006 til 2010 fækkaði óhöppum um nærri helming á ársgrundvelli, eða um 48%. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Strætó bs.
Skipulagsbreytingar hjá stjórnsýslu Kópavogsbæjar voru samþykktar á bæjarstjórnarfundi í gærkvöld en í nýsamþykktri fjárhagsáætlun bæjarins er gert ráð fyrir því að talsverðum sparnaði verði náð með skipulagsbreytingum og hagræðingu í stofnunum og yfirstjórn bæjarins.
Skipulagsbreytingar hjá stjórnsýslu Kópavogsbæjar voru samþykktar á bæjarstjórnarfundi í gærkvöld en í nýsamþykktri fjárhagsáætlun bæjarins er gert ráð fyrir því að talsverðum sparnaði verði náð með skipulagsbreytingum og hagræðingu í stofnunum og yfirstjórn bæjarins. Breytingarnar eru hluti af samstarfssamningi meirihlutans í bæjarstjórn Kópavogs en þar er kveðið á um einföldun í stjórnsýslu og fækkun nefnda.
Fulltrúar félagsmiðstöðvarinnar Pegasus/Álfhólsskóla þau Bergrós Halla Gunnarsdóttir og Karel Candi sigruðu í söngkeppni Íþrótta- og tómstundaráðs Kópavogs sem haldin var í Salnum í vikunni. Þau fluttu lagið Tímanna tákn.
Greint verður frá niðurstöðum í árlegri ljóðasamkeppni lista- og menningarráðs Kópavogs, föstudaginn 21. janúar kl. 20:00 í Salnum. Ljóðasamkeppnin er kennd við Jón úr Vör og fer verðlaunaafhendingin fram á fæðingarafmæli hans. Alls 342 ljóð bárust í keppnina.
Greint verður frá niðurstöðum í árlegri ljóðasamkeppni lista- og menningarráðs Kópavogs, föstudaginn 21. janúar kl. 20:00 í Salnum. Ljóðasamkeppnin er kennd við Jón úr Vör og fer verðlaunaafhendingin fram á fæðingarafmæli hans. Alls 342 ljóð bárust í keppnina. Aðgangur er ókeypis og allir eru hjartanlega velkomnir.
Heimgreiðslur til foreldra barna frá sex mánaða til tveggja ára aldurs lækka úr 35 þúsund krónum í 25 þúsund krónur á mánuði frá og með 1. febrúar 2011. Þetta var ákveðið á bæjarstjórnarfundi í desember. Kópavogur er eitt fárra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu sem býður heimgreiðslur.
Kópavogsbær tók við þjónustu við fatlað fólk af ríkinu um áramótin. Þetta er viðamikil þjónusta sem miðar að því að tryggja fötluðu fólki jafnrétti og skapa þeim skilyrði til að lifa eðlilegu lífu og taka virkan þátt í samfélaginu.
Athygli er vakin á að samkvæmt lögum um húsaleigubætur skal endurnýja umsókn um húsaleigubætur fyrir 16. janúar hvert ár og gildir umsóknin til ársloka, eða jafnlengi og gildistími húsaleigusamnings.
Nýtt og skemmtilegt listaverkefni er að hefjast í Molanum, ungmennahúsi Kópavogs, í samstarfi við Sigtrygg Baldursson tónlistarmann. Verkefnið felst í því að Sigtryggur miðlar af reynslu sinni svo ungt og áhugasamt fólk í Kópavogi geti búið til tónlist, tekið upp myndbönd og hljóð og hannað leikmynd og búninga, svo eitthvað sé nefnt.
Fjórir starfsmenn Kópavogsbæjar áttu 25 ára starfsafmæli á árinu 2010. Þeim tímamótum var fagnað föstudaginn 7. janúar. Starfsmennirnir eru: Anna Sigurþórsdóttir sem starfaði í heimilishjálpinni, Bjarni Bjarnason í áhaldahúsinu, Magga Hrönn Árnadóttir á leikskólanum Kópahvoli og Sigrún Guðmundsdóttir í bókhaldinu.
Þrettándagleði Handknattleiksfélags Kópavogs sem halda átti síðar í dag í Fagralundi hefur verið frestað vegna mjög óhagstæðra veðurskilyrða. Þetta kemur fram í tilkynningu frá HK. Samkvæmt upplýsingum frá félaginu verður skoðað hvort hægt verði að halda gleðina á mánudag.
Alfreð Finnbogason, knattspyrnumaður úr Breiðabliki, og Íris Mist Magnúsdóttir, fimleikakona úr Gerplu, voru kjörin íþróttakarl og íþróttakona Kópavogs fyrir árið 2010. Kjörinu var lýst á íþróttahátíð Kópavogs í Salnum nú undir kvöld.
Stjórn Salarins, tónlistarhúss Kópavogs, hefur ákveðið að ráða Aino Freyju Jarvela sem forstöðumann Salarins. Hún hefur störf nú í janúar. Starfið var auglýst laust til umsóknar 3. september 2010. Hlutverk hennar hjá Salnum verður m.a. að sjá um rekstur hans og bera ábyrgð á kynningar- og markaðsmálum.
Mánudaginn 10. janúar og þriðjudaginn 11. janúar munu starfsmenn áhaldahúss Kópavogsbæjar annast hirðingu jólatrjáa í bænum. Þeir bæjarbúar sem vilja nýta sér þessa þjónustu eru vinsamlegast beðnir um að setja jólatrén út fyrir lóðamörk og ganga þannig frá þeim að þau geti ekki fokið.