Fréttasafn

Fyrirsagnalisti

wSigfus

Lokatónleikar til minningar um Fúsa - 29.3.2011

Lokatónleikar til minningar um Sigfús Halldórsson, tónskáld og heiðursborgara Kópavogsbæjar, verða haldnir í Salnum föstudaginn 1. apríl kl. 20:00. Þar verða perlur Fúsa fluttar af þeim Stefáni Hilmarssyni, Andreu Gylfadóttur og Agli Ólafssyni.

jafnrettisradgjaf

Tekur við verkefnum jafnréttisráðgjafa - 28.3.2011

Ása Arnfríður Kristjánsdóttir, lögfræðingur hjá Kópavogsbæ, hefur tekið við verkefnum jafnréttisráðgjafa hjá bænum. Jafnréttisráðgjafi starfar með jafnréttis- og mannréttindaráði og sér m.a. um að fylgja eftir jafnréttisstefnu bæjarins í samvinnu við ráðið og bæjaryfirvöld.

bladasyning

Leiðsögn um sýningu blaðaljósmyndara - 25.3.2011

Leiðsögn verður um sýningu blaðaljósmyndara í Gerðarsafni næstu sunnudaga en á sýningunni eru 171 mynd eftir íslenska blaðaljósmyndara. Enn fremur eru á sýningunni verðlaunamyndskeið úr sjónvarpi.

leikskkolaborn

Leikskólabörn Kjarrsins áfram í sama húsnæði - 23.3.2011

Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti í gær að endurnýja ekki þjónustusamning við núverandi rekstraraðila leikskólans Kjarrsins ehf. Jafnframt var samþykkt að rekstur skólans yrði færður undir rekstur leikskólans Smárahvamms sem stendur á næstu lóð. Innra starf skólanna verður óbreytt og börn verða ekki flutt á milli húsa. Það þýðir m.ö.o. að leikskólabörn Kjarrsins verða áfram í sama húsnæði.

leikfelag-111a

Leikfélag Kópavogs frumsýnir nýjan gamanleik - 21.3.2011

Leikfélag Kópavogs frumsýndi nýverið sprenghlægilegan gamanleik sem ber yfirskriftina Bót og betrun – fimm hurða farsi úr félagslega kerfinu. Bót og betrun segir frá bótasvindlaranum Eric Swan sem grípur til svika þegar hann missir vinnuna.

slagmynd

Slagverksmiðjan í Gerðarsafni í kvöld - 17.3.2011

Fjöllistahópurinn Slagverksmiðjan kemur fram ásamt Sigtryggi Baldurssyni tónlistarmanni kl. 19:30 í Gerðarsafni, listasafni Kópavogs, í kvöld. Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis.

Nýr vefur fyrir Kópavogsbæ - 17.3.2011

Í dag fór í loftið nýr og endurbættur vefur Kópavogsbæjar. Unnið hefur verið að honum í all nokkurn tíma og hafa fjölmargir starfsmenn bæjarins komið að þeirri vinnu. Markmiðið er að gera vef bæjarins meira aðlaðandi og auðveldari í notkun fyrir bæjarbúa.

Husafridunar

Húsafriðunarnefnd undirbýr friðun húsa í Kópavogi - 17.3.2011

Húsafriðunarnefnd hefur samþykkt að undirbúa friðun tveggja gamalla húsa á Kópavogstúni, gamla Kópavogsbæjarins og Kópavogshælisins. Skipulagsnefnd Kópavogsbæjar ákvað á síðasta ári að óska eftir því að húsin yrðu friðuð. Það kemur í hlut menntamálaráðherra að friða húsin að fenginni tillögu húsafriðunarnefndar. Vonast er til þess að af því verði fljótlega.

lestrar

Átján keppendur í upplestrarkeppni - 16.3.2011

Hin árlega upplestrarkeppni í 7. bekk var haldin í Salnum 8. mars sl. Keppendur voru 18 frá 9 grunnskólum í Kópavogi. Sigurvegari að þessu sinni var Katrín Kristinsdóttir, Salaskóla. Í 2. sæti var Ingveldur Lúðvíksdóttir Gröndal, Snælandsskóla og í 3. sæti var Marta Andrésdóttir, Snælandsskóla.

bjarki

Sýning um höfund þjóðsöngsins í Tónlistarsafni Íslands - 14.3.2011

Sýning um Sveinbjörn Sveinbjörnsson, tónskáld og höfund íslenska þjóðsöngsins, stendur yfir í Tónlistarsafni Íslands að Hábraut 2 í Kópavogi. Kveikjan að sýningunni er sú að safninu hafa borist fjöldi muna frá Eleanor Oltean, barnabarni Sveinbjörns í Kanada, sem aldrei fyrr hafa komið almenningi fyrir sjónir.

gjoftilnatt

Góð gjöf til Náttúrufræðistofunnar - 14.3.2011

Guðríður Gísladóttir, Kópavogsbúi til margra ára, færði um daginn Náttúrufræðistofu Kópavogs að gjöf myndarlegt safn steina og kristalla sem hún og eiginmaður hennar, Haukur heitinn Einarsson, höfðu safnað víðs vegar að af landinu. Að sögn Hilmars J. Malmquist forstöðumanns Náttúrufræðistofunnar er góður fengur að gjöfinni.

gunnl

Gönguskíðabraut á golfvellinum - 9.3.2011

Búið er að troða gönguskíðabraut á golfvelli GKG í Vetrarmýri. Það voru starfsmenn þjónustumiðstöðvar Garðabæjar og GKG ásamt Dráttarbílum sem sameinuðust í þessu verkefni. Brautin er um 2,5 km að lengd og byrjar við áhaldahúsið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá GKG. Brautin verður opin eins lengi og veður leyfir.

Tónlistarskólar Kópavogs taka þátt í uppskeruhátíð - 8.3.2011

Tónlistarskólarnir í Kópavogi verða með atriði á fortónleikum árlegrar uppskeruhátíðar tónlistarskóla landsins. Fortónleikarnir verða haldnir í tónleikasal FÍH í Rauðagerði laugardaginn 12. mars kl. 11:00, 13:00 og 14:30. Þar verða valin atriði til að taka þátt í lokatónleikum uppskeruhátíðarinnar 26. mars. Allir eru velkomnir og aðgangur ókeypis.