Fréttasafn

Fyrirsagnalisti

Kópavogsdagar: Taktu þátt! - 29.4.2011

Hin árlega menningarhátíð Kópavogs, Kópavogsdagar, fer fram 7. til 14. maí. Menningarstofnanir bæjarins verða með ýmsar skemmtilegar uppákomur á dögunum en jafnframt eru þeir sem vilja leggja sitt af mörkum hvattir til að skrá viðburð sinn á kopavogsdagar.is.

husvidtjorn

Íbúagátt vegna endurskoðunar aðalskipulags Kópavogs - 29.4.2011

Íbúagátt vegna endurskoðunar aðalskipulags Kópavogs og Staðardagskrár 21 var opnuð í dag. Þar má finna gögn sem tengjast endurskoðuninni og upplýsingar um samráðsfundi með íbúum. Kynningarfundur um endurskoðunina fer fram 5. maí nk. í Hörðuvallaskóla við Baugakór. Fundurinn hefst kl. 17:00 og stendur yfir í einn og hálfan tíma.

hjalmar

Börn í Kópavogi fá reiðhjólahjálma - 28.4.2011

Börn í 1. bekk í Kársnesskóla tóku á móti reiðhjólahjálmum frá Kiwanishreyfingunni og Eimskipafélagi Íslands í vikunni. Það gerðu einnig fleiri börn á höfuðborgarsvæðinu. Bæjarstjórar voru viðstaddir athöfnina. Gjöfin er liður í því markmiði Kiwanis og Eimskips að öll börn verði örugg í umferðinni.

Kópasteinn

Litrík fuglahús hljóta umhverfisverðlaun - 26.4.2011

Verk leikskólabarnanna á deildinni Steinholti á Kópasteini hlaut önnur verðlaun í listaverkasamkeppni Græns apríls. Erla Vigdís Kristinsdóttir leikskólakennari átti hugmyndina að verkinu sem eru fuglahús úr mjólkurfernum. Fuglahúsin eru litrík og falleg. Síðast en ekki síst eru þau umhverfisvæn.

tún gras

Skógar- og fjölskylduganga Skógræktarfélags Kópavogs - 26.4.2011

FRESTAÐ VEGNA VEÐURS FRAM Á MÁNUDAG! Skógræktarfélag Kópavogs í samvinnu við umhverfissvið Kópavogsbæjar stendur fyrir skógar- og fjölskyldugöngu fimmtudaginn 28. apríl.  Gangan fer fram í tilefni verkefnisins Græns apríls sem Kópavogsbær tekur þátt í.

Barbara Árnason

Yfir 250 verk eftir Barböru Árnason í Gerðarsafni - 18.4.2011

Í tilefni aldarafmælis listakonunnar Barböru Árnason verður  yfirlitssýning með verkum hennar opnuð í Gerðarsafni, Listasafni Kópavogs, 19. apríl. Sýningin stendur yfir til 5. júní.

Vinnuskóli Kópavogs

Opnað fyrir umsóknir í Vinnuskóla Kópavogs - 14.4.2011

Frá og með deginum í dag verður hægt að sækja um störf hjá Vinnuskóla Kópavogs. Hann verður starfræktur frá 14. júní til 21. júlí.  Allir unglingar sem búsettir eru í Kópavogi og ljúka 8., 9. og 10. bekk í vor fá vinnu. Umsóknarfrestur rennur út 18. maí.

Skógur

38 ný sumarstörf hjá Kópavogsbæ - 14.4.2011

Fyrirhugað er að Kópavogsbær, í samstarfi við Vinnumálastofnun, fari í atvinnuátak sem mun veita 38 Kópavogsbúum sumarstörf til viðbótar þeim 600 sem þegar hefur verið ákveðið að fái vinnu.

breiðablik

Tilnefningar óskast vegna jafnréttisviðurkenningar - 14.4.2011

Jafnréttis- og mannréttindanefnd Kópavogsbæjar auglýsir eftir tilnefningum vegna árlegrar jafnréttisviðurkenningar.  Viðurkenningin verður veitt í tíunda sinn. Frestur til að senda inn tilnefningar rennur út 1. júní.

Skólahljómsveit Kópavogs

Fékk viðurkenningu á Nótunni - 13.4.2011

B-sveit Skólahljómsveitar Kópavogs fékk á dögunum viðurkenningu fyrir framúrskarandi samleik í grunnnámi á uppskeruhátíð tónlistarskólanna, Nótunni, sem haldin var í Langholtskirkju.

bókasafn

Fjölbreytt dagskrá á bókasafnsdeginum - 13.4.2011

Bókasafnsdagurinn fer fram á morgun, fimmtudaginn 14. apríl, en markmiðið er að beina augum fólks að mikilvægi bókasafna. Af því tilefni verða ýmsar uppákomur, leikir og fræðsla, í Bókasafni Kópavogs og í útibúi þess Lindasafni.

sund

Bæjarbúar fá frítt í sund á sumardaginn fyrsta - 13.4.2011

Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti á fundi sínum nýverið að bjóða bæjarbúum frítt í sund á sumardaginn fyrsta. Í bænum eru tvær glæsilegar sundlaugar, Sundlaug Kópavogs við Borgarholtsbraut og Sundlaugin Versölum við Versali.

baejarrad

Áhugi glæðist á lóðum í Kópavogi - 7.4.2011

Dregið var á milli tveggja umsókna um lóð í Dalaþingi 25 í Kópavogi á fundi bæjarráðs Kópavogs í morgun. Þetta er í annað sinn sem dregið er á milli umsækjenda um lóð í Kópavogi eftir hrun.  Kópavogsbæ hefur frá áramótum borist 11 umsóknir um lóðir fyrir sérbýli og 8 fyrir fjölbýli. Á sama tímabili í fyrra var einungis sótt um tvær sérbýlislóðir.

Hvar átt þú að kjósa? - 6.4.2011

Tveir kjörstaðir verða í Kópavogi vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar laugardaginn 9. apríl. Íbúar vestan Reykjanesbrautar og í Lindahverfi kjósa í íþróttahúsinu Smáranum. Íbúar austan Reykjanesbrautar að frátöldum þeim sem búa í Lindahverfi kjósa í íþróttahúsinu Kórnum. Kjörfundur hefst kl. 9:00 og lýkur kl. 22:00.

steinasafn

Veglegt steinasafn í Náttúrufræðistofu - 6.4.2011

Steinasafn sem Náttúrufræðistofu Kópavogs barst fyrir rúmi ári úr dánarbúi Ólínu Sigurðardóttur og Dags Daníelssonar á Álfhólsvegi 82, hefur nú verið flokkað og skráð. Að sögn Hilmars J. Malmquist, forstöðumanns Náttúrufræðistofunnar, er um að ræða stórt og gott safn steina, með um 200 eintökum víðs vegar að af landinu.

straetomynd

Enn fækkar óhöppum hjá Strætó - 4.4.2011

Fyrstu þrír mánuðir ársins hafa gengið vel í akstri Strætó bs. og fækkaði óhöppum alla mánuðina frá sömu mánuðum á síðasta ári, sem þó var metár hvað varðar öryggi í akstri Strætó. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Strætó.

SSH

Fundað um samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu - 4.4.2011

Um 130 sveitarstjórnarmenn og lykilembættismenn frá öllum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu funduðu í Menntaskólanum í Kópavogi um helgina til að móta sameiginlega framtíðarsýn fyrir Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH).

Blom

Tekur þátt í Grænum apríl - 1.4.2011

Kópavogsbær tekur þátt í Grænum apríl en það er verkefni sem áhugafólk um umhverfismál hefur hrint í framkvæmd. Markmið verkefnisins er m.a. að vekja athygli á umhverfismálum. Af þessu tilefni hyggst bærinn halda fjölskyldu- og skógargöngu í samstarfi við Skógræktarfélag Kópavogs í lok apríl. Gangan verður auglýst síðar.