Fréttasafn

Fyrirsagnalisti

Dagur Sigurðsson

Jazz- og blúshátíð hafin í Kópavogi - 31.5.2011

Hin árlega Jazz- og blúshátíð er hafin í Kópavogi en Björn Thoroddsen tónlistarmaður er listrænn stjórnandi hennar. Aðal tónleikarnir verða í Salnum föstudagskvöldið 3. júní. Miða er hægt að nálgast á vef Salarins.

Salalaug

Lengri opnunartími í sundlaugum Kópavogs - 31.5.2011

Opnunartími sundlauga Kópavogs verður lengdur frá og með 1. júní og verður opið mánudaga til föstudaga frá kl. 6:30 til 22:00 og um helgar frá kl. 8:00 til 20:00.

alþjóðleg tónlistarráðstefna

Vel heppnuð alþjóðleg ráðstefna Tónlistarsafns Íslands - 30.5.2011

Um fjörutíu gestir sóttu alþjóðlega ráðstefnu í tónlistarfræðum sem haldin var í Tónlistarsafni Íslands dagana 18. til 21. maí sl. Bjarki Sveinbjörnsson, forstöðumaður tónlistarsafnsins, er ánægður með hve vel ráðstefnan heppnaðist. Hann segir að framhaldsráðstefna verði haldin í Köln, Þýskalandi, í haust.

Götuleikhúsið

Áheyrnarprufur fyrir Götuleikhús Kópavogs - 27.5.2011

Áheyrnarprufur fyrir Götuleikhús Kópavogs fara fram sunnudaginn 29. maí kl. 14:00 í Leikhúsinu, húsnæði Leikfélags Kópavogs, Funalind 2. Götuleikhúsið er fyrir þá sem útskrifast úr 10. bekk í vor.

leikhópurinn lotta

Mjallhvít og dvergarnir sjö á Rútstúni - 26.5.2011

Leikhópurinn Lotta sýnir glænýtt íslenskt leikrit um Mjallhvíti og dvergana sjö þann 31. maí á Rútstúni. Sýningin hefst kl. 18:00. Þetta er fimmta sumarið sem leikhópurinn setur upp útisýningu en síðastliðin sumur hefur hópurinn tekist á við Hans klaufa, Rauðhettu, Galdrakarlinn í Oz og Dýrin í Hálsaskógi.

vorsýning gjábakka

Árleg vorsýning á handverki eldra fólks - 26.5.2011

Árleg vorsýning á handverki eldra fólks fór fram í Gjábakka, félagsheimili eldra fólks í Kópavogi, um miðjan mánuðinn. Um áttatíu manns sýndu verk sín á sýningunni sem var mjög vel sótt. Talið er að um 450 manns hafi komið á sýninguna. Þar var boðið upp á vöfflur og kaffi.

loftmynd387px

Fleiri leita eftir aðstoð í Kópavogi - 24.5.2011

Fjárhagsaðstoð Kópavogsbæjar til einstaklinga og fjölskyldna jókst verulega á síðasta ári frá árinu á undan. Nam aðstoðin í fyrra tæpum 230 milljónum króna samanborið við 170 milljónir árið 2009. Alls nutu 555 fjölskyldur og einstaklingar þessarar aðstoðar á síðasta ári samanborið við 495 árið á undan. Þetta er meðal þess sem fram kemur í ársskýrslu Félagsþjónustu Kópavogs fyrir árið 2010.

eldgos

Sveitarfélög virkja viðbragðsáætlanir sínar - 23.5.2011

Loftgæði á höfuðborgarsvæðinu hafa verið misjöfn síðan aska tók að berast frá gosinu í Grímsvötnum aðfararnótt 23. maí. Þá voru mæligildi svifryks há. Reikna má með að mæligildin komi til með að sveiflast áfram. Öskufall á höfuðborgarsvæðinu var samt ekkert í líkingu við það sem hefur verið fyrir austan fjall og á Suðurlandi. Mælingar hafa sýnt hátt svifryk í lofti á höfuðborgarsvæðinu á álagstímum í umferðinni, þegar vindur er sterkur og jörð þurr. Er þar að einhverju leyti á ferðinni gosaska sem þyrlast upp.

eldgosið

Fylgst með loftgæðum á höfuðborgarsvæðinu - 23.5.2011

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fylgist grannt með þróun gossins í Grímsvötnum og hvaða áhrif mögulegt öskufall gæti haft á höfuðborgarsvæðinu. Öskuskýið fór vestur yfir landið í gær og aska barst yfir höfuðborgarsvæðið í gærkvöldi og í nótt. Veðurspá gerir hins vegar ráð fyrir norðlægum áttum 23. maí og þá dregur úr mengun.

unicef

Styrkja jafnaldra sína í Japan - 23.5.2011

Unglingar í félagsmiðstöðinni Þebu í Smáraskóla söfnuðu á dögunum 62.500 krónum til styrktar börnum og unglingum í Japan. Með þessu vilja unglingar í Kópavogi styðja jafnaldra sína í Japan vegna jarðskjálftanna sem þar hafa riðið yfir. Fénu var safnað með miðasölu á árshátíð Þebu og Smáraskóla.

Bærinn uppfyllir sínar lagalegu skyldur - 20.5.2011

Úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála hefur kveðið upp þann úrskurð að sú ferðaþjónusta sem Kópavogsbær veitir lögblindum einstaklingum í bænum samræmist lögum um málefni fatlaðra.

Leikskólabörn

Mjög ánægð með starf leikskóla í Kópavogi - 16.5.2011

Yfir 93% foreldra telja að mjög vel eða vel hafi verið staðið að aðlögun barns í leikskóla í Kópavogi og flutningi milli deilda. Um 90% segja að mjög vel eða vel sé tekið á móti barninu þegar það kemur í leikskólann að morgni og það sama á við þegar barn er kvatt þegar það fer heim síðdegis.

skolagardar

Opnað fyrir skráningu í Skólagarða Kópavogs - 13.5.2011

Opnað hefur verið fyrir skráningu í Skólagarða Kópavogs fyrir sumarið 2011. Skráning stendur yfir til 26. maí.

Fundur um sögu Kópaogs

Farið yfir sögu Kópavogs á Kópavogsdögum - 13.5.2011

Héraðsskjalasafn Kópavogs stóð fyrir málstofu um sögu Kópavogs á nýliðnum Kópavogsdögum. Var hún haldin á 56. afmælisdegi kaupstaðarréttinda Kópavogsbæjar, miðvikudaginn 11. maí. Í ár eru jafnframt liðin 63 ár síðan Kópavogur varð sjálfstætt sveitarfélag, það gerðist með stofnun Kópavogshrepps 1. janúar 1948.

Sunnudagsskóli Lindakirkju

Busl og bænir í Salalaug - 13.5.2011

Sunnudagsskóli Lindakirkju nk. sunnudag fer fram í Salalaug. Hann hefst á hefðbundnum tíma kl. 11:00. Umsjón með stundinni hefur séra Guðmundur Karl Brynjarsson. Hann nýtur aðstoðar sunnudagsskólakennara Lindakirkju. Áætlað er að stundin taki um 25 mínútur.

Flugdrekadagur

Flugdrekadagur á safnatúninu - 12.5.2011

Það var líf og fjör á túninu við safna- og menningarhúsin í Kópavogi fyrir hádegi í dag en þangað mættu um hundrað leikskóla - og grunnskólabörn til að taka þátt í flugdrekadeginum. Dagurinn er haldinn í tilefni Kópavogsdaga, menningarhátíðar bæjarins.

Sundlaug í þjónustumiðstöð vígð

Sundlaugin í Boðaþingi vígð í dag - 11.5.2011

Sundlaug í þjónustumiðstöð Kópavogsbæjar við Boðaþing var vígð við hátíðlega athöfn í dag. Laugin er hönnuð með þarfir eldra fólks í huga og við hana eru tveir heitir pottar. Hún verður fyrst um sinn nýtt af íbúum hjúkrunarheimilis Hrafnistu og leiguíbúða DAS. Til framtíðar er stefnt að því að hún nýtist fleirum og vonandi sem flestum Kópavogsbúum.

Eldri borgari og barn

Til hamingju Kópavogsbúar með afmæli bæjarins! - 11.5.2011

Kópavogsbær fagnar 56 ára afmæli sínu í dag en bærinn hlaut kaupstaðarréttindi 11. maí árið 1955. Fjölmargt er um að vera í bænum og má nefna að kl. 16:00 verður opnuð í Náttúrufræðistofu Kópavogs sýningin Holað í steininn.

loftmynd387px

Afkoman betri en áætlanir gerðu ráð fyrir - 10.5.2011

Rekstrarafkoma Kópavogsbæjar á árinu 2010 var betri en ráð var gert fyrir í fjárhagsáætlun ársins. Hún var jákvæð um 1.032 milljónir króna en árið á undan var hún neikvæð upp á 4.068 milljónir króna. Rekstrarniðurstaða bæjarins varð 988 milljónum krónum betri en áætlunin.

Skógur

Atvinnuátak – umsóknarfrestur framlengdur - 9.5.2011

Eins og áður hefur komið fram er fyrirhugað að Kópavogsbær, í samstarfi við Vinnumálastofnun, fari í atvinnuátak sem mun veita 38 Kópavogsbúum sumarstörf til viðbótar þeim 600 sem þegar hafa fengið vinnu hjá bænum.

Kópavogsdgar

Fjölmargir leggja leið sína á Kópavogsdaga - 9.5.2011

Fjölmargir lögðu leið sína á Kópavogsdaga, menningarhátíð Kópavogs, sem hófust um helgina. Eldri borgarar sýndu þar meðal annars uppskeru sína eftir veturinn, svo sem málverk, vefnað og tréskurð. Dagskráin er sem fyrr afar fjölbreytt en hátíðin stendur óslitið til 14. maí.

Þríhnúkar

Kópavogsbær tekur þátt í verkefni Þríhnúka ehf. - 6.5.2011

Bæjarráð Kópavogs hefur samþykkt að styðja við verkefni félagsins Þríhnúka ehf. en markmið þess er að gera gíghvelfingu Þríhnúkagígs á Bláfjallafólkvangi aðgengilegan almenningi og reka þar ferðamannamóttöku í framtíðinni.

Börn

Fjölbreytt menningardagskrá á Kópavogsdögum - 5.5.2011

Kópavogsdagar, árleg menningarhátíð Kópavogsbæjar, hefjast laugardaginn 7. maí og standa óslitið til 14. maí. Þetta er í áttunda sinn sem Kópavogsdagar eru haldnir.

blúshátíð

Auglýst eftir umsóknum um styrki úr lista- og menningarsjóði - 4.5.2011

Menningar- og þróunarráð Kópavogs auglýsir eftir styrkjum úr lista- og menningarsjóði bæjarins. Umsóknarfrestur er til 25. maí. Markmiðið er að efla menningarlífið í bænum.

Hús við tjörn

Kynningarfundur um aðalskipulag Kópavogs - 1.5.2011

Skipulagsnefnd Kópavogs boðar til fundar um endurskoðun aðalskipulags bæjarins og Staðardagskrár 21. Fundurinn verður haldinn í Hörðuvallaskóla við Baugakór fimmtudaginn 5. maí nk. kl. 17:00 – 18:30.

sumarnamskeid

Skráning á sumarnámskeið Kópavogs - 1.5.2011

Skráning á sumarnámskeið hjá Kópavogsbæ er hafin en miðað er við að fleiri en þúsund börn og unglingar verði á námskeiðum á vegum bæjarins í sumar. Námskeiðin eru mjög fjölbreytt og því ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi.