Fréttasafn

Fyrirsagnalisti

barnaborn

Skýrsla um léttara starf í leikskólum - 30.6.2011

Betra er að sjá lausnir en að velta sér upp úr vandamálum, segir m.a. í niðurstöðum nefndar leikskóla Kópavogs sem falið var að leita leiða til að létta starfið í leikskólum bæjarins. Nefndin var skipuð á vorönn 2008 og voru niðurstöðurnar dregnar saman í skýrslu sem kom út nýverið.

Gerðarsafn sýning

Góðir Íslendingar í Gerðarsafni - 29.6.2011

Nú stendur yfir í Gerðarsafni, Listasafni Kópavogs, sýning Finnboga Péturssonar og Árna Páls Jóhannssonar sem ber heitið: Góðir Íslendingar. Þeir hafa unnið að sýningunni mjög lengi og segja margra áratuga vinnu loks lokið. Sýningin stendur yfir til 31. júlí.

Sumarnámskeið

Fjör á sumarnámskeiðum Kópavogsbæjar - 29.6.2011

Fjölmargir krakkar úr Kópavogi taka þátt í sumarnámskeiðum á vegum frístunda- og forvarnadeildar Kópavogsbæjar. Nokkur námskeið fara fram í félagsmiðstöðvunum Ekkó, Kúlunni og Pegasus og fór einn hópurinn nýverið í vettvangsferð upp á Ríkisútvarp í Efstaleiti.

Leikskólabörn í skrúðgöngu

Vilt þú gæta barna á eigin heimili? - 28.6.2011

Kópavogsbær óskar eftir dagforeldrum til starfa í Kópavogi. Þeir sem gerast dagforeldrar þurfa að uppfylla ákveðin skilyrði. Nánari upplýsingar um daggæslu barna í heimahúsum má finna á vef bæjarins.

Vinnuskóli Kópavogs

Öllum sem sóttu um var boðin vinna hjá Kópavogsbæ - 24.6.2011

Kópavogsbær hefur nú boðið öllum þeim 1.100 ungmennum sautján ára og eldri sem sóttu um sumarvinnu hjá bænum vinnu en alls um 710 hafa þegið hana. Allir unglingar á aldrinum 14 til 16 ára sem þess óskuðu, um 850, fengu auk þess vinnu hjá Vinnuskóla Kópavogs.

Götuleikhús Kópavogs

Götuleikhús Kópavogs frumsýnir nýtt leikrit - 21.6.2011

Götuleikhús Kópavogs frumsýndi barnaleikritið Hamingjusami vinnumaðurinn og bleika prinsessan á Rútstúni 17. júní. Er skemmst frá því að segja að leikritið hlaut frábærar viðtökur. Það verður sýnt í leikskólum Kópavogs á næstu dögum og vikum.

Barbara Árnason

Heimgreiðslur afnumdar í haust - 21.6.2011

Bæjarráð Kópavogs hefur ákveðið að fella niður heimgreiðslur til foreldra frá og með 1. september 2011. Það þýðir að síðustu greiðslurnar verða inntar af hendi 1. júlí vegna júlímánaðar en heimgreiðslur ná ekki til ágústmánaðar.

sautjándi júní

Góður dagur í Kópavogi - 17.6.2011

Kópavogsbúar héldu þjóðhátíðardaginn hátíðlegan í dag 17. júní. Á Rútstúni var margt um manninn, haldnar voru ræður, sungið og spilað og börnin skemmtu sér í ýmsum leiktækjum. Dagurinn endaði svo með útitónleikum.

Sautjándi júní

Fjölbreytt dagskrá í Kópavogi - 15.6.2011

Sautjándi júní verður að venju haldinn hátíðlegur í Kópavogi með fjölbreyttri dagskrá. Hún hefst kl. 10:00 með hressandi tónum brassbands Skólahljómsveitar Kópavogs en pallbílar Kópavogsbæjar aka um með hljómsveitina á milli hverfa.

Vinnuskóli Kópavogs

Unglingar í Vinnuskóla Kópavogs hefja störf - 14.6.2011

Um 850 unglingar á aldrinum 14 til 16 ára hófu störf í Vinnuskóla Kópavogs í dag. Allir þeir sem sóttu um fengu vinnu. Helstu verkefni skólans eru snyrting og fegrun bæjarins en elstu unglingunum býðst einnig að vinna við aðstoðarstörf hjá ýmsum stofnunum og félögum í bænum.

Hvatningarverðlaun

Snælandsskóli hlýtur hvatningarverðlaun skólanefndar - 9.6.2011

Snælandsskóli hlaut nýverið hvatningarverðlaun skólanefndar Kópavogsbæjar. Hannes Baldursson tónmenntakennari tók við verðlaununum úr hendi Rannveigar Ásgeirsdóttur, formanns nefndarinnar. Verðlaunin eru veitt fyrir verkefnið Listsköpun á yngsta stigi.

atvinnuátak

Hundrað ungmenni til viðbótar fá vinnu hjá Kópavogsbæ - 9.6.2011

Um hundrað ungmenni í Kópavogi frá átján ára aldri fá vinnu við skógræktarverkefni í bænum í sumar en það er liður í atvinnuátaki Kópavogsbæjar, Skógræktarfélags Íslands, Skógræktarfélags Kópavogs og Vinnumálastofnunar.

gerpla

Til hamingju Gerpla með afmælið! - 7.6.2011

Gerpla fagnar fjörutíu ára afmæli sínu í ár og hélt af því tilefni glæsilega veislu um helgina. Bæjarstjóri Kópavogs, Guðrún Pálsdóttir, flutti þar ávarp og óskaði félagsmönnum til hamingju með stórafmælið.

Stofnfundur Miðbæjarsamtaka Kópavogs - 5.6.2011

Stofnfundur Miðbæjarsamtaka Kópavogs fer fram mánudaginn 6. júní kl. 18:30 í húsnæði Rauða krossins, Hamraborg 11.