Fréttasafn

Fyrirsagnalisti

Skapandi sumarstörf

Uppskeruhátíð Skapandi sumarstarfa - 20.7.2011

Uppskeruhátíð Skapandi sumarstarfa hjá Molanum, ungmennahúsi Kópavogs, fer fram á morgun, fimmtudag. Götuhátíð verður á Hálsatorgi frá kl. 11:00 til 14:00 og um kvöldið verður gestum og gangandi boðið í Molann að Hábraut 2. Allir eru velkomnir.

Vélbyssuhreiður

Fræðsluganga um hernámsárin í Kópavogi - 18.7.2011

Héraðsskjalasafn Kópavogs stendur fyrir fræðslugöngu um hernámsárin í Kópavogi á morgun, þriðjudaginn 19. júlí. Gangan hefst kl. 17:00 og eru allir velkomnir. Gangan tekur um það bil klukkutíma.

Nýjar íbúðir á Kópavogstúni

Nýjar íbúðir fyrir eldri borgara á Kópavogstúni - 8.7.2011

Ráðgert er að reisa 28 íbúða fjölbýlishús fyrir eldri borgara á Kópavogstúni 2 til 4 á næstu tveimur árum samkvæmt viljayfirlýsingu byggingafyrirtækisins Dverghamra og Samtaka aldraðra sem undirrituð var í gær.