Fréttasafn

Fyrirsagnalisti

Leikskólabörn í skrúðgöngu

Leikskólar setja sér umhverfisstefnu - 30.9.2011

Leikskólar Kópavogs, átján að tölu, hafa samþykkt nýja umhverfisstefnu. Með henni er m.a. stefnt að því að börn þekki og beri virðingu fyrir umhverfi sínu. Leikskólunum ber að starfa í samræmi við umhverfisstefnuna og gera hana sýnilega.

Kökukeppni í Kópavogsskóla

Kökur ársins valdar í Kjarnanum - 29.9.2011

Kökur ársins voru valdar í félagsmiðstöðinni Kjarnanum í Kópavogsskóla síðastliðinn föstudag og voru 22 kökur skráðar til keppni. Að baki hverri köku voru tveir til fjórir kökumeistarar. Allir á unglingastigi Kópavogsskóla gátu tekið þátt.

Erling með sellóið sitt

Færir Tónlistarsafni Íslands góða gjöf - 29.9.2011

Hinn heimsfrægi sellóleikari Erling Blöndal Bengtsson hefur ákveðið að afhenda Tónlistarsafni Íslands til varðveislu fyrsta sellóið sem hann eignaðist sem barn og var sérsmíðað fyrir hann.

Bæjarstjórnarfundur í Hörðuvallaskóla

Bæjarstjórnarfundur í Hörðuvallaskóla - 27.9.2011

Bæjarstjórnarfundur í Kópavogi stendur nú yfir í Hörðuvallaskóla en þar hefur bæjarbúum gefist kostur á að bera fram fyrirspurnir í fundarhléi og ræða við bæjarfulltrúa. Markmiðið er að færa bæjarstjórnarfundi nær íbúunum.

Guðrún á sjávarútvegssýningu

Vel heppnuð sjávarútvegssýning í Kópavogi - 27.9.2011

Talið er að yfir tíu þúsund manns hafi lagt leið sína á Íslensku sjávarútvegssýninguna sem haldin var í Smáranum og Fífunni í Kópavogi dagana 22. til 24. september. Þetta er í fimmta sinn sem sýningin er haldin í Kópavogi og hefur bærinn stutt hana með ýmsum hætti.

sjávarútvegssýning

Þúsundir streyma á sjávarútvegssýningu í Kópavogi - 20.9.2011

Íslenska sjávarútvegssýningin verður haldin í tíunda sinn í Smáranum og í Fífunni í Kópavogi dagana 22. til 24. september. Sýningin hóf göngu sína árið 1984 og hefur verið haldin á þriggja ára fresti síðan þá. Búist er við því að þúsundir gesta muni leggja leið sína á sýninguna.

Tónleikar Töfrahurðarinnar hefjast um helgina - 20.9.2011

Töfrahurðin er núna að hefja sitt þriðja starfsár. Á þessu starfsári verða þrennir tónleikar. Þeir fyrstu sunnudaginn 25. september kl. 13:00, í Salnum í Kópavogi.

Hjólamynd

Athugasemdavefur fyrir hjólreiðastíga í Kópavogi - 15.9.2011

Í tilefni evrópskrar samgönguviku opnar Kópavogur nýjan athugasemdavef um hjólastíga í Kópavogi. Sem liður í opinni stjórnsýslu og samvinnu við íbúa bæjarins óskar bærinn nú eftir ábendingum um net hjólastíga sem gerð hefur verið tillaga um. Athugasemdafrestur er til 16. október 2011.

Hjóladagur

Hjólum, göngum og förum í strætó - 14.9.2011

Evrópska samgönguvikan hefst 16. september og tekur Kópavogsbær þátt í henni ásamt öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu. Markmiðið er að vekja fólk til umhugsunar um umhverfi sitt og hvetja það til að nota almenningssamgöngur, hjóla eða að ganga.

Hörðuvallaskóli

Bæjarstjórnarfundur í Hörðuvallaskóla - 14.9.2011

Bæjarstjórn Kópavogs heldur bæjarstjórnarfund í Hörðuvallaskóla þriðjudaginn 27. september en markmiðið er að færa fundina nær bæjarbúum. Íbúar eru hvattir til að mæta og spjalla við bæjarfulltrúa í fundarhléi.

jafnréttisþing

Sveitarfélög vinni markvisst að því að útrýma kynbundnum launamun - 12.9.2011

Landsfundur jafnréttisnefnda sveitarfélaga sem haldinn var í Kópavogi um helgina brýnir fyrir sveitarfélögum landsins að vinna markvisst að því að útrýma kynbundnum launamun.

Blóm í Kópavogi

Fjölskylduganga í Kópavogi - 12.9.2011

Fjölskylduganga verður í Kópavogi fimmtudaginn 15. september í tilefni dags íslenskrar náttúru. Lagt verður af stað frá austurenda Kjarrhólma kl. 17:00. Umhverfis- og samgöngunefnd Kópavogsbæjar skipuleggur gönguna. Hún tekur um það bil klukkutíma.
jafnréttisviðurkening

Þórunn hlýtur jafnréttisviðurkenningu bæjarins  - 10.9.2011

Þórunn Björnsdóttir, kórstjóri skólakórs Kársnesskóla, hlaut í gær jafnréttisviðurkenningu jafnréttis- og mannréttindaráðs Kópavogsbæjar. Viðurkenninguna fær hún fyrir ötult starf sitt í yfir þrjá áratugi við að kenna börnum skólans að syngja í kór og stuðla með því að jafnrétti til tónlistariðkunar.

Jón úr Vör

Minningardagskrá um dánu skáldin úr Kópavogi - 6.9.2011

Ritlistarhópur Kópavogs stendur fyrir minningardagskrá um dánu skáldin úr Kópavogi þriðjudaginn 13. september í Forsælunni við Salinn í Kópavogi. Dagskráin hefst kl. 20:00. Ættingjar og vinir flytja stutt erindi um átta skáld sem gengin eru yfir móðuna miklu. Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis.

Rektir HÍ kennir í Vatnsendaskóla

Fengu að vita allt um þöngulhausa - 6.9.2011

Náttúrufræðitíminn hjá krökkunum í 7. bekk gleymmérei í Vatnsendaskóla í Kópavogi var heldur óvenjulegur í gær því rektor Háskóla Íslands, Kristín Ingólfsdóttir, heimsótti bekkinn og kenndi hvernig nota mætti þara í lyf og mat. Heimsóknin er liður í afmælishátíð HÍ en skólinn fagnar sem kunnugt er hundrað ára afmæli sínu um þessar mundir.

Samningur um Kastalagerði

Samningur um þjónustu við íbúa í Kastalagerði - 5.9.2011

Samningur um þjónustu við fimm fullorðna fatlaða einstaklinga sem búa að Kastalagerði 7 í Kópavogi var í dag undirritaður af hálfu Kópavogsbæjar og Áss styrktarfélags. Markmiðið er að íbúar Kastalagerðis fái þá þjónustu sem mætir hvað best óskum þeirra, aðstæðum og þörfum.

Hamraborgarhátíð

Miðbæjarstemmning í Hamraborginni - 4.9.2011

Fjöldi Kópavogsbúa naut veðurblíðunnar á Hamraborgarhátíð í Kópavogi í gær. Hamraborginni var breytt í göngugötu, sölutjöldum var slegið upp og um 120 manns seldu gamalt dót og nýtt beint úr skottinu á bílnum sínum.
Vatnsendaskóli

Rektor HÍ kennir í Vatnsendaskóla - 2.9.2011

Nemendur Vatnsendaskóla fá góðan gest til sín á mánudag en þá ætlar Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, að kenna sjöunda-gleymmérei allt um það hvernig nota megi þara í mat og lyf. Tilefni heimsóknarinnar er afmælishátíð HÍ en skólinn fagnar hundrað ára afmæli sínu um þessar mundir.

Leikskólabörn Álfaheiði

Eplatré gróðursett í Álfaheiði - 1.9.2011

Leikskólabörn á leikskólanum Álfaheiði gróðursettu tvö eplatré á leikskólalóðinni í morgun. Tilefnið var að í sumar fóru fram endurbætur á lóðinni sem heppnuðust mjög vel. Börnin munu án efa hlúa vel að trjánum og fylgjast spennt með því hvort lítil epli líti dagsins ljós einn góðan veðurdag.