des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb.
Starfsmenn áhaldahúss Kópavogsbæjar hafa daglega vaktað Fossvogslæk eftir að nokkurt magn af rottueitri, sem notað er í skólplagnir, fannst í og við lækinn um miðjan september. Athugun leiddi í ljós að eitrið barst í lækinn úr regnvatnskerfi Reykjavíkurborgar.
Sveinn Dúa Hjörleifsson tenór hlaut í vikunni viðurkenningu úr styrktarsjóði Önnu K. Nordal við hátíðlega athöfn í Salnum, tónlistarhúsi Kópavogs. Í kjölfarið opnaði Sveinn Dúa síðdegis-tónleikaröð Salarins með tónleikum þar sem íslensk sönglög eru á efnisskránni.
Liðsmenn félagsmiðstöðvarinnar Jemen stóðu uppi sem sigurvegarar í Getkó, árlegri spurningakeppni félagsmiðstöðva unglinga í Kópavogi. Í öðru sæti varð félagsmiðstöðin Igló og í þriðja sæti varð félagsmiðstöðin Þeba.
Sveinn Dúa Hjörleifsson tenór, Sigríður Aðalsteinsdóttir mezzósópran, Gunnar Guðbjörnsson tenór, og Viðar Gunnarsson bassi, flytja íslensk sönglög á fjórum síðdegistónleikum í Salnum í lok október og í nóvember. Slíkir síðdegistónleikar voru á dagskrá Salarins fyrir nokkrum árum og nutu mikilla vinsælda.
Punkhátíð verður haldin í Kópavogi, laugardaginn 22. október. Tilgangurinn er að minnast þess þegar fyrstu tónar punksins hljómuðu í Kópavoginum í kringum 1980. Tónleikar fara fram í Molanum og á Spot og munu stíga á svið meðlimir hljómsveita á borð við Fræbbblanna, Q4U, Snillinganna, Vonbrigða, Tappa Tíkarrass, Taugadeildar og fleiri. Hátíðin er styrkt af Kópavogsbæ.
Sýningin Eyjafjarðarfossar verður opnuð í anddyri Náttúrufræðistofu Kópavogs laugardaginn 22. október. Á sýningunni eru ljósmyndir af 42 fossum í eyfirskum vatnsföllum eftir séra Svavar Alfreð Jónsson prest við Akureyrarkirkju. Sýningin stendur yfir til 1. desember.
Gunnar Hilmarsson, fatahönnuður og eigandi Andersen & Lauth, heldur fyrirlestur um ævi og starf Indriða Guðmundssonar klæðskera í Gerðarsafni kl. 14:00 á laugardag. Þar stendur nú yfir afmælissýning Fatahönnunarfélags Íslands og er Indriða minnst með ýmsum hætti í tengslum við sýninguna. Indriði lést fyrir aldur fram árið 2006 einungis fertugur að aldri.
Þau Adolf Petersen menntaskólakennari, Anna Lilja Þórisdóttir blaðamaður og Björn Grétar Stefánsson verkfræðingur keppa fyrir hönd Kópavogsbæjar í Útsvari, spurningakeppni Sjónvarpsins, í vetur.
Sannkölluð tískusýning stendur nú yfir í Gerðarsafni, listasafni Kópavogs, en þar er hægt að sjá fatnað 38 íslenskra fatahönnuða. Fatahönnunarfélag Íslands stendur að sýningunni en það fagnar tíu ára afmæli sínu um þessar mundir. Sýningin stendur til 13. nóvember.
Opinn fundur um réttindi fatlaðs fólks verður haldinn í Boðanum, Boðaþingi 9, nú á miðvikudag frá kl. 17:00 til 18:30. Fundurinn er liður í fundaröð Öryrkjabandalags Íslands og er haldinn í samstarfi við Kópavogsbæ. Yfirskriftin er: Fatlað fólk á tímamótum. Eru mannréttindi virt?
Það var falleg stund í Tónlistarsafni Íslands síðastliðinn föstudag er hinn heimsfrægi sellóleikari Erling Blöndal Bengtsson afhenti safninu til varðveislu fyrsta sellóið sem hann eignaðist sem barn og var sérsmíðað fyrir hann.