Fréttasafn

Fyrirsagnalisti

Jólasveinn

Jólamarkaður á föstudag - 30.11.2011

Hæfingarstöðin Fannborg 6 heldur jólamarkað 2. desember næstkomandi frá klukkan 13:00 til 16:00. Þar verða til sölu jólamunir sem starfsmenn á hæfingarstöðinni hafa búið til á árinu. Allir eru velkomnir.

Áfram lögð áhersla á að standa vörð um grunnþjónustu - 29.11.2011

Í tillögu að fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir árið 2012, sem lögð var fram til fyrri umræðu á bæjarstjórnarfundi síðdegis í dag, er gert ráð fyrir 105,6 milljóna króna rekstrarafgangi af samstæðu. Sjö af ellefu bæjarfulltrúum standa að fjárhagsáætluninni eða fulltrúar þeirra fjögurra framboða sem mynda meirihluta í bænum auk fulltrúa Framsóknarflokksins.

Nína Margrét

Hátíðartónleikar til heiðurs Sveinbirni Sveinbjörnssyni - 29.11.2011

Hátíðartónleikar verða í Salnum fimmtudaginn 1. desember kl. 20:00 með verkum eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson sem er eins og kunnugt er höfundur þjóðsöngsins okkar. Verkin verða í flutningi einvalaliðs tónlistarmanna. Miðaverð er 2.500 krónur.

Jólatré 2011

Aðventuhátíð í Kópavogi - 27.11.2011

Ljósin voru tendruð á vinabæjarjólatré Kópavogsbúa á Hálsatorgi í gær. Á sama tíma var haldin aðventuhátíð með ýmsum uppákomum í nærliggjandi söfnum og stofnunum. Stekkjastaur fylgdist með hátíðinni ásamt börnunum í Kópavogi. Skólahljómsveit Kópavogs spilaði og Samkór Kópavogs söng nokkur jólalög. 

Skólabörn í Salaskóla

Syngjum saman á degi íslenskrar tónlistar - 25.11.2011

Dagur íslenskrar tónlistar verður haldinn hátíðlegur 1. desember næstkomandi og í tilefni hans munu allar útvarpsstöðvar landsins spila þrjú íslensk lög samtímis kl. 11.15. Vonast er til að Íslendingar geti sameinast við viðtækin og sungið lög til heiðurs íslenskri tónlist. Sigtryggur Baldursson, tónlistarmaður úr Kópavogi, er einn þeirra sem stendur að viðburðinum.

Jólaljósin Kópavogi

Jólaljósin tendruð í Kópavogi - 24.11.2011

Ljósin verða tendruð á vinabæjarjólatré Kópavogsbúa á Hálsatorgi, laugardaginn 26. nóvember, kl. 16:00. Jólatréð er gjöf bæjarbúa í Norrköping í Svíþjóð til Kópavogsbúa. Sendiherra Svíþjóðar, Anders Ljunggren, afhendir tréð og Hjálmar Hjálmarsson, forseti bæjarstjórnar, tekur á móti því fyrir hönd bæjarins.

1275

Íbúar hvattir til að tengja skólplagnir rétt - 24.11.2011

Ákveðið var í haust hjá Kópavogsbæ að gera verulegt átak í því að finna rangtengingar skólplagna frá fyrirtækjum og íbúðarhúsum í bænum en borið hefur á því að slíkar lagnir hafi verið tengdar inn í regnvatnslagnir en þá rennur skólpið óhreinsað í lækina í Kópavogsdal og Fossvogsdal. Hvatt er til þess að íbúar og fyrirtæki leiti sér upplýsinga um tengingar áður en farið er í framkvæmdir.

Keppni unglinga

Unglingar úr Kópavogi hrepptu verðlaunasæti - 23.11.2011

Unglingar úr Kópavogi stóðu sig mjög vel í hönnunar-, förðunar- og hárgreiðslukeppni unglinga, Stíl, sem fram fór síðastliðna helgi. Um 220 unglingar í 55 liðum hvaðanæva af landinu tóku þátt. Keppnin er samstarfsverkefni félagsmiðstöðva á Íslandi. Lið úr Kópavogi höfnuðu í öðru og þriðja sæti.

Sögufélag Kópavogs

Sögufélag Kópavogs stofnað - 23.11.2011

Sögufélag Kópavogs var stofnað síðastliðinn fimmtudag í safnaðarheimili Kársnessóknar, Borgum. Um 90 manns sóttu stofnfundinn og var gerður góður rómur að framtakinu. Bæjarstjóri Kópavogs, Guðrún Pálsdóttir, flutti ávarp og færði félaginu veglega bókagjöf og árnaðaróskir.

Jónas Ingimundarson

Jónas Ingimundarson heiðursborgari Kópavogs - 22.11.2011

Bæjarstjórn Kópavogs ákvað á fundi sínum í kvöld að gera Jónas Ingimundarson píanóleikara að heiðursborgara Kópavogs. Með því vill bæjarstjórn sýna honum þakklæti fyrir ómetanlegt starf í þágu tónlistar, menningar og tónlistaruppeldis.

Börn í Tónlistarsafni Íslands

Fjallað um Mozart í Tónlistarsafni Íslands - 21.11.2011

Leikskólabörn í Kópavogi og í Garðabæ urðu margs fróðari um austurríska tónskáldið Wolfgang Amadeus Mozart í Tónlistarsafni Íslands í dag en safnið í samvinnu við Töfrahurðina stendur fyrir þessari fræðslu. Guðmundur Elías Knudsen leikari túlkaði Mozart við mikla hrifningu barnanna.

Hagasmári

Húsnæði við Hagasmára lagfært - 16.11.2011

Til stendur að breyta húsnæði gömlu Zinkstöðvarinnar við Hagasmára 2 og nýta það undir bílaþvottastöð. Þetta er meðal þess sem fram kemur í dreifibréfi skipulags- og byggingardeildar Kópavogsbæjar til íbúa og fyrirtækja í grennd við óbyggða svæðið sunnan Smáralindar.

Leikfélag Kópavogs

Frumsýnir glænýtt leikverk - 15.11.2011

Unglingadeild Leikfélags Kópavogs frumsýnir glænýtt leikverk er nefnist Vertu úti sunnudaginn 20. nóvember kl. 20.00. Verkið er byggt á á þekktum þjóðsögum og þjóðsagnaminnum.

Börn

Ljóðasamkeppni meðal grunnskólabarna í Kópavogi - 14.11.2011

Að frumkvæði menningar- og þróunarráðs Kópavogsbæjar verður efnt til ljóðasamkeppni meðal grunnskólabarna í Kópavogi í tengslum við ljóðasamkeppnina: Ljóðstafur Jóns úr Vör. Undirbúningur að keppninni er þegar hafinn en úrslit verða kynnt á fæðingarafmæli Jóns úr Vör 21. janúar 2012.

Dómnefnd ljóðasamkeppni Jóns úr vör

Mikill áhugi á ljóðasamkeppni - 14.11.2011

Fjöldi ljóða streymir nú inn í ljóðasamkeppni menningar- og þróunarráðs Kópavogsbæjar sem ber heitið: Ljóðstafur Jóns úr Vör. Skilafrestur rennur út 3. desember. Í dómnefnd eru þau Gerður Kristný, Sigurður Pálsson og Jón Yngvi Jóhannsson.

Barbara Árnason

Samþykkt að veita systkinaafslátt hjá dagforeldrum - 14.11.2011

Bæjarráð hefur samþykkt að taka upp að nýju systkinaafslátt hjá dagforeldrum til að létta greiðslubyrði foreldra vegna daggæslu. Systkinaafsláttur er þegar veittur í leikskólum Kópavogs sem og í dægradvöl í skóla.

Erla Karlsdóttir

Jafnréttisráðgjafa falið að leggja fram kæru - 11.11.2011

Jafnréttis- og mannréttindaráð Kópavogsbæjar hefur falið jafnréttisráðgjafa bæjarins að leggja fram kæru á hendur skemmtistaðnum Players í Kópavogi, umboðsskrifstofunni agent.is og Ólafi Geir Jónssyni þar sem auglýsing um viðburðinn brjóti gegn 29. grein jafnréttislaga. Þá lýsti ráðið í dag vanþóknun sinni á viðburðinum „Dirty Night“ sem halda á annað kvöld.

Guðríður Arnardóttir

Bæjarfulltrúar hafi sérstakt eftirlitshlutverk - 11.11.2011

Hæstiréttur hefur sýknað þrjá bæjarfulltrúa í meiðyrðamáli sem eigendur fyrirtækisins Frjálsrar miðlunar ehf. höfðuðu gegn þeim vegna ummæla um viðskipti félagsins við Kópavogsbæ. Í dómi Hæstaréttar segir m.a. að kjörnir bæjarfulltrúar í Kópavogi hafi sem slíkir sérstakt aðhalds- og eftirlitshlutverk. Svigrúm þeirra til að rækja það hlutverk verði ekki takmarkað nema brýnir lögvarðir hagsmunir annarra krefðust þess.

Kópavogur á Facebook

Kópavogur á Facebook - 10.11.2011

Kópavogsbær heldur úti líflegri Facebook síðu þar sem áhersla er lögð á að birta fréttir og ýmsan annan fróðleik úr bæjarfélaginu. Kópavogsbúar eru hvattir til að „læka“ síðuna og senda hana áfram til þeirra sem hafa áhuga á því að fylgjast vel með bænum.

Börn

Ljóðalestur á degi íslenskrar tungu - 9.11.2011

Félagar úr Bókmenntaklúbbi Hana–nú lesa úr verkum skáldsins Jakobs Thorarensen í Bókasafni Kópavogs á degi íslenskrar tungu 16. nóvember næstkomandi. Lesturinn fer fram frá kl. 16:00 til 17:00 í Kórnum sem er á fyrstu hæð bókasafnsins. Allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir. 

sund

Aukin aðsókn í sundlaugar Kópavogs - 9.11.2011

Aðsókn í sundlaugar Kópavogs jókst í haust samanborið við sama tímabil í fyrra en það má rekja til þess að opnunartíminn hefur verið lengdur. Þetta er meðal þess sem fram kemur í mánaðarskýrslu bæjarins fyrir október.

Kvennakór Kópavogs.

Allir sem einn gegn einelti - 8.11.2011

Þjóðarsáttmáli um baráttu gegn einelti var undirritaður af fulltrúum sveitarfélaga og ríkis í Höfða í dag. Tilefnið er að í dag er dagur gegn einelti en með honum er verið að benda á það samfélagsböl sem einelti er. Með sáttmálanum er verið að leggja áherslu á að allir eigi að geta lifað í sátt og samlyndi.

Kóparokk 2011

Fjögur hundruð unglingar á Kóparokki - 8.11.2011

Tæplega fjögur hundruð unglingar sóttu tónlistarhátíðina Kóparokk, árlegan tónlistarviðburð unglinga í Kópavogi, síðastliðið föstudagskvöld. Hátíðin fór fram í félagsmiðstöðinni Ekkó í Kársnesskóla. Eins og við mátti búast var stemmningin mikil og góð og skemmtu ungmennin sér fram eftir kvöldi.

straetomynd

Höfum hæfilegt bil á milli bíla - 3.11.2011

Strætó bs. og VÍS standa fyrir Öryggisdögum næsta mánuðinn – átaki sem miðar að því að fækka slysum í umferðinni og auka öryggi vegfarenda. Sérstaklega verður hugað að því að vagnstjórar haldi hæfilegu bili á milli bíla og fækki með því aftanákeyrslum sem eru algengasta orsök umferðaróhappa á höfuðborgarsvæðinu.  

Gerðarsafn

Gerðarsafn er komið á Twitter - 3.11.2011

Gerðarsafn - Listasafn Kópavogs er nú komið með Twitter síðu þar sem fylgjast má með öllum þeim spennandi viðburðum og sýningum sem safnið hefur upp á að bjóða. Á laugardag verður til dæmis stefnumót við hönnuði kl. 14:00 í tengslum við sýningu Fatahönnunarfélags Íslands. Sýningin er haldin í tilefni af tíu ára afmæli félagsins.

Kvennakór Kópavogs.

Styrktartónleikar fyrir Mæðrastyrksnefnd Kópavogs - 3.11.2011

Kvennakór Kópavogs í samstarfi við Digraneskirkju stendur fyrir góðgerðartónleikum fyrir Mæðrastyrksnefnd Kópavogs næstkomandi sunnudag frá kl. 16:00 til 18:00 í Digraneskirkju. Miðaverð er 2.500 krónur sem renna óskiptar til nefndarinnar.

Neyðarkall

Hjálparsveit skáta selur neyðarkallinn - 3.11.2011

Hin árlega sala á „Neyðarkalli frá björgunarsveitum“ fer fram um helgina. Hjálparsveit skáta í Kópavogi stendur vaktina víðsvegar í bænum, meðal annars við Smáralind, Smáratorg, Vínbúðina við Dalveg, Krónuna í Lindum, Byko Breidd, Bónus Smiðjuvegi, Bónus Ögurhvarfi, Kosti og Hamraborg.

MANUEL BARRUECO

Manuel Barrueco gítarleikari með tónleika í Salnum - 3.11.2011

Hinn heimskunni gítarleikari Manuel Barrueco verður með tónleika í Salnum miðvikudaginn 9. nóvember kl. 20:00. Á efnisskránni má finna sellósvítu eftir Bach, Five Pieces eftir Piazzolla, auk verka eftir Ponce, Albéniz og Tárrega.

straetisvagn

Októbermánuður aldrei stærri í sögu Strætó - 1.11.2011

Heildarfjöldi farþega Strætó bs. í októbermánuði hefur aldrei verið meiri en í nýafstaðinni talningu, en hann fór nú í fyrsta sinn yfir 900.000 farþega. Þegar bornar eru saman farþegatölur annars vegar í október á síðasta ári og hins vegar í október 2011 er aukningin rúmlega 76 þúsund farþegar, eða 9,15%.

Kökukeppni - félagsmiðstöðin Dimma.

Opið hús í félagsmiðstöðvum Kópavogs - 1.11.2011

Félagsmiðstöðvadagurinn verður haldinn í Kópavogi á morgun, miðvikudaginn 2. nóvember. Markmiðið er að kynna hið fjölbreytta starf félagsmiðstöðvanna. Opið er frá kl. 17:00 til 19:00 og frá kl. 20:00 til 22:00. Allir velkomnir.

Skólahljómsveit Kópavogs

Árvissir hausttónleikar Skólahljómsveitar Kópavogs - 1.11.2011

Skólahljómsveit Kópavogs heldur árvissa hausttónleika sína í Háskólabíói þriðjudaginn 8. nóvember kl. 19:30. Tónleikarnir eru öllum opnir og kostar 1.000 krónur inn fyrir 16 ára og eldri, en frítt er fyrir börn. Hægt verður að kaupa miða í Háskólabíói frá kl. 16:00 á tónleikadag.