Fréttasafn

Fyrirsagnalisti

Snjóhreinsun heldur áfram á morgun - 30.12.2011

Snjóhreinsun í Kópavogi hefst klukkan fjögur á gamlársdag og verður unnið fram til klukkan þrjú þann dag en lengur í neyðartilvikum. Á nýársdag verður áhersla lögð á að halda aðalleiðum færum en miðað er við að hefja snjóhreinsun að fullu á ný klukkan fjögur að morgni mánudags.

Sorphirðu seinkar vegna ófærðar - 30.12.2011

Sorphirðu seinkar í Kópavogsbæ vegna ófærðar. Kópavogsbúar eru beðnir um að moka snjó frá tunnunum til að auðvelda aðkomu að þeim.

Stefnt að því að ryðja sem flestar götur - 30.12.2011

Snjóhreinsun í Kópavogi hófst klukkan fjögur í morgun og fór fram í allan dag þar sem notast var við tuttugu tæki af ýmsum stærðum og gerðum. Stefnt er að því að ryðja sem flestar götur bæjarins, gangstéttir og göngustíga. Aftur verður hafist handa eldsnemma á morgun föstudag og á gamlársdag.

Jólaljósin Kópavogi

Kópavogsbær hirðir jólatré - 28.12.2011

Starfsmenn áhaldahúss Kópavogs munu, eins og undanfarin ár, aðstoða Kópavogsbúa við að fjarlægja jólatré sín 9. og 10. janúar. Þeir bæjarbúar sem vilja nýta sér þessa þjónustu eru vinsamlegast beðnir um að setja jólatrén út fyrir lóðamörk og ganga þannig frá þeim að þau geti ekki fokið.

Leikskólabörn Álfaheiði

Greiðsluhlutfall foreldra lækkar - 28.12.2011

Rekstrargjöld leikskóla Kópavogs hafa hækkað umtalsvert að undanförnu vegna verðlagshækkana og launahækkana og hefði þeim öllum verið beint til foreldra hefði leikskólagjaldið hækkað um 13 til 14%.

Áramótabrenna

Áramótabrenna við  Smárahvammsvöll - 28.12.2011

Áramótabrenna verður eins og undanfarin ár í Kópavogsdalnum við Smárahvammsvöll á gamlárskvöld. Kveikt verður í brennunni kl. 20:30 og hefst flugeldasýning kl. 21:10.

straetisvagn

Nemakort Strætó nú einnig í boði fyrir grunnskólanema - 28.12.2011

Grunnskólanemum með lögheimili á höfuðborgarsvæðinu gefst nú kostur á að kaupa nemakort Strætó bs. en hingað til hafa þau einungis verið í boði fyrir nema á framhalds- og háskólastigi. Nemakortið verður persónukort, sem nemar á aldrinum 6-18 ára fá keypt með staðfestingu á aldri samkvæmt þjóðskrá.

Opnunartími yfir jól og áramót - 22.12.2011

Bæjarskrifstofur Kópavogs verða opnar á hefðbundnum tímum um jól og áramót. Þjónustuver bæjarins opnar þó ekki fyrr en kl. 10:00 þriðjudaginn 27. desember og kl. 10:00 mánudaginn 2. janúar. Starfsfólk Kópavogsbæjar óskar öllum gleðilegrar hátíðar og farsældar á komandi ári.

Akstur Strætó um jól og áramót - 22.12.2011

Breytingar verða á akstri Strætó bs. um jól og áramót, eins og jafnan á stórhátíðum. Á Þorláksmessu, föstudaginn 23. desember, verður ekið samkvæmt hefðbundinni áætlun á virkum degi. Á aðfangadag, laugardaginn 24. desember, verður ekið eins og á laugardegi til kl. u.þ.b. 14, en þá hætta vagnarnir akstri.

Bæjarráð Kópavogs styrkir mæðrastyrksnefnd - 22.12.2011

Bæjarráð ákvað á fundi sínum í morgun að gefa Mæðrastyrksnefnd Kópavogs 1,5 milljónir króna en með  því vill bærinn styðja við þá sem höllum fæti standa um jólin. 

Dægradvöl hækkar um 5% um áramótin - 21.12.2011

Dægradvöl í grunnskólum Kópavogs hækkar um 5% frá og með 1. janúar næstkomandi en við það er miðað að greiðslur standi undir kostnaði við þjónustu. Þessar breytingar voru samþykktar á síðasta bæjarstjórnarfundi vegna fjárhagsáætlunar næsta árs og hafa verið kynntar í skólum bæjarsins. Verð á skólamáltíðum helst hins vegar óbreytt.

Fundur bæjarstjórnar 22. desember - 21.12.2011

Seinni fundur bæjarstjórnar í desember verður haldinn fimmtudaginn 22. desember og hefst kl. 10. Fundurinn fer fram í sal bæjarstjórnar að Fannborg 2.

Leikskólagjöld hækka um áramótin - 20.12.2011

Átta tíma vistun í leikskólum Kópavogs hækkar um 6,9%  frá og með 1. janúar 2012. Þar af hækkar sjálft leikskólagjaldið um 7,5% en matur um 5,4%. Þrátt fyrir það er bærinn að greiða meira með hverju barni á næsta ári en á árinu 2011.

Opnunartími yfir jól og áramót - 16.12.2011

Bæjarskrifstofur Kópavogs verða opnar á hefðbundnum tímum um jól og áramót. Þjónustuver bæjarins opnar þó ekki fyrr en kl. 10:00 þriðjudaginn 27. desember og kl. 10:00 mánudaginn 2. janúar. Starfsfólk Kópavogsbæjar óskar öllum gleðilegrar hátíðar og farsældar á komandi ári.

Fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar samþykkt - 13.12.2011

Fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir árið 2012 var samþykkt á fundi bæjarstjórnar í kvöld en að henni standa allir flokkar í bæjarstjórn nema Sjálfstæðisflokkurinn. Í áætluninni er áfram gert ráð fyrir aðhaldi í rekstri og lækkun skulda.  Breytingartillögur sjálfstæðismanna voru felldar.

Samningur um rekstur Dvalar.

Kópavogsbær endurnýjar samning um rekstur Dvalar - 12.12.2011

Kópavogsbær hefur endurnýjað samning sinn við Kópavogsdeild Rauða Kross Íslands um rekstur Dvalar, athvarfs fyrir fólk með geðraskanir. Samningurinn var undirritaður af þeim Guðrúnu Pálsdóttur bæjarstjóra og Ingibjörgu Lilju Diðriksdóttur, formanni Kópavogsdeildarinnar.

Gjörningur í Gerðarsafni

Nýjar reglur lista- og menningarsjóðs staðfestar í bæjarstjórn - 9.12.2011

Nýjar reglur fyrir lista- og menningarsjóð Kópavogsbæjar voru staðfestar á síðasta bæjarstjórnarfundi en þær eru mun ítarlegri en þær sem fyrir voru. Hlutverk sjóðsins er að efla lista- og menningarlíf í Kópavogi. Auglýst verður eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum í byrjun næsta árs. 

Jónas Ingimundarson

Móttaka til heiðurs Jónasi Ingimundarsyni - 4.12.2011

Móttaka til heiðurs Jónasi Ingimundarsyni píanóleikara var haldin í Salnum síðdegis í dag í tilefni þess að hann hefur verið kosinn heiðursborgari Kópavogsbæjar. Hann er fjórði heiðursborgari bæjarins. Í móttökunni voru m.a. ættingar og nánustu samstarfsmenn í gegnum árin.