des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb.
Héraðsskjalasafnið í Kópavogi hefur nú verið flutt í nýtt húsnæði að Digranesvegi 7. Verður það formlega vígt laugardaginn 12. maí. Það var áður í húsnæði að Hamraborg 14a. Sjálfur skjalaflutningurinn hófst í ágúst 2011 og lauk þegar Hamraborgin var tæmd í febrúarlok 2012.
Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs opnaði í dag sýninguna: Heimilið og garðurinn í Smáranum í Kópavogi. Á sýningunni er lögð áhersla að að kynna allt sem tengist þeim málaflokki. Vonast er til að sýningin geti orðið árviss viðburður í Kópavogi.
Kópavogsbær óskar HK til hamingju með Íslandsmeistaratitilinn en HK varð Íslandsmeistari karla í fyrsta sinn um helgina. HK sigraði FH 28:26 í Kaplakrika.
Kópavogur iðar af lífi þessa dagana en nú stendur yfir menningarhátíð í bænum þar sem yngsta kynslóðin fær sérstaka athygli undir yfirskriftinni: Ormadagar. Fjölbreytt dagskrá er í boði á menningartorfunni og í dag tóku leikskólabörn í bænum þátt í flugdrekadeginum mikla á Listatúni.
Jafnréttis- og mannréttindaráð Kópavogsbæjar óskar eftir tilnefningum vegna árlegrar jafnréttisviðurkenningar. Samkvæmt jafnréttisstefnu Kópavogsbæjar veitir jafnréttis- og mannréttindaráð ár hvert viðurkenningu þeirri stofnun, nefnd eða ráði bæjarins, einstaklingi, félagi, fyrirtæki eða annarri stofnun sem hefur að mati ráðsins staðið sig best undangengin ár við að vinna að framgangi jafnréttis- og mannréttindamála í Kópavogi.
Kópavogsdagar, árleg menningarhátíð Kópavogs, hófust í dag og standa óslitið til 12. maí. Sérstök áhersla verður lögð á barnamenningu og því mega sundlaugargestir í Kópavogi eiga von á því að rekast á fljótandi verðlaunaljóð eftir grunnskólabörn úr bænum í sundi og ljóðaunnendur í strætó geta lesið þau á strætóleiðum 28 og 35 í Kópavogi.
Kópavogsdagar, menningarhátíð Kópavogsbæjar, hefjast með formlegri athöfn kl. 15:00 á morgun við Listatúnið sem er við safnahúsið og Gerðarsafn. Þetta er í níunda sinn sem menningarhátíðin er haldin.
Um 400 börn Kársneskóranna standa fyrir samfelldri söngdagskrá í Salnum, laugardaginn 5. maí frá kl. 9:00 til 16:00 og ljúka þannig 37. starfsári sínu. Tónleikarnir eru hluti af Kópavogsdögum, menningarhátíð bæjarins sem nú er að hefjast.
Kópavogsbúar fá á næstu vikum nýja bláa endurvinnslutunnu en þar með verður Kópavogur fyrsta sveitarfélagið á höfuðborgarsvæðinu, ásamt Mosfellsbæ, til að gefa öllum íbúum kost á því að flokka sorp við húsdyrnar hjá sér. Fyrstu tunnunum verður dreift í Nónhæð 9. maí og má búast við að öll heimili í Kópavogi verði komin með nýja tunnu að fimm vikum liðnum.
Kópavogsbúar fögnuðu sumardeginum fyrsta í blíðskaparveðri í gær. Skátafélagið Kópar hafði veg og vanda af dagskránni sem var afar fjölbreytt. Dagurinn hófst með skátamessu og skrúðgöngu og í Fífunni hélt bæjarstjóri Kópavogs, Ármann Kr. Ólafsson, stutt ávarp og óskaði öllum gleðilegs sumars.
Skráning á sumarnámskeið hjá Kópavogsbæ hefst 3. maí en búist er við að fleiri en þúsund börn og unglingar verði á námskeiðum á vegum bæjarins í sumar. Námskeiðin eru mjög fjölbreytt og því ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi.
Sumardeginum fyrsta þann 19. apríl verður fagnað með skrúðgöngu kl. 13:30, gengið verður frá Digraneskirkju í Fífuna, þar sem fram fer skemmtidagskrá fyrir alla fjölskylduna til kl. 16:00.
Niðurgreiðsla skulda Kópavogsbæjar umfram lántökur var rúmlega 1.650 milljónir króna á síðasta ári. Þetta er meðal þess sem kemur fram í ársreikningi Kópavogsbæjar fyrir árið 2011. Hann var lagður fram á bæjarráðsfundi í morgun og samþykktur til afgreiðslu í bæjarstjórn. Fyrri umræða er væntanleg 24. apríl.
Árviss vorhreinsun lóða í Kópavogi er nú að hefjast en þá taka allir höndum saman, eigendur lóða og landsvæða, um að hreinsa og fegra bæinn fyrir sumarið. Starfsmenn Kópavogsbæjar verða svo á ferðinni í lok apríl og í byrjun maí og fjarlægja garðúrgang sem fólk hefur sett utan við lóðamörk sín.
Hin árlega menningarhátíð Kópavogs, Kópavogsdagar, verður haldin 5. til 11. maí. Er það í níunda sinn sem hátíðin verður haldin. Kópavogur hefur um árabil stutt vel við menningarlífið í bænum og er markmið Kópavogsdaga að gefa bæjarbúum færi á að njóta afrakstur þess á eins konar uppskeruhátíð.
Nú er unnið að því að sópa götur og gönguleiðir í Kópavogi eins og bæjarbúar hafa væntanlega tekið eftir en nokkur sandur er á götunum eftir snjóþungan vetur. Sem kunnugt er var sandur og salt borið á göturnar þegar hálkan var sem mest. Vorhreingerningin heldur áfram eftir páska.
Leikskólabörnin í Arnarsmára í Kópavogi eru áhugasöm um bætt umferðaröryggi í hverfinu og afhentu þau Ármanni Kr. Ólafssyni bæjarstjóra tillögur sínar að nýjum göngubrautum og skiltum í morgun. Hann útilokaði ekki að hægt yrði að koma til móts við þær tillögur að einhverju leyti.
Opnað hefur fyrir umsóknir um sumarstörf og störf í Vinnuskóla Kópavogs. Sumarstörf eru fyrir 18 ára og eldri (fædd 1994 og fyrr) en Vinnuskóli er fyrir þá sem eru á aldrinu 14 – 17 ára (fædd 1995 – 1998).
Aðalsteinn Hilmarsson, Lindaskóla, sigraði í árlegri upplestrarkeppni í 7. bekk sem haldin var í Salnum í vikunni. Keppendur voru 18 frá 9 grunnskólum í Kópavogi. Ragnheiður Kara Hálfdánardóttir, Snælandsskóla, var í 2. sæti og Bertha María Óladóttir var í 3. sæti.
Skáksveit Álfhólsskóla kom sá og sigraði á Íslandsmóti barnasveita í skák um helgina. A-sveitir Rimaskóla og Salaskóla urðu í öðru og þriðja sæti. Keppnin fór fram í Rimaskóla. Í sigurliðinu eru: Dawid Kolka, Róbert Leó Jónsson, Felix Steinþórsson og Guðmundur Agnar Bragason. Smári Rafn Teitsson er þjálfari og liðsstjóri.
Börnin á leikskólanum Baugi í Kópavogi tóku vel á móti bæjarstjóra, Ármanni Kr. Ólafssyni og formanni bæjarráðs, Rannveigu Ásgeirsdóttur, í morgun en þau voru þangað komin til að kynna sér starfsemi leikskólans. Ármann og Rannveig hyggjast heimsækja alla leikskóla Kópavogs, sem og aðrar stofnanir bæjarins, á næstu vikum og mánuðum.
Danspör frá Dansíþróttafélagi Kópavogs (DÍK) stóðu sig með eindæmum vel á Íslandsmeistaramóti í dönsum með frjálsri aðferð sem fram fór um liðna helgi. Einnig tóku þau þátt í bikarmóti fyrir K-riðla og dansmóti fyrir A-riðla með góðum árangri.
Klassískt diskótek fer fram kl 13:00 í Salnum sunnudaginn 18. mars í boði Töfrahurðarinnar . DJ Sóri (Sigurþór Heimisson) mætir og kynnir fyrir gestum danstónlist frá klassíska tímabilinu, sannkallaða partýtónlist fyrri alda. Allir eru velkomnir. Miðaverð er kr. 1.500.
Jafnréttisdagar voru haldnir í Menntaskólanum í Kópavogi á dögunum en markmiðið er að auka vitund nemenda, foreldra og annarra um jafnrétti. Dagarnir eru árviss viðburður og eru haldnir í samstarfi skólans og jafnréttisnendar Kópavogsbæjar.
Flokkun á sorpi til endurvinnslu hefst í Kópavogi í sumar en samkomulag um kaup og afhendingu endurvinnslutunna hefur nú verið undirritað af bæjarstjóra Kópavogs, Ármanni Kr. Ólafssyni og Sveini Hannessyni framkvæmdastjóra fyrirtækisins Hafnarbakka – Flutningatækni ehf. Kópavogur er þar með eitt af fyrstu sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu til að flokka sorp.
Árleg sýning Blaðaljósmyndarafélags Íslands á bestu myndum ársins 2011 verður opnuð í Gerðarsafni, laugardaginn 3. mars klukkan 15.00. Á sýningunni eru að þessu sinni 72 myndir sem valdar hafa verið af dómnefnd úr um eitt þúsund innsendum myndum yfir 30 blaðaljósmyndara.
Atvinnutorgi fyrir ungt fólk í Kópavogi hefur nú verið komið á fót en markmiðið er að auka virkni ungs fólks á aldrinum 16 til 25 ára, sem hvorki er í vinnu né skóla, og aðstoða það við að fóta sig á vinnumarkaði eða í námi. Atvinnutorgið er tilraunaverkefni Kópavogsbæjar, Vinnumálastofnunar og velferðarráðuneytisins og nær til þriggja ára.
Ný dægradvöl aldraðra í Kópavogi, sem Sjómannadagsráð, eigandi Hrafnistuheimilanna, og Kópavogsbær sömdu um í janúar síðastliðnum, var formlega tekin í notkun í dag. Starfsemin er til húsa í þjónustumiðstöð Kópavogsbæjar við hlið Hrafnistu í Boðaþingi og er gert ráð fyrir dvöl þrjátíu einstaklinga á hverjum tíma.
Tónlistarsafn Íslands hefur að undanförnu tekið á móti áhugasömum skólakrökkum og frætt þá um sögu tónlistar og fleira. Tónlistarsafnið er eitt af glæsilegum söfnum Kópavogsbæjar og er á menningarholtinu svokallaða, skáhalt á móti Gerðarsafni.
Leikfélag Kópavogs frumsýnir nýtt íslenskt leikverk er nefnist Hringurinn, sunnudaginn 26. febrúar. Verkið er eftir Hrefnu Friðriksdóttur og leikstjóri er Hörður Sigurðarson. Miðaverð er 2.000 kr. en 1.000 fyrir aldraða og öryrkja. Sýningar standa yfir til 10. mars.
Skólahljómsveit Kópavogs heldur upp á 45 ára starfsafmæli sitt með veglegum tónleikum í Eldborgarsal Hörpu sunnudaginn 4. mars kl. 17:00. Hljómsveitin sem var stofnuð haustið 1966 miðar afmæli sitt ávallt við fyrstu tónleikana sem haldnir voru við Kársnesskóla 22. febrúar 1967.
Frá og með föstudeginum 17. febrúar til miðvikudagsins 7. mars verður Héraðsskjalasafn Kópavogs lokað vegna flutninga. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem lokunin kann að valda en í nýju húsnæði að Digranesvegi 7 verður öll aðstaða til afgreiðslu skjala og móttöku gesta mun betri en verið hefur.
Ármann Kr. Ólafsson tók við lyklavöldunum af Guðrúnu Pálsdóttur á bæjarstjóraskrifstofu Kópavogs í dag. Ármann var kjörinn bæjarstjóri á fundi bæjarstjórnar í vikunni. Guðrún hverfur nú til annarra starfa hjá bænum en hún varð bæjarstjóri í júní 2010.
Þriggja ára fjárhagsáætlun vegna áranna 2013 til 2015 var tekin til fyrri umræðu á bæjarstjórnarfundi í vikunni. Í áætluninni er reiknað með að rekstrarafgangur verði á samstæðureikningi næstu árin eða 327 milljónir króna árið 2013, 521 milljón króna árið 2014 og um 698 milljónir króna árið 2015.
Erindaröð um ábyrgð verður haldin á Bókasafni Kópavogs vikulega á fimmtudögum í febrúar og mars. Fjórir þekktir einstaklingar greina frá viðhorfi sínu til efnisins. Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Ármann Kr. Ólafsson var á fundi bæjarstjórnar í kvöld kjörinn bæjarstjóri Kópavogs. Nýr meirihluti sjálfstæðismanna, framsóknarmanna og Y-Lista Kópavogsbúa tók á þeim sama fundi við stjórnartaumunum í bænum.
Góð aðsókn var á Safnanótt í Kópavogi á föstudagskvöld en fimm söfn á menningarholti bæjarsins buðu afar fjölbreytta dagskrá. Safnanótt er samstarfsverkefni sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu en tilgangurinn er að vekja athygli á því mikla starfi sem fram fer í söfnum á svæðinu.
Urpið, söngkeppni NMK (nemendafélags Menntaskólans í Kópavogi) fór fram, í Salnum 8. febrúar sl. Margir efnilegir söngvarar stigu á stokk en Aron Daði Þórisson og Jenna Katrín Kristjánsdóttir báru sigur úr býtum og keppa fyrir hönd MK í Söngkeppni framhaldsskólanna, á Akureyri í apríl.
Málefnasamningur um meirihlutasamstarf Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Y-Lista Kópavogsbúa hefur nú verið samþykktur. Í honum er tekið fram að hann sé grundvallaður á stefnuskrám flokkanna fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 2010 en hann taki jafnframt mið af því að hann sé gerður á miðju kjörtímabili.
Bæjarfulltrúar Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Y-Lista Kópavogsbúa hafa myndað nýjan meirihluta í Kópavogi, undirritað málefnasaming og samkomulag um skiptingu embætta. Bæjarstjóraskipti fara fram á bæjarstjórnarfundi nk. þriðjudag, 14. febrúar og á sama tíma tekur nýi meirihlutinn formlega við.
Vélaballett, rússneskur barnakór, erindi um myrk öfl og herkænskuleikur er meðal þess sem verður í boði á Safnanótt í Kópavogi, föstudagskvöldið 10. febrúar. Gerðarsafn, Náttúrufræðistofa Kópavogs, Bókasafn Kópavogs, Tónlistarsafn Íslands og ungmennahúsið Molinn verða með fjölbreytta dagskrá fyrir gesti og gangandi frá kl. 19:00 til 24:00. Allir eru velkomnir og frítt er á alla viðburði.
Dagur leikskólans er haldinn hátíðlegur í dag, 6. febrúar, og af því tilefni færðu leikskólabörn úr Marbakka þeim Sesselju Hauksdóttur, deildarstjóra leikskóladeildar Kópavogsbæjar, og Önnur Birnu Snæbjörnsdóttur, sviðsstjóra menntasviðs plakat með upplýsingum um leikskólastarfið. Á plakatinu eru 16 spakmæli leikskólabarna og eiga leikskólabörn í Kópavogi hvorki fleiri né færri en tíu spakmæli.
Bæjarstjórarnir í Garðabæ, Hafnarfirði, Kópavogi, Mosfellsbæ og Seltjarnarnesi undirrituðu þann 25. janúar samstarfssamning við Rannsóknarstofu í menntunarfræðum um rannsóknarverkefni í leikskólum. Markmið samstarfsins er að auka þekkingu á leikskólastarfi í sveitarfélögunum og stuðla að auknum gæðum í leikskólastarfi.
Umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, hefur staðfest friðlýsingu hluta Skerjafjarðar innan bæjarmarka Kópavogs með fjörum ásamt grunnsævi en með undirskrift ráðherrans öðlast friðlýsingin lagagildi. Þá hafa fulltrúar Kópavogsbæjar, Náttúrufræðistofu Kópavogs og Umhverfisstofnunar gert með sér samning um umsjón og rekstur hins friðlýsta svæðis.
Kópavogsbær og Sjómannadagsráð Reykjavíkur og Hafnarfjarðar, eigandi Hrafnistuheimilanna, hafa samið um rekstur og starfsemi þjónustumiðstöðvarinnar í Boðaþingi, sem m.a. felur í sér að tekin verða í notkun þrjátíu ný dagvistarúrræði fyrir aldraða í Kópavogi.
Tíu starfsmenn Kópavogsbæjar eiga 25 ára starfsaldursafmæli á þessu ári og voru af því tilefni heiðraðir við hátíðlega athöfn í vikunni, að viðstöddum starfsfélögum sínum. Hjálmar Hjálmarsson, forseti bæjarstjórnar, hélt stutta tölu og þakkaði starfsmönnunum fyrir störf sín hjá bænum.
Þrettán grunnskólabörn úr Kópavogi voru í dag verðlaunuð á ljóðahátíð í Salnum fyrir ljóð sem þau sendu inn í ljóðasamkeppni grunnskólanna í bænum. Nemendur úr sex skólum sendu ljóð í keppnina sem haldin er í fyrsta sinn í ár. Ljóst er að keppnin er komin til að vera.
Hallfríður J. Ragnheiðardóttir hlaut í dag Ljóðstaf Jóns úr Vör fyrir ljóð sitt Triptych í árlegri ljóðasamkeppni lista- og menningarráðs Kópavogs. Samkeppnin er haldin í ellefta sinn en tilgangur hennar er að efla og vekja áhuga á íslenskri ljóðlist.
Í Kópavogi er unnið hörðum höndum að því að snjóhreinsa, salta eða sanda götur og göngustíga til að auðvelda fólki að komast leiðar sinnar. Vegna fjölda fyrirspurna hefur verið ákveðið að setja kort á vefinn sem sýna forgangsröðun snjómoksturs, söltunar eða söndunar í bænum.
Hinrik Snær Guðmundsson, frá félagsmiðstöðinni Þebu í Smáraskóla, sigraði í árlegri söngkeppni félagsmiðstöðva í Kópavogi á mánudagskvöld. Hann ásamt þeim sem lentu í öðru og þriðja sæti tekur þátt í söngkeppni Samfés sem fram fer í Laugardalshöllinni í mars.
Verðlaun verða veitt í ljóðasamkeppninni Ljóðstafur Jóns úr Vör í Salnum laugardaginn 21. janúar og hefst dagskráin klukkan 16:00. Þar verða einnig veitt verðlaun í ljóðasamkeppni grunnskóla Kópavogs. Kópavogsbúar og aðrir ljóðaunnendur eru hjartanlega velkomnir.
Eineltisstefna Kópavogsbæjar var samþykkt á bæjarráðsfundi í vikunni. Í henni segir að Kópavogsbær hafi það að leiðarljósi að vera góður vinnustaður og að starfsmönnum líði þar vel. Í stefnunni er einelti skilgreint, farið yfir ábyrgð stjórnenda og viðbrögð við einelti.
Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti í vikunni að friðlýsa hluta Skerjafjarðar sem er innan bæjarmarka Kópavogs með fjörum ásamt grunnsævi. Samkvæmt því verða friðlýst tvö svæði, annars vegar í Kópavogi (39 ha) og hins vegar í Fossvogi (23,6 ha), alls um 62,6 ha svæði sem er mikilvæg búsvæði fugla.
Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti á fundi sínum í gærkvöld sérstakar samskiptareglur kjörinna fulltrúa og starfsmanna bæjarins. Tilgangur þeirra er að skýra hlutverk stjórnsýslu annars vegar og kjörinna fulltrúa hins vegar sem og að tryggja faglega afgreiðslu allra mála og jafnræði íbúa.
Stjórn Strætó bs. ákvað á fundi sínum 16. desember síðastliðinn að hækka gjaldskrá sína. Þannig mun verð á tímabilskortum og afsláttarfarmiðum hækka um 10% að jafnaði 1. febrúar næstkomandi. Stök fargjöld haldast hins vegar óbreytt, eða 350 krónur. Hækkunin er liður í stefnu stjórnar þess efnis að auka hlut fargjaldatekna í rekstrarkostnaði Strætó bs. og að gjaldskrá haldi í við þróun almenns verðlags.
Salti verður dreift á götur og gangstéttir Kópavogsbæjar í dag og næstu daga vegna hálku en sandur var borinn á götur bæjarins á laugardag. Byrjað verður á því í dag að salta aðalleiðir en síðan verður farið í íbúagötur.
Þrír nemendur sem brautskráðust frá Menntaskólanum í Kópavogi fyrir jól fengu styrk úr viðurkenningarsjóði MK fyrir góðan námsárangur. Hafsteinn Karlsson bæjarfulltrúi veitti viðurkenningarnar þar sem sjóðurinn var stofnaður af bæjarstjórn Kópavogs árið 1993 í tilefni af 20 ára afmæli skólans.
Reglur Kópavogsbæjar um úthlutun á byggingarrétti fyrir íbúðarhúsnæði eru mun skýrari og ótvíræðari nú en þær voru árið 2005. Því ættu ágreiningsatriði þau sem fram koma í dómi Hæstaréttar frá því fyrir jól ekki að rísa aftur.
Kári Steinn Karlsson, frjálsíþróttamaður úr Breiðabliki, og Kristjana Sæunn Ólafsdóttir, fimleikakona úr Gerplu, voru kjörin íþróttakarl og íþróttakona Kópavogs fyrir árið 2011. Kjörinu var lýst á íþróttahátíð Kópavogs í Salnum við hátíðlega athöfn síðdegis í dag.
Íþróttahátíð Kópavogs verður haldin miðvikudaginn 4. janúar nk. kl. 18:00 í Salnum í Kópavogi. Á hátíðinni verður lýst kjöri á íþróttakonu og íþróttakarli Kópavogs 2011. Einnig verður íþróttafólki veittar viðurkenningar fyrir unnin afrek á árinu. Kópavogsbúar eru velkomnir.
Með nýju rauntímakorti á vef Strætó bs. er nú hægt að fylgjast með ferðum strætisvagna í rauntíma. Þannig geta strætófarþegar með hjálp nýjustu tækni séð hvar vagninn sem þeir ætla að taka sér far með er staddur á hverjum tíma. GPS-búnaður sem nú er um borð í öllum vögnum gerir farþegum kleift að fylgjast með ferðum vagnanna á vef strætó.