Fréttasafn

Fyrirsagnalisti

bodadagv

Ný dægradvöl fyrir aldraða tekin í notkun - 29.2.2012

Ný dægradvöl aldraðra í Kópavogi, sem Sjómannadagsráð, eigandi Hrafnistuheimilanna, og Kópavogsbær sömdu um í janúar síðastliðnum, var formlega tekin í notkun í dag. Starfsemin er til húsa í þjónustumiðstöð Kópavogsbæjar við hlið Hrafnistu í Boðaþingi og er gert ráð fyrir dvöl þrjátíu einstaklinga á hverjum tíma.

tonlistarsafnmen

Konungar valsanna í tónlistarsafninu - 28.2.2012

Tónlistarsafn Íslands hefur að undanförnu tekið á móti áhugasömum skólakrökkum og frætt þá um sögu tónlistar og fleira. Tónlistarsafnið er eitt af glæsilegum söfnum Kópavogsbæjar og er á menningarholtinu svokallaða, skáhalt á móti Gerðarsafni.

Leikfélag Kóavogs

Hringurinn frumsýndur hjá Leikfélagi Kópavogs - 24.2.2012

Leikfélag Kópavogs frumsýnir nýtt íslenskt leikverk er nefnist Hringurinn, sunnudaginn 26. febrúar. Verkið er eftir Hrefnu Friðriksdóttur og leikstjóri er Hörður Sigurðarson. Miðaverð er 2.000 kr. en 1.000 fyrir aldraða og öryrkja. Sýningar standa yfir til 10. mars.

Skólahljómsveit Kópavogs

Skólahljómsveit Kópavogs fagnar 45 ára afmæli - 17.2.2012

Skólahljómsveit Kópavogs heldur upp á 45 ára starfsafmæli sitt með veglegum tónleikum í Eldborgarsal Hörpu sunnudaginn 4. mars kl. 17:00. Hljómsveitin sem var stofnuð haustið 1966 miðar afmæli sitt ávallt við fyrstu tónleikana sem haldnir voru við Kársnesskóla 22. febrúar 1967.

Tómar hillur í héraðsskjalasafni

Héraðsskjalasafn Kópavogs lokað vegna flutninga - 16.2.2012

Frá og með föstudeginum 17. febrúar til miðvikudagsins 7. mars verður Héraðsskjalasafn Kópavogs lokað vegna flutninga. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem lokunin kann að valda en í nýju húsnæði að Digranesvegi 7 verður öll aðstaða til afgreiðslu skjala og móttöku gesta mun betri en verið hefur.

baejarskipti

Ármann tekur við lyklavöldunum af Guðrúnu - 15.2.2012

Ármann Kr. Ólafsson tók við lyklavöldunum af Guðrúnu Pálsdóttur á bæjarstjóraskrifstofu Kópavogs í dag. Ármann var kjörinn bæjarstjóri á fundi bæjarstjórnar í vikunni. Guðrún hverfur nú til annarra starfa hjá bænum en hún varð bæjarstjóri í júní 2010.

Þriggja ára áætlun lögð fram - 15.2.2012

Þriggja ára fjárhagsáætlun vegna áranna 2013 til 2015 var tekin til fyrri umræðu á bæjarstjórnarfundi í vikunni. Í áætluninni er reiknað með að rekstrarafgangur verði á samstæðureikningi næstu árin eða 327 milljónir króna árið 2013, 521 milljón króna árið 2014 og um 698 milljónir króna árið 2015.

bókasafn

Fjallað um ábyrgð í Bókasafni Kópavogs - 15.2.2012

Erindaröð um ábyrgð verður haldin á Bókasafni Kópavogs vikulega á fimmtudögum í febrúar og mars. Fjórir þekktir einstaklingar greina frá viðhorfi sínu til efnisins. Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir. 

Ármann Kr. Ólafsson

Ármann Kr. Ólafsson nýr bæjarstjóri - 14.2.2012

Ármann Kr. Ólafsson var á fundi bæjarstjórnar í kvöld kjörinn bæjarstjóri Kópavogs. Nýr meirihluti sjálfstæðismanna, framsóknarmanna og Y-Lista Kópavogsbúa tók á þeim sama fundi við stjórnartaumunum í bænum.

Safnanótt

Góð aðsókn að Safnanótt - 13.2.2012

Góð aðsókn var á Safnanótt í Kópavogi á föstudagskvöld en fimm söfn á menningarholti bæjarsins buðu afar fjölbreytta dagskrá. Safnanótt er samstarfsverkefni sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu en tilgangurinn er að vekja athygli á því mikla starfi sem fram fer í söfnum á svæðinu.

IMG_2783

Keppa fyrir hönd MK - 13.2.2012

Urpið, söngkeppni NMK (nemendafélags Menntaskólans í Kópavogi) fór fram, í Salnum 8. febrúar sl. Margir efnilegir söngvarar stigu á stokk en Aron Daði Þórisson og Jenna Katrín Kristjánsdóttir báru sigur úr býtum og keppa fyrir hönd MK í Söngkeppni framhaldsskólanna, á Akureyri í apríl. 

Málefnasamningur nýja meirihlutans - 10.2.2012

Málefnasamningur um meirihlutasamstarf Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Y-Lista Kópavogsbúa hefur nú verið samþykktur. Í honum er tekið fram að hann sé grundvallaður á stefnuskrám flokkanna fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 2010 en hann taki jafnframt mið af því að hann sé gerður á miðju kjörtímabili.

Þrír flokkar mynda nýjan meirihluta í Kópavogi - 9.2.2012

Bæjarfulltrúar Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Y-Lista Kópavogsbúa hafa myndað nýjan meirihluta í Kópavogi, undirritað málefnasaming og samkomulag um skiptingu embætta. Bæjarstjóraskipti fara fram á bæjarstjórnarfundi nk. þriðjudag, 14. febrúar og á sama tíma tekur nýi meirihlutinn formlega við.

safnadagurm

Fjölbreytt dagskrá á Safnanótt í Kópavogi - 7.2.2012

Vélaballett, rússneskur barnakór, erindi um myrk öfl og herkænskuleikur er meðal þess sem verður í boði á Safnanótt í Kópavogi, föstudagskvöldið 10. febrúar. Gerðarsafn, Náttúrufræðistofa Kópavogs, Bókasafn Kópavogs, Tónlistarsafn Íslands og ungmennahúsið Molinn verða með fjölbreytta dagskrá fyrir gesti og gangandi frá kl. 19:00 til 24:00. Allir eru velkomnir og frítt er á alla viðburði.

leikskoladagur

Dagur leikskólans haldinn hátíðlegur í dag - 6.2.2012

Dagur leikskólans er haldinn hátíðlegur í dag, 6. febrúar, og af því tilefni færðu leikskólabörn úr Marbakka þeim Sesselju Hauksdóttur, deildarstjóra leikskóladeildar Kópavogsbæjar, og Önnur Birnu Snæbjörnsdóttur, sviðsstjóra menntasviðs plakat með upplýsingum um leikskólastarfið. Á plakatinu eru 16 spakmæli leikskólabarna og eiga leikskólabörn í Kópavogi hvorki fleiri né færri en tíu spakmæli.