Fréttasafn

Fyrirsagnalisti

28.3.-008

Afhentu bæjarstjóra tillögur að bættu umferðaröryggi - 28.3.2012

Leikskólabörnin í Arnarsmára í Kópavogi eru áhugasöm um bætt umferðaröryggi í hverfinu og afhentu þau Ármanni Kr. Ólafssyni bæjarstjóra tillögur sínar að nýjum göngubrautum og skiltum í morgun. Hann útilokaði ekki að hægt yrði að  koma til móts við þær tillögur að einhverju leyti.

safn

Vegleg bóka- og tímaritagjöf úr Danaveldi - 26.3.2012

Upplýsingar um veglegan bóka- og tímaritakost, sem Náttúrufræðistofa Kópavogs, fékk fyrr í vetur gefins frá vatnalíffræðideild Kaupmannahafnarháskóla, eru nú aðgengilegar í bókasafnskerfinu Gegni.
Vinnuskóli Kópavogs

Opnað hefur verið fyrir umsóknir - 22.3.2012

Opnað hefur fyrir umsóknir um sumarstörf og störf í Vinnuskóla Kópavogs. Sumarstörf eru fyrir 18 ára og eldri (fædd 1994 og fyrr) en Vinnuskóli er fyrir þá sem eru á aldrinu 14 – 17 ára (fædd 1995 – 1998).

myndir

Sigraði í upplestrarkeppni - 22.3.2012

Aðalsteinn Hilmarsson, Lindaskóla, sigraði í árlegri upplestrarkeppni í 7. bekk sem haldin var í Salnum í vikunni. Keppendur voru  18 frá 9 grunnskólum í Kópavogi.  Ragnheiður Kara Hálfdánardóttir, Snælandsskóla, var í 2. sæti og Bertha María Óladóttir var í 3. sæti.

skakmynd

Sveit Álfhólsskóla Íslandsmeistari - 20.3.2012

Skáksveit Álfhólsskóla kom sá og sigraði á Íslandsmóti barnasveita í skák um helgina. A-sveitir Rimaskóla og Salaskóla urðu í öðru og þriðja sæti. Keppnin fór fram í Rimaskóla. Í sigurliðinu eru: Dawid Kolka, Róbert Leó Jónsson, Felix Steinþórsson og Guðmundur Agnar Bragason. Smári Rafn Teitsson er  þjálfari og liðsstjóri.

leikskolaheimsokn

Bæjarstjóri heimsækir leikskóla - 15.3.2012

Börnin á leikskólanum Baugi í Kópavogi tóku vel á móti bæjarstjóra, Ármanni Kr. Ólafssyni og formanni bæjarráðs, Rannveigu Ásgeirsdóttur, í morgun en þau voru þangað komin til að kynna sér starfsemi leikskólans.  Ármann og Rannveig hyggjast heimsækja alla leikskóla Kópavogs, sem og aðrar stofnanir bæjarins, á næstu vikum og mánuðum.

dansinn

Danspör frá Kópavogi gerðu það gott - 15.3.2012

Danspör frá Dansíþróttafélagi Kópavogs (DÍK) stóðu sig með eindæmum vel á Íslandsmeistaramóti í dönsum með frjálsri aðferð sem fram fór um liðna helgi. Einnig tóku þau þátt í bikarmóti fyrir K-riðla og dansmóti fyrir A-riðla með góðum árangri.

pameladesensi

Klassísk diskóstemmning í Salnum - 15.3.2012

Klassískt diskótek fer fram kl 13:00 í Salnum sunnudaginn 18. mars í boði Töfrahurðarinnar . DJ Sóri (Sigurþór Heimisson) mætir og kynnir fyrir gestum danstónlist frá klassíska tímabilinu, sannkallaða partýtónlist fyrri alda. Allir eru velkomnir. Miðaverð er kr. 1.500.

jafnretti

Jafnréttisdagar í MK - 8.3.2012

Jafnréttisdagar voru haldnir í Menntaskólanum í Kópavogi á dögunum en markmiðið er að auka vitund nemenda, foreldra og annarra um jafnrétti. Dagarnir eru árviss viðburður og eru haldnir í samstarfi skólans og jafnréttisnendar Kópavogsbæjar.

undirritunin

Kópavogsbúar flokka sorp - 5.3.2012

Flokkun á sorpi til endurvinnslu hefst í Kópavogi í sumar en samkomulag um kaup og afhendingu endurvinnslutunna hefur nú verið undirritað af bæjarstjóra Kópavogs, Ármanni Kr. Ólafssyni og Sveini Hannessyni framkvæmdastjóra fyrirtækisins Hafnarbakka – Flutningatækni ehf. Kópavogur er þar með eitt af fyrstu sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu til að flokka sorp.

eldgosid

Árleg sýning blaðaljósmyndara í Gerðarsafni - 2.3.2012

Árleg sýning Blaðaljósmyndarafélags Íslands á bestu myndum ársins 2011 verður opnuð í Gerðarsafni, laugardaginn 3. mars klukkan 15.00.  Á sýningunni eru að þessu sinni 72 myndir sem valdar hafa verið af dómnefnd úr um eitt þúsund innsendum myndum yfir 30 blaðaljósmyndara.

atvinnutorg

Atvinnutorg fyrir ungt fólk í Kópavogi - 1.3.2012

Atvinnutorgi fyrir ungt fólk í Kópavogi hefur nú verið komið á fót en markmiðið er að auka virkni ungs fólks á aldrinum 16 til 25 ára, sem hvorki er í vinnu né skóla, og aðstoða það við að fóta sig á vinnumarkaði eða í námi. Atvinnutorgið er tilraunaverkefni Kópavogsbæjar, Vinnumálastofnunar og velferðarráðuneytisins og nær til þriggja ára.