des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb.
Fjórir gæsluleikvellir í Kópavogi verða opnir alla virka daga í sumar. Hver koma á leikvöll kostar 100 krónur. Þeir eru fyrir börn frá 20 mánaða til sex ára aldurs. Þeir eru opnir frá kl. 10:00 til 12:00 og frá 13:30 til 16:30.
Þremur af þeim tólf bílum sem tilheyra bæjarskrifstofum Kópavogs hefur nýlega verið skipt út fyrir umhverfisvænni bíla. Nýju bílarnir eru minni og sparneytnari. Er þetta í samræmi við umhverfisstefnu Kópavogsbæjar.
Kópavogsbær hefur fyrst íslenskra sveitarfélaga hlotið alþjóðlega vottun (ISO 9001) fyrir gæðakerfi stjórnsýslusviðs. Með því er staðfest að starfsmenn sinna stjórnsýslu samkvæmt gæðakerfi bæjarins. Unnið hefur verið að innleiðingu gæðakerfisins síðustu misseri. Markmiðið er að tryggja góða og skilvirka þjónustu, gagnsæja stjórnsýslu, aukið öryggi og bætt eftirlit með kostnaði.
Unglingar í Götuleikhópnum hófu störf mánudaginn 11. júní. Fyrsta verkefnið þeirra er frumsamið og ber heitið „Sögur fyrir svefninn“ . Götuleikhópurinn kom fram á 17. Júní á Rútstúni en mun einnig heimsækja leikskólabörn á næstu vikum.
Bæjarráð hefur falið Ármanni Kr. Ólafssyni bæjarstjóra að ganga frá kaupum á hlutafé í Þríhnúkum ehf. fyrir tíu milljónir króna. Þar með eignast bærinn 13,9% í félaginu. Með þessu vill bæjarráð stuðla að atvinnuuppbyggingu og styrkja ferðamennsku innan bæjarmarkanna. Gert er ráð fyrir frjárframlaginu í fjárhagsáætlun þessa árs.
Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti fyrr í mánuðinum hjólreiðaáætlun en markmið hennar er að auka veg hjólreiða sem samgöngumáta í sveitarfélaginu þannig að hjólreiðar verði aðgengilegur, skilvirkur og öruggur ferðamáti. Að þessu hyggst bærinn vinna með því að skapa öruggari aðstæður, hvetja, umbuna og fræða.
Fyrstu vikunni í hjóla- og ævintýranámskeiði í félagsmiðstöðinni Ekkó í Kársnesskóla er nú lokið og má segja að það hafi verið glatt á hjalla. Troðfullt var þessa fyrstu viku og skemmtu krakkarnir sér konunglega.
Ungmenni í sumarvinnu í Molanum, ungmennahúsi Kópavogs, hafa undanfarna daga fengið útrás fyrir listsköpun sína og málað graffiti myndir á vegg við bílastæðið sunnan við Auðbrekku 6 í Kópavogi. Veggurinn var áður mikið lýti á umhverfinu en nú er þar nýtt listaverk að líta dagsins ljós. Frumkvæðið áttu listamenn við Auðbrekku en verkið er styrkt af Kópavogsbæ.
Fjölbreytt dagskrá fyrir alla fjölskylduna verður í Kópavogi á þjóðhátíðardegi Íslendinga 17. júní. Skrúðgangan leggur af stað frá Menntaskólum í Kópavogi kl. 13:30 og lýkur henni á Rútstúni þar sem við tekur hátíðardagskrá. Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri flytur þar ávarp, fjallkonan fer með ljóð og nýstúdent flytur hugleiðingar unga fólksins.
Heildarlaun bæjarstjóra Kópavogs hafa hækkað um 4,4% frá 1. febrúar 2009. Grunnlaunin hækkuðu um 3,5% 1. mars síðastliðinn samkvæmt ákvörðun kjararáðs. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Ármanni Kr. Ólafssyni bæjarstjóra vegna umfjöllunar fjölmiðla.
Matseðillinn í mötuneyti Salaskóla í Kópavogi er afar fjölbreyttur og fer eldamennskan fram í fullkomnu mötuneytiseldhúsi skólans. Lærður matreiðslumaður sér um eldhúsið og hefur hann þá stefnu að maturinn sé eins hollur og fjölbreyttur og mögulegt er og að hráefnið sé ferskt og gott.
Björn H. Halldórsson, framkvæmdastjóri SORPU bs. afhenti í dag Rannveigu Ásgeirsdóttur, formanni bæjarráðs Kópavogs og Haraldi Sverrissyni, bæjarstjóra Mosfellsbæjar , límmiða til að setja inn í lok bláu endurvinnslutunnunnar sem nú er verið að dreifa í sveitarfélögunum. Allt pappírshráefni á að fara í þá tunnu, s.s. dagblöð og fernur.
Opinn fundur um framtíð Kópavogstúns, gamla Hressingarhælisins og Kópavogsbæjarins fór fram í bæjarstjórnarsalnum í gær, fimmtudag, og var vel sóttur. Á honum komu fram fjölmargar áhugaverðar hugmyndir um mögulega nýtingu svæðisins og mun starfshópur bæjarráðs vinna úr þeim. Hópnum er ætlað að skila tillögum sínum til bæjarráðs 15. júní.
Gagnagrunnur, sem ber heitið Ísmús og geymir og birtir almenningi viðamiklar upplýsingar um íslenska menningu fyrr og nú, verður tekinn í notkun við hátíðlega athöfn, föstudaginn 8. júní, í Salnum í Kópavogi. Bjarki Sveinbjörnsson, forstöðumaður Tónlistarsafns Íslands, hefur haft veg og vanda að verkefninu en það er unnið í samstarfi við Stofnun Árna Magnússonar. Tónlistarsafnið er rekið af Kópavogsbæ með styrk frá menntamálaráðuneytinu.
Öllum þeim sem sóttu um á réttum tíma og eiga lögheimili í Kópavogi hefur verið boðin sumarvinna hjá bænum. Alls munu því um 1.500 ungmenni frá fjórtán ára aldri starfa við margvísleg störf hjá bænum í sumar og hefur hluti þess hóps þegar hafið störf. Stærsti hópurinn byrjar um miðjan júní.
Bæjarstjóri Kópavogs, Ármann Kr. Ólafsson, heimsótti heilsuleikskólann Kór 1. júní síðastliðinn en þá átti skólinn sex ára afmæli. Á sama degi fékk skólinn afhentan Grænfánann en það er umhverfisviðurkenning sem nýtur virðingar víða í Evrópu.
Kópavogsbúum og öðrum áhugamönnum er boðið til opins fundar um framtíð Kópavogstúns, gamla Hressingarhælisins og Kópavogsbæjarins fimmtudaginn 7. júní. Fundurinn verður haldinn í bæjarstjórnarsalnum, Fannborg 2, og hefst hann kl. 17