Fréttasafn

Fyrirsagnalisti

STofnanir

Hvetur til framlengingu bótatímabils - 27.8.2012

Bæjarráð Kópavogs hvetur stjórnvöld til þess að framlengja undanþágu í lögum um atvinnuleysistryggingar en að óbreyttu missa 193 Kópavogsbúar rétt til atvinnuleysisbóta á næstu mánuðum. Þar af um 150 um áramótin.

umhverfismynd

Bollasmári er gata ársins 2012 - 23.8.2012

Bollasmári er gata ársins 2012 í Kópavogi en það var tilkynnt við hátíðlega athöfn í Salnum í dag. Íbúar götunnar fengu þar með viðurkenningu bæjarstjórnar Kópavogs fyrir að halda húsum sínum og lóðum snyrtilegum og götunni fallegri í áranna rás.

Skólagarðar Kópavogs

Góð uppskera í Skólagörðum Kópavogs - 21.8.2012

Krakkarnir í Skólagörðum Kópavogs uppskáru svo sannarlega eins og þeir sáðu til í sumar og var uppskeran með eindæmum góð. Þau tóku upp grænmetið í síðustu viku og voru ánægð með árangurinn. Gleði og eftirvænting skein úr hverju andliti. Myndir má sjá á Facebook-síðu Kópavogsbæjar.

Hjólamynd

Hjólreiðastígur verður bættur - 20.8.2012

Til stendur að endurbæta göngu- og hjólreiðastíg meðfram Hafnarfjarðarvegi á næstu vikum og mánuðum. Er það í samræmi við nýsamþykkta hjólreiðaáætlun Kópavogsbæjar. Óskað var eftir tilboðum í verkið um helgina.

Hamraborgarhátíð

Hamraborgarhátíðin í þriðja sinn - 14.8.2012

Hamraborgarhátíðin verður haldin í þriðja sinn í Kópavogi laugardaginn 1. september. Hamraborginni verður breytt í göngugötu þar sem Kópavogsbúar og aðrir gestir geta gert sér glaðan dag.

omar_stefansson

Ómar tilnefndur í stjórn Þríhnúka - 9.8.2012

Ómar Stefánsson bæjarfulltrúi verður fulltrúi Kópavogsbæjar í stjórn Þríhnúka ehf. en bærinn á einn af fimm fulltrúum í stjórn félagsins. Tilnefning hans var samþykkt í bæjarráði nýverið. Áður var ákveðið að bærinn keypti 13,9% hlut í félaginu fyrir tíu milljónir króna.

Leikskólabörn Álfaheiði

Tveir nýir leikskólastjórar - 8.8.2012

Tveir nýir leikskólastjórar hafa verið ráðnir til starfa hjá Kópavogsbæ. Lilja Kristjánsdóttir tók við starfi leikskólastjóra á leikskólanum Álfatúni í maí og Svana Kristinsdóttir hóf störf hjá leikskólanum Núpi nú í byrjun ágúst. Þær eru boðnar velkomnar til starfa.

Tónlistarhátíð unga fólksins

Tónlistarhátíð í Kópavogi - 8.8.2012

Um hundrað ungir og efnilegir tónlistarnemendur taka þátt í Tónlistarhátíð unga fólksins sem hefst í dag í Salnum í Kópavogi. Hátíðin er haldin hér í fimmta sinn og stendur yfir til 19. ágúst. Hátíðin er styrkt með veglegu framlagi úr lista- og menningarsjóði bæjarins.