Fréttasafn
Kópavogsbær setur sér innkaupareglur
Bæjarstjórn Kópavogsbæjar hefur samþykkt innkaupareglur, sem taka gildi 1. mars næstkomandi, til að stuðla að vönduðum og hagkvæmum innkaupum og til að tryggja gæði vöru, þjónustu og verka.Ábyrgð á innkaupum er á hendi viðkomandi sviðstjóra / deildarstjóra. Innkaupastjóri veitir stofnunum Kópavogsbæjar ráðgjöf og aðstoð um tilhögun innkaupa eftir þörfum.
Við innkaup Kópavogsbæjar á hvers kyns aðföngum, þ.e. þjónustu, vörum og verklegum framkvæmdum, skulu eftirfarandi innkaupaaðferðir notaðar:
• Útboð, opið eða lokað, og samningur/pöntun í kjölfarið.
• Fyrirspurn og samningur/pöntun í kjölfarið.
• Samningur eða pöntun án undangengins útboðs eða fyrirspurnar.
• Innkaup samkvæmt rammasamningi.
Við innkaup Kópavogsbæjar er einnig heimilt, þar sem við getur átt, að beita eftirtöldum aðferðum:
• Samningskaupum að undangenginni birtingu útboðsauglýsingar.
• Samningskaupum án undangenginnar birtingar útboðsauglýsingar.
• Samningskaupum vegna hönnunarsamkeppni.
Útboð skal að jafnaði viðhaft við innkaup að svo miklu leyti sem unnt er og hagkvæmt þykir. Þegar áætluð samningsfjárhæð verklegrar framkvæmdar er yfir 20 milljónir króna skal bjóða verkið út, einnig ef áætluð fjárhæð kaupa á þjónustu fer yfir 15 milljónir króna og sömuleiðis ef áætluð fjárhæð vegna vörukaupa fer yfir 10 milljónir króna. Framangreindar fjárhæðir eru án virðisaukaskatts.
Ætíð skal taka því tilboði sem hagkvæmast er miðað við kröfur í útboðslýsingu, lögum og reglum. Ef hagstæðasta tilboð er ekki jafnframt lægsta tilboð skal það rökstutt sérstaklega.
Í innkaupareglunum, sem eru meðal annars birtar í heild sinni á heimasíðu Kópavogsbæjar, er enn fremur kveðið á um hvernig meta skuli fjárhæð samnings; skilyrði fyrir lokuðu útboði; kröfur til þátttakenda í lokuðu útboði, samkeppni eða samningskaupum; auglýsingu útboða; efni útboðsgagna og frest til að skila tilboði; fyrirspurnir þegar útboð eiga ekki við; við hvaða aðstæður óheimilt sé að gera samning við bjóðanda/viðsemjanda; hæfis- og siðareglur auk trúnaðarskyldu, svo að nokkuð sé nefnt.
Innkaupareglur Kópavogsbæjar (pdf 40KB)
