Fréttasafn
Lækkun á matarverði
Í kjölfar lækkunar virðisaukaskatts á matvælum, sem tók gildi þann 1. mars, samþykkti bæjarráð Kópavogs á fundi sínum, 15. mars, að lækka verð á mat í leik- og grunnskólum Kópavogsbæjar. Mötuneytisgjald í leik- og grunskólum bæjarins hefur haldist óbreytt í um tvö ár í flestum skólum, en bæjarráð samþykkti að lækka einingaverð á matarskömmtum í skólunum um 6% frá og með 1. mars. Þá var einnig samþykkt í bæjarráði að lækka mötuneytisgjald til starfsmanna í mötuneyti starfsmanna bæjarins um 6% frá og með 1. mars. Þetta er gert í kjölfar þess að fyrirtækið Heitt og kalt, sem sér um matarþjónustuna hefur tilkynnt um 6% lækkun á þjónustunni.
