Fréttasafn

Einstæður tónlistarviðburður í Salnum föstudagskvöld

5.10.2007

Frá tónleikum kínversku tónlistarsnillinganna í Salnum. Mynd: Krissý.Seinni tónleikar Þjóðlagahljómsveitar Söngleikja- og dansstofnunar Wuhan á Kínverskri menningarhátíð verða í Salnum í kvöld, föstudag 5. október.

Hér er á ferð tuttugu manna hópur hljóðfæraleikara og söngvara sem hefur hlotið fjölmargar viðurkenningar og komið fram víða um heim. Á tónleikunum í Salnum flytur hópurinn hefðbundna og nýja kínverska tónlist og spreytir sig einnig á íslenskri tónlist eftir Sigfús Halldórsson og Sigvalda Kaldalóns.
Söngleikja- og dansstofnun Wuhan er stór sýningarhópur sem var settur á fót fyrir meira en 60 árum og hefur á þessum árum alls sett upp meira en 30 stórar söng- og danssýningar. Stofnunin hefur margsinnis sýnt á erlendri grund og eflt með því menningarsamskipti Kína og umheimsins. Löndin sem listamennirnir hafa komið fram í eru yfir 20 talsins.