Fréttasafn
Straumhvörf í Kópavogi
Undirritun yfirlýsingarinnar fór fram í þjónustuíbúðum fyrir geðfatlaða að Hörðukór 10–16 í Kópavogi.
„Við erum að auka lífsgæði geðfatlaðra með þessu átaki og virkja þann auð sem í þeim býr og skapa þeim betri tækifæri,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir við þetta tækifæri. „Þetta er eitt af ánægjulegustu verkefnunum sem ég hef tekið að mér síðan ég varð aftur félagsmálaráðherra.“
Yfirlýsing félags- og tryggingamálaráðuneytisins og Kópavogsbæjar varðar þjónustu sem veitt er í samræmi við lög um málefni fatlaðra nr. 59/1992, lög um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 og stefnu og framkvæmdaáætlun vegna átaks ráðuneytisins í þjónustu við geðfatlað fólk 2006–2010 sem ber heitið Straumhvörf.
Félags- og tyggingamálaráðuneytið og Kópavogsbær eru sammála um að uppbygging í þágu geðfatlaðra sé samstarfsverkefni þar sem lögð er áhersla á breytileg búsetuúrræði sem henta þörfum hvers íbúa.
Kópavogsbær útvegar íbúðir til búsetu með þjónustu fyrir fólk með geðfötlun sem þarf almenna félagslega heimaþjónustu í samræmi við lög nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga. Umsýsla húsnæðisins og þjónustunnar verður í höndum Kópavogsbæjar.
Félags- og tryggingamálaráðuneytið, Straumhvörf, efling þjónustu við geðfatlaða, útvegar íbúðir í tveimur þjónustueiningum fyrir 12 geðfatlaða einstaklinga sem þurfa á sértækri þjónustu að halda, jafnvel sólarhringsþjónustu. Umsýsla húsnæðisins er á vegum ráðuneytisins en Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Reykjanesi annast skipulag og veitir íbúum þjónustu ásamt Kópavogsbæ samkvæmt gildandi lögum.
Fyrsta verkefni Straumhvarfa á grundvelli framangreindrar yfirlýsingar er bygging 6 til 7 íbúða fyrir geðfatlaða á lóð sem Kópavogsbær hefur úthlutað til verkefnisins. Hönnun hússins er hafin og verkið verður boðið út í sumar.
„Síðan er hér í Rjúpnahæð, rétt vestan við, reiknað með sambýli fyrir 6 til 8 geðfatlaða einstaklinga fyrir geðfatlaða,“ sagði Gunnar I. Birgisson, „og við reiknum með að framkvæmdir hefjist á þessu ári og verði lokið í síðasta lagi árið 2010 á báðum stöðum.“
Straumhvörf spannar árin 2006–2010 og tekur til 160 einstaklinga á landinu öllu sem þurfa búsetu á vegum svæðisskrifstofu eða félagsþjónustu sveitarfélaga. Markmiðið er að bjóða fólkinu búsetu í einstaklingsíbúðum utan stofnana og styrkja þjónustu sem eflir virkni fólks sem býr við geðfötlun.
