Fréttasafn

Íþróttahöllin Kórinn við Vallakór formlega opnuð

30.8.2007

Kórinn, nýja íþrótta- og tónleikahöllin við Vallakór í Vatnsendahverfi, var tekin í notkun við hátíðlega athöfn í dag. Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri og Ómar Stefánsson, formaður bæjarráðs, klipptu á borðann ásamt Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur menntamálaráðherra.


Rúmu ári eftir að Eyrún Harpa Einarsdóttir, fyrirliði 5. flokks kvenna hjá Breiðabliki, tók fyrstu skóflustunguna að fullkominni knattspyrnuhöll og fjölnotasal við Vallakór í Vatnsendalandi er húsið risið og tilbúið til notkunar.


Um það bil 300 manns tóku þátt í hátíðlegri opnun á Kórnum í dag en það nafn varð hlutskarpast í samkeppni um heiti á höllina. Nafnið vísar til hverfisins en minnir einnig á að húsið er musteri líkama og sálar og margradda hljóðfæri sem hýsir margs konar starfsemi, íþróttaiðkun, tónlistarflutning, ráðstefnuhald og sýningar.


Með þessu húsi er hafin uppbygging heilsu-, íþrótta- og fræðaseturs í Kópavogi í samræmi við samning Kópavogsbæjar og Knattspyrnu Akademíu Íslands. Um er að ræða fyrsta áfangann að miklum framkvæmdum í þágu fræðslu og íþrótta á svæðinu. Seinni áfangar fela í sér íþróttasal með búningsklefum, skólahús, sundlaug og knattspyrnuvelli utanhúss.

Markmið verkefnisins er að koma upp aðstöðu sem:

  • Þjónar þörfum íbúa í efri byggðum Kópavogs og nærliggjandi byggðum á sviði íþróttamála
  • Þjónar starfsemi Knattspyrnu Akademíu Íslands og helstu samstarfsaðilum hennar
  • Verði miðstöð starfstengdrar sérfræði- og rannsóknarstarfsemi á sviði íþrótta og lýðheilsu í samvinnu við framhaldsskóla á svæðinu

Stefnt er að því að setrið verði aflstöð þekkingar á sviði:

  • Íþrótta-, afreks- og líkamsþjálfunar
  • Lýðheilsu
  • Heilbrigðisfræða
  • Forvarna og fræðslu
  • Almenningsíþrótta
  • Rannsókna

Stofnað verður rekstrarfélag um húsið með aðild Kópavogsbæjar og Knattspyrnu Akademíu Íslands en hún mun annast reksturinn.

Heildarflatarmál hússins er 14.457 m2 og er gert ráð fyrir allt að 2000 áhorfendum í sæti og 50 áhorfendum í heiðursstúku.

Landsleikir í knattspyrnu innanhúss verða leiknir í Kórnum og áformað er að bæta við umferð í Íslandsmeistaramótinu í knattspyrnu sem fram færi innanhúss, meðal annars í hinu nýja íþróttahúsi við Vallakór.

Íþróttahöllin er jafnframt sérhönnuð til tónleikahalds með tilliti til hljóðvistar og getur tekið allt að 19 þúsund gesti. Enn fremur hentar hún til sýninga- og ráðstefnuhalds.

  • Stærð hússins 10.998 m2 ásamt 3.459 m2 tengibyggingu
  • Rúmmál 192.951 m3
  • Húsið er fulleinangrað og hitað með fullkominni lofthitun/loftkælingu
  • Knattspyrnuvöllurinn er 105 x 68 m að stærð
  • Field Turf gervigras frá Metrathon, 60 mm einsþráða (monofibre), fyllt með sandi og grænu gúmmíi efst
  • Undir gervigrasinu eru lagnir til hitunar og kælingar
  • Húsið uppfyllir alla keppnisstaðla Alþjóða knattspyrnusambandsins FIFA
  • Lofthæð 20 m undir bita í mæni og meira en 10 m yfir hliðarlínur
  • Frjálsíþróttaaðstaðan er þrjár 100 m brautir beggja vegna vallarins og fjórar 70 m brautir til endanna, lögð 15 mm þykku rauðu gerviefni frá Field Turf
  • 120 lampar (natríum og kvikasilfur) lýsa höllina upp
  • Lýsing uppfyllir alþjóðlegar kröfur FIFA og sjónvarpsstöðva vegna útsendinga
  • Í húsinu er sambyggt hljóð- og brunakerfi
  • Í lofti eru gataðar stálplötur til hljóðeinangrunar og loftræsting um gafla og þak
Formleg opnunardagskrá í dag hófst með lúðrablæstri Skólahljómsveitar Kópavogs, þar sem fulltrúar allra kynslóða tóku þátt. Bæjarstjóri og formaður bæjarráðs klipptu svo á borða ásamt menntamálaráðherra.

Dagskráin:
• Kynning - Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri
• Ávarp fulltrúa byggingarverktaka hallarinnar – ÍSTAK
• Ávarp Ómars Stefánssonar, formanns bæjarráðs
• Ávarp Knattspyrnu Akademíu Íslands – Logi Ólafsson
• Ávarp KSÍ – Geir Þorsteinsson
• Greint frá samkeppni um nafn á höllina
• Húsið blessað – séra Gunnar Sigurjónsson
• Menntamálaráðherra – Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
• Knattspyrnuleikir 4. fl. kvenna og 5. fl. karla HK–Breiðablik

Að lokinni dagskrá var gestum boðið upp á hressingu.

Ístak varð hlutskarpast í alútboði um byggingu knatthússins og hefur unnið frábært verk á skömmum tíma. VA arkitektar sáu um hönnun, Conis um burðarþol og lagnir, Raftákn um raflagnir, Verkfræðistofa Snorra Ingimarssonar um brunahönnun, Línuhönnun um hljóðvist og VGK – Hönnun um loftræstingu.

Kynningarbæklingur um Kórinn  PDF 439 Kb

(Ljósmyndir: Krissý)