Fréttasafn

Menningarhátið Kópavogs - föstudaginn 6. júlí kl. 17-19

5.7.2007

Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá við Menningartorfuna á Hálsatorgi í Kópavogi. Menningarhátíðin er hluti af menningardagskrá Kópavogbæjar á Landsmóti UMFÍ sem stendur nú yfir.


Hálsatorgi - Tónleikar
Þar koma fram unglingahljómsveitirnar Rust og Spooky Jetson frá félagsmiðstöðvum ÍTK, Skábræður, Margrét Eir og Rottweilerhundar
Rokk, rapp, suðræn sveifla og annað eyrnakonfekt á dagskrá tónleikanna.

Salurinn - Tónleikar
Á fyrri tónleikunum (kl. 17) koma fram Gissur Páll Gissurarson tenór og tónlistarhópur sem samanstendur af Guðrún Birgisdóttur og Martial Nardeau flautuleikurum, Matthías Nardeau óbóleikara og Jónasi Ingimundarsyni píanóleikari.

Á seinni tónleikunum (kl. 18) syngur Sigrún Hjálmtýsdóttir við undirleik Jónasar Ingimundarsonar og söngdúóið Guðrún Gunnarsdóttir og Friðrik Ómar syngja létt dægurlög við undirleik Valgeirs Skagfjörðs.

Létt og skemmtileg dagskrá á báðum tónleikum.

Gerðarsafn - Sögusýning
Sögusýning UMFÍ í tilefni af 100 ára afmæli félagsins.

Bókasafn Kópavogs – Stafsetningarkeppni
verður keppt í stafsetningu (kl.17) sem er ein af keppnisgreinum landsmóts. Á safninu má finna fjölbreyttan safnakost og gefinn verður út bæklingur um allt íþróttaefni safnsins.

Náttúrufræðistofa Kópavogs - Jurtagreining
Keppni í jurtagreiningu (kl. 17) fer fram í Náttúrufræðistofu Kópavogs. Einnig verður sýning safnsins opin en þar má finna ýmis dýr, fiska og steina.

Listatún – Hundafimi
Skuggi, Fluga, Helja og allir hinir hundarnir frá íþróttadeild Hundaræktarfélags Íslands sýna listir sínar (kl. 18).


Götuleikhús Kópavogs og Kær-leikur verður með uppákomu. Sprell leiktæki á svæðinu fyrir yngri kynslóðina. Pylsur, gos og popp verða í boði SPK á Hálsatorgi.

Allir velkomnir á menningarhátíðina – Enginn aðgangseyrir