Fréttasafn
Breytingar á skipuriti Kópavogsbæjar
Bæjarráð Kópavogsbæjar hefur samþykkt nýtt skipurit fyrir rekstur bæjarfélagsins.Á fjármála- og stjórnsýslusviði hefur verið stofnuð upplýsingatæknideild um rekstur tölvukerfa. Auk þess hefur verið myndað sérstakt skipulags- og umhverfissvið en undir það heyrir byggingareftirlit og bæjarskipulag.
Ingimar Þór Friðriksson tölvunarfræðingur var ráðinn í stöðu forstöðumanns upplýsingatæknideildar og Birgir Hlynur Sigurðsson í stöðu sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs.
Skipurit Kópavogsbæjar (pdf 343 KB)
