Fréttasafn

Hver að verða síðastur að tryggja sér miða

3.6.2008

Tónlistarunnendur eru hvattir til að kynna sér vandlega þá fjölbreyttu viðburði sem framundan eru í Salnum og ná sér í miða fyrr heldur en seinna. Lokað verður vegna sumarleyfa í júlí og byrjun ágúst.


SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ KL. 20 UPPSELT!
PÍANÓTÓNLEIKAR TIL MINNINGAR UM BIRGI EINARSON
VÍKINGUR HEIÐAR ÓLAFSSON

Á efnisskránni eru Eroica Varíasjónir op. 35 eftir Beethoven, 16 valsar op. 39 eftir Jóhannes Brahms, Reykjavík by Night (frumflutningur á 5 míníatúrum) eftir Ólaf Axelsson, 7 Fantasíur op. 116 eftir Brahms og Scherzo nr. 3 op. 39 eftir Chopin. Miðaverð 2500 kr.

MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ KL. 18
SÖNGKONAN – LA CANTERINA

Gamanópera eftir Joseph Haydn í flutningi nemenda söngdeildar Tónlistarskóla Kópavogs.
Flytjendur: Ragnar Ólafsson, Ragnheiður Sara Grímsdóttir, Elva Lind Þorsteinsdóttir og Elín Arna Aspelund. Leikstjórn: Anna Júlíana Sveinsdóttir. Píanóleikur: Krystyna Cortes. Aðgangur ókeypis, allir velkomnir!

FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ KL. 20
SÖNGKONAN – LA CANTERINA

Gamanópera eftir Joseph Haydn í flutningi nemenda söngdeildar Tónlistarskóla Kópavogs.
Aðgangur ókeypis, allir velkomnir!

JAZZ- OG BLUESHÁTÍÐ Í KÓPAVOGI HELGINA 6. – 8. JÚNÍ 2008
Fyrstu jazz -og blueshátíðinni í Kópavogi verður hleypt af stokkunum dagana 6.- 8. júní næstkomandi og er ráðgert að gera hana að árlegum viðburði í bæjarlífinu. Tvennir tónleikar eru í Salnum:

FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ KL. 21
BLUESVEISLA Í SALNUM

Allir helstu bluesmenn landsins; Bluesband KK með gítarhetjuna Björgvin Gíslason innanborðs. Sérstakir gestir verða bluesgítarleikarinn og söngvarinn góðkunni Magnús Eiríksson, fyrsti heiðursfélagi blues-félagsins og hinn þekkti blues-kóngur Halldór Bragason. Miðaverð 2500 kr.

LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ KL. 21
JAZZVEISLA Í SALNUM

Jazzband undir stjórn Björns Thoroddsen, sem jafnframt er listrænn stjórnandi fyrstu Jazz-og blueshátíðar Kópavogs ásamt þrem af snjöllustu söngvurum landsins, þeim Andreu Gylfadóttur, Björgvini Halldórssyni og Stefáni Hilmarssyni, sem syngja nokkrar skemmtilegar söngperlur í jazzútsetningum. Miðaverð 2500 kr.

FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ KL. 20
EIVÖR OG RAGGA

ásamt Kjartani Valdimarssyni og Pétri Grétarssyni.
Þjóðleg tónlist, frumsamin, gömul og ný. Miðaverð 2000 kr./ 1600 kr.

FIMMTUDAGUR 19. JÚNÍ KL. 20
TVEIR RAFMAGNAÐIR FRÁ LETTLANDI
Raffiðlarinn Raimonds Ozols og hljómborðsleikarinn Raimonds Macats halda magnaða djass-rokk tónleika í tilefni af því að á þessu ári eru liðin 90 ár frá stofnun Lettneska lýðveldisins. Miðaverð 2000 kr./ 1600 kr.

HÁTÍÐ NORRÆNNA HORNLEIKARA - NORDHORNFEST 2008
Dagana 18. – 22. júní 2008 verður í fyrsta sinn á Íslandi haldin Hátíð norrænna hornleikara.
Tvennir tónleikar á hátíðinni fara fram í Salnum, Tónlistarhúsi Kópavogs. Nánari upplýsingar um dagskrá hátíðarinnar og einleikara tónleikanna er að finna á vefsíðunni www.nordhornfest2008.com

MIÐVIKUDAGINN 18. JÚNÍ 2008 KL. 20
KAMMERSVEIT REYKJAVÍKUR OG GESTIR
Opnunartónleikar á HÁTÍÐ NORRÆNNA HORNLEIKARA. Auk Kammersveitarinnar koma fram nokkrir af okkar frábæru íslensku hornleikurum og þrír af fremstu hornleikurum Norðurlanda: Esa Tapani, Annamia Larsson og David M.A.P. Palmquist. Stjórnandi er Petri Sakari. Miðaverð 1500 kr. 67 ára og eldri, námsmenn og öryrkjar 1000 kr. Þátttakendur á ráðstefnunni ókeypis.

LAUGARDAGUR 21. JÚNÍ 2008 KL. 16
GALA-TÓNLEIKAR Í SALNUM
Lokatónleikar á HÁTÍÐ NORRÆNNA HORNLEIKARA eru í þremur hlutum. Í fyrsta hluta koma fram tvær heilar sinfónískar horndeildir og gestir þeirra og verða tveir heimsfrumflutningar í boði. Fyrst leika hornleikarar úr Sinfóníuhljómsveit Íslands tónlist eftir Mendelssohn, Benedikt Hermann Hermannsson og Christer Danielsson. Verk Benedikts Áfram var samið sérstaklega fyrir hátíðina og verður frumflutt hér. Í Konsertant Svit eftir sænska tónskáldið Danielsson spilar Tim Buzbee túbuleikari SÍ einleik. Síðasta atriði fyrir fyrsta hlé verður annar frumflutningur: Lacrimæ eftir hið virta þýska tónskáld Volker David Kirchner. Horndeild Útvarpshljómsveitarinnar í Frankfurt býður upp á þennan flutning ásamt hörpuleikara Sinfóníuhljómsveitar Íslands Katie Buckley. Annar hluti tónleikanna verður í mun léttari dúr. Hér koma fram hinar vinsælu sveitir Brak og Brestur úr Mosfellssveitinni og Wonderbrass stúlkurnar hennar Bjarkar Guðmundsdóttur. Síðast en ekki síst koma saman stórsveitir heimamanna og gesta og leika nokkur verk fyrir fjölda horna og hátíðinni lýkur á glæsilegum nótum með flutningi úrvalssveitarinnar á vinsælli tónlist eftir Gabrieli, Beethoven og fleiri.
Miðaverð 1500 kr. 67 ára og eldri, námsmenn og öryrkjar 1000 kr. Þátttakendur á ráðstefnunni ókeypis.

FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ KL. 20
ERATO PÍANÓTRÍÓIÐ Á TÓNLEIKAFERÐ UM ÍSLAND

Erato píanótríóið, skipað breska píanóleikaranum John Paul Ekins, rússneska fiðluleikaranum Ilya Movchan og þýska sellóleikaranum Juliu Morneweg leikur Píanótríó í D-dúr op. 70 nr. 1, "Ghost" eftir Ludwig van Beethoven, Tríó Elegiaque í g-moll op. posth eftir Sergej Rachmaninov, Tree-yO! eftir Avner Dorman og Píanótríó í e-moll "Dumky" eftir Antonin Dvorák. Miðaverð 2000 kr./ 1600 kr.

SALURINN ER LOKAÐUR Í JÚLÍ OG BYRJUN ÁGÚST VEGNA SUMARLEYFA. SKRIFSTOFA SALARINS VERÐUR OPNUÐ Á NY MÁNUDAGINN 11. ÁGÚST 2008.

Starfsemi Salarins hefst á ný að loknu sumarleyfi þriðjudaginn 5. ágúst þegar Tónlistarhátíð unga fólksins verður haldin í fyrsta sinn hér á landi dagana 5. – 17. ágúst á Borgarholtinu í Kópavogi.

TÓNLISTARHÁTÍÐ UNGA FÓLKSINS
Markmiðið með Tónlistarhátíð unga fólksins er að skapa vettvang þar sem tónlistarnemendur á hinum ýmsu stigum náms geta komið saman og lært af frábærum listamönnum. Tímasetning námskeiðsins er engin tilviljun. Þessum tveimur síðustu sumarleyfisvikum er ætlað að verða nemendum sem vítamínsprauta í byrjun skólaárs og gefa þeim tækifæri til að vinna hérlendis með framúrskarandi tónlistarfólki. Hátíðin er þríþætt: Námskeiðshald, tónleikaröð nemenda og tónleikaröð leiðbeinenda í Salnum. Hátíðin verður haldin á menningarreit Kópavogs þar sem Salurinn,Tónlistarskólinn, Ungmennahúsið, Gerðarsafn og Kópavogskirkja standa. Í boði verða námskeið fyrir nemendur sem lokið hafa grunnprófi, miðprófi, framhaldsprófi og þá sem eru í háskólanámi.

Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð á www.musicfest.is

Starfshópurinn sem vinnur að hátíðinni:
Guðný Þóra Guðmundsdóttir gudny@musicfest.is
Helgi Jónsson sími: 8663739 helgi@musicfest.is
Arnþrúður Gísladóttir sími: 8480524 arnthrudur@musicfest.is
Þorgerður Edda Hall sími: 8465264 thorgerdur@musicfest.is


NETSALA www.salurinn.is – opið allan sólarhringinn.

ATHUGIÐ! Ekki er hægt að kaupa afláttarmiða á netinu.

Miðasala Salarins er opin mán. – fös. kl. 10.00 - 16.00 og klst. fyrir tónleika. Sími 5700400.