Fréttasafn

Vatnsveita opnuð ? vatnsskattur lækkaður

23.11.2007

Ómar Stefánsson, formaður bæjarráðs Kópavogs, og Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri bragða á vatninu úr nýju vatnsveitunni. Mynd: KrissýKópavogsbær hefur tekið í notkun eigið vatnsból í Vatnsendakrikum í Heiðmörk. Fram að þessu hefur Kópavogsbær keypt vatn af Orkuveitu Reykjavíkur (áður Vatnsveitu Reykjavíkur) en bæjarfélagið verður framvegis sjálfu sér nægt um vatn og hefur auk þess gert samning um vatnsöflun fyrir Garðabæ til 40 ára.


Í tilefni af þessum merku tímamótum í rekstri bæjarfélagsins hefur verið ákveðið að lækka vatnsskattinn í Kópavogi um 10%, úr 0,13% af heildarfasteignamati í 0,117 frá og með 1. janúar 2008.

Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, og Ómar Stefánsson, formaður bæjarráðs, tóku vatnsveituna formlega í notkun við athöfn í stöðvarhúsinu í Vatnsendakrikum í dag með því að opna fyrir borholurnar og aðveitulögnina.

„Þetta á sér langan aðdraganda og flókinn,“ sagði Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri, „en framkvæmdin er í höfn á þeim tíma sem við áætluðum, þótt við hefðum kosið að þetta gengi enn hraðar.“

Stöðvarhús vatnsveitunnar í Vatnsendakrikum íHeiðmörk. Mynd: Krissý

Framkvæmd vatnsveitunnar skiptist að mestu leyti í tvo hluta, annars vegar sjálfa dælingu vatnsins úr borholum ásamt nauðsynlegum tækjabúnaði, stöðvarhúsi og vatnsgeymi, og hins vegar lagningu vatnsleiðslunnar frá borholustað til dreifikerfis. Kostnaðurinn við framkvæmdina nemur ríflega 700 milljónum króna.

Boraðar hafa verið 4 vinnsluholur suðvestur af núverandi borholum OR í Vatnsendakrikum. Settar hafa verið dælur í hverja vinnsluholu sem dæla vatni upp í vatnsgeyminn. Meðaldæling úr holunum verður að hámarki 210 l/s eða um 6.6 milljón m3 ári.

Stöðvarhús og um 1000 m3 vatnsgeymir er við borholurnar. Stöðvarhúsið er um 170 m2 og um 3,5 m hátt og sambyggt vatnsgeymi og er byggt yfir vinnsluholurnar. Í stöðvarhúsinu verður m.a. spennistöð, rafstöð og vélasalur ásamt hreinlætisaðstöðu. Vatnsgeymirinn er um 6,5 m hár og um 200 m2 að flatarmáli.

Lögð var vatnslögn frá vatnsgeyminum við Vatnsendakrika að 4000 m3 miðlunargeymi við Vatnsendahverfi í Kópavogi. Lagnaleiðin er um 5 km löng, þar af eru rúmlega 2,5 km innan Heiðmerkur. Lagnaleiðin fylgir að mestu leyti slóðum og vegum í Heiðmörk. Við allan frágang var haft í huga að sem minnst bæri á mannvirkjunum í umhverfinu.