Fréttasafn

Góður árangur nemenda í Kópavogi

7.2.2008

Árangur nemenda í grunnskólum í Kópavogi í samræmdum prófum 10. bekkjar er uppörvandi í samanburði við meðalárangur allra skóla í Suðvesturkjördæmi.


Nemendur úr Suðvesturkjördæmi stóðu sig áberandi best í samanburði við önnur kjördæmi í samræmdu prófunum. Aðeins í náttúrufræði náði Reykjavík að fara upp fyrir Suðvesturkjördæmi og í samfélagsfræði náði hún jafngóðum árangri. Í öllum öðrum prófum voru meðaltöl Suðvesturkjördæmis hæst.

Námsmatsstofnun hefur enn ekki birt árangurinn í normaldreifðu formi þannig að erfitt er að bera saman árangur einstakra skóla við landið allt. Þrátt fyrir það er mögulegt að komast að ákveðnum niðurstöðum þar sem ýmsar töflur eru komnar á vef stofnunarinnar.

Í íslensku var meðaleinkunn kjördæmisins 6,6. Þrír grunnskólar í Kópavogi voru yfir því meðaltali, Snælandsskóli, Lindaskóli og Kársnesskóli sem var hæstur með meðaleinkunnina 7.

Í stærðfræði var meðaleinkunn kjördæmisins einnig 6,6. Fjórir skólar í Kópavogi voru með meðaleinkunn yfir þeirri tölu en það voru Digranesskóli, Snælandsskóli, Kársnesskóli og Lindaskóli. Þar af náði Digranesskóli bestum árangri með meðaleinkunnina 6,9.

Í ensku var meðaleinkunn kjördæmisins 7,3. Í Kópavogi voru þrír skólar yfir því meðaltali, Snælandsskóli, Lindaskóli og Kársnesskóli sem náði bestum árangri með 7,8 í meðaleinkunn árgangsins.

Í dönsku var meðaltal kjördæmisins 6,9. Sex skólar í Kópavogi voru yfir því meðaltali, Digranesskóli, Snælandsskóli, Kársnesskóli, Lindaskóli, Smáraskóli og Kópavogsskóli en af þeim náði Snælandsskóli bestum árangri með meðaleinkunnina 7,6.

Í náttúrufræði var meðaleinkunn kjördæmisins 6,7 en fimm skólar í Kópavogi voru yfir því meðaltali. Það voru Hjallaskóli, Snælandsskóli, Lindaskóli, Smáraskóli og Kópavogsskóli. Af þeim náði Hjallaskóli bestum árangri með meðaleinkunnina 7,5.

Í samfélagsfræðinni var meðaleinkunn kjördæmisins 5,9. Fimm skólar í Kópavogi náðu betri árangri, Salaskóli, Hjallaskóli, Kársnesskóli, Smáraskóli og Kópavogsskóli. Af þeim náði Smáraskóli bestum árangri með 7 í meðaleinkunn árgangsins en það er betri árangur en 85% skóla á landinu öllu.

Þegar meðaltalseinkunnir skólanna í Kópavogi eru lagðar saman kemur í ljós að Kársnesskóli hefur komið best út úr samræmdum prófum 10. bekkjar í Kópavogi 2007.

Árangur einstakra skóla má meta á margan hátt. Þannig gefa meðaltöl í einstökum prófum ákveðna mynd af árangri. Einnig má athuga hversu stórt hlutfall árgangsins náði tilskilinni lágmarkseinkunn. Þegar sá þáttur er skoðaður kemur í ljós að yfir 97% þessara árganga í Lindaskóla og Snælandsskóla luku samræmdu prófi í íslensku með tilskildum árangri og 96% í Hjallaskóla í dönsku. Enn fremur vekur athygli að 100% þeirra sem tóku náttúrufræði í Hjallaskóla luku tilskildum árangri og sama er að segja um þá sem voru í samfélagsfræði í Salaskóla.