Fréttasafn

Fyrsta skóflustungan að nýju íþróttahúsi HK

19.5.2008

Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri tekur fyrstu skóflustunguna að íþróttamannvirki HK í Fagralundi.Framkvæmdir eru hafnar við byggingu íþróttahúss og félagsaðstöðu HK í Fagralundi í Fossvogsdal. Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri Kópavogs, tók fyrstu skóflustunguna að íþróttamannvirkinu og pantaði við það tækifæri Íslandsmeistaratitla í samræmi við aðstöðuna.


Byggingarsvæðið hefur verið vandlega girt af til að tryggja öryggi barna og ungmenna en stefnt er að því að ljúka framkvæmdum síðsumars 2009. Eykt ehf. skilaði hagstæðasta tilboðinu í byggingu íþróttahússins og stækkun og endurbætur á félagsaðstöðu HK og fól bæjarráð fyrirtækinu verkið. Tilboð Eyktar ehf. hljóðaði upp á kr. 488.253.993.

Íþróttahúsið nýtist handknattleiks- og blakfólki HK og verður með löglegum handboltavelli sem ætlaður er yngri flokkunum. Húsið nýtist auk þess Snælandsskóla fyrir íþróttakennslu og kemur í stað lítils íþróttasalar sem er sambyggður skólanum.

Félagsaðstaða HK stækkar verulega en byggt verður við hús sem tekið var í notkun í Fagralundi fyrir þremur árum. Þar verður meðal annars rúmlega 250 fermetra veitingasalur á efri hæð og þaðan verður hægt að fylgjast með æfingum og keppni í íþróttahúsinu. Búningsklefum fjölgar úr sex í níu og aðkoma verður bætt með torgi og fjölgun bílastæða.